Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Side 2
Audi 5000 S (Þýzkaland)
Honda Prelude (Japan)
Cbevrolet Camaro (Bandaríkin)
10 BESTU
BÍLARNIR
aö mati
bandaríska
bílablaösins
Car and
Driver
Bandaríska bílablaðið Car and Driver
hefur þann háttinn á, að kjósa árlega „10
bestu" bílana. Þetta er svona einskonar
vinsældalisti, sem þó er ekki byggður á
víðtækri atkvæðagreiðslu, heldur er matið
byggt á skoðun þeirra sem skrifa í fyrr-
greint bílablað. Það er vitaskuld ekki eins
og guð almáttugur segi það, þótt þeir kom-
izt að þessari niðurstöðu hjá Car and Driv-
er; þarna er ákveðiö sjónarmið, amerískt
sjónarmið skulum við segja, og alveg má
telja víst, að niðurstaðan yrði allt öðruvísi
hjá evrópsku bílablaði. Það er þó vert að
vekja athygli á því í þessu sambandi, að
hér er ekki verið að viðra álit hins venju-
lega bíleiganda, sem yfirleitt hefur ákaf-
lega lítinn samanburð og trúir alltaf að
það, sem hann ekur hverju sinni, hljóti að
vera það bezta.
Þeir sem standa að þessu vali, eru menn
sem ekkert gera annað en að prófa bíla og
skrifa um þá. Þeir hafa haft að leiðarljósi,
að enginn hlutur sé góður nema í hlutfalli
við það sem hann kostar — og að það sé
enginn vandi að framleiða stórkostlegan
bíl, ef hann má kosta hvað sem er. Þess-
vegna eru bílar sem kosta meira en 25
þúsund dollara í Bandaríkjunum ekki
teknir með.
Mörgum mun þykja þetta val all furðu-
legt í ljósi þess, að aðeins komast tveir
Evrópubílar á blað: Audi 5000 S, sem raun-
ar var einnig á lista blaðsins í fyrra og
Porsche 944, báðir þýzkir. Að öðru leyti
komust 5 amerískir bílar á blað og 4 jap-
anskir. Þeir amerísku eru: Chevrolet Cor-
vette og Chevrolet Camaro, hvorttveggja
sportbílar, Dodge Caravan, einn af þessum
nýju „rýmis“bílum og minnir á sendiferða-
bíl í útliti. Mercur XR4 Ti, sprækur milli-
stærðarbíll frá Lincoln-Mercury-deildinni
hjá Ford og loks: Pontiac 6000 STE, „sá
bezti frá General Motors", eins og segir í
dómnum.
Frá Japan komust þrír á úrvalslistann
og mun þykja tíðindi, að þeir eru allir af
gerðinni Honda: í fyrsta lagi næstminnsta
gerð verksmiðjunnar, sem nú er þó orðin
nokkuð stór: Honda Civic. í öðru lagi fólks-
bíllinn Honda Accord og í þriðja lagi
sportútgáfan: Honda Prelude. Þetta má
túlka sem geysilegan sigur fyrir Honda,
sérstaklega í Bandaríkjunum, þar sem að-
almarkaðurinn er.
Blaðið fylgir þessu vali að sjálfsögðu eft-
ir með rökstuðningi, sem er of langt mál
Cberrolet Corvette (Bandaríkin)
Dodge Caravan (Bandaríkin)
Porscbe 944 (Þyzkaland)
Mercury XR4 (Bandaríkin)
Honda Accord (Japan)
að birta hér. Þar er þess einnig getið, að
svo virðist sem sífellt erfiðara verði með
hverju árinu að taka 10 bíla framyfir aðra
og er það vegna þess, að tæknilegar úrbæt-
ur virðast koma jöfnum höndum í alla
vandaða bíla. En úrslitin bera með sér
hvar valið fer fram. Amerískir bílar
mundu varla fá síka útkomu annars stað-
ar. Þess má geta til samanburöar, að í
þýzkum bílablöðum, t.d. Auto motor und
Sport, er fyrst og fremst haldið fram þýzk-
um bílum. Þótt menn vilji vera málefna-
legir og vísindalegir, þá er eins og menn
ráði ekki við ættjarðarástina — eða þjóð-
rembuna — ætti kannski frekar að segja.
GS.
Honda Ciric (Japan)
Pontiac 6000 STE (Bandaríkin)
Leiðrétting
í formála Christers Stendahl,
Stokkhólmsbiskups, við doktorsrit-
gerð dr. theol. Jakobs Jónssonar,
„Humor and Irony in the New Testa-
ment“, sem birtist í Lesbók 9. marz
sl., féll niður hluti af setningu, sem
hérmeð leiðréttist. Málsgreinin er
rétt svona:
„í öðru lagi — og er sú ástæða
miklu þyngri á metunum — er hinn
markvissi samanburður við Talmud
og Midrash. Gagnsemin fyrir okkur,
sem erum ekki sérfræðingar í Gyð-
ingdómi, liggur í augum uppi, þó ekki
væri nema vegna erfiðleika okkar að
rata í hinni víðáttumiklu veröld þess-
ara bókmennta."
Það leiðréttist ennfremur, að í efn-
isyfirliti yfir árganginn 1984, hefur
fallið niður, að séra Sigurjón Guð-
jónsson hefur þýtt þrjú ljóð eftir Rolf
Jacobsen: Tréð mitt, Landslag með
grafvélum og Hjarta guðs, sem birt-
ust á bls. 14 í 28. tbl. Lesbókar 1984.