Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1985, Blaðsíða 12
/ fískiþorpinu San Pedro á eynni Sao Vicente er urmull af börnum. Líf
þeirra er undir þríkomið að vel veiðist Drengurinn til bægri er að steyta
maís í tunnu. Algengur réttur á eyjunni er steyttur maís og baunir, soðið
marga kiukkutíma í vatni, þangað til það er orðið að þykkni. Til bátíðabrigða
er einu eggi eða ögn af fiski eða bænsnakjöti bætt út í.
Vatnsskortur er alls
staðar randamál á
Grænhöfðaeyjum. Kon-
ur og börn þurfa oft að
sækja vatn fótgangandi
margra kílómetra leið.
Vatnið er borið í tunn-
um á höfðinu.
íslenskar krónur á ári. Daginn sem ég var
þarna stödd var verið að hamast við að
skipa út túnfiski til Alsír. „Fengur hefur
áreiðanlega landað einhverju af þessum
afla,“ sögðu staðarmenn hreyknir og
bættu við: „Við höfum haft mikið gagn af
íslensku hjálpinni. Við höfum lært mikið,
sérstaklega um nútíma nótaveiði. Áður
kunnum við ekki að veiða neitt í nót nema
beitu."
Það var ekki nokkur íslendingur í landi,
svo ég sneri mér að því að skoða hvernig
lífið gengi fyrir sig hjá þessum suðrænu
skjólstæðingum okkar. íbúar Grænhöfða-
eyja eru eitthvað um 330 þúsund og þar af
búa um 40 þúsund á Sao Vicente, flestir í
bænum Mindelo. Eyjarnar voru óbyggðar
þegar fyrstu Portúgalarnir stigu þar á
land árið 1460. Brátt urðu þær mikið nýtt-
ar sem umskipunarhöfn þrælasala frá
Vestur-Afríku. Flestir eyjarskeggjar eru
múlattar og rekja upphaf sitt til skyndi-
kynna portúgalskra embættismanna og
fagurra þeldökkra ambátta.
I fimm aldir voru eyjarnar portúgölsk
nýlenda. Hungursneyðir og uppskeru-
brestir vegna þurrka ollu ólýsanlegri
eymd. Frá árinu 1900 hafa 80 þúsund
manns dáið úr hungri, hvað þá áður fyrr.
Margir flúðu burt úr vesöldinni. Fyrsta
kynslóð útflytjenda kom sér á amerísk
hvalveiðiskip, sem sigldu fram hjá eyjun-
um á leið sinni til Suður-íshafsins eða
heim þaðan.
Nú er svo komið að helmingur þjóðar-
innar er búsettur erlendis, flestir í Banda-
ríkjunum. Margir senda ættingjum heima
peninga fyrir lífsnauðsynjum og auka
þannig þjóðartekjur. í sömu átt miðar
þróunaraðstoðin.
Síðan eyjarnar öðluðust sjálfstæði 1975
hafa orðið miklar framfarir. Upptendraðir
af nýrri þjóðernisvitund hafa landsmenn
hafist handa til umbóta. Þeir hafa fengið
umtalsverðan alþjóðlegan stuðning í bar-
áttunni við fátækt, þurrka, eyðingu og
uppblástur jarðvegsins. Á þessu ári fagna
þeir tíu ára afmæli lýðveldisins af bjart-
sýni og trú á framtíðina, bjartsýni sem á
Sao Vicente-eyjunni er ekki síst Islending-
um að þakka.
Hægt nálgast dagurinn sem eitt skáld-
anna á Sao Vicente sér í hillingum:
„Mig dreymir um daginn
þegar þetta land
- rúið af fólksflótta þurrkasumranna -
grænkar á ný
af frjómagni hinnar hörðu þurru jarðar."
Sama tilfinning lífsástar og drauma,
sem enn eiga eftir að rætast, býr í
þjóðlagatónlist eyjamanna.
í kvöld, eins og flest önnur kvöld, situr
Cesaria — hann hefur fegurstu rödd af
öllum í Mindelo — á hálfdimmu kaffihúsi
og flytur dapra og tregafulla söngva með
hljóðfalli sem felur í sér kveinstafi geng-
inna kynslóða um þrældóm, svita og tár.
Nanna Buchert býr I Kaupmannahöfn og starfar
þar sem Ijósmyndari og hefur tekið myndir fyrir
Islenzk blöð.
Guðmundur Gíslason Hagalín
Guðmundur
Gíslason
Hagalín
„Ástkæra, ylhýra málið
og allri rödd fegra,
blíð sem að barni kvað móðir
á brjósti svanhvítu,
móðurmálið mitt góða,
hið mjúka og ríka,
orð áttu enn eins og forðum
méryndið að veita."
J.H.
„í upphafi var orðið — “
(Jóh. 1.1.)
Ræða við útför skáldsins
í Reykholtskirkju
eftir séra Eirík J.
Eiríksson
Skáldjöfurinn W. Shake-
speare boðar mikilvægi
orðsins, en að hjartað sé
vængir þess. Grundtvig seg-
ir, að kærleikann einkenni
einkum tvennt: Virkni og að
hann sé almennur þ.e. fari
ekki í manngreinarálit, sé
þjóðlegur mætti segja.
Stórskáld vildi þýða: „í upphafi var
verkið — dáðin —
En Guðs orð er virkt. Guð sagði: „Verði
ljós og það varð ljós —
íslendingar að tiltölu mesta orðsins þjóð
veraldar hafa og tengt það verkinu: „Orð
eru til alls fyrst.“ Vér yrkjum kvæði og
jörð.
Forfeður vorir nefndu frumheild sam-
félags síns goðorð. Þar táknar orðið vald.
Hann er vér kveðjum hér mat mikils: „I
gegnum lífsins æðar allar fer ástargeisli
Drottinn þinn í myrkrin út þín elska kallar