Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Page 11
AKNRÆNT
IYJA TIMA
Gaddafi kveöst sækja mátt
sinn í trúna og draumur
hans er stórarabískt ríki —
aö sjálfsögöu undir hans
eigin stjórn. Hér biöst leiö-
toginn fyrir í eyöimörkinni.
Þær fá leyfi á meögöngutímanum og laun
eftir barnsburö.
Eigi aö síður er Gaddafi hættulegasti
maður í heimi. Þessi fyrrverandi bedúíni
hefur sjúklega ágirnd á „stóra egginu", eins
og hann kallar kjarnorkusprengjuna. Þegar
áriö 1975 hóf „byltingarforinginn" aö fjár-
magna kjarnorkuáætlun í Pakistan. Og sér-
fræðingar búast viö, að hinir pakistönsku
vísindamenn muni brátt geta smt'öaö
sprengju. En þó hafa samskipti Líbýu og
Pakistan versnaö undanfarið. En heima hjá
honum í Líbýu eru Sovétmenn að byggja
handa honum litla tilraunastöð, en sagt er,
að hún komi atómsprengjusmíöi ekkert
viö. En bandarískir sérfræöingar eru fullir
tortryggni. Höfundar bókarinnar „Fimmti
riddarinn" telja sig horfa fram í tímann. I
skáldsögunni, þar sem staöreyndir eru
hafðar meö, er því lýst, hvernig Gaddafi
beitir Bandaríkjastjórn kúgun — meö fal-
inni kjarnorkusprengju í New York. Gaddafi
brosti út undir eyru, þegar hann var eitt
sinn spuröur um álit sitt á bókinni. „Þetta
er góö saga, en kjarnorkuna á aöeins að
nýta í friðsamlegum tilgangi."
Þessi strangi múhameðstrúarmaður,
sem þegar eftir valdatöku sína bannaði
áfengi, fyrirbauð vændi, rak alla útlendinga
á burt og lagði meira að segja bann viö
hárgreiðslustörfum, af því að þetta sam-
rýmdist ekki kóraninum, óttast þó sjálfur
um líf sitt. Hann skiptir um svefnstað á
hverri nóttu, aldrei er skýrt frá ferðaáætl-
unum hans og i varúöarskyni sendir hann í
hverri ferö annan bíl eöa aðra flugvél á
undan. Eftir síöustu för hans til Moskvu
reyndist þessi aðferö árangursrík, því að
vélin, sem hann sendi á undan sér, þegar
hann sneri til baka til Trípólí, var raunveru-
lega skotin niður — yfir Líbýu. Gaddafi er
sagður eiga 10 milljóna dollara villu í
Grikklandi, og hún á að vera búin rafeinda-
öryggisbúnaði og leynileg göng kváðu
liggja til sjávar.
Jafnvel nánustu trúnaðarmenn hans vita
aldrei, hvað „leiðtogi byltingarinnar" ætlist
fyrir næst. Þessi ofstopi vinnur 19 stundir á
sólarhring, þó að oftsinnis hverfi hann á
braut til að iðka hugleiðslu og sé að því
heila viku. Þá situr hann í tjaldi úti í eyöi-
mörkinni. „Ég er friðarboði alls heimsins,"
segir hann við sjálfan sig, og í bók sinni,
„Þriðja allsherjarkenningin", skrifar hann,
hvernig hann hugsi sér heiminn. Hann af-
skrifar kapítalismann, því að honum fylgi
arðrán. Hann afskrifar kommúnismann, því
hann sé guðlaus. Tími Janahitiyah, „ríkis
fjöldans", sé runninn upp.
En þó virðist Gaddafi ekki geta innleitt
hina „gullnu framtíð" með friðsamlegum
hætti, heldur aöeins með ofbeldi og hryðju-
verkum. 12 islamskir þjóðarleiðtogar hafa
þegar slitið stjórnmálasambandi við þenn-
an ofstækismann.
— SvÁ — úr „BUNTE“
Fyrir eina slíka eldflaug mætti rækta heil flæmi af eyöimörk Líbýu, því þaö er mjög auðvelt og útheimtir ekki annað en
vatn, sem er fyrir hendi, ef borað er. En áherzla Gaddafis er öll á að birgja sig upþ af vopnum og hér er nýjasta
dásemdin af því tagi sýnd lýðnum við hátíðlega athöfn.