Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Blaðsíða 4
Dr. Franz Mixa: „Ég varð að semja þriðja þáttinn í Fjalla-Eyvindi fyrst." „Þá þyrsti í þekkingu og drukku í sig allt sem ég gat veitt þeim“ K omdu sæl og gjörðu svo vel,“ sagði dr. Franz Mixa, glaðhlakkalegur á íslensku, og tók á móti mér á tröppunum eins og gömlum fjöl- skylduvini. Hertha Töpper, seinni konan hans, beið í forstofunni og spurði strax hvort ég DR. FRANZ MIXA höf- undur óperunnar Fjalla- Eyvindar, sem Sinfóníu- hljómsveit íslands flytur í konsertformi 9. apríl, segir frá komu sinni til íslands í október 1929, veru sinni hér og þátt- töku í að leggja grundvöll að tónlistarmenningu landsins. Hann býr nú í Múnchen og höfundur viðtalsins ræddi við hann þar. EFTIR ÖNNU BJARNADÓTTUR væri svöng. Ég viðurkenndi það svo hún fór að sækja sætabrauð en Mixa dreif mig í stofu. „Þetta er Islandshomið mitt,“ sagði hann, á þýsku í þetta sinn, og benti hróðug- ur á vatnslitamynd eftir Ásgrím Jónsson. „Ég fékk hana fyrir að stjóma tónlistamnd- irbúningnum fyrir Alþingishátíðina 1930.“ Myndin hangir á besta stað í stofunni. „Þökk fyrir góða samvinnu 1930. Hljóm- sveit og Lúðrasveit Reykjavíkur“, stendur greypt í rammann. „Ég bjó um tíma í næsta húsi við Ásgrím. Já, á Bergstaðastrætinu," sagði Mixa. „íslendingar ættu að kynna málarana sína miklu betur. Ég er héma með bækur með verkum eftir Ásgrím, Jón Stefánsson og Kjarval. Þeir standa aust- urrískum og þýskum málumm svo sannar- lega ekki að baki, síður en svo. Það ætti að halda sýningar með verkum þeirra á meginlandinu. Hann Helmut Neumann, formaður Austurrísk-íslenska félagsins, — ég er reyndar heiðursfélagi þess — hefur svo góð sambönd. Það ætti að fá hann til að undirbúa íslenska máiverkasýningu." En ég var ek.ki komin til Miinchen til að tala um íslenska málaralist. Sinfóníuhljóm- sveit íslands mun flytja ópemna Fjalla- Eyvind, eftir dr. Franz Mixa, á fímmtudags- kvöld og mér lék hugur á að vita hvemig það kom til að hann samdi verkið. Og hvem- ig á þvi yfírleitt stóð að hann var fenginn 27 ára gamall alla leið frá Austurríki til að Hertha Töpper og Franz Mixa á heim- Ui sínu íMUnchen í Vestur-Þýskalandi. stjóma tónlistarflutningi á þúsund ára af- mælishátíð Alþingis norður á íslandi. * „Það er hérna Is- lendingnr að leita að stjórnanda“ Mixa fæddist í Vínarborg árið 1902. Fimmtán ára gamall var hann farinn að vinna fyrir sér sem tónlistarmaður. Hann spilaði á píanó, lék kammermúsík og aðstoð- aði söngvara við æfingar. Hann gekk í tónlistarskóla Vínarborgar eftir stúdents- próf og útskrifaðist þaðan sem hljómsveitar- stjóri árið 1927. „Þetta vom erfíðir tímar,“ sagði hann. „Tónlistarmenningin í Aust- urríki var hátt skrifuð og tónlistarfólk kom alls staðar að til að læra í tónlistarskólanum í Vín, eins og það gerir reyndar enn. Fræg- ir kennarar kenndu við skólann og nemendur þaðan vom skipaðir í bestu stöður í helstu borgum gamla keisaradæmisins. Hljóm- sveitarstjórar og skólastjórar tónlistarskól- anna í Prag, Tríest, Búdapest, Graz og víðar höfðu allir lært í Vín. Og þeir sátu sem fastast. Það vom sárafá tækifæri í boði. Ég ákvað því að skrifa doktorsritgerð við háskólann, þótt ég ætlaði mér ekki að verða tónfræðingur og varð það heldur aldrei, og lauk henni á tæpum tveimur ámm. Ég var að leita að starfi í apríl 1929 þegar góður vinur minn sagði við mig: „Heyrðu Franzi, það er hérna íslendingur að leita að stjómanda fyrir afmælishátíð Alþingis." „Og hvað með það?