Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Page 8
um nágrenniö, safna gögnum sem síðan er unniö úr á rannsóknarstofum skólanna þar sem nemendur hafa aögang aö smásjám o.fl. þ.h. Sylvi Struksnes var Sþurð hvaða mál væru efst á baugi hjá samtökunum núna. „Efst á baugi nú eru mál sem tengjast olíuborun og olíuvinnslu út af ströndum Noregs, bæöi vegna mengunar og röskun- ar á atvinnulífi. Núna á þetta einkum viö vegna olíuleitar út af ströndum Norður- Noregs. Þar er hætta á því að sjómenn laðist aö vinnu sem tengist olíuiönaðinum og fiskveiðar leggist niöur. Þetta er vanda- mál í Stavanger núna vegna olíuvinnslunn- ar í Noröursjó og allir eru sammála um aö þurfi aö leysa farsællega, bæöi stjórnvöld og fiskimenn. Komiö hefur líka til tals að reisa stóra plastverksmiðju í Noröur-Nor- egi í tengslum viö olíuvinnsluna, en við hjá náttúruverndarsamtökunum teljum aö dýrt veröi aö flytja þann varnig frá Noröur- Noregi á markaöi. Við höldum þvi fram aö vænlegra sé aö koma þar upp smærri iðn- aði, bæta fiskiönaðinn, efla jarörækt og koma á fót fleiri búgreinum. Vegna olíuvinnslunnar er lífi í sjó og fjöru hætt, eins og dæmin sanna nú þegar, vegna útblásturs og mengunar frá olíupöll- unum. Sjófuglar hafa fengiö illa útreiö og heilir árgangar af fiski geta glatast ef illa tekst til. Forsvarsmenn olíuvinnslunnar segja aö Norömenn hafi yfir aö ráöa bestu vörnum í heimi gegn oliumengun í sjó — svokallaöa „olíulensu" sem verkar eins og net á olíu- brákina. Gera átti tilraunir meö hana í sjón- um viö Noröur-Noreg til aö sanna ágæti hennar, en þá kom í Ijós aö hún var óvirk ef ölduhæö var meiri en 2'h metri. Samt er tilraunaborunum haldið áfram. Þetta er okkur áhyggjuefni. I Noröur-Noregi segja menn að ekkert stöövi olíubrák á sjónum nema fjaran. Varöandi stórar vatnsaflsvirkjanir þá er Alta-málið í fersku minni. Og nú er farið aö tala um aöra stórvirkjun sem kennd er viö Saltfjall í Nordland. Þar ætla 5 sveitarfélög aö sameinast um eina stórvirkjun en við þá framkvæmd fara 80—90 ferkílómetrar undir miölunarlón. Nú þegar eru Norðmenn búnir aö virkja 66% af því vatnsafli sem tiltækt er í landinu. Samkvæmt náttúruverndarlögum er gert ráö fyrir aö friöa 6% af því vatnsafli sem eftir er en viö viljum friöa 20%. Mýrarnar eru okkur líka áhyggjuefni. Alltaf er verið að ganga á mýrarnar og mörg dæmi eru þess aö á þeim svæöum sé settur niður stóriönaöur, aöallega ( Suður- Noregi. Viö skiljum ekki hvers vegna iön- aður þarf sama lífsvæði og vaöfuglar. Þar hefur okkur þó oröið nokkuö ágengt og fengist hefur í gegn aö friöa viss mýrlendi, að vísu ekki stór — frímerki má kalla þau. Viö höfum líka átt í deilum viö bændur vegna villtra rándýra, en í Noregi fyrirfinn- ast úlfar, gaupur, birnir og jarfar, sem eru af marðarætt. Þessi dýr voru friðuö enda sjaldgæf. Bændur hafa hins vegar haldið því fram aö þau drepi fyrir sér fé, höföuöu mál og unnu, svo friöuninni var aflétt. Nú mega þeir skjóta þessi dýr en engin engin talning hefur fariö fram, svo menn vita ekki hvenær síöasta dýriö fellur. Okkur finnst hins vegar sjálfsagt að bændur fái bætur þegar sannaö er aö þeir hafi misst skepnu vegna þessara villtu dýra. Þessi rándýr drepa sér til matar, þegar þau eru svong. Þau eru hluti af norskri náttúru. En mönnum hættir til aö yfirfæra mannvonsku á þessi dýr. „Gaupa drepur kind“, svona frétt er slegið upp með stórum stöfum í blöðunum. En er þaö frétt? Norskir bænd- ur skilja ekki þennan þátt í náttúrunni. Viö viljum heldur bæta þeim skaðann en út- rýma tegundinni. Þá get ég einnig nefnt þaö sem við köll- um „súra rigningu“ en hún er vaxandi áhyggjuefni náttúruverndarsamtakanna í Noregi, einkum í suöurhluta landsins. Hún stafar frá iönríkjum sunnar í Evrópu. Brennisteinsdioxíd úr reykháfum verk- smiöja stígur til lofts, berst víða um líka til norðurs og fellur til jaröar meö regninu. Afleiöingar eru þær aö vötn veröa fiskilaus. i Suður-Noregi eru 11000 ferkílómetrar 8 stööuvatna orðin fiskilaus vegna þessa og 13000 ferkílómetrar á mörkum þess aö veröa þaö. Umhverfismálaráðuneytið norska hefur brugöist viö og beint tilmæl- um til