Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Side 11
Ketill kvað svo vera. Hrappr var þá einn á ganginum niðri. Ketill víkr að honum og sagði: „Heyrðu Hrappr minn! ég er ekki nærri því vaknaðr enn þá; þú munt ekki geta gefið mér hálfan núna?“ Hrappr svarar: „Eg á ekki eitt kvintin af brennivíni núna, svei mér þá alla daga.“ „Jæja, það gjörir ekkert til,“ segir Ketill. Hrafn gekk inn í lestrarstofu sína. Þar var fyrir Gyrgir og sat að lestri. Hann var maður hávaxinn og grannvaxinn, móleitr á hörundslit, svarthærðr og stríðhærðr, grannleitr og kinnbeinahár; engi var hann afburðamaðr á afl né mannvit, en meinorðr stundum. Hrafn átti tal við hann og gekk út síðan. Ketill spyrr, hvort nokkurr sé inni. Hrafn játti því: „Hann Gyrgir er þar, og er að læra utan að danska versíón yfír Livíus, og skilr ekki nema rúmlega annað hvert orð.“ Hrappr hristir höfuðið, hlær og segir: „Það er nú varla von, að hann skilji hana; hún er víst glettilega þung.“ — „Ég þurfti annars að ná bók,“ segir Ket- ill og hljóp inn í bekk. Þá lýtr Hrappr að Hrafni, og segir: „Það er annars brennivínsveðr; viltu ekki fá þér neðan í því, lagsmaðr?" Þá hýmaði yfír Hrafni, og kvaðst hann það þiggja vilja; ganga þeir síðan í stofu báðir. Hrappr dregr upp flösku fulla, lýtr í og segir: „Ogn hefír þó dregið sig saman í henni síðan áðan.“ Síðan drekkr Hrafn eitt staup. Þá bauð Hrappr annað. „Gef mér í nefíð fyrst,“ segir Hrafn. Hrappr gjörir svo, og þá þá Hrafn annað. Þá setr Hrappr fíöskuna inn í skáp. Hrafn hyggr á eftir flöskunni og segir: „Hrappr! allt er, þegar þrennt er!“ Hrappr hlær og segir: „Viltu fá einn til? Það er velkomið." „Ekki spillir það,“ segir Hrafn, „því að mér sýnist á gluggunum sem ekki veiti af því, einkum af því ég er nú aldrei í neinu utan yfír mér, hvort sem það nú er af nísku. mikilmennsku, eða af hveiju sem það nú er.“ — Síðan rennir hann út hina þriðju og fer svo heim. En er Hrafn kom heim voru þeir þar fyr- ir mötunautar hans, Skeggi, Styrr, Heim- dallr, Njörvi og Loki. Bessi var þar og kominn. Hrafn spurði um hvað þeir ræddu. Bessi svarar: „Við ætlum að prótestera á móti því að fara í kirkju í dag, af því að messað var á dönsku á sunnudaginn var.“ Hrafn segir: „Ætlið þið þá ekkert guðs- orð að hafa í dag?“ — „Bænir, held ég,“ segir Bessi, „hann Þrándr vill ekki gefa það eftir með öðru móti, og er ég þó búinn að nudda við hann lengi." Hrafn spyrr, hverr yrði við bænir. — „Sigurðr," segir Bessi, „hann átti líka að fara í kirkju; hann má verða feginn að fríast við það í þessum kulda." — „Jæja, þetta er ekki svo óálitlegt,“ segir Hrafn. Síðan fór Bessi út, og ætlaði að gjöra þeim vart að koma til bæna, er eigi vissu áðr þessa ráðagerð. En er hann var útgeng- inn, tekr Styrr til máls og segir: „Eigum við ekki að fara að éta — hverr praktíserar í dag?“ „Það skal ég gera,“ segir Skeggi og verpr 12 skildingum á borðið og segir: „Taktu flösku í skápnum, Dalli, og biddu hana Gunnu gotrauf að hlaupa eftir á hana." Heimdallr segir: „Hvar er annars best brennivín?" „Hvergi best,“ segir Hrafti, „en það er illskást hjá honum Einari ugga; það er ann- ars hvergi ærlegt brennivín að fá, síðan hann Jón heitinn fór til andskotans eða ég veit ekki hvert.