Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1984, Qupperneq 13
Þessi SAAB Turbo 16 S hefur veriö endurhannaður með tilliti til lágmarks loftmótstöðu.
Uppbaflega átti þessi útgáfa, sem er búin 16 rentla (4 strokka) forþjöppumótor, að heita
SAAB Turbo 16 Aero. í Ijós kom að Opel hefur einkarétt á „Aero“ nafninu, sro SAAB rarð
að bakka með upphaflegu nafngiftina. Hámarkshraði SAAB Turbo 16 S er 210 km/klst.
hjóladrifi a la mode ’84. Það sama á við um
landa hans, Citroen BX og Visa, og enn
fremur er eitthvað verið að krukka í Peu-
geot 205 í sama tilgangi.
JAPÖNSK Gæða-
FRAMLEIÐSLA
Japanir bjóða eins og venjulega upp
mikið úrval nýrra gerða, meira en svo_
hér sé hægt að telja upp með góðu móti.
Bnda er heildarsvipurinn gegnum gang-
andi nokk sá hinn sami innan sömu stærð-
arflokka, hver svo sem skráður er fram-
leiðandi viðkomandi ferhjólungs. Rétt eins
og allir væru þeir samfeðra, en móðernið
af mismunandi toga spunnið. Japanir
brydda þó að þessu sinni upp á athyglis-
verðri nýjung, eða réttara sagt nýjum
stærðarflokki bíla. Ef til vill mætti kalla
þá rúmgæðinga, vegna þess hversu rúm-
góðir þeir eru, sambland af fjölskyldubíl,
litlum sendiferðabíl og rútukálfi. „Prairie"
heitir þessi útfærsla hjá Nissan en „Space
Wagon" hjá Mitsubishi, svona eins og til
þess að gefa hugmynd um rýmið.
Auk þess eru Japanir víða að hefja
framleiðslu á fjórventilmótorum í bíla
fyrir almennan markað, en Honda lætur
sér nægja þriggja ventla mótor í nýjustu
útgáfu sinni af Civic 1,3, talsvert huggu-
legum bíl.
BMW ætlaði sér að koma með viðbót við
þristasafnið þetta árið. BMW 324d, þ.e.a.s.
þristur með díselvél án forþjöppu. For-
þjöppuleysi er samt ekki sama og mátt-
leysi í þessu tilfelli, því afköstin nema
engu að síður 90 hestöflum, í stað 115 í
BMW 524td. Sennilega verður það þó ekki
fyrr en 1985 sem 324d birtist. Aftur á móti
eru þristarnir nú fáanlegir fjögurra dyra.
Eins og við mátti búast er Audi fremst-
ur í flokki þeirra þýsku framleiðenda sem
bjóða upp á fjórhjóladrifna fólksbíla í
fjöldaframleiðslu. VW Passat 4x4 er
reyndar á leiðinni, en bæði Porcsche og
Mercedes Benz eru ennþá á þróunarstiginu
hvað þetta atriði varðar. Audi hefur nú
aukið fjórhjóladrifsframboðið sitt svo að
allar gerðir Audi, frá Audi 80 til Audi 200,
verða nú fáanlegar með fjórhjóladrifi.
Reyndar er Audi 90 þar undanskilinn, en
hann er ný lúxusútfærsla af Audi 80.
Einnig verður nú styttri útgáfa af Audi
quattro með 2,4 1, 240 hestafla fjórventla-
mótor á boðstólum. Og þá fer nú að verða
erfitt að greina milli fólksbíla og jeppa hjá
Audi. Samt gæti ég trúað því að þess verði
langt að bíða þar til bændur í sveitum
landsins fara að spenna þessa gerð af Audi
fyrir skítadreifarana.
Að þessu sinni rekur „auðnustjarnan"
lestina. Eftir 8 ára árangursríka fram-
leiðslu 200—280 gerðanna, sem á verk-
BRAGI MAGNÚSSON
Sátum við...
