Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1986, Síða 8
Rekkjurefill úr búi Jóns Espólíns. Frá 18. öld. Glitsaumur, ullarband í hörléreft.
íslenskur
útsaumur
Bragi Ásgeirsson skrifar í tilefni útgáfu bókar eftir Elsu E.
Guðjónsson, sem bókaútgáfan Veröld gefur út.
Refilsaumur. Altarisklæði frá Draflastöðum í Fiýóskadal. Frá fyrrí hiuta, líklega 2. fjórðungi, 16. aldar. UUarband og língam íhörléreft.
Tvö hlöð úr sjónabók frá Skaftafelli. Frá sei
íUtum.
Idesember sl. fékk sá,
nýútkomið rit um forn
E. Guðjónsson hefur fs
Raunar voru bæku
gáfan fylgdi einnig, i
að verki staðið af bókaútgáfunni Veröld í
samvinnu við Iceland Review.
Því miður auðnaðist mér ekki að skrifa
um bókina fyrir jól þrátt fyrir góðan vilja,
því að ég var á förum utan, en tók bókina
með í malnum mér til halds og trausts,
því að svo vel leist mér á hana.
Skrif um bókina í jólamánuðinum hefði
varla breytt miklu um gengi hennar á
markaði, því að hér er um að ræða mynd-
skreytt heimildarrit, sem mun halda fullu
gildi sínu í framtíðinni og ganga jafnt og
þétt út meðan upplag endist.
Bókin er hvorki stór í broti né mikil að
vöxtum, heldur er hér leitast við að segja
sögu íslenzks útsaums í knöppu máli, bregða
upp sem gleggstri mynd af þróun og upp-
runa. Þetta hefur Eisu E. Guðjónsson tekist
ágæta vel að mínu mati, og hún miðlar
miklum fróðleik með þessu tímabæra og
mikilsverða framtaki sínu. Stíllinn er hreinn
og beinn og laus við allt skrúð og fræðilegt
málfarslegt útflúr, og efnið kemst því vel
til skila. Bókin mun hafa verið tilbúin til