Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Side 2
AUSTAN U M HEIÐl Yíðförli eftir þúsund ár Arin 1981 og 1986 var þess að minnast, að tíu aldir voru liðnar frá kristniboði þeirra Þorvald- ar Konráðssonar og Friðreks biskups hins saxneska. Starf þeirra varð upphaf mikillar sögu, eins og kunnugt er. Þorvaldur hefur Kirkjuleg íslenzk þjóð- menning er í ýmsu tilliti órofin um aldir, þrátt fyrir tvenna tíma. Hér hefur e.t.v. lengst af öðru fremur verið „íslenzk kirkja“, þótt henni bærust misjafn- lega góðar gjafir úr ýmsum áttum. Svo er enn. Þetta skiptir miklu, hvernig sem á það er litið, bæði fyrir kirkju og þjóð. EFTIR SÉRA HEIMI STEINSSON orðið íslendingum hugstæður fyrir margra hluta sakir. Viðurnefni hans, hinn „víðförli", er á kreiki í blöðum 20. aldar. Gunnar Gunn- arsson skáld gerir Þorvaldi skemmtileg skil í bók sinni Hvítikristur og nefnir þennan þjóðsagnakennda kristniboða iðulega ein- ungis „Víðförla", — með stórum staf, eins og um nafn væri að ræða. Um miðja öldina kom út tímaritið „Víðförli", er um margt olli þáttaskilum í íslenzkri kirkjusögu síðustu tíma. Nýlega barst um landið febrú- arhefti sjötta árgangs annars tímarits, er ber sama nafn. Útgáfan Skálholt stendur að síðast greindu efni, en ritstjóri er séra Bemharður Guðmundsson fréttafulltrúi Þjóðkirkjunnar. Víðförli hinn nýi er einkar þekkilegt rit, og hefur í flestu tilliti vel til tekizt um bún- að þess og innihald. Um er að ræða málgagn íslensku kirkjunnar. Kirkjustjómin gengur þar að staðaldri fram á sviðið í þættinum „Frá borði biskups“. Þessu sinni fjallar bisk- up fímlega um efni, sem verið hafa til umræðu undanfama mánuði, þ.e.a.s. við- horf kirkjunnar til ýmissa þjóðmála. Ritstjóri ræðir að sínu leyti um viðbrögð íslendinga, þegar erlenda flóttamenn ber að garði. I því tilviki talar fulltrúi kirkjunnar opinskátt og skilmerkilega, en þó áreitnilaust, um við- kvæmt mál, sem örðugt kynni að vera að ná samstöðu um, en varðar alla landsmenn jafnt. Að öðm leyti er febrúarhefti Víðförla að verulegum hluta helgað Kaj Munk. Mun öllum ljóst, hvers vegna það efni er á baugi. Fjölmargt annað er í ritinu, svo sem viðtal við dr. Bjama Sigurðsson frá Mosfelli, en hann hefur lokið samantekt gildandi laga og reglna um kirkjumál og með þeim hætti vendilega unnið hið mesta nauðsynjaverk, sem vert er að bera lofí í alla staði. Annað viðtal er þama að finna við norska gesti frá Modum Bad-sjúkrahúsinu við Oslófjörð. Þar hefur séra Jón Dalbú Hróbjartsson dvalið við framhaldsnám í sálgæzlu og starfað sem sjúkrahúsprestur. Undirrituðum em minnis- stæðir tveir dagar á þeim bæ fyrir fáum árum, meðan séra Jón bjó þar ásamt fjöl- skyldu sinni: Alkyrr vetrarskógurinn umhverfis hlýlegar byggingar, búnar öllum nauðsynjum, er til þurfti að hafa, og staður- inn þmnginn friði, sem sálin þarfnast, en flísalagðar og hvítlakkaðar stofnanir fá ekki alltaf veitt. Þessu sinni birtir Víðförli einnig þátt um kristniboð í Konsó og hugþekka opnu úr fómm söngmálastjóra Þjóðkirkj- unnar, auk innlendra og erlendra frétta af sundurleitasta tagi. Víðförli kemur út tíu sinnum