“ spurði ég. „Ja, mér datt í hug að það gæti verið eitt- hvað fyrir þig.“ Ég fékk heimilisfangið hjá þessum íslendingi, skrifaði og sótti um starf- ið.“ Ég greip fram í og spurði hvaða íslending- ur þetta væri. „Það var hann Sigfús Einarsson, orgelleikari í Dómkirkjunni," ságði Mixa. „Þú manst ekki eftir honum. Hann samdi ágæt sönglög." Og þau hjónin tóku lagið, sungu angurblítt nokkrar laglín- ur úr Sofna Lóa. „Gullfallegt lag,“ sagði Hertha Töpper. Hún söng við ópemna í Miinchen í þijátíu ár og hefur þrisvar, 1957, 1967 og 1970, haldið tónleika í Reykjavík. „En ég hitti Sigfús ekki í Austurríki," sagði Mixa. „Ég sendi honum umsóknina, sagði deili á mér og hvað ég hefði lært. Hann skrifaði heim til íslands og mælti með mér. Mig minnir að það hafí 27 eða 29 sótt um stöðuna. Ég fékk hana, fór til ís- lands í október og hitti íslending í fyrsta skipti þegar þangað kom.“ Setti stofnun tónlistarskóla sem skilyrði Mixa sá fljótt að tónlistarmenning íslend- inga var ekki upp á marga físka. „Þeir skrifuðu mér að ég ætti að stjóma hljóm- sveit, en það var eiginlega engin hljómsveit," sagði hann. „Eitt hið fyrsta sem forveri hans sagði honum," skaut Töpper inn í, „var að þetta væri allt saman alveg ágætt en hann yrði að venja sig við óstundvísi hljómsveitarmannanna, þeir byijuðu aldrei á réttum tíma. En Franz vandi þá fljótt af því,“ sagði hún hlæjandi, og sá atburðinn fyrir sér. „Fyrsta æfingin hjá mér átti að hefjast klukkan átta að kvöldi," sagði Mixa. „Ég mætti fimmtán mínútum fyrir átta en þá voru bara nokkrir mættir. Nótumar vora fyrir framan hvem stól og á slaginu átta hóf ég æfínguna. Þeir fáu sem vora mættir horfðu undrandi á mig en byijuðu þó að spila. Eftir fimm mínútur kom fíðluleikari inn. Ég gerði hlé á æfíngunni, en leit ekki á hann. Grafarhljóð ríkti á meðan hann tók fíðluna upp og stillti. Allir fylgdust með honum. Ég beið rólegur. Þegar hann var tilbúinn sló ég í nótnagrindina og byijaði aftur að stjóma. Þá kom klarinettuleikarinn inn,“ og Mixa hló dátt við endurminning- una. „Eg hætti strax að stjóma, leit ekki á hann en beið á meðan hann kom sér í sæt- ið, tók upp klarínettuna, blés í munnstykkið og setti hljóðfærið saman. Allra athygli beindist að honum. Ég beið grafalvarlegur. Þetta var hræðilega óþægilegt fyrir þá sem komu of seint. En eftir þetta gat ég líka hafíð æfíngar á réttum tíma. Páll Isólfsson samdi kantötu sem ég út- setti fyrir hljómsveit og var flutt á Alþingis- hátíðinni sumarið 1930. Ég var ráðinn til landsins sem hljómsveitarstjóri og hefði getað farið fram á að stjóma flutningi verks- ins en við Páll komum okkur saman um að hann skyldi stjóma kantötunni á Þingvöll- um. Ég skildi vel að hann vildi stjóma eigin verki. Við fengum ellefu tónlistarmenn úr konunglegu hljómsveitinni í Kaupmanna- höfn til að fylla sætin í hljómsveitinni á hátíðinni. Ég stjómaði lúðrasveitinni á Þing- völlum og stjómaði síðan hljómsveitinni á hátíðartónleikum í Gamla bíói. Eftir hátíðina var þess farið á leit við mig að ég yrði áfram á íslandi. Ragnar Jónsson í Smára sagði að ég yrði að vera 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.