Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1989, Síða 15
Hinn hagsýni ferðamaður
Of mikíl eða of lít-
il sól á ferðalagi
Oddný Sv. Björgvins
Jalhvel hagsýnustu ferða-
menn, sem skipuíeggja ferðalög
með mikilli forsjálni, gleyma
oft áhrifum veðurfarsins. Þeir
fletta í gegnum ferðablöð og
leiðbeiningarit, velja hag-
kvæmustu gistinguna, selja upp
bestu dagskrána og telja að
þeir hafi ferðina í sínum hönd-
um. Flestar þjóðir (aðrar en
íslendingar) gleyma að reikna
með veðrinu, sem hefur einna
mest áhrif á hvort ferðalagið
verður vel heppnað eða ekki.
En við íslendingar erum oftast
í kapphlaupi við sólina í ferðalög-
um. Við fáum svo mikið af stormi,
rigningu og stórviðrum, að við
viljum stöðugt veðurfar — helst
sól í fríinu. Hvaða íslendingur
hefur ekki reynt rigningarferð um
landið? Allir litir gráir. Regnsuddi
niður í miðjar hlíðar. Engin fjalla-
sýn. Eða að vakna upp um miðja
nótt í tjaldi, við rok og rigningu.
En þeir hraustustu gefast ekki
upp. Þeir pakka bara niður „föð-
urlandinu“, regngöllum, vatns-
heldum gönguskóm og stígvélum
og halda á vit móður náttúru ís-
lands.
Flestir íslendingar hafa reynt
þetta á ferðalögum um landið.
Það er því ekki skrítið, að við vilj-
um sól og ekkert nema sól í
hvíldarferðum. Allir verða að vera
viðbúnir því að_ lenda í rigningu á
ferðalagi um ísland. En það er
fátt ömurlegra en að lenda í rign-
ingu á erlendri sólarströnd.
Ströndin breytist í yfirgefinn eyði-
stað. Og ekki hægt að setjast á
útistaði á torgunum. Þá er eftir
að þræða verslanir, fara í skoðun-
arferð eða að setjast inn á bar.
En það er ekki hvíldarfrí. Einn
dagur af dýru, dýrmætu fríi eyði-
lagður, segja margir. Margir ís-
lendingar eru svo miklir sóldýrk-
endur, að þeir hlaupa í sólbekki
erlendis, strax og dregur ský fyr-
ir sólu.
Ósónlaginu má líkja við „sólgleraugu jarðar".
Húð sem hefur verið hlíft
við sólböðum, á móti húð
sem er oft í sól.
Sólarljósið er hættulegt
En farið varlega í sólinni. Sólar-
ljósið getur verið hættulegt þeim
sem eru hvítir á hörund. Og sól-
bruni hjá íslenskum ferðamönnum
er of algengur. Sú hætta er fyrir
hendi að of mikil sóldýrkun orsaki
illkynjuð útbrot, jafnvel húð-
krabbamein. Ofnæmi fyrir sólar-
ljósi er líka töluvert algengt. Það
brýst yfirleitt út vegna of mikilla
sólbaða á of skömmum tíma. Því
fylgir mikill kláði, útbrot og jafn-
vel smáhiti. Þeir sem einu sinni
hafa fengið ofnæmi fyrir sólar-
Ijósi, þurfa að nota lyf, ef þeir
ætla að stunda sólböð. Og ekki
má gleyma öllum hrukkunum,
sem sólin getur valdið. Formæður
okkar gengu alltaf með klútinn
fyrir andlitinu við útiverk. En þá
þótti líka miklu fínna að vera
hvítur á hörund.
Fáum við of mikið af sól
eftir aldamót?
En allt er afstætt. Kannski eiga
afkomendur okkar eftir að fá of
mikið af sól. Gat er komið á ósón-
lag lofthjúpsins, sem hefur það í
för með sér að útfjólubláir, skað-
legir sólargeislar eiga greiðari
aðgang að okkur. Og samkvæmt
öllum framtíðarspám, á eftir að
hlýna hér verulega upp úr alda-
mótum. Hér á landi er ekki mikið
talað um svonefnd gróðurhúsa-
áhrif. En víða erlendis eru þau
ofarlega í allri umræðu. Fólk er
eindregið varað við notkun úða-
brúsa. Hvatt til að nota blýlaust
bensín og fleira. Lofthjúpurinn er
óðum að lokast vegna eiturefna,
sem setjast í hann. Talað er um
— í fullri alvöru — að Holland og
Danmörk eigi eftir að sökkva í
sæ, þegar jöklar fari að bráðna
og sjávarflötur að hækka. Og þá
— fljótlega upp úr aldamótum —
getum við farið að rækta nytja-
jurtir, sem áður uxu eingöngu á
suðlægum slóðum.
Getum við hagað
ferðalögum eftir
veðurspám?
