Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Qupperneq 10
Jón frá Pálmholti Þrjár örsögur Teikningar: Árni Elfar Jón í Bakkagerði Jón í Bakkagerði var bróðir pabba. Hann bjó litlu búi niðurvið sjóinn og réri árabát sínum einn til fiskjar og verkaði sjálfur sinn afla. Til hans sóttum við fisk í soðið þegar færi gafst. Við bræður höfðum óljósar hugmyndir um sjósóknina en heyrðum margt um öngla handfæri og fleira sem tengdist fiskidrætti. Einnig nöfn á fiskum og öðrum sjávardýrum eins og þorski ýsu ufsa og furðuskepnu sem hét hákarl. Við álitum það vera karl niðri í sjónum sem starfaði að því að festa fiskana á öngulinn. Meðan gamli bærinn stóð lékum við bræður stundum fiskveiðileik. Annar okkar var þá uppi á smíðalofti lék Jón í Bakkagerði og renndi niður garnspotta sem átti að vera handfæri. Hinn var niðri á hlaði og lék hákarlinn. Svo festi hákarlinn á færið eitthvert dót sem átti að vera fiskur og Jón í Bakkagerði dró það upp. Mér er enn í minni hlátur Jóns í Bakkagerði þegar hann eitt sinn stóð i hlaðbrekkunni og horfði á athafnir okkar. Hann lyfti skyggnishúfunni strauk skallann og yfirskeggið hristist í hlátrinum. Svo fór hann inn með fiskinn sem hann kom með til að gefa okkur. Draumar Eins og flestir aðrir áttum við okkur þann draum að stækka túnið til þess að geta fjölgað mjólkurkúnum því afkoman byggðist á þeim. Búnaðarfélagið átti stóra dráttarvél sem fór milli bæja að plægja land til ræktunar. Hvert ár var brotin ný spilda eða sléttað þúfnastykki í túninu til að gera það véltækt. Alfreð í Fagraskógi ók dráttarvélinni og það var framandi nautn að ganga á eftir plóginum og hlusta á söng vélarinnar. Þannig rölti ég hring eftir hring um reitinn andaði að mér bensínlyktinni sem blandaðist titrandi vélslættinum og horfði á plóginn rista sundur þúfurnar sem ég þekkti. Ég vissi að aldrei framar myndi ég sjá þessar þúfur en næsta sumar yrði ég að ganga hér um með hrífuna í sólarhitanum og snúa sáðgresinu. Á þvílíkum dögum bað ég oft í hljóði um dálitla rigningu svo ég mætti fara inn til mín að dunda mér eða lesa bók. Ég varð svo þreyttur í fótunum af allri þessari göngu. Slíkt var vitaskuld guðlasti verra að nefna upphátt en við áttum okkur einnig drauma um stórvirkari heyvélar. Sumardagur Dag nokkurn snemma á túnaslætti fór ég seint framúr í björtu sólskini og þar sem ég striplaðist í eldhúsinu sá ég útum glugg- ann fíflastóðið og sóleyjabreiðurnar hlæja við sólinni. Þau hefðu áreiðanlega dansað hefðu þau getað. Hvarvetna kepptust menn við að slá í þurrkinn og skyndilega sá ég Halldór í Búlandi leggja frá sér orfið niður á túni og koma í heimáttina. Skömmu síðar komu þeir inn í eldhúsið pabbi og hann. Þeir settust við borðið og sulgu mjólkursýru úr gömlum skipskönnum. Þegar Halldór hafði lokið sínum drykk sagði hann uppúr eins manns hljóði. Það er ekki fallegt að heyra frá útlöndum. Það er búist við styrjöld með haustinu. Við sátum hljóð enn um stund nema mamma spurði hvort stríð gæti náð hingað. Ég man enn hvernig þetta orð styrjöld ómaði í eyrum mér þótt ég skyldi það ekki til fulls. Hljómur þess var sár og þrunginn dulrænum kvíða sem stakk í stúf við kyrrðina útifyrir. Og bændurnir fóru út aftur að slá til að nota þurrkinn. Jón trá Pálmholti erskáld og rinnur hjá Reykjaríkurborg. Árni Elfar er hljóöfæraleikari og