Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1989, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1989, Page 5
Samkomuhúsið sem Magnús byggði. Þar býr nú Aðalsteina dóttir hans ásamt fjölskyldu sinni. íbúðarhús Magnúsar Sigurðssonar á Grund. Þar búa nú Þórður Gunnarsson og fjöl- skylda. Gömul mynd af Aðalsteinu Magnúsdóttur og Gísla Björnssyni ásamt fóstursyni sínum, Bjarna Aðalsteinssyni. þann helming og bjó þar ásamt konu sinni, Pálínu Jónsdóttur, og seinna sonum. Núver- andi eigendur keyptu Grund II árið 1982. Aðalsteina Magnúsdóttir Á Grund Aðalsteina er alin upp á Grund. Hún var í barnaskóla í Eyjafirði en í gagnfræðaskóla á Akureyri og fór seinna í Kvennaskólann á Laugalandi. Arið 1945 giftist Aðalsteina Gísla Bjömssyni frá Reykjavík. Þau byijuðu búskap á Grund árið 1950 og þá í félagi við Mar- gréti móður Aðalsteinu og mann hennar, Ragnar Davíðsson. „Mér fannst strax sem barni og unglingi að ég ætti eftir að búa á Grund,“ segir Aðalsteina við mig þar sem við sitjum saman í litlu herbergi í gamla sam- komuhúsinu hans Magnúsar á Grand. Margr- ét lét breyta samkomuhúsinu í íbúðarhús og seinna byggðu Aðalsteina og Gísli við það. I viðbyggingunni er m.a. 60 fermetra stofa, líklega ein stærsta stofa sem ég hef frétt af á sveitaheimili frá þeim tíma. I þeirri stofu eru stofuhúsgögn úr búi Magnúsar á Grund og einnig húsgögn, sem Magnús og Guðrún Þórey gáfu eldri dóttur sinni þegar hún gifti sig. Við einn vegginn í litla herberginu sem ég sit í er stór bókaskápur sem Magnús smíðaði en herberginu er lokað með gamalli „harmon- ikkuhurð". „Móðir mín sagðist hafa lært mik- ið af að kaupa þessa hurð,“ segir Aðalsteina. „Hún pantaði hana og var látin tvíborga hana af því hún athugaði ekki að taka kvittun þegar hurðin var afhent henni. Þetta sagði hún að hefði kennt sér þá lexíu sem aldrei gleymdist. Eftir þetta var hún ennþá aðgætn- ari en áður í öllu sem að fjármálum laut. Móðir mín bjó ekkja á Grund þar til ég var tólf ára gömul. Þá giftist hún Ragnari Davíðs- syni frá Kroppi í Hrafnagilshreppi. Þau voru barnlaus en bjuggu allan sinn búskap hér á Grund. Móðir mín er látin en Ragnar lifir í hárri elli og býr hér. Eg saknaði þess alltaf sem barn að eiga ekki föður. Ég fann þó alltaf að faðir minn hafði verið töluvert sérstakur. Ég naul sem einbirni móður minnar töluverðs dálætis eftir því sem þá gerðist. Ég fékk t.d. fallegri föt en flestar jafnöldrur mínar og fékk að fylgja mömmu þegar hún fór til Reykjavíkur o.þ.h. Ég var auðvitað miklu yngri en hálfsystkini mín. Ég kynntist þó vel Valgerði systur minni sem bjó á Hrafnagili og dætrum hennar. Dætur hennar voru mér einsog systur, sér- staklega var mikill samgangur milli mín og Kristjönu Hólmgeirsdóttur. Sú systurdóttir mín er jafnaldra mín. Bróðursonur minn, Magnús Aðalsteinsson, var nokkrum árum eldri en ég. Við vorum mikið saman hér á Grand og voram lengstum einsog hálfgerð systkini. Jónína systir mín bjó hins vegar í Reykjavík. Á þeim áram voru fjarlægðirnar miklar og ég hitti hana því sjaldan á upp- vaxtaráranum. Kirkjan Krefst Mikils Búskapur á Grund var lengst