Ferðablaðið hafði samband við
Veðurstofu íslands: Vegna legu
landsins er mjög erfitt að vera
með langtíma veðurspár. Og allt
í kringum okkur er verið að fækka
veðurstöðvum, til dæmis á Græn-
landi. Fyrir 20 árum voru milli
10 og 20 veðurathugunarskip á
miðunum. Alfa, Beta og fleiri.
Núna eru aðeins 3-5 skip. Og svo
talar fólk um „að veðurspáin
bregðist — einu sinni enn“. Nú
eru ’ veðurspár meira byggðar á
veðurtunglum og tölvutækni. Af
120 veðurstöðvum, allt í kringum
landið, eru 30 komnar með tölv-
ur. Þær eru tengdar beint við
gagnanet okkar og upplýsingar
berast samstundis.
Miklar vonir eru líka bundnar
við veðurtunglin. Með hjálp þeirra
á að vera hægt að sjá með löngum
fyrirvara, hvernig veðrabrigðin
byggjast upp. Til dæmis á felli-
byljasvæðum á Karabíska hafinu.
Bandaríkjamenn gefa út veður-
spár fyrir mánuðinn, en þær eru
ekki áreiðanlegar. Segja aðeins,
að líklega rigni þama og líklega
verði sólríkt á þessu svæði. Niður-
staða: Við getum ekki með fullri
vissu, hagað ferðalögum okkar
eftir veðurspám. En byggt á iíkum
og samanburði milli ára og svæða.
Ferðabækur
Nýr „leiðsögu-
maður“ á
gönguleiðum
O.SV.B.
Önnur bók í bókaflokki AB um gönguleiðir á Islandi var að koma
út. Bókin ber nafhið „Suðvesturhornið, Reylq'anesskagi“. Texti
Einars Þ. Guðjohnsens er hnitmiðaður að vanda, kannski stundum
um of. En á móti má segja, að fáir nenna eða geta lesið langa texta
á göngu. Kort eru birt yfir allar gönguleiðir. í heild virðist bók-
in góður „leiðsögumaður" í vasann fyrir göngufólk um þessar
slóðir.
í inngangi segir: Reykjanes-
skagi virðist eyðilegur og hijóstr-
ugur, en í auðninni leynast marg-
ir fagrir og ljúfir blettir og mikil-
fengleg náttúruundur. Atlants-
hafssprungan gengur í gegnum
svæðið og eldvirkni fyrr og síðar
víðast augljós. Þess vegna er oft
vitnað í jarðfræði og stuðst við
skrif Jóns Jónssonar, jarðfræð-
ings. Við grípum niður í fyrsta
kafla bókarinnar, gönguleiðir um
Álftanes.
Alftanes
Álftanesið er með allra
skemmtilegustu stöðum í ná-
grenni við höfuðborgina. Og
margir leita þangað allan ársins
hring, þó ekki sé nema til að viðra
sig. Fjörugöngur á vestanverðu
nesinu eru áhugaverðar og ekki
leiðigjamar, þótt farið sé aftur
og aftur. Eftir mikið brim er
stundum hægt að tína öðuskeljar
á Hrakhólmum og oft eru þar
selir að forvitnast um vegfarand-
ann. Álftanes er þekkt fyrir fjöl-
skrúðugt fuglalíf. Vor og haust
er hægt að sjá þar ijölda af far-
fuglum á leið til og frá varpstöðv-
um á norðlægari slóðum. Til dæm-
is eru margæsir og helsingjar
þama árvissir gestir.
Göngur um Álftanes
Nefna má tvær ágætar hring-
göngur á nesinu. Önnur leiðin er
ifðabólSitoÖir *>
BeisastaSanes V
ÁlftíXM
Trö6 /•
i LandaVot
n _ Norf
fj Akuigaröi^^
Eyvirdantaíir
oli
Bessarloðir
Búitarðu' fonata islýndi
Selskarð
Melhós
fyðiJbyii
Gílgah raun
#Ey8.byii I Hausaitaöif
HjjSsne!
raaeier'
fíórfésishöi
grynnmg&r
BfúsasraSir
Hringgöngur um Álftanes eru merktar inn á kortið
frá Bessastöðum, og má ganga
þar fyrir neðan garð og út á
Bessastaðanes eftir ökuslóð.
Vestast á Bessastaðanesi komum
við að rústum Skansins, sem þar
var gerður á 17. öld til vamar
sjóræningjum. Og við getum rifjað
upp danskvæðið um Óla skans,
sem bjó-í Skansinum í lok síðustu
aldar.
Við höldum áfram með Seil-
unni, víkinni við Skansinn. Fylgj-
um svo ströndinni vestan við
Breiðabólsstað og Akrakot. Telja
má ömggt, að margt skemmtilegt
ber fyrir augu á þessari leið. Hinn
hringurinn getur hafíst við Kast-
húsatjörn og má fylgja þaðan
ströndinni til suðurs alveg að
Melhúsum eða jafnvel Hliði. Til
baka má svo ganga eftir veginum
kringum byggðarkjarnann eða
jafnvel gegnum byggðina að upp-
hafsstaðnum við Kasthúsatjörn.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9. SEPTEMBER 1989 15