Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Page 8
HÚMORESKUR í STEINLEIR SÓLEY EIRÍKS- DÓTTIR opnar skúlpt- úrsýningu á Karvals- stöðum í dag. Efniviðurinn er stein- leir og sérstaðan felst ekki sízt í því, að þótt verkin séu unnin eins og hver önnur alvarleg list, hafa þau yflr sér eitthvað, sem kemur manni í gott skap. Idag eru merk áfangaskil hjá Sóleyju Eiríksdóttur, því hún opnar á Kjarvalsstöðum sína fyrstu einka- sýningu á skúlptúr, en áður hefur hún oft tekið þátt í samsýningum, bæði hér og erlendis. Við sögðum frá því hér í Lesbók fyrir um það bil þremur árum, þegar hún og tvær listakonur aðrar slógu sér á gamalt hús við Lindargötuna og settu þar upp vinnustofu. Sóley hefur verið mjög virk þótt hún hafí farið sér hægt í sýningar- haldi og er óhætt að segja, að hún sé þekkt meðal þeirra, sem eitthvað fylgjast með myndlist. Þótt Sóley stundaði sitt nám í keramik- deild Myndlista- og handíðaskólans, tók hún stefnuna fljótt á skúlptúr fremur en gerð nytjahluta, enda var skúlptúrdeildin naum- ast til, þegar hún var í skólanum. Af því sem sést hefur hefur eftir Sóleyju hingað til, er ljóst að hún hefur markað sér bás með sérkennum, sem eru hennar eigin. Á degi hveijum liggur leið hennar í vinnu- stofuna á Lindargötunni, en þar að auki kennir Sóley í keramikdeild og skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskólans. En hún stendur ekki í neinum átökum við leirinn heima hjá sér. Þar teiknar hún samt heilmik- ið og hefur þann hátt á, að teikna verkin alltaf áður en til þess kemur að gefa þeim form í þrívídd. En hún teiknar þau bara frá einni hlið. Nú er Sóley alveg hætt að forma nytja- hluti, til dæmis skálar, „nema þegar ég er í fýlu“ eins og hún segir, „þá geri ég eina og eina skál, svona eins og þegar íþrótta- maður hitar sig upp með því að hiaupa. En ég hef ekki áhuga á þesskonar framleiðslu sjálf, þótt ég hafí gaman af því að sjá nyta- hluti eftir aðra og beri fulla virðingu fyrir þeirri grein.“. Aftur á móti vildi hún geta unnið stærri skúlptúra, en ofninn setur henni takmörk á meðan hún heldur sig við leirinn og brennsluna og leyfír ekki stærri hluti en 80cm á hæð. Stundum hefur hún þó formað stærri hluti og komizt með þá í ofn annarsstaðar. Nú er svo komið, að hana Skúlptúr eftir Sóleyju. Efni: Steinleir. Nafn: „Tumi“. langar til að fara að vinna í önnur efni til þess að geta unnið stærri verk og þá um leið fengið annarskonar útkomu. Helzt vildi hún geta steypt í kopar og járn. „Mér finnst annars engu máli skipta hvaða efni eru notuð og hvemig skúlptúr er unninn, eða hvort hann er til dæmis málaður“, segir Sóley, „það eitt skiptir máli, að hann sé góður. Þegar rætt er um leirskúlptúr, þá er eins og sjálft verkið skipti engu máli; allt lendir í tali um tækni. Það er eins og það sé eitthvert tækniundur að brenna leir. Að sjálfsögu þykir mér leirinn mjög hrífandi efni. En mér fínnst um of liggja í landi , að litið sé á það sem hand- verk fyrst og fremst, þegar efniviðurinn er leir.“ Meðal þess, sem hefur einkennt leirlist Sóleyjar fram til þessa eru myndir af fólki - stundum einnig af dýrum - framsett á kátlegan máta, svo jafnvel mjög alvarlegum áhorfanda verður á að brosa. Það mætti kannski kalla þetta húmöreskur í leir og sést þessi kátlegi eiginleiki Sóleyjar til dæm- is á myndunum, sem hér fylgja með og eru á Kjarvalsstaðasýningunni. „Þetta er ekki neitt, sem er fyrirfram ákveðið, heldur eitthvað sem gerist", segir Sóley. „Ég fæ ekki allt í einu sprenghlægi- lega hugmynd og ákveð að festa hana í leirskúlptúr. En mér fínnst húmor engu spilla og ég vil að lífíð sé skemmtilegt. En þessi kátlegi svipur, sem þú minnist á, er ekki alltaf fyrir hendi. Sumt er einungis pínulítið ljóðrænt án þess að vera nokkuð sérstaklega fyndið. Ég hef aldrei reynt að mála mynd í al- vöru; geri það kannski þegar ég verð komin Skúlptúr eftir Sóleyju. Efni: Brenndur steinleir. Nafn:„ Ha?“ á gamals aldur. Eins og er hef ég yndi af þrívíðu formi; samt er það einhvemveginn svo, að myndimar fá forhlið og bakhlið. Formið verður þó að vera gott frá öllum hliðum. Þetta em allt fígúratífar myndir og oft er ég að segja einhveija sögu í leiðinni. Annars er mér lítið gefíð að tala um þetta. Það verður maður að vísu að gera í kennslu, en þá er verið að tala um annarra manna verk og það er miklu skárra." GS. Þetta er ekki maður með hrútshorn ogalls ekki sjálfsmynd. Efni: Steinleir. Nafn:„ Hvað?“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.