“ Heimdallr fór fram með flöskuna og skild- ingana, en kom brátt aftr og mælti: „Andskotans kerlingin kemst ekki til að fara; hvemig eigum við nú að fara að?“ Skeggi svaran „Við skulum senda hann Loka; þú hleypr fyrir okkur, greyið mitt! Og vertu eldandi fljótr." Loki stingr flöskunni í treyjuvasa sér og hleypr út síðan. Litlu síðar em barin 5 högg á dyr og þrammar Hákon inn. Hann var maður lág- vaxinn og gildvaxinn, þrýstinn og herði- breiðr. Hann kastar kveðju á menn, og spyrr síðan: „Hvort hafíð þið sent hann Loka núna út af örkinni? Ég mætti honum héma fyrir utan og stóð þá flöskustútr upp úr vasa hans, og stiptamtmaðrinn og hann Finnr kaupmaðr, helvítis kjaftagrindmar þær, mættu honum rétt á eftir.“ „Já, já,“ segir Styrr; „það verðr þá ekki lengi á leiðinni til andskotans, það vill segja, hans Pusa.“ Skeggi segir: „Við skulum skamma strák- inn, þegar hann kemr; andskoti er hann líka lengi; það er öldungis ófært; við verðum að beija hann, held ég.“ Heimdallr yrti á Hákon og mælti: „Ertu kominn til þess að sníkja brennivín, skratt- inn þinn?“ „0, nei,“ segir Hákon, „ég ætlaði að fá mér í nefíð hjá helvítinu honum Kolbeini; er hann ekki kominn á lappimar enn þá?“ „Líklega ekki, hann var blindr í gær- kvöldi," segir Heimdallr. — í því bili kemur Loki með flöskuna. Skeggi stökkr upp og þrífr af honum flösk- una og segir: „Við skulum fá okkur dramm; það er annars of lítið í okkr svona marga þetta, og so-gar hann Hákon með.“ Hrafn segir: „Ætla það verði ekki pass- legt; ég vil reyndar ekki hafa í þessum bölvuðum pínum, en ég vil heldr ekki nema einn snafs almennilegan." „Og ég ekki heldr," segir Hákon. Skeggi svarar: „Því ætla þú viljir ekki annan og þriðja? Aperíens í þig er ekki nema rétt eins og einn dropi í sjóinn." „Ég kemst ekki til meira; ég fer strax út,“ segir Hákon. „Og ferð út til að dufla; ég kem með,“ segir Hrafn. Síðan fóra þeir á brott bráðum. Er þeir vora út famir, mælti Hrafn: „Veistu um, þessar bænir, sem þeir ætla að halda í dag?“ Hákon segin „Nei, höfum við ekki kirkju?" Hrafn segin „Nei, þeir ætla að oppónéra repúblíkanamir, Bessi og Styrr og fleiri." Hákon segir: „Ætla það verði nokkuð úr því? Skyldi hann Þrándr vilja það?“ Hrafn segin „Bölvað fari það, að það verðr nokkuð úr því; þeir segja rejmdar, að Þrándr ætli að gangast fyrir því; en hann er viss með að svíkja þá; hann er soddan andskotans selr; það gildir annars einu í þessu efni.“ Hákon hlær við og segir: „Þeir vora ann- ars rétt efnilegir þama inni, Skeggi nokkum veginn plenus — hann hefr víst smakkað einhvers staðar annars staðar í morgun — og hinir nokkum veginn semíplení eða und- ir það.“ Hrafn segin „Já, en Skeggi hefír nú samt ekki smakkað nema einn og líklega engan, þegar hann kemr upp eftir, ef rektor ferr að tala um það; en hefír þú séð fleiri fulla í dag?