teiknari. Hann býr í Garðabæ. Fyrsta prentverk á íslandi Blöð úr Fátt er vitað um, hvaða bækur voru fyrst prentaðar. Sagnir herma, að Jón biskup hafi látið prenta einhver minniháttar rit, en ekki vita menn hvaða rit það voru. Þó munu vera sæmilega traustar heimildir fyrir tveimur bókum. Er önnur þeirra áðurnefnd Brevi- arium Holense, hin er jafnan nefnd Fjórir guðspjallamenn. Fyrir allmörgum árum fundust tvö blöð úr fornri bænabók, norrænni að talið er, innan í spjöldum á handriti einu íslensku í bókasafni Uppsalaháskóla, komnu til Sví- þjóðar frá íslandi árið 1681. Einn af bóka- vörðum safnsins, dr. Isak Collijn, rannsak- aði þessi blöð og komst að þeirri niður- stöðu, að þau væru ekki úr neinni kunnri norrænni bænabók. Leiddi hann síðan rök að því, að blöð þessi væru úr hinni týndu bók, Breviarium Holense (eða „Nidrosi- ense“, sem hún er einnig kölluð). En Guðbrandur Jónsson hefur síðan fært rök fyrir því, að blöð þessi séu ekki úr Breviarium Holense, heldur „prófarkir af erlendu, nú týndu, breviario, sem síra Jón sænski annaðhvort hefur prentað í prent- smiðju sinni, áður en hann fluttist til íslands, eða hefur verið prentað með letri hans, áður en hann eignaðist það, eða í prentsmiðju, er hafði letur frá sama letursteypara og hann.“ (G.J.: Síra Jón ... bls. 186). Byggir Guð- brandur þessa skoðun sína á því meðal annars, að blöð þessi úi svo og grúi af prentvillum, að varla geti verið um hreinprent að ræða; blöðin séu í 8vo, en Jón Grunnvíkingur (sem lýst hefur útliti og innihaldi Breviarium Holense) segi að bókin hafi verið í 4to; þá segi Jón, að bókin hafi verið með rauðum grenirósum, en grenirósirnar á blöðum þessum séu svart- ar. Og fleira er það, sem Guðbrandur Jónsson tínir til. En ekki eru tök á að rekja þetta mál hér frekar. Um tilvist hinnar bókarinnar, Fjórir guðspjallamenn, eru enn skiptari skoðanir. Torfi Jónsson (1617—1689) prestur í Gaulverjabæ, bróðursonur Brynjólfs Sveinssonar (1605—1675) biskups í Skál- holti (en Brynjólfur mun hafa verið 4. maður frá Jóni biskupi Arasyni samdi ævisögu Brynjólfs frænda síns, en hún var lengi talin glötuð. Vitneskju um þessa ævisögu höfðu menn af því, að stuttur út- dráttur úr henni, er séra Torfi hafði gert, var til í fjórum afskriftum, tveimur í safni Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn og tveimur á Landsbókasafni íslands. Voru þær allar frá 18. öld. En upp úr síðustu aldamótum fundu menn, óvænt, handrit af ævisögunni allri. Hafði það handrit komið að Landsbóka- safninu áratug áður eða svo, að menn telja, en ekki vissu menn hvaðan. Það sem einkum vakti undrun manna, er þeir fóru að kynna sér handritið, var sú upplýsing þess, að Brynjólfur biskup Sveinsson hefði verið „kistulagður með hans N.T. Græco, Davíðs psaltara og Fjórum guðspjallamönnum, er biskup Jón gamli að Hólum lét útleggja og þrykkja, sem hans formáli útvísar, ef þar af finnst nokkurt ex- emplar.