Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Qupperneq 15
> Skáldin yrkja betur en oft áður hún klykkti út meö því aö segja, aö eng- inn skyldi nefna konur kjöt í sinni nær- veru. Og þaö rann upp fyrir mér, aö konan haföi misskiliö mig aldeilis herfilega, en áöur en ég gat komiö upp oröi til aö leiörétta þennan leiöa og sorglega mis- skilning var hún búin að spyrna mér út á tröppur og skella huröinni aftur. Hún birtist í glugga eftir andartaksstund og hótaöi mér lögreglunni ef ég heföi mig ekki á brott úr garðinum þegar í staö. Ég tók þann kostinn aö hverfa á braut sárhryggur og brúðarkjólslaus. Nú virt- ust mér öll sund lokuö, hvergi var brúö- arkjól aö fá, og nú yröi kjötkaupmaður- inn í Kjötbúöinni Bjúgnakræki æfareiö- ur. Ég sá fyrir mér atvinnu- og ærumissi og þóttist þess fullviss, að þaö tæki mig langan tíma aö ná mannorði mínu á nýj- an leik eftir þessar auömýkjandi uppá- komur. Reyndar tókst mér stuttu síðar aö ganga frá kjötbúðargluggaútstillingunni, þó þaö væri ekki alveg eins og um haföi verið samiö upphaflega. Þannig vildi til, aö kunningi minn bjó nokkru utan viö bæinn, og átti þar nokkur svín, sem voru nýbúin aö eiga þessa gríðarlega snotru grislinga. Ég fékk tvo grislinga lánaða og stóran kassa undir þá, og fór meö þaö í kjötbúðina, þegar ég þóttist viss um aö kjötkaupmaöurinn væri úti, og sagöi viö innanbúöarmanninn, aö hér væri loksins umrædd gluggaútstilling komin, hvort hann gæti ekki hjálpaö mér aö koma henni fyrir og borga mér svo reikninginn. Hann geröi þaö af stakri greiövikni, og ég fór hiö snarasta niöur á umferöar- miöstöö og keypti mér farmiöa í ónefnt sjávarþorp, þar sem ég vissi aö þörf væri fyrir farandverkamenn. Af kjötkaupmanninum og Kjötbúöinni Bjúgnakræki frétti síðan ekkert fyrr en nokkum dögum seinna, aö sagt var í útvarpsfréttum aö heilbrigöiseftirlitiö haföi lokaö búöinni vegna ólöglegs dýrahalds í sýningarglugga verslunar- innar. Næstu daga á eftir liföi ég milli vonar og ótta um aö kaupmaðurinn kæmist aö því hvar ég væri niöurkom- inn, en bragö mitt virtist hafa heppnast, og smám saman hvarf mér hræöslan. Svo var það einhverju sinni, ári síöar, aö ég var aö taka til uppi á háalofti aldraörar konu í þorpinu og rakst á ægi- fagran brúöarkjól vafinri í plast. Gamla konan féllst á að gefa mér kjólinn, og ég sendi hann meö flutningabílnum suöur meö kærri kveöju til kaupmannsins í Kjötbúöinni Bjúgnakræki. ÚtKcfandi: Ilf. Árvakur. Rcykjavik Framkv.stj.: llaraldur Svcinssun Uitstjórar: Matthias Juhanncsscn Styrmir Gunnarsson Kitstj.fltr.: Gisll SÍKuróssun AuKÍýsinKar: Baldvin Junssun Rltstjórn: AAalstrætl fi. Siml 10100 Engum þýðir að keppa við skáld um vinsældir, ef það á annað borð er ástsælt hjá þjóó sinni. í rauninni má segja, að þjóðin gangi svo langt í væntumþykju sinni, að hún slái eign sinni á skáldiö formálalaust med því að kalla þad „þjódskáld Og Tómas Guömundsson hefur auk heldur orðið að „borgarskáldi“ og þar með sérstakt stáss Reykvík- inga, svo að það er betra fyrir menn utan af landi að hafa ekki of hátt um það, efþeir kunna að meta Ijóð- in hans. Þessar vinsældir skáldanna breytast ekki með árstíðunum eins og þau væru stjórnmálamenn á við- kvæmum aldri eöa poppstjörnur. Til þess ristir væntumþykjan allt of djúpt, — jafnvel svo að heil kynslóð sér ekki önnur skáld en þetta eina, sem hún kallar þjóðskáldiö sitt, með þeim afleiðingum, að það verður kannski vanmetið næsta mannsaldur á eftir. Síðan þokar því aftur