Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1987, Page 12
Mælti að lokum enginn á móti. Var nú staðið upp frá borðum ... ... Skeggi gengr út og hittir Svöfu Sig- hvatsdóttur. Hún var ein heima. Skeggi tekr í hönd henni og segir: „Má ég ekki heilsa yðr með kossi, fröken? Það er svo langt síðan ég hefí séð yðr,“ dregr hana síðan hægt að sér, og kyssir hana fast. Síðan setjast þau niðr og hjala. Hann hallar sér að bijósti hennar og seg- ir „Ég þori að segja, það er ekki skemmti- legra hjá englunum en yðr.“ Svafa brosti og mælti: „Þér meinið ekk- ert með þessu; þér eruð að gjöra að gamni yðar.“ Skeggi svarar: „Er það mögulegt, að þér getið haft þá meiningu um mig, að ég geti sagt annað við yðr en ég meina?" Hann hnýtir hnefana fyrir aftan bak sér og hleyp- ir brúnum og vill upp standa. Hún þrífr í hann og mælti: „Þér megið ekki reiðast; ég hefí alltaf haft góða þanka um yðr og álitið yðr eins og bróður minn.“ „Eins og bróður? Geta þá bróðir og syst- ir elskast," segir Skeggi. Svafa svarar: „Það þykist ég hafa reynt.“ „Má ég þá sitja kyrr?“ segir Skeggi. Svafa brosti og mælti: „Ekki banna ég yðr það.“ Hallar hann sér þá aftur að bijósti henn- ar og sofnar þar. Hún ferr þá hægt undan honum, lætur kodda undir höfuð honum og breiðir ofan á hann. Síðan sest hún á stól gagnvart honum og tók að sauma, og renn- ir ótt til hans döpru auga. En er háttatími var kominn fyrir hann, vekr hún hann. Hann rís upp og segir. „Hverr andskot- inn? Hvar er ég? Hvemig er ég hingað kominn?" Hún segir sem var. Hann rekr þá upp hlátr mikinn, kveðr hana síðan með handabandi, og fer síðan upp í skóla, en hún sat eftir og felldi tár. En er hann kom inn í svefhsalinn, voru flestir til reklqu gengnir. Loki og Heimdallr flugust á. Hákon sat á rúmi Sighvatar og ræddi við hann. Hrafn var á gangi. Hann var maðr meðalhár, en þrekvaxinn og stór- beinóttr, dökkr yfírlits og hárið svart, munnstórr og digmefjaðr, og liðr á nefí. Hann var hljóðlyndr jafnan og myrkr í skapi, einrænlegr og óráðþæginn, óþýðr og óvæginn, er því var að skipta. Hann gekk aftr og fram um gólfíð með knýttum hnef- um, og beit á jaxlinn og raulaði fyrir sér: „sator a repo“ o.s.frv. Allir vom til rekkju gengnir að slökkmáli. En er Hrappr hafði slokkið ræddi Ketill til Bessa: „Hvar hefírðu verið seinni partinn í dag?“ „Og á götunni mestmegnis," segir Bessi; „við skmppum reyndar allra snöggvast inn til hans Böðvars, til þess að fá okkr kalt vatn og sígara." Ketill segir: „Hveijir vom með þér?“ Bessi svarar: „Og við vomm nú ekki nema ellefu í hópnum." Þá tekr Tryggvi fram í og segir: „Mikil andskotans kómedía var það sem við höfðum í kvöld. Við mættum kerlingu og fómm að tala við hana rétt upp á grín; en þegar við ætluðum burt, brá helvítið hann Mörðr henni, svo hún steyptist á grúfu ofan í fönn- ina; svo skildum við hana eftir hljóðandi. Svo mættum við pólitíunum, og Þórarinn sagði þeim, að við væmm að leita að þeim til þess að segja þeim til kerlingar, sem við hefðum séð í fönninni." Ketill segir: „Ætla að kerlingin hafi ekki þekkt ykkr?“ Tryggvi svarar: „Hún hefír sjálfsagt þekkt, að það vom skólapiltar, en líklega ekki meir.“ Ketill segir: „Bölvaðr spillopmager er hann Mörðr; var það ekki hann, sem meig í flöskuna héma um daginn?" „Sumir kalla svo,“ segir Hrafn. „En veit enginn hver meig í stígvélin Snakkarans í fyrra?" spurði Ketill. Tryggvi mælti: „Þú hefír líklega gert það sjálfr; ég trúi engum öðmm til að vera svo dónalegum." Hákon segir: „Veit ég þann sem veit; það er ég sjálfr." Ketill segir: „Æ, hverr var það, greyið mitt? Segðu okkur það?“ Hákon mælti: „Hvem andskotann ætla þig varði um það; þú hefír nóg að kjafta um annað, ef þú þarft þess endilega með.