af umsvifa- mikill. Kirkjan lagði ábúendum líka margvís- legar skyldur á herðar. Það var venja á kirkju- jörðum að veitá kirkjugestum góðgerðir eftir messu og það gerðu húsmæður á Grund jafn- an. Allar erfidrykkjur vora líka haldnar á Grand. Þá voru dúkuð borð og settir upp bekkir sem tóku tugi manns í sæti. Þetta var mikil vinna fyrir húsraæðurnar og þær konur sem vora innanstokks. Aðalsteina og Margrét móðir hennar stóðu fyrir margháttuðum sam- komum vegna kirkjunnar enda var þeim kirkj- an hjartans mál eins og verið hafði Magnúsi Sigurðssyni. „Pabbi bað mömmu sérstaklega fyrir kirkjuna áður en hann dó og hún bað mig sömu bónar fyrir andlát sitt,“ segir Aðal- steina. „Pabbi lagði ákaflega mikið í þessa kirkju. Hann teiknaði meira að segja hluta af henni eftir að hafa skoðað ýmsar kirkjur í útlöndum. Enn í dag krefst kirkjan mikils. Þangað er stöðugur straumur af fólki, maður stoppar stundum ekki allan daginn. En það er oft svo að fólk tekur því meira ástfóstri við staði sem þeir krefjast meira af því. Grund er ákaflega góð jörð en það er verið að drepa niður allan landbúnað með þeirri skerðingu sem er á allri landbúnaðarframleiðslu. Fyrst þegar við komum hingað höfðum við mikið af kindum og mamma og stjúpi minn höfðu líka margt fjár. Grund á góðar engjar og hafði afnot af góðu afréttarlandi í Fnjóska- dal. Nú eram við með kúabú eingöngu. Við megum framleiða á milli 170 og 180 þúsund lítra af mjólk en það er alltof lítið fyrir tvíbýli ef greiða á niður skuldir jafnframt því að framfæra fjölskyldu. Við höfum reynt að fá meiri kvóta en ég veit ekki hvað stjórnvöld gera í því máli. Nú era víst smjörbirgðir að minnka í landinu. Það verður fróðlegt að sjá hvort leyfð verður meiri mjólkurframleiðsla á býlum sem liggja vel við markaði einsog Grand gerir eða farið verður að flytja inn smjör. Það kann að vera að yfirvöld séu tilbú- in til þess að slá af stóran hóp bænda. En menn ættu að hafa í huga að jafnframt missa þá vinnu margir af þeim sem vinna í þétt- býli, störf sem tengjast landbúnaði. Það hefur verið settur á kvóti í landbúnaði og sjávarút- vegi, ég vildi gjarnan að samskonar kvóti yrði settur á í ríkisbúskapnum.“ Að lokum sagði Aðalsteina að þau hjón færa nú senn að hætta búskap. „Það gleður mig að Grund er í góðum höndum. Það er nú svo að Grand hefur ævinlega kallað á mig. Ég held að allir sem hafi verið hér hafi sterkar taugar til þessa fallega staðar.“ KUNNI TlL HVERSKYNS Smíða Lokaorð Aðalsteinu vora*mér ofarlega í huga þegar ég kom út. Víst er fallegt á Grund og búsældarlegt. Hér hafa líka setið góðir búmenn og stórmenni á borð við Grandar- Helgu sem m.a. átti sinn hlut í að ráða niður- lögum hins illræmda Smiðs Andréssonar er hann var á yfirreið um Eyjaijörð árið 1361 með óaldarflokk sinn. Smiður og félagar hans voru kvensamir í meira lagi. Helga bauð þeim konum sem þjónuðu þeim félögum til sængur að snúa um annarri brókarskálminni svo taf- samara yrði fyrir þá að klæðast. Hún sendi svo smalamenn á bæi til að safna liði og um miðjan morgun komu Eyfirðingar með lið sitt til Grandar. Þó Smiður og menn hans