“ Áð vísu hafði þess verið getið áður á prenti, að Jón biskup hefði látið þýða guð- spjöllin, en um prentun þeirra var hvergi getið, fyrr en ævisaga þessi fannst. Rétt er þó að geta ummæla Jóns pró- fasts Halldórssonar (1665—1736) í ævis- ögu Guðbrands biskups Þorlákssonar, en þar segir: „Jón Matthíasson ... hafði fyrst- ur hér í landi brúkað eitt lítið prentverk, svo hann þrykkti Guðspjallabók í 4to fyrir Jón biskup Arason og nokkra bæklinga fyrir h(erra) Ólaf Hjaltason." Hér er þess getið fullum fetum, að Jón svenski muni hafa prentað þetta fyrir Jón biskup1 Aðrar frásagnir (að Þórði Jónssyni und- anskildum, sjá síðar) miða við það, sem Jón svenski prentaði, en ekki við það sem Jón biskup gaf út. Arngrímur Jónsson lærði segir t.d. í Crymogæa, að Jón svenski hafi prentað „texta sunnudaga guðspjalla og pistla ... auk þess nokkur andleg kvæði, og að því er sagt er handbók presta, svo og, ef til vill, einn eða annan bækling"2. Björn Jónsson á Skarðsá segir, að séra Jón hafi prentað „handbók presta, sunnudaga guðspjöll og fleira annað"3. Séra Þórður Jónsson (1609—1670) í Hítardal segir Jón svenska hafa prentað „guðspjallabók og pistla; item andlega sálma nokkra, handbók presta, og máske nokkrar fáeinar bækur fleiri“4. Síðan bætir Þórður við: „Það eitt er og víst, að biskup Jón Arason hefír látið prenta guð- spjallabók í Quarto á Breiðabólstað í Vestur- hópi af síra Jóni svenska." Þá segir Finnur Jónsson (1704—1789) biskup, að séra Jón hafi „sent úr prentsmiðju sinni handbók presta og, ef til vill, eitthvað annað“s. Þá hefur Jón Espólín (1769—1836) nákvæm- lega upp það, sem Björn á Skarðsá segir um þetta efni, en bætir svo aðeins um bet- ur (J.E.: Árbækur ... IV., bls. 12—13). Eins og sjá má eru þessar frásagnir næsta óljósar og erfitt að byggja með þeim eitthvað fast undir fætur, nema ef vera skyldi orð þeirra Hítardalsklerka, Jóns Halldórssonar og Þórðar Jónssonar, þar sem þess er beinlínis getið, aö prentað hafi verið fyrir Jón biskup. Það sem einkum veldur þessum vanda er, að Jón svenski mun hafa prentað bók eina fyrir Ólaf biskup Hjaltason, árið 1562 að talið er, og gekk sú bók undir nafninu „Guðspjallabókin" á meðal manna, því að titill hennar mun hafa verið firnalangur eða sem svara mundi hálfri blaðsíðu í með- alstórri bók. Og vegna þess, að frásagnirn- ar miða flestar við það sem Jón svenski prentaði, en ekki við það sem Jón biskup Arason gaf út, er erfitt að henda reiður á við hvaða bók er miðað, eða um hvaða guðspjallabók er að ræða. Það er því engin furða, að skoðanir manna hafi verið, og séu, næsta skiptar, þegar „upplýsing" ævisögunnar hefur komið til tals. UM Handritið Sumir telja heimild þessa óhrekjandi, vitnisburð hennar skýlausan. Byggja þeir skoðun sína á ummælum þeim, sem á und- an hafa farið og eins á því, að Torfi hafi bersýnilega lesið formála ritsins og verði hér þvi ekki um deilt. Þeir allra áköfustu tala jafnvel um að hér hafi verið um að ræða „hið eina prentaða eintak, sem til hefur verið í heiminum 1675, af Nýjatestamentis- þýðingu Jóns biskups Arasonar ... “6. Aðrir benda á, að ýmislegt sé við þessa „upplýsingu" að athuga. Halldór Her- mannsson er í þeim flokki. Hann bendir á, að þessi orð séra Torfa um Fjóra guðspjallamenn séu það óljós, að þau megi skilja á þann veg, að eintak það sem um er rætt hafi jafnvel ekki verið heilt, formálann hafi vantað („sem hans formáli útvísar, ef þar af finnst nokkurt ex- emplar“). Því kunni þetta aö hafa verið byggt á sögusögn einni saman, eða skrifað á eintakið. En nú hljóti séra Torfi samt aö vita hvað sett var í kistuna með Brynjólfi, því að hann muni hafa verið viðstaddur þá athöfn. Þess vegna sé erfitt að rengja það,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.