“ Gyrgir segir: „Hann ætlar að gefa henni madömu Signýju það í leiktoll." Ketill segir: „Ég skal rota þig með massa af eifrópeiskum fraser(?), ef þú slúttar ekki á þér túlanum, andskotans gaglnefrinn þinn!“ Gyrgir mælti: „Þetta er svo ósköp ómerki- legt; það er svo trítum." Ketill segir: „Enn þá trítari em andskot- ans absúrdan, sem daglega emanéra úr þínum dúmmkloðríanska kopfí.“ — Þögnuðu þá allir og tóku að sofa. L I F R I K I Ð Votnin miklu í Norður-Ameríku Fyrstu landkönnuðir, sem fóru um vötnin, nefndu þau ferskvatnshöfin. í þeim eru 20% af öllu fersku vatni jarðarinnar og 80% af ferskvatni Norður Ameríku. Vatnakerfið nær yfír hálfa Ameríku og meðfram 1600 km af landamærum Vötnin í Norður Ameríku eru það stór, að geimfari sér þau frá tunglinu. Vatnasvæði þeirra nær yfir 764 þús- und ferkílómetra, þar af eru sjálf vötnin 246 þúsund ferkm., eða^ eins og hálft þriðja ís- land. Þessi vötn eru 5 og þau eru meðal 15 stærstu vatna heimsins. EFTIR SIGURÐ GREIPSSON Kanada og Bandaríkjanna. Vötnin hafa töluverð áhrif á veðurfar í miðri Norður Ameríku. Þau kæla loftið á vorin og sumrin en hita það á haustin. Vötnin eru ung jarðfræðilega séð. Þau myn- duðust fyrir 9 þúsund árum, þegar síðasti ísaldaijökullinn hörfaði. Þau heita Superior, Huron, Michigan, Erie og Ontario. Superior er vatnanna stærst; það er einn- ig nyrst og dýpst þeirra, dýptin mest 408 metrar. Þessi risastóru vötn eru samtengd af fljótum sem hafa nokkuð jafnt rennsli. Þannig tengir St. Maryá áin Superior-vatnið við Huron-vatn. Hæðarmismunur þar á milli er enginn. Það er síðan St. Clair áin, sem tengið Huron við Erie-vatnið, en afrennsli þess er Niagara-áin, sem rennur í Ontario- vatn. Þar á milli er um 100 metra hæðar- munur og þar verða hinir frægu Niagara- fossar, 93 m á hæð. Þetta mikla vatnsrennsli er að hluta til undir stjóm; til dæmis er vatnsmagni í Niag- ara-fossum stýrt og haft mest þann hluta úr árinu, þegar ferðamannastraumur er mestur, en þar fyrir utan er helmingur vatnsmagnsins tekinn til raforkufram- leiðslu. Þetta eru feykileg vatnsforðabúr; öll eru þau það djúp, að botn þeirra nær niður fyrir sjávarmal, nema Erie-vatnið, sem er þeirra grynnst. Aftur á móti er Ontario- vatnið minnst að flatarmáli, en næst dýpst. Úr því rennur St. Lawrence-áin, um 500 km löng, og eina afrennsli vatnanna í úthöf- in. Hún er mikilvæg skipaleið og nokkur raforkuver nýta sér fallhæð hennar. Raunar er hún vatnsmeiri en áður var. Það helgast af því, að rennsli í vötnin hefur verið breytt og tvö fljót, sem áður mnnu í Hudson-flóa, renna nú í Superior-vatnið. Það var á sínum tíma gert til þess að fá aukið vatnsmagn til raforkuframleiðslu. Einnig er tekið heilmikið vatn til ýmissa þarfa; til dæmis er 90 rúmmetrum vatns dælt á hverri sekúndu til Missisippi-fljótsins og er þetta m.a. gert til þess að draga úr mengun í Michigan-vatninu. Talsvert vatns- magn þarf í alla þá skipaskurði, sem tengjast vötnunum. Arið 1975 voru teknir úr vötnunum 140 þús. lítrar á sekúndu til aðskiljanlegra nota fyrir mannfólkið, m.a. að hluta sem drykkjarvatn fyrir þær 37 milljónir manna, sem búa í nánd við vötnin. Welland-skipaskurðurínn var grafinn framhjá Niagara-fossunum ogskipti sköpum fyrir flutninga með stórum skipum. Hæðarmismunurþama er 99,5m Eins og nærri má geta nota einnig land- búnaðurinn og ekki sízt iðnaðurinn stóran hiuta af þessu vatni. Og þörfín fyrir vatn fer frekar vaxandi; áætlað er, að eftir um það bil 50 ár verði teknir 880 þúsund sek- úndulítrar til sömu nota, ef svo fer fram sem horfír. Að sjálfsögðu verður að láta neyzluvatn fara í gegnum hreinsistöðvar. Stjórnun á vatnshæð og mengnnarvandinn Með stíflum við útrennslið úr vötnunum Niagara-fossar eru milliErie og Ontariovatns, þar sem hæðarmunurinn er mestur milli vatnanna oglengst af var hér aðalþröskuldurinn í sambandi við skipaferðir. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.