verksmiöja í Evrópu um aö nota brennisteinsrýrari olíu. Aöildarlönd Efna- hagsbandalagsins hafa loks skilið þessa hættu og þar er farið aö ræöa þetta mál og úrbætur. Nýlega sendi belgíska sjónvarpið kvikmyndafólk til Suður-Noregs til að taka kvikmyndir og kynna ástandið í Belgíu og víðar og almenningsálitið er okkar megin. Við fræöum túrista frá Miö-Evrópu um þessi mál — þeir kynna þau síöan heima hjá sér. Þeim er líka Ijóst aö um leiö og farið er að gera eitthvað í málinu lagast þeirra eigið andrúmsloft. Samt er augljóst aö mikill skaöi veröur oröinn áöur en þess- ari þróun verður snúiö viö. Stór-iðnaöinum vex stööugt fiskur um hrygg, svo mikiö má ef duga skal. Áróöur okkar beinist líka aö hinum al- menna borgara. Viö hvetjum hvern og einn til aö líta í kring um sig í sínu eigin umhverfi — sínu nánasta umhverfi. Hvernig er leiksvæði barnanna og leikvellir viö skóla, útivistarsvæöin, eigin húsagarður eða bara gróðurkassinn á svölunum? Fyrir nokkrum árum var gengist fyrir sér- stöku átaki undir kjöroröinu „Plant et træ“, en þaö voru garðyrkjufélögin sem áttu þaö frumkvæði. Þaö bar góöan árangur. Og viö höldum áróörinum áfram og hvetjum fólk til aö gera umhverfi sitt hlýlegra. Reyndar veröur þaö æ algengara aö fólk kýs aö rækta sitt grænmeti sjálft í eigin göröum og þá jafnvel á kostnaö skrautblóma. „Hvaöa þjóöfélagshópar eru það sem sýna náttúruverndarmálum áhuga öörum fremur?" „Samkvæmt skoöanakönnun sem fram fór ekki alls fyrir löngu er þaö fólk úr öllum stjórnmálaflokkum, þetta eru „þverþóli- tísk" mál. En flest er þarna þó um að ræöa fólk meö háskólamenntun (65%) eöa aöra álíka menntun og þeim fjölgar. Töluveröur fjöldi svaraöi þvi í könnuninni aö þeir þekktu ekki nógu vel til en voru þó reiöubúnir aö skoða málið — og svo voru loks þeir sem hvorki vilja eöa geta skiliö samhengiö — vilja aöeins ganga á land- og náttúrugæði." „Hver er afstaöa norskra stjórnvalda?" „Þar gætir nokkuö mikiö tregöulögmáls- ins eins og fram hefur komiö. Jú, náttúru- vernd er sjálfsögö og fastur liður á stefnu- skrá stjórnvalda og allir eru sammála um aö sinna þurfi þeim málum, en þar er ekk- ert nánar tiltekiö hvað á að vernda, hve mikiö eöa hvar. Svo þegar einstaka nátt- úruverndarmál koma til umræöu í Stór- þinginu þá segja menn, jú, jú, við viljum vernda, en ekki þetta — og svo um næsta mál, jú, en ekki þetta. Hvaö veröur þá eftir aö lokum? í slíkum tilvikum þegar viö teljum nátt- úruverðmætum hætt vegna einhverra framkvæmda, þá leggjum viö fram okkar gagntillögur og sendum ráöamönnum. Þeir eru því miður oftast ansi tregir eöa hug- myndasnauöir kunna ekki aö hugsa inn í framtíðina. Trúa okkur ekki eöa nenna ekki aö lesa bréfin frá okkur. Viö viljum t.d. halda því fram að meö samstilltum orkusparnaði séu stórvirkjanir óþarfar eins og komiö er í Noregi enda lítiö oröiö eftir aö virkja sbr. þaö sem fyrr er sagt. Viö sjáum þó rofa til. Borregárd, eitt stærsta iðnfyrirtæki í Noregi, hefur unnið aö endurmati á orkuþörf fyrir framleiösluna og þar kemur fram aö hægt er aö spara gífurlega orku, auðvitaö meö miklum til- kostnaöi í byrjun en til lengdar er sá kost- urinn miklu hagkvæmari. Þarna er um að ræöa kostnað upp á 2—3 milljarða norskra króna og breytingin tekur 1—2 ár fáist hún í gegn. En stjórnvöld vilja heldur eyöa milljöröunum í nýjar virkjanir frekar en flytja þá yfir í „sparnaöar-kassann". Sparnaður má ekkert kosta þótt vitað sé aö hann sé hagkvæmari fyrir framtíöina. En þegar stórfyrirtæki eins og Borregárd hefur komið auga á réttmæti málsstaöar náttúruverndarmanna, þá fara stjórnmála- mennirnir ef til vill aö hugsa sig um í al- vöru.“ „Grösug hlíð meö berjalautum“ þar sem heitir Strynsvatn. Hér ríkir þessi rómaöa norska landsli sýnist. Þetta stóra og 200 metra djúpa fjallavatn er nú oröiö fiskilaust vegna þess, aö þangaö berst Evrópu. Smtals 13 þúsund ferkm. af veiöivötnum í Noregi eru að verða fiskilaus af sömu ástæöu Stærsti foss í Noregi er Vöringsfossinn í innra Haröangursfiröi. Falliö er 180 metrar. Fimmti hluti vatnsaflsins hefur þegar verið virkjaöur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.