Meðan tungl óð í skýjum, sem skutust og þú sagðir við mig: vinur minn
eins og skaflajárnaðir gæðingar vertu ekki hræddur,
um hjarn himinsins, hér er ekkert illt á ferðinni.
og vindurinn gnauðaði um gisið
guðshúsið, þar sem vetrarflugurnar sváfu Þá óx mér ásmegin
til að vakna með vorinu og allan heiminn skyldi ég sigra
ogleggja flatan að fótum þínum.
og sáluhliðshjarirnar kvörtuðu kveinandi
um korrandi veröld hinna framliðnu, Mér var hlátur í hjarta.
sem ég óttaðist, — óttaðist,
Eru hundrað ár síðan ?
sátum við tvö á leiði
ogfjölluðum —
um framtíðina, Þegar vindsorfin váský
sem var fjarlæg eins ogóborinn draumur. velkja fullu tungli
hugsa ég mér til hreyfings
Þetta var lítið leiði, eins og hinir,
og saman svifum við á því það er ekkert illt á ferðinni,
út úr síðastaleik hjátrúarinnar — aðeins ég.
um vindsorfin váský
inn í heiðríkju hamingjunnar
og höfðum að föruneyti
stálbláan mána í stjörnugeri,
Bragi Magnússon er Siglfirðingur. Hann hefur starfað á Siglufirði við löggæzlu og verið
gjaldkeri hjá bæjarfógeta. Ljóö eftir hann hafa áður birzt í Lesbók
Renault R3 er heitið á þessum, sem tekur rið af R5. R3 rerður fáanlegur með þriggja
strokka díselmótor.
Þær fréttir berast ennfremur þessa dag-
ana frá landi rísandi sólar, að Nissan sé að
hefja framleiðslu á yolkswagen Santana
samkvæmt vináttusamningi sem VW og
Nissan gerðu með sér árið 1980. Ekki er
samt búist við neinni rífandi sölu hins
nýja VW/Nissan Santana, enda þykir
hann vera orðinn heldur gamaldags eftir
rúmlega tveggja ára framleiðslu í Þýska-
landi. Hins vegar eru flestir sammála um
að Santana made in Japan sé í hærri
gæðaflokki heldur en hinn þýski bróðir
hans, — og þrátt fyrir það talsvert ódýr-
ari.
ÞÝSKI MARKAÐURINN
Hjá Þjóðverjum er margt nýtt að sjá á
matseðlinum ’84. Eftir að hafa komið nýj-
um Golf á markaðinn í fyrra bætir Volks-
wagen nú líka við nýju módeli af Jetta,
sem er eins konar Golf með skotti. Sömu-
leiðis hafa Ford-verksmiðjurnar hnýtt
skotti aftan á Escortinn. Þannig lagaður
heitir hann nú Orion.
Opel er strax kominn með nýjan
Kadett-arftaka, en Kadettinn hefur átt
miklum vinsældum að fagna undanfarin
ár. Á eftir VW Golf hefur hann verið sölu-
hæsti bílinn í Þýskalandi í sínum flokki. í
samræmi við tíðarandann mun nýi Kad-
ettinn hafa talsvert mýkri línur en sá
„gamli“.
smiðjumáli kallast W 123, ætlar nú Daiml-
er Benz að stokka heldur betur upp hjá
sér. Nýja módelinu, sem heitir W 124, svip-
ar mjög til hins nýja Mercedes Benz 190 og
er notast einnig að miklu leyti við sömu
tækninýjungar og „litli Benz“. Þannig mun
nýja gerðin til dæmis vera búin sams kon-
ar „rúmspyrnu-afturás" og MB 190, þ.e.
einum föstum ás og fjórum spyrnum.
Spyrnurnar sjá um að halda hjólinu í eins
hagstæðari stöðu gagnvart bíl og braut,
eins og mögulegt er.
Mótorhönnuðirnir hjá Daimler Benz
hafa heldur ekki setið auðum höndum.