“ Hákon segir: „Ketill sýndist mér nokkum veginn blindr áðan — ég mætti honum á götu —, og ég gekk áðan fram hjá honum Hróbjarti, og stóð Þórarinn þar fyrir utan dymar og var að míga." Hrafn segin „Sá hefír svei mér verið búinn að hesthúsa nokkrar af ölinu; ætla þeir hafi ekki sjálfsagt verið þar fleiri?" Hákon svarar: „Og sjálfsagt; ég þóttist sjá framan í hann Sighvat litla út um gluggann; ég hefí máské forfært hann til drykkjuskapar með kirsubeijabrennivíninu í fyrra; honum þótti það svo ósköp gott.“ Hrafn segir. „Maðr vonar, að ekki sé svo, en nótabene er ölið ekki spírítúósum?“ Hákon svarar: „Nei, nei; en það er oftast eitthvað rauðleitt eða hvítleitt með því; það er nú þessi andskotans drykkjuskapr; þó við séum ekki bindindismenn, þá drekkum við þó með anstand." — „Já, það er nú svo,“ segir Hákon, „ég í fyrra og þú á duggara- bandsáranum þínum; þá fóram við nokkram sinnum með flösku uppá vasann út á batt- erí eða suðr á mela eða upp að Skólavörðu, o.s.frv." Hrafn svarar: „Já, þetta var ljóti lifnaðr- inn reyndar; það var orðið að máltæki hjá mér að kalla vinstri hliðina á mér flöskumeg- in, t.a.m. að sitja flöskumegin við mig var að sitja mér til vinstri handar." Hákon segir: „Flaskan hefir þá verið ein, og þín vinstri handar kona.“ Síðan lauk tali þeirra og gengu þeir upp í skóla báðir . . . ... Nú er þar til máls að taka, að þeir setjast að borðum Styrr og Skeggi, Hrafn, Heimdallr og Njörvi. Þar var og fleira manna. Ásdís Guðnadóttir gekk um beina. Styrr var maðr vaxinn vel og viti borinn, en ákafamaðr mikill og nokkuð uppivöðslu- samr, orðhvatr og orðdjarfr. Hann tók til máls og mælti: „Mikið andskotans hunda- greni er þessi bær; enginn kotrass er svo argr, þótt um víða veröld væri leitað, og varla þótt farið sé til helvítis," og hlær við. „Hvað er hér nýtt á ferðum?" segir Heimdallr, „sástu nokkuð hundagrenislegt í kirkjunni í dag?“ Styrr segir: „Ekki eiginlega, en hann Bessi hvíslaði því að mér, að tvær dömur hefðu nefnt mig í einhveiju hljóðskrafí í gærkvöld sín í milli." „Ertu svo heilagr að ekki megi nefna þig?“ segir Heimdallr. Styrr svarar: „Þær hafa sjálfsagt verið að tala um mig einhveijar skammir." Heimdallr segir: „Er ekki hægt að tala annað en skammir um þig?“ Styrr segir: „O, það er misskilningr og það í meira lagi; ertu virkilega svoddan asni og idjót, að þú vitir ekki, að þær tala aldrei neitt annað en tómar skammir og lygar, dömumar héma f Vík?“ Heimdallr brosti og mælti: „Ég þykist vita það mótsetta." Þá rekr Skeggi hnefana í hlið honum, svo að hann var nær fallinn af stólnum, og mælti: „Viltu nokkuð vera að forsvara þau helvítis skftt?“ „Ekki gengr nú lítið á,“ segir Ásdís hús- freyja; „þær era líklega ekki þess verðar að vera að beijast út af þeim. Hvað hafa þær annars gert yðr, Skeggi?" Skeggi svaran „Þær hafa logið upp á mig fyllisögum og dufísögum, og ég veit ekki hveiju; og þó þær hafí aldrei nema séð mig kenndan, þá kemur þeim andskotann ekkert við að kjafta um það.“ „Það er bágt að banna þeim að tala,“ segir Ásdís. „Mér er iíka sama,“ segir Skeggi, „hvem djöfulinn þær slúðra; ég tek ekki allra minnsta nótise af því; ég ætla mér ekki að setja loku fyrir bölvaðan kjaftinn á þeim.“ „Já, segjum tveir, þetta er mikið skyn- samlega sagt,“ segir Styrr. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. APRÍL 1987 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.