Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Qupperneq 14
Tæknimiðstöð General Motors, Warren Michigan (194S—’56). Forgöngumenn nútíma arkitektúrs 6. þáttur Eero Saarínen Haraldur Helgason Fáir nútima arkitektar hafa verið jafn umdeildir og Eero Saarinen (1910—61). Aödáendur hans hafa hafið hann upp til skýjanna og talið hann merkasta frumherja nútíma arkitektúrs, en aðrir hafa fundið verkum hans allt til foráttu og jafnvel talið hann ómerkilegan hönnuð. Saarinen var gæddur óvenjumiklum sköpunarhæfileik- um og hann var upphafsmaður margra nýstárlegra byggingarforma, en hann leyföi sér stundum fljótfærnisleg vinnubrögð, og ýmsar útfærslur hans voru svo ónákvæm- ar, að heildarsvipur sumra verka hans galt þess. Skerfur hans til nútíma arkitektúrs var þó vissulega mjög stór og athyglisverð- ur. Hann tók við traustri teiknistofu af fööur sínum, en áður höfðu þeir feðgar starfaö saman um nokkurt árabil. Sjálfstæður ferill Eero Saarinens stóð reyndar einungis í rétt rúman áratug, en þann tíma var hann ákaf- lega athafnasamur og vann myrkranna á milli. Verk hans eru ótrúlega fjölskrúðug og ólík innbyrðis. Hann gerði fjölmargar til- raunir með byggingarform jafnt sem ný byggingarefni, og honum tókst víða mjög vel upp, einkum þó hvað varðar áhrifamik- ið útlit. Áhrif hans á tækniþróun í bygg- ingariðnaöi eru einnig mjög mikil. Eero Saarinen fæddist í Kirkkonummi, skammt frá Helsingfors í Finnlandi árið 1910, sonur Eliel Saarinens (1873—1950), eins fremsta arkitekts Finna um það leyti, er Eero fæddist. Eliel Saarinen er þekktast- ur fyrir teikningar sínar af aðaljárnbraut- arstööinni í Helsingfors, en það verkefni vann hann í samkeppni ásamt tveim félög- um sínum árið 1904. Hann rak sjálfstæða arkitektastofu frá árinu 1907 og féll út- færsla járnbrautarstöðvarinnar í hlut hans. Þeirri vinnu lauk árið 1914, en styrjaldarár- in og kreppuárin, er á eftir fylgdu, gerðu arkitektúrstörf lítt eftirsóknarverð í Finn- landi, peningalega séö. Eliel tók þátt í sam- keppni í Bandaríkjunum, sem dagblaö nokkurt í Chicago stóð fyrir árið 1922 og hlaut þar önnur verðlaun. Verðlaunaupp- hæðin geröi honum kleift aö flytjast til Bandaríkjanna með fjölskyldu sína árið 1923. Var hann þá næstum fimmtugur. Saarinen-fjölskyldan dvaldist skamman 14 Kresge-kapellan MIT háskóla, Massachus- etts (1953—’56). tíma í New York, en fluttist síðan til bæjar- ins Cranbrook, norðan við Detroit. Með að- stoð bílaauðjöfursins George C. Booth setti Eliel Saarinen þar á stofn arkitekt- úrskóla, sem hann starfrækti í aldarfjórð- ung. Eero Saarinen ólst upp í umhverfi skóla föður síns, en á hverju sumri, allt fram til ársins 1939, hélt hann í heimsókn til skyldmenna sinna í Finnlandi. Hann hugð- ist upphaflega gerast myndhöggvari (sculptor) og í því skyni hélt hann til Parísar og nam skúlptúr á árunum 1929—31. Eftir þaö ákvað hann þó að sööla yfir í arkitekt- úr. Hann kaus þó ekki að nema viö skóla föður síns, heldur innritaðist í Yale-háskól- ann. Lauk hann þar námi á þremur árum og vann til fjölmargra heiðursverölauna á lokaprófi 1934. Fyrst að námi loknu starf- aði hann á arkitektastofu Norman Bel Geddes, og ferðaðist auk þess talsvert um Evrópu, en árið 1936 hóf hann síöan störf hjá föður sínum. Fyrst í staö sinnti Eero Saarinen sérstaklega hönnun húsgagna og vann ásamt félaga sínum tvenn fyrstu verö- Jefferson-minnismerkid, St. Louis. Samkeppni 1947 (reist 1959—’64) TWA-flugstöðin Kennedy-flugvelli, New York (1956—’62). laun í samkeppni, sem Nútímalistasafnið í New York stóð fyrir árið 1940, en síðari heimsstyrjöldin kom í veg fyrir að sýning yröi haldin á veröiaunatillögunum fyrr en árið 1946, og framleiðsla húsgagna eftir þeim hófst heldur ekki fyrr en þá. Á styrjaldarárunum fengu Saarinenfeög- arnir verkefni frá bandaríska varnarmála- ráðuneytinu, og höfðu þeir þá mun meira að gera en nokkru sinni fyrr. Störfuðu þeir meðal annars að miklum íbúöarhúsaverk- efnum í Michigan. Árið 1947 var haldin samkeppni um minnismerki Jeffersons for- seta í St. Louis, Missouri, og sendu þeir feðgar báðir inn lausnir. Hlaut Eero Saarin- en fyrstu verðlaun og markaöi þessi sam- keppni upphaf sjálfstæðs ferils hans. Af ýmsum ástæðum varð þó dráttur á því að þetta verk hans yrði útfært. Þeir feðgar unnu að nokkrum stórverkefnum á árunum strax eftir styrjaldarlok. Þeirra stærst var tæknimiðstöð fyrir hina risastóru bílafram- leiöendur, General Motors, rétt utan við Detroit. Verkefni þetta breyttist þó veru- lega eftir að hönnunarvinna hófst, því að skyndileg aukning í bílasölu breytti öllum forsendum. Eliel Saarinen var nú orðinn 75 ára að aldri og fól hann verkið í hendur Eero, syni sínum. Á þeim tíma var þetta stærsta og jafnframt dýrasta verkefni, sem einum arki- tekt hafði verið falið. Eero Saarinen hafði alltaf haft mikinn áhuga á því að komast skrefi á undan tækninni og þeim fram- leiðsluvörum, sem á markaönum voru hverju sinni, og hjá General Motors átti Saarinen auðvelt með að láta þennan draum sinn rætast. Yfirbygging bílanna var úr stáli, og því ákvaö Saarinen að nota stál sem mest í byggingarnar. Þær voru hugs- aöar eins og þær væru settar saman á færibandi, og voru veggeiningarnar geröar úr verksmiöjuframleiddum ryðfríum stál- plötum með pressaðri einangrun á milli. Eru byggingar Saarinens fyrir General Mot- ors þannig að verulegu leyti í anda fram- leiðslu verksmiðjanna, og að ýmsu leyti mjög vel heppnaðar. Eliel Saarinen lézt ár- ið 1950, 77 ára að aldri, en verkefnin streymdu nú inn á teiknistofuna, sem Eero

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.