Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1981, Side 15
V
Á ferö um
Dorset, Devon
og Cornwall
og heitir Hessenford, — nafniö bendir
öllu fremur til Þýzkalands en Bretaveldis.
Kirkjan þar gæti veriö þúsund ára og
sjálfsagt var aö líta inn á þöbbanum og
fá sér einn bjór áður en lagt væri í
síöasta spölinn. Þaö reyndist vera heiö-
lendi meö fé á beit og heitir því
einkennilega nafni No Mans Land, eöa
Einskismannsland. Nú er umferðin
strjálli, enda er vegurinn mjór, en
allsstaöar er hann malbikaöur. Svo
veröa brekkur og beygjur og komiö
niöur aö fallegum og hæöum girtum
firöi. Báöum megin viö hann stendur
fiskimannabærinn Looe, sem kannski
kemur mest á óvart af öllu, sem séö
veröur á þessari leiö.
Kannski er þaö vegna þess aö Looe
stendur íslendingnum nær en aörir
staðir á þessari strönd, — og þá vegna
Milton Abbas, friösælt smáþorp í Dorset.
þess aö hann þekkir lyktina, sem fylgir
seltu, tjöru og fiski. Þar liggur fjöldi
fiskibáta viö bryggjur og mikið annríki
við landanir og búöirnar opnar, þótt
komiö sé framá kvöld. En þar skilur á
milli íslenzkra sjávarplássa og Looe, aö
þar situr snyrtimennskan í fyrirrúmi;
ekkert slor og drasl út um allar trissur,
hræ af ónýtum vélum, járna- og sþýtna-
brak, sem löngum loöir við landann.
Cornwallskagi — heimur
út af ffyrir sig
Maður gengur um þessar bryggjur á
dönskum skóm og um götur sem eru
svo þröngar, aö bíll rétt mer þar í gegn.
Og ailt er tandurhreint. Nú er enda svo
komið, aö þeir í Looe eru farnir að gera
út á túrismann ekki síöur en fiskimiðin
og hótelin rísa í hlíöunum og á hæöunum
í kring. Hér er nefnilega annarskonar
veröld en sú, sem Bretinn er vanastur að
hafa fyrir augunum og sú veröld er mjög
töfrandi. Allt þetta Ijúfa og blíöa, sem
einkennir England, er hér líka: Gróöur-
inn, trén og blómin, sem skríöa uppeftir
gömlum húshliðum. Og skammt er að
fara til annarra fiskimannabæja, sem eru
síður kunnir vegna þess aö þeir láta
fiskinn duga og túristana eiga sig; bæja
eins og Polþerro, Downderry og Craft-
hole. Og raunar er Cornwallskaginn
heimur út af fyrir sig og afeöi löng leiö frá
Looe út á Landsenda; ég giska á tveggja
tíma akstur.
í Looe fengum viö inni á Hannafore
Point Hotel, sem stendur á höfða utan
15