Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1984, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1984, Qupperneq 4
I' I I l \ I I I- ► I I En hvað um það, Margeir var fyrst beð- inn að segja frá tildrögum þess að hann lagði fyrir sig taflið. „Það var pabbi sem kenndi mér að tefla og við tefldum síðan mikið saman, einnig afi minn og bróðir. í skólan- um var sömuleiðis töluverður áhugi á þessu — við vorum svona fimm, sex strákar sem lágum yfir skák- mni, og það var reyndar fyrir heimsmeistaraeinvígið 1972. En þegar það var haldið fékk maður náttúrlega alveg ólæknandi bakt- eríu. Við strákarnir héldum til úti á bókasafni meira og minna allt sumarið, þar voru nefnilega töfl og við vorum að frá morgni til kvölds. En auð- vitað var þetta á mjög lágu plani hjá okkur, við vor- um ekki eins góðir og við héldum. Það kom best í ljós þegar við fórum upp í Taflfé- lag um haustið og byrjuð- im að keppa við okkur reynd- ari stráka. Framfarirnar, beinlínis vegna einvígisins, voru hins vegar miklar. Ég hafði tekið þátt í unglingaflokki á skákþingi íslands 1972, og varð þá næstneðstur, en um haustið tefldi ég í sama flokki á haustmóti Taflfélags Reykjavíkur óg varð í öðru sæti.“ Með hvorum hélstu í heimsmeistara- einvíginu? Ég hélt með Spasskí. Það var rekinn svo mikill áróður gegn Fischer að maður lét það hafa áhrif á sig.“ Hver heldurðu að sé ástæðan fyrir því að þú hélst áfram að tefla en margir sem fengu skákdellu ’72 duttu fljót- lega út aftur? „Eg hugsa að það sé ekki síst vegna þess að ég var búinn að tefla alllengi þegar einvígið var haldið. Ég hafði teflt reglulega í ein fimm ár, þó maður væri auðvitað lélegur, og fylgst með því helsta sem gerðist. Ég fylgdist með Fischer í heimsmeistarakeppninni alveg frá 1970, og fylgdist líka með alþjóðamótunum hér heima allt frá ’68 — þá var maður að pæla í mótstöflunni. Svo var ég á góðum aldri þegar ein- vígið var, svona tólf ára, og úr því að mér gekk vel að tefla næsta vetur á eftir, þá var engin leið út úr þessu. f raun- ir inni hefur mér aldrei dottið í hug að hætta. Ég var, man ég, alveg fótbolta og náði nú aldrei miklum frama þar, en ég hafði ógurlega gaman af að fylgjast með úrslitum, til dæmis í ensku knattspyrnunni, og pældi mikið í slíku. Svo tók skákin við og maður fór að velta fyrir sér úrslitum móta, hver væri besti skákmaðurinn og svona — ég þekkti brátt hvert einasta nafn í bransanum — og svo leiddi það til þess að ég fór að stúdera skákteóríu. Ég hef, má segja alltaf haft jafn gaman af að stúdera skák og að tefla, alveg frá upphafi — það er að segja frá Fischer-Spasskí-einvíginu." Beitirðu mjög vísindalegum vinnu- brögðum í þessu grúski? „Ja, ég skrái til að mynda skákir eftir byrjunum og ætli ég sé ekki kominn með svona fimm þúsund skákir inn í þá skrá. Svo safna ég teóríubókum og reyni að ná í öll slík rit, jafnóðum og þau koma út, og náttúrlega allar nýjustu skákir sem tefld- ar eru milli stórmeistara og alþjóðlegra meistara. Svo er það mikil vinna að færa nýjustu upplýsingar inn í teóríuritin svo maður standi ekki á gati. Skákin er komin dálítið út í svona upplýsingastríð, og það ræður oft úrslitum ef annar skákmaðurinn hefur kynnt sér einhverja teóríubók sem hinn hefur ekki séð. Þetta kemur alltaf fyrir öðru hvoru. Menn eru líka sífellt að finna nýja leiki, þróa afbrigði og reyna að setja andstæðinginn út af laginu. Þetta einkennir skákina töluvert um þessar mundir." Finnst þér það neikvætt í sjálfu sér, eins og stundum er sagt? „Nei, ég get ekki fallist á það. Það er talað um að skákin sé allt í senn: list, íþrótt og vísindi, og þessar teóríurann- sóknir eru ekkert annað en vísindalega hliðin á henni." Þegar þú byrjaðir að taka skákina al- varlega, var þá einhver einn stórmeist- ari sem þú hafðir mest álit á og lærðir mest af? „Ég stúderaði Petrósjan voðalega mikið, man ég. Hans stíll höfðaði til