upp á við í skáldastiganum en þó sjaldnast jafnhátt og forðum. Kristján fjallaskáld var mest lesið allra skálda um sína daga, eftir því sem mér er sagt. Við lestur Ijóða hans getur þetta ekki komið á óvart, því að hann ögrar jafnvel Jónasi Hallgrímssyni meö því að vera svo blátt áfram og alþýðlegur í Ijóðum sínum, Ijóðaþýðingum og stökum, að það er fullkomlega rétt- mætt að nefna þá tvo í sömu and- ránni, þegar báðum tekst bezt upp. Guðmundur Friðjónsson á Sandi er svo kjarnyrtur í Ijóðum sínum, sög- um og greinum, að Halldór Laxness verður að gæta sín, þegar skáld- bóndinn fyrir noröan tekur flugiö. Ef maður gefur sér tíma og næði til aö njóta þess, sem þessir menn hafa skrifað og ýmsir aðrir þeirra jafningjar (og þó þeir nái því ekki), verða þær stundir lengi minnis- stæðar og gagnlegar. Frá því ég man eftir mér hefur verið uggur í mönnum sakir þess, að heldur fari þeim fækkandi sem verðskulda skáldaheitið. Þessum umræðum er gjarna haldið uppi af miðaldra fólki og eldra, sem ekki hefur lengur nennu til þess að fylgj- ast með nýjum straumum, af því að það er svo önnum kafið við að rifja upp og tileinka sér það, sem það hafði vanrækt svo lengi, — skáld sinnar eigin kynslóðar. Ég var svo lánsamur að vera af kynslóð, sem átti sitt Ijúflingsskáld, Hannes Pétursson. Kvæðabók hans gleyptum við með húö og hári og sulgum í okkur Ijóðþyrstum munni, busár í menntaskóla, sem áður höfðum fyrir satt, að engir hefðu ort betur Erni Arnarsyni og Þorsteini Erlingssyni, að ógleymdum þeim fjórmenningunum, Davíð frá Fagra- skógi, Tómasi Guðmundssyni, Steini Steinarr og Jóhannesi úr Kötlum. Sjödægra var okkur opin- berun og við gátum aldrei komizt yfir það, að stökunni skyldi ortur dýrasti óðurinn í nokkrum versum óstuóluðum og órímuðum: í sléttubönd vatnsfelld og stöguð hún þrautpíndan metnað sinn lagði í stuðla hún klauf sína þrá við höfuðstaf gekk hún til sauða. Það var svo ógleymanlegt ævin- týri, þegar Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin. í stundarhrifn- ingu var ég svo uppnuminn, að ég vissi ekki fyrri til en ég var kominn inn á sellufund hjá kommúnistum, þar sem öðlingurinn Stefán Bjarm- an hélt erindi um skáldið. í Birtingi sagði Steinn Steinarr þessi ógleymanlegu orð, þegar hann var beðinn um að láta í Ijós álit sitt á þessari verðlaunaveitingu: Þegar miklir atburðir gerast eiga litlir menn að þegja. Þegar ég skrifa þessi orð er ég nýbúinn að hitta mann, sem er galvaskur þeirrar skoðunar, að við eigum ekki lengur nein skáld nema ofan í moldinni. Ég benti honum á, að ég hefði spurnir af nær 40 Ijóða- bókum, sem út hefðu komið fyrir þessi jól, hefði lesið sumar þeirra en blaðað í öðrum og skildi raunar ekkert í því, hversu góð skáld við ættum og batnandi mörg þeirra. Ofan í kaupið eru hljóðstafirnir aö vinna aftur á, sem ég get ekki nógsamlega dásamað, enda bók- menntasögulegt heimsslys, ef við týndum niður tilfinningunni fyrir því, hvað væri rétt og hvað röng stuðlasetning. Tunga okkar yröi töturleg á eftir og þjóðlega reisnin ekki söm og áður. Eftir það sem ég hef lesið síðustu vikurnar er ég sem sé ekki í vafa um, aö það er ort betur nú en oft áður. Mörg skáld af eldri kynslóð- inni hafa kveðiö sér hljóðs og sleg- ið á nýja strengi og ungu skáldin eru vitaskuld „alltaf á uppleið“, — sum kannski dálítiö feimin í fram- setningu, en önnur bæta það þá upp með því að vera þeim mun upprifnari. Halldór Blöndal 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.