á ári og er prentaður í fjögur þúsund eintökum. fastir áskrifendur em á fjórða þúsund. Stærri söfnuðir kaupa vemlegan eintakafjölda hver um sig, til dreifingar. Þannig fer „Víðförli" um land allt, engu síður en nafni hans fyr- ir þúsund ámm. Þó er fyllsta ástæða til að hvetja áhugamenn um íslenzka kristni og menningu til að bjóða gestinn velkominn víðar. Enginn er svikinn af Víðförla hinum nýja fremur en af Þorvaldi Koðránssyni forðum. ÞjóðOgKirkja Á Kristnitökuafivíæli Umræðu um fyrirhuguð hátíðahöld á kristnitökuafmæli sér stað í Víðförla þessu sinni. Dr. Hjalti Hugason birtir grein með yfirskriftinni „Opinber stofnun um andleg mál“. Þetta er annar þáttur höfundar. Hinn síðasti er í vændum, og er gott góðs að bíða. Dr. Hjalti gerir úttekt á stöðu íslenzku kirkjunnar nú á dögum. Hann er hressilegur í máli og leikur ýmsum sverðum. Þó er orð- ræðan öll við hóf, en hlýtur að vekja menn til umhugsunar og frekari skoðanaskipta. Samskipti ríkis og kirkju — og þó öllu heldur þjóðar og kirkju — em dr. Hjalta hugleikin. Þessu sinni setur hann spurning- armerki við predikanir veraldlegra fyrir- manna af stólum kirkjunnar, með sérstakri skírskotun til Marteins Lúthers. Vel má vera, að þær athugagreinar styðjist við guðfræðileg rök, þótt örðugt sé að koma auga á nokkum háska, er að kirkjunni steðji vegna þessa atferlis. Litlu síðar fjallar höfundur um það, sem hann nefnir „sögulega og menningarlega hátíðahyggju". Þar kemur niður tali hans, að hreyft er við minningu kristnitökunnar. Farast dr. Hjalta orð á þessa leið um það efni: „I sambandi við fyrirhugað kristnitökuaf- mæli er einnig gjaman talað um kristnitök- una sem gmndvallandi atburð í sögu alþingis. Á þennan hátt er hátíðarhaldið notað í markvissum tilgangi til að leggja áherslu á einingu kirkju og þjóðar, kristni og íslenzkrar menningarhefðar og svo fram- vegis. Auðvitað á þetta við viss rök að styðjast. Spumingin er aðeins: Af hvaða ástæðum er áherslan lögð á þessi atriði? Gerir kirkjan það í ljósi sjálfsvitundar sinnar sem evangelísk-lúthersk kirkja eða er það hin opinbera stofnun samfélagsins um hin trúarlegu mál, sem hér er að verki.“ Ánægjulegt er, að þessar spumingar hafa nú verið bomar fram á opinbemm vett- vangi með þeim hætti, sem dr. Hjalti gerir. Biýnt er að ræða kristnitökuafmælið frá öllum hliðum. Undirbúningur af kirkjunnar hálfu hefur hingað til farið fram undir kjör- orðinu „Vakning til trúar“. Öll einlæg og sanngjöm umfjöllun verður til eflingar þeirri vakningu, sem að er stefnt. Einlægni er reyndar forsenda vakningarinnar — ef vakn- ingin á nokkm sinni að verða annað en hermileikur. Af sjálfu leiðir, að eðlilegt er að bregðast við orðum dr. Hjalta, þótt það verði einung- is gert í stuttu máli á þessum vettvangi. Öll orðræða kristinna manna um guð- fræði, trú og kirkju snýst öðru fremur um mismunandi áherzlur. Meginþættir máls em öllum að jafnaði í þeim mæli sameiginlegir, að sjaldnast er tekizt á um hymingarsteina eða grundvöllinn sjálfan. Hér em áherzlur að vanda gerðar að álitum. Dr. Hjalti spyr, hvers vegna eining kirkju og þjóðar hafi