Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1985, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1985, Blaðsíða 8
sem svo er nefndur og tekur stærstan hluta af sýningarrýminu. í þetta sinn mynda kjarnann Jóhann Briem, Siguröur Sig- urðsson, Magnús Kjartansson, Ragnheiður Jónsdóttir og Valgerður Bergsdóttir. Þeir Jóhann og Sigurður eru fulltrúar hins hefðbundna olíumálverks; báðir af elztu kynslóð myndlistarmanna í landinu og kannski vekur mesta athygli, hvað fram- lag þeirra er sterkt. Lesbókin hitti að máli nokkra þeirra FÍM-félaga, sem standa að sýningarnefnd- inni: Jóhönnu Þórðardóttur, sem er nefnd- arformaður, Sigurð Þóri Sigurðsson, Sig- urð Örn Brynjólfsson, Ágúst Petersen, Margréti Jónsdóttur, Árna Pál og auk þess voru þar örn Þorsteinsson og Sigurður Ör- lygsson, formaður FÍM. Lesbók: „Hvernig er heilsufarið hjá FÍM um bessar mundir?" Örn Þorsteinsson: „Félagið er að rétta úr kútnum eftir að hafa verið um tíma í hroðalegum öldudal." Árni Páll: „Þetta er félag gamalla kvenna af báðum kynjum." Örn: „Myndlistarmenn eru nú að reyna að raða sér saman og eru búnir að koma sér upp þessu nýja sambandi, SÍM.“ Lesbók: „Er þá FÍM orðið óþarft?" Örn: „Það tókst ekki að gera FÍM að sameiningartákni, vegna þess að félagið hafði á sér ákveðinn stimpil." Lesbók: „Hverskonar stimpill var það?“ Margrét: „Það var afturhaldsstimpill." Sigurður Þórir: „Þetta var orðið lokað fé- U rn: „Við megum ekki gleyma því, að öll félögin náðu samkomulagi um skilyrði fyrir inngöngu. Nú er komið punktakerfi sem farið er eftir.“ Sigurður Örlygsson: „Það eru eitthvað um tíu atriði, sem gefa einn punkt hvert. Þar á meðal er skólaganga, styrkir úr opinberum sjóðum, listamannalaun þar á meðal, sam- sýningar, einkasýningar, verk í eigu opin- berra aðila og að hafa tekið þátt í sýningu, sem (slenzka ríkið styrkir. Til þess að sækja um inngöngu verður maður að hafa minnst þrjá punkta, en síðan fjallar aðal- fundur um umsóknina." Lesbók: „Og menn eru ekki felldir í þrjú ár áður en þeir fá náðarsamlegast inn- göngu.“ Sigurður Örn: „Alls ekki. Það er alls ekki reynt að halda fólki frá félaginu og til dæmis má nefna að 12 nýir félagar voru teknir inn á síðasta fundi." Lesbók: „Grundvallarspurningin er kannski þessi: Hvaða ávinning hefur myndlistarmaður af því að vera félagi í FIM?“ Örn Þorsteinsson: „Ég tel að það sé ávinningur að eiga aðilda að sambandinu, sem er stéttarfélag myndlistarmanna, og til þess verður maður að vera í einhverju félagi." Sigurður Örlygsson: „Við eigum auðveld- ara með að koma myndum á framfæri. Það eru ýmsar sýningar, sem standa okkur til boða. Til dæmis geta félagar í FÍM einir sýnt á þessari samsýningu. Búið er að taka fyrir það, að utanfélagsmenn sýni með.“ Lesbók: „Sú skoðun heyrist meðal sumra úr hópi málara, að þeir séu komnir út í horn í FÍM og megi sín einskis þar á móti stórum hópum fólks úr öðrum listgrein- um.“ Sigurður Örlygsson: „Ég held að þetta sé alrangt og að þessir menn hafi sjálfir komið sér út í horn.“ Jóhanna: „Við söknum margra góðra málara, svo við hefðum getað haldið ennþá glæsilegri sýningu og lagt undir okkar allt húsið. Ég held, að FIM sé alls ekki í neinu Magnús Kj&rtansson: Málverk, 1985. Sigurður Sigurðsson: Kvöld á sandinum, 1984. stríði við Listmálarafélagið til dæmis og benda má á, að tveir félagar þaðan sýna hér.“ Árni Páll: „Þessir menn sem hafa mynd- að Listmálarafélagið eru stagneraðir. Það er eitthvað að þeim fyrst þeir verða að draga sig út úr.“ Sigurður Örlygsson: „Það segir sig sjálft, að menn hafa mjög mörg sjónarmið í fé- laginu. En það á ekki að koma að sök og gerir það ekki.“ Margrét: „Það voru myndhöggvararnir, sem fyrstir dróu sig út úr FÍM.“ Lesbók: „En nú fer samstaðan vaxandi, eða hvað?“ Sigurður Örlygsson: „Já, ég held að sam- staðan sé vaxandi. Ég finn verulegar beyt- ingar frá því sem áður var.“ örn Þorsteinsson: „Því miður er heilmik- ið af ungu fólki, sem ekki hefur gengið í FÍM, en ætti að gera það. Þetta fólk hefur þess í staö gengið í Hagsmunafélag mynd- listarmanna, en það er á leiðinni að ganga í FÍM.“ Árni Páll: „Allt konseptliðið virðist vera á leiðinni." Sigurður Örlygsson: „Já, þetta er einskon- ar J)íða.“ Arni Páll: „Það sýnir bara, að þeir eru að stagnerast, byrja að mygla og þá koma þeir hingað.“ Lesbók: „En er þá margt myndlistarfólk alveg utan félaga?" Sigurður Örlygsson: „Ekki lengur. Það hefur kannski verið eitthvað um slíkt. En nú virðist mér að Iistamenn vilji eiga aðild að félagi. En það er hægara sagt en gert að vinna einhver stórvirki, til dæmis, í því að standa að sameiginlegum innkaupum, eða fá lækkaða tolla á efni. öll stjórnarstörf eru ólaunuð, en það fer mikill tími í þetta, því hef ég kynnst síðan ég varð formaður. Stundum eru margir fundir í viku hverri. En það er ýmislegt sem stefnir í framfara- átt. Þessi sýning er þar á meðal." Gísli SigurAsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.