verð- ust af hörku þá dugði það ekki til og svo fór að höfuðið af Smiði Andréssyni var höggvið af bolnum og lenti það í mjólkurtrogi Helgu. Var sagt að hún hefði ekki viljað spilla mjólk- inni en sagt „að saman skyldi slá öllu til grautargerðar". Þórunn dóttir Jóns Arasonar biskups bjó líka lengi á Grand. Hún ríkti-þar af miklum skörungsskap í 60 ár. Hún var þrígift en barnlaus. Sagt er að hún hafi látið kveða um ísleif Sigurðsson, annan mann sinn, eftirfarandi vísu: I Eyjafirði uppi á Gmnd á þeim garði fríða, þar hefur bóndi búið um stund sem börn kann ekki að smíða Ekki verður um Magnús Sigurðsson sagt að hann hafi ekki kunnað til verka við hvers- konar srníðar. Hann kunni einnig ýmislegt annað fyrir sér sem til búdrýginda og auðsöfn- unar horfði. Svo vel efnaðist hann af eigin ramleik að samtíðarmenn hans áttu bágt með að skýra það á venjulegan hátt. Þess vegna komust þær sögur á kreik að hann hefði unnið stóran vinning í dönsku happdrætti og svo hitt að hann hefði fundið kistur fullar af gullpeningum þegar verið var að grafa fyrir granni íbúðarhúss hans á Grund. Það var einhver sem spurði Magnús á uppgangs- áram hans hvort það væri satt að hann hefði fundið gull á Grand. „Já, það er satt,“ svar- aði Magnús. „En ég fann það hvorki í kistli né katli, en fann það sanit. Það er alls staðar gull í Gfundarlandi." Öllum sem til þekkja ber saman um að Grund sé gjöful bújörð. Nú era hins vegar þær aðstæður í íslenskum landbúnaði að miklum erfiðleikum er bundið fyrir hvern og einn að yrkja til fulls það gull sem jörðin geymir, hvort sem þar er um að ræða Grund í Eyjafirði eða aðrar góðar bú- jarðir á landinu. Steinunn 'Ásmundscióttir Kvöld- dagskrá til morguns Er þá rétt að hugsa yfirleitt um skráargöt hugans? Lykill horfinn og vitavonlaust að sjá inn með aðeins öðru aug- anu. Góðan dag! Tíminn er ómælanlegur, Við hefjum dagskrána með nýjum lykli: Opnið oggjörið svo vel aðganga innfyr- ir. Höfundur er að senda frá sér fyrstu Ijóöa- bók í haust. Barði Guðmundsson Sonur þinn er Sexí Fallegi herðahreiði maðurinn er í sundi. Hann er kyntákn og hefur verið l blöðunum. Fólk dáist af stæltum líkama hans. Hann gengur um laugarbakkana og stelpurnar hugsa: Guð, hvað ég vildi óska að maður- inn minn væri svona ... Og strákarnir hugsa: Mikið djöfull vildi ég óska að ég væri svona . . . Fallegi herðabreiði maðurinn sem er líka uppi, keyrirheim til sín á hvítum Porsc- he. Heima í Íkeahúsgagnaíbúðinni bíður móðir hans með matinn. Hvað er í matinn mamma? spyr fallegi herðabreiði maðurinn. Saltkjöt og skyr, LiIIi minn, svarar móðir hans. Fallegi herðabreiði maðurinn lok- ar sig inn á herbergi og grætur. Herðabreið kyntákn hafa líka til- finningar. Höfundur er leikari. Helga Jóhannsdóttir Nótt / skini mánans komstu til mín straukst mjúkum fingrum um hár mitt dansaðir við nóttina sem átti okkur bæði við gluggann lék vindurinn lag næturinnar Og dagurinn beið bak við tjaldið uns skóhljóð þitt fjaraði út Höfundur er sjúkraliði í Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. OKTÓBER 1989 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.