Jafnt 6 strokka ottómótorarnir sem allir
díselmótorarnir hafa verið hannaðir upp á
nýtt. Díselmótorarnir verða nú af þremur
stærðum; 4 strokka 2 lítra, 5 strokka 2,5
lítra og 6 strokka 3 lítra; allir með sama
rúmtaki á hvern strokk. Flaggskipið í mót-
orflotanum verður svo endurhannaður V8
5,6 lítra mótor. Þetta er sá stærsti frá
Benz og fyrir þá sem hafa gaman af hest-
öflum, mun þessi hafa úr 280 slíkum að
moða.
í stuttu máli verða bílar af árgerð 1984
rétt einu sinni tæknilega fullkomnari,
þægilegri og kröftugri en áður, — og með
nokkurri vissu einnig dýrari.
Jón B. Þorbjörnsson er ungur Kópavogsbúi og
stundar nám í bllaverkfræði í Vestur-Þýzkalandi
„Spiller ingen rolle ...
UR SAGNABANKA
LEIFS SVEINSSONAR
Madur er nefndur Bjössi bláþráöur og er rafvirkjameistari á Akureyri.
Hann er manna uppáfinningasamastur og hafði heimilisvinur þeirra hjóna
orö á því aö aldrei gæti Bjössi fundið upp á svo furöulegu uppátæki, aö
konunni ofbyði. Bjössi kvað ekki örgrannt um, að hann gæti það. Það var
svo skömmu seinna, að barnabarni þeirra hjóna var komið fyrir hjá þeim og
var haföur koppur á svefnlofti heimilisins handa barninu. Nú er þaö kvöld eitt
að Bjössi bláþráður kemur heim mjög seint og á hann sækir þorsti, er hann
er genginn til hvflu. Biður hann konu sína um eitthvaö við þorstanum, en hún
segir honum aö fara sjálfum niður í ísskáp og fá sér eitthvaö að drekka. Ekki
segist Bjössi nenna því, réttu mér heldur koppinn. Konan var svo forviða, að
hún réttir Bjössa koppinn, en í honum var gulleitur vökvi og brúnt sparð flaut
ofan á. Bjössi drekkur þetta án tafar og var þá konunni allri lokið. Síðan snýr
Bjössi sér til veggjar hinn rólegasti og sofnar. Morguninn eftir fékk kona
hans skýringuna. Bjössi hafði undirbúið hrekkinn fyrr um daginn, hvítþvegið
koþþinn, hellt í hann orangejuice og sett súkkulaðihúðaða rúsinu út í.
Jakob Havsteen heildsali frá Akureyri fór tíðum í innkaupaferðir til Kaup-
mannahafnar fyrir viðskiptavini sína, en misjafnlega gekk að ná í viðtal við
þá stóru. Einn af þeim haföi látið Jakob bíöa eftir viðtali í hálfan mánuð.
Loks er Jakobi vísað inn til stórgrosserans og ávarpar hann Jakob þessum
orðum: Til Deres rádighed har jeg kun ti minutter. Spiller ingen rolle, jeg har
kun fem, var svar Jakobs.
Leiðréttingar. I grein Leifs Sveinssonar um hlaupavorið 1971, 24. mars sl. Mynda- ■
texti undir mynd af þeim KASKO-hlaupurum við heita pottinn í Laugardal var ekki
allskostar réttur. Réttur er textinn þannig: Þeir síðustu verðlauna þá fyrstu:
KASKO-félagar afhenda Sigurði Helgasyni frá Frjálsíþróttasambandi Islands bikara
að gjöf til að keppa um í hinum ýmsu víðavangshlaupum.
I síðustu Lesbók, 31. mars, urðu þau mistök að undir mynd úr tannlæknadeild
Háskólans stóð Örn Bjarnason, en þar var að sjálfsögðu Örn Bjartmars Pétursson,
prófessor í tannlæknadeild. Eru lesendur og hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
LESBÓK MORGUNBLAOSINS 7. APRlL 1984 13