orðið þungamiðja umræðunnar til þessa. Spumingunni mætti svara á einfaldan hátt með annarri spumingu: Hvers vegna ekki? — Er eitthvað athugavert við að leggja áherzlu á það, sem sameinar kirkju og þjóð? Er e.t.v. ástæða til að feitletra hitt, sem sundrar? Ef svo er að dómi dr. Hjalta kynni einhver að vilja spyija á ný: Hvers vegna? Það er rétt, að sjálfsvitund kirkjunnar skiptir hér mestu. En er ekki ástæða til að ætla, að sjálfsvitund kirkju og þjóðar sé í veigamiklum efnum hin sama? Hugtök á borð við „evangelísk-lúthersk kirkja“ og „hin opinbera stofnun samfélagsins um trú- arleg mál“ þarfnast skilgreiningar einmitt í þessu samhengi, — ýtarlegrar og endumýj- aðrar skilgreiningar. Alls ekki er víst, að þau hugtök séu hvert öðm andstæð né held- ur að þau skírskoti til tvenns konar vem- leika, er ekki verði samþættur á Islandi nú á dögum. Enda fullyrðir dr. Hjalti ekki, að um andstæður sé að ræða. Hann bendir hins vegar á álitamál, sem brýnt er að ræða ýtarlega og víða. Sú ábending er þörf — og hið mesta þakkarefni. Til bráðabirgða mætti varpa fram þeirri spumingu, hvort kirkja Islands sé ekki í jafn ríkum mæli „íslenzk kirkja" og „evang- elísk-lúthersk kirkja". Vissulega stendur lútherskur arfur hér styrkum rótum. En gildustu rætumar em rammíslenzkar — og nægir að nefna Passíusálma því til stað- festingar. Þeir em óaðfinnanlegur ávöxtur lútherskrar orþódoxíu, en jafnframt ein dýr- asta arfleifð íslendinga — og kirkju og þjóð trúlega hugleiknari sem alíslenzk gersemi en sem lúthersk guðfræði. Passíusálmar í hugskoti íslendinga em snar þáttur í sjálfs- vitund kirkju og þjóðar. Vafasamt væri að kljúfa þá vitund með of nærgöngulum at- hugasemdum. I annan stað mætti spyija, hvort miðalda- kirkjan á íslandi væri ekki jafnvel í enn ríkari mæli „íslenzk kirkja" en „rómversk- kaþólsk kirkja". Margt bendir til þess, þótt ekki verði það talið fram að sinni. Kirkjuleg íslenzk þjóðmenning er í ýmsu tilliti órofín um aldir, þrátt fyrir tvenna tíma. Hér hefur e.t.v. lengst af öðm fremur verið „íslenzk kirkja", þótt henni bærast misjafn- lega góðar gjafir úr ýmsum áttum. Svo er enn. Þetta skiptir miklu, hvemig sem á það er litið, bæði fyrir kirkju og þjóð. Gild rök þarf að færa fram af okkar hálfu og í okkar hóp, kirlq'unnar manna, ef við hyggjumst framkvæma áherzlubreyt- ingar í þessu efni. Þar með er ekki sagt, að þau rök sé hvergi að fínna. Þess vegna verður fróðlegt að fylgjast með frekari umræðu um þetta efni — og vonandi gaman að leggja orð í belg. Þorvaldur víðförli var vissulega ekki þjónn evangelísk-lútherskrar kirkju, af góð- um og gildum ástæðum reyndar! Nútíma- menn líta tæpast á hann sem sérlegan sendiboða rómversk-kaþólskrar kristni að heldur. Notkun Þjóðkirkjunnar á viðumefni Þorvaldar þúsund áram eftir hans dag er skemmtilegt dæmi um samhengið í lífi íslenzkrar þjóðar og kirkju. Hötundurinn er prestur og þjóögarðsvörður á Þingvöllum. Samkomustaður þjóðarinnar um aldir. Hérkemurfólk tilkirkju að Mælifelli í Skagafirði árið 1836. Ein af íslands- myndum Mayers.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.