Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Blaðsíða 3
Sá óvænti atburöur varö hér í upphafi
skammdegis, aö íslenzkur myndlistar-
maöur, búsettur erlendis um árabil, kom
og efndi til sýningar aö Kjarvalsstööum
á nýju skipulagi fyrir Reykjavík og teikn-
ingum af næsta framandlegum húsum,
sem hann vill sjá hér í staö steinsteypu-
kassanna. Þessi maður er Þórður Ben
Sveinsson, einn af stofnendum SÚM og
löngum verið kenndur viö framúrstefnu í
myndlist, en starfandi sjónmenntakenn-
ari í Dusseldorf í Þýzkalandi um 11 ára
skeiö. Menn segja gjarna aö hugsjónir
séu sem óöast aö deyja út meö alda-
mótakynslóöinni, sem var ölvuð aö
framfarahug. En hér höfum viö þó aö
minnasta kosti eitt dæmi um mann af
yngri kynslóö, sem leggur á sig geysi-
lega vinnu viö að teikna upp hugmyndir
sínar, bæöi af skipulagi Reykjavíkur, svo
og einstökum geröum húsa, — og tekur
á sig þann kostnaö aö flytja þetta til
islands og sýna að Kjarvalsstöðum án
þess aö hafa von um aö hægt sé aö selja
uppí innrömmunarkostnaö, hvaö þá
meira.
Hvaö geröist svo? Sum dagblaðanna
sáu ástæöu til aö ræöa viö Þórö; þar
geröi hann grein fyrir hugmyndum sínum
og ekkert nema gott um þaö aö segja.
Frá arkitektum heyröist hvorki stuna né
hósti, og heföi þó staöiö þeim næst að
hefja umræður og skoöanaskipti um
sýninguna og hugmyndirnar, sem þar
voru reifaöar. Hjá almenningi hefur sýn-
ingin ugglaust fariö fyrir ofan garö og
neðan í upphafi jólaannríkisins, enda er
fólk alveg afskiptalaust um þaö um-
hverfi, sem ókunnugum mönnum við
teikniborö þóknast aö búa til handa því.
Sýningin var tvískipt. Annarsvegar
voru skipulagshugmyndir um Reykjavík
framtíöarinnar, þegar íbúatalan hefur
tvöfaldast frá því sem nú er, en hinsveg-
ar hugmyndir um yfirbyggö ylstræti og
gerö íbúöarhúsa fyrir íslenzkar aöstæð-
ur.
Örfá orö um skipulagið fyrst. Eins og
margsinnis hefur veriö bent á hér í Les-
bók og víöar, vill Þóröur taka flugvall-
arsvæöið í Vatnsmýrinni undir byggð.
Hann gerir ráö fyrir að gamli miðbærinn
teygist þangaö svo sem eðlilegt verður
aö teljast. Á miðju svæöinu er einskonar
kjarni, eða yfirbyggt torg og liggja yfir-
byggð ylstræti út frá því. Þóröi finnst á
hinn bóginn aö ekki sé hægt aö flytja
innanlandsflugiö til Keflavíkur og vill
leysa máliö meö flugvelli vestast á Sel-
t'arnarnesi.
a/,Sfór?} Á Álftanesi gerir Þóröur ráö fyrir
allstórti bypgö raöhúsa, sem tengist
Vatnsmýrarsvæöinu meö brú. Onnur brú
tengir það við Kópavogstangann og brú
er úr Kópavogi og yfir í Nauthólsvík.
Þessar brýr eiga sinn þátt í aö stór-
minnka fjarlægðir og draga úr óhófleg-
um akstri. En Þóröur gerir einnig ráö
fyrir að borgin vaxi til austurs. Fáránleg-
ar vegalengdir innan borgarinnar eru
kostnaðarsamar og tímafrekar og svo
mjög hefur borginni veriö drepiö á dreif,
að hún er stærri um sig en sumar millj-
ónaborgir.
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Þórður hefur iagt til, að í stað hinna
kassalöguðu íbúðarblokka, verði
byggt meira af smærri húsum, þar
sem öll frumformin koma ffyrir — og
garður, yfirbyggður með gleri, á
hverju þaki. Hér má sjá þrjár gerðir
slíkra húsa.
3