mín, þótt ótrúlegt megi virðast, því strákar á þess- um aldri eru yfirleitt hrifnastir af glæsi- legum sóknarskákmönnum. Þegar ég var að byrja þóttu Tal, Spasskí og Fischer skemmtilegastir, ég heillaðist strax af þessum varnar- og stöðustíl sem Petrósjan er frægur fyrir. Þetta var kannski vegna þess að í fótboltanum hafði ég alltaf leikið í vörninni! En mér var sem sagt alveg sama þótt ég fengi á mig mátsókn ef ég sá fram á að ég ætti einhverja varnarmögu- leika. Síðan hefur þetta breyst töluvert mikið og ætli uppáhaldsskákmennirnir mínir núna séu ekki Fischer, Karpov og Portisch — og svo Kasparov nú síðast." Hvernig myndurðu skilgreina þinn eigin skákstíl núorðið? „Ég veit það ekki, ætli ég sé ekki bara orðinn skákstílslaus? Ég byrjaði sem sagt í mjög passífum varnarstíl og var þá ekki mjög mikið fyrir að fara í sókn, en hins vegar tók ég alltaf vel á móti ef ráðist var á mig. Svo kom nú af sjálfu sér að maður fór að tefla taktískt líka og jafnvel sækja eins og hinir! Það fór meira að segja að koma fyrir að ég fórnaði einhverju; — ég fann að ég gat það alveg þegar svo bar Illugi Jökulsson ræðir við MARGEIR PÉTURSSON einn hinna snjöllu skák- manna okkar af yngri kynslóð (Mýsanleg sæla fylgir því að standa upp frá taflborði eftir að hafa unnið Allt í einu hefur orðið nokkurs konar spreng- ing í íslensku skáklífi. Hvert alþjóðamótið rekur annað, ungu skákmeistararnir leggja hvern heimsþekktan stórmeistarann af öðr- um að velli og raka að sér titiláföngum i leiðinni, von er á mikilli stigahækkun þeirra flestra. Allt saman hófst þetta með alþjóðlegu móti sem Búnaðarbanki Islands hélt af myndarbrag fyrir nokkru, og rétt áður en það mót hófst var tekið eftirfar- andi samtal við alþjóðameistarann Mar- geir Pétursson. Margeir hefur ekki látið sitt eftir liggja á mótum þeim sem hér hafa verið haldin undanfarið; hann hafn- aði í öðru sæti á Búnaðarbankamótinu og í 4.—6. sæti á Reykjavíkurmótinu, aðeins hálfum vinningi k eftir sigurvegurunum. Lesendur Lesbókar þekkja hann aukin heldur af reglulegum skákskrifum fyrir blaðið. Af einhverjum ástæðum dróst að birta þetta samtal og er rétt að það komi fram. heltekinn af þessu og fyrir unglingamótið haustið ’72 — þegar maður fékk loksins að vera með í móti — þá gat ég ekki sofnað fyrr en seint og um síðir kvöldið fyrir fyrstu umferðina. Vaknaði svo klukkan sex um morguninn, þetta var svo mikið fjör!“ Og hvað var svona mikið fjör? „Á þessum aldri held ég að það sé met- ingurinn sem skiptir mestu máli. Strákar eru alltaf að metast um hver sé bestur í fótbolta og svo framvegis, og þeir sem eru lélegir í fótbolta vilja náttúrlega vera góð- ir í einhverju öðru. Ég fann það í skákinni — það var gaman að máta hina! Fyrir mig skipti líka miklu máli sú grúsknáttúra sem ég held að sé voðalega mikið í krökkum á þessum aldri. Ég hafði til dæmis verið í undir. Þannig að skákstíllinn er orðinn all- miklu hvassari en hann var, en samt sem áður er ég ennþá stöðubaráttuskákmaður umfram allt. Það sem Lasker kallaði klassískan stíl má líklega nota um minn stíl. Ég er sæmilega heima í teóríunni og er ekki mikið fyrir að fara í sókn upp á von og óvon, a.m.k. ekki undir venjulegum kringumstæðum." Hversu miklu máli skiptir metnaður- inn þegar um það er að ræða að ná árangri í skák? „Hann skiptir gífurlega miklu máli, metnaðurinn og sjálfstraustið. Við verðum að athuga það að skákin er sálræn íþrótt. Sálfræðin leikur mjög stórt hlutverk og ef sjálfsímynd skákmannsins versnar skyndilega þá fer hann að tefla verr. Margir skákmenn eiga erfitt með að taka áföllum. Ef þeir tapa einni skák, þá tefla þeir næstu skák á eftir líka illa. í rauninni má segja að menn séu jafn góðir í skák og þeir halda að þeir séu. Þetta hljómar kannski fáránlega en það er mikið til í þessu. Fischer, til dæmis, efaðist aldrei um 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.