Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Blaðsíða 8
Það þarf mikið til að sýning veki reiði nú á dögum. En það gerði sýning Bandaríkj amannsins Jeffs Koons, sem lætur verkstæði framleiða afsteypur af dóti úr glys- og gjafavörubúðum, og selur síðan á geypiverði í virtum og frægum galleríum New York-borgar. Eftir HALLGRÍM HELGASON byijun desember síðastliðins var opnuð sýning ein í New York sem vakið hefur eina þá mestu úlfúð og uppistand sem þarlendur listheimur hefur séð. Er hér um að ræða sýningu bandaríska huglista- mannsins Jeffs Koons í Sonnabend-galleríinu. En Jeff þessi hefur á undangengnum misserum unnið sér inn frægt orð hjá listaspekúlönt- um heimsins fyrir nýstárleg og umdeilan- leg jafnt sem taugavirkandi verk í anda hins ný-svokallaða simúlisma, sem bland- inn er áhrifum aftan úr konsepti og fullum sættum listarinnar við ólist samtímans eins og fólk finnur hana og kaupir í glys- og gjafavörubúðum. Það sem á útlensku nefn- ist kitsch. Hinir hverdagslegustu hlutir hafa gjarnan orðið Koons að yrkisefni, svo sem körfuboltar, ryksugur og gúmbjörgun- arbátar, sem hann steypir í nýtt samhengi með því að steypa þá í brons-, stál- eða vatnstanka. Fræg eru og ágæt verk hans með körfubolta marandi í vatni glerbúrs og uppblásna kanínudúkkan sem varð að skínandi fagurri og ryðfirírri stálstyttu. Þetta síðasttalda verk var eitt fyrsta skref- ið í þá átt sem Koons hefur síðan haldið í, til.meiri og meiri ögrunar með mótívavali sínu. Hann siglir hröðum byri í suburbíska úthverfamenningu og daðrar sífrekar við lágsmekkinn. Það átti því ef til vill ekki að koma mönnum í þessa opnu skjöldu, sem raun varð á, þegar Jeff Koons opnaði þessa sýningu sína. Samtímis í þremur borgum, New York, Chicago og Köln, gat að líta stækkaðar útgáfur af ýmsum styttum og ímyndum óskheimsins eins og maður á að venjast úr stofuhillum og gluggum minja- gripaverslana. Þegar gengið er inn úr lyftu Amore, 1988. „Björa og lögregtumaður", pólýkróm&ður viður, 1986. Michael Jacksoa og Bubbles, postulín, 1988. Sonnabend-gallerísins blasir við manni höfuðverk sýningarinnar, gulli dýfð postu- línsstytta af poppmeistara heimsins, sjálf- um Michael Jackson, með einkavini sínu, apanum Bubbles, í meira en líkamsstærð. Og síðan taka við af henni fleiri stærðir í líkum dúr, vinkandi Vetrarbimir úr út- skomum viði, ástardúkka úr sykurgljáðu postulíni, bleikur pardus að faðma bijósta- konu, systkin tvö af Týróla-ættum með bláhvolpa og vingjamlegur skógarbjöm á tali við breska bobbylöggu. Af þessari upptalningu að ráða og myndum fylgjandi sést hví viðbrögð urðu svo hörð sem raun bar vitni. Blöð borgar- innar yfírfylltust af mótmælum gagnrýn- enda sem rökkuðu sýninguna niður á það sama plan og fyrirmyndir hennar fylla. „Versta listsýning í New York“ sagði Vil- lage Voice og New York Observer kvað á forsíðu Jeff Koons hafa tekist að troða myndlistina endanlega niður í svaðið. Af krítískri varkámi maldaði New York Ti- mes lítt í móinn og spurði aðeins gáfu- legra efaspuminga. Fólki var nóg boðið, mælirinn var fullur, í 50 ár hafa menn vanið sig á það að þurfa að kyngja með semingi og lítilli sannfæringu hinum nýrri og sí-óvenjulegri straumum nútímalistar- innar en harðneitaði nú loks að hafa sig að blekkifífli. Abstraktið var ókei, popp- listsin, já, já, konseptið athyglisvert, skvettuverkin mátti venja sig við, en þetta: Gullafsteypa af sjálfu tákni láglistarinnar, Michael Jackson, nei, þá er okkur nóg boðið. Við grípum hér niður í umfjöllun Hiltons Kramers í The New York Observer um þessa sýningu: „En erum við ekki fyrir löngu orðin ónæm fyrir listrusli af öllum stærðum og gerðum? Höfum við ekki þeg- ar séð alla þá tegund af ósmekk og spilltri túlkun sem listheimurinn er ætíð svo dug- legur og frumlegur að troða upp á okkur? Svarið er: Nei. Með þessari sýningu er nýjum botni náð. Þið hafið kannski haldið að ástandið væri þegar orðið eins slæmt og það gæti orðið, en hr. Koons sannar með þessari sýningu sinni að þið hafíð Vetrarbirnir, pólýkrómaður viður, 1988. Nakin, postulín, 1988. „Myndlistin endanlega troðin niður í svaðið“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.