Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1989, Page 15
i qqu ^fd j; \f/n go i£fnif)*rf 1 qqo
Bl&fic-svæðinú 7.169-kr.. i-js; pm„.i
Fjarlægð á flugvöll: Genf — 2
klst.
Ferðaskrifstofa: (010 33)5021
2728
Montgenévre
Snjóþykkt: 5
Sérfræðiálit: Héðan er hægt að
leggja upp í ævintýralega ferð um
stórbrotið landslag langt inn í ít-
alíu. Að skíða til Sauze d’Ouix og
til baka er góð dagsferð fyrir skíða-
fólk með miðlungsgetu. Stórbrotið
útsýni, þegar rennt er inn í Ítalíu.
Hæð skíðasvæðis: 1.850 m
Hæðarmunur: 1.350-2.600 m
Tengist við: Claviere og Césana
Torinese í Ítalíu
Vaktaðar brautir: 300 km af
„Milky Way“-hringnum.
Auðveldar brautir: 47
Miðlungs brautir: 37
Erfiðar brautir: 10
Skilyrði utan brauta: Mjög
víðfeðm.
Lyftuijöldi: 94
Séx daga skíðapassi: Rúmlega
4.615 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Grenoble —
3'/z klst. Torino — 2'k klst. •
Ferðaskrifstofa: (010 33)9221
9046
La Plagne
Snjóþykkt: 7
Sérfræðiálit: La Plagne, séð í
gegnum skýin, hefur svipað að-
dráttarfifl og orustuskip!
Hæð skíðasvæðis: 1.800-2.100 m
Hæðarmunur: 1.250-3.250 m
Tengist við: Montchavin, Les
Coches, Champagny, Montalbert
Vaktaðar brautir: 200 km
Auðveldar brautir: 64
Miðlungs brautir: 36
Erfiðar brautir: 7
Skilyrði utan brauta: Góð
Nýjungar: 2 hótel, næturklúbbur.
Lyftufjöldi: 100
Sjö daga skíðakort: 7.611 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Genf — 4
klst.
Ferðaskrifstofa: (010 33)7909
7979
Serre-Chevalier
Snjóþykkt: 5
Sérfræðiálit: Bærinn er ekkí að-
laðandi, í raun ljótur, en við hann
tengjast mörg falleg þorp. Skíða-
svæðið er rólegt og ánægjulegt að
skíða þar. Víða góður púðursnjór.
Hæðskíðastaðar: 1.350-1.500 m
Hæðarmunur: 1.350-2.780 m
Tengist ekki við önnur svæði
Vaktaðar brautir: 200 km
Auðveldar brautir: 32
Miðlungs brautir: 46
Erfiðar brautir: 12
Skilyrði utan brauta: Mjög góð
Nýjungar: 2,2 km svigbraut.
Lyftufjöldi: 75
Sjö daga skíðakort: 7.169 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Torino — 3
klst. Grenoble — 21h klst.
Ferðaskrifstofa: (010 33)9224
7188/0034/4198
Val D’Isere/Tigues
Snjóþykkt: 8/9
Sérfræðiálit: Besta og skemmti-
legasta skíðasvæðið. Næstum ótak-
markaðir möguleikar fyrir alla við
öll snjóskilyrði. í öllu fríinu er alltaf
hægt að reyna sig á nýjum braut-
um. Erfitt að vera þar, nema að
þú getir annaðhvort skíðað vel eða
dansað af krafti!
Hæð skíðastaðar: 1.850-2.000 m
Hæðarmunur: 1.550-3.488 m
Tengist ekki öðrum svæðum.
Vaktaðar brautir: 300 km
Auðveldar brautir: 84
Miðlungs brautir: 34
Erfiðar brautir: 10
Skilyrði utan brauta: Mjög góð.
Nýjungar: Stólalyfta, miðstöð
„Club Mediterranée".
Lyftufjöldi: 102
Sex daga skíðapassi: 7.169 kr.
Fjarlægð á flugvöll: 5 klst. Geta
myndast langar biðraðir um helgar.
Ferðaskrifstofa: (010 33)7906
1083/1555
Snúið og staðfært upp úr „The Times“
A eigin vegum:
Á árabáti
í Noregi og
Bandaríkj unum
Onýttur möguleiki á Islandi?
Alþjóðaróðrasambandið stóð fyrir vikufcrðutn í Noregi og Bandá-
ríkjunum fyrir meðlimi róðrafélaga í sumar. Ég ræ á Ziirichvatni
og (Ireif mig með. Finni, sem er í ferðastjórn sambandsins, sagði
að Island væri meðlimur en hefði sig ekkert í lrammi. Dani sagðist
hafa sent róðrasambandi íslands bréf en aldrei fengið svar. Ég veit
því miður ekkert um róður á íslandi en kannski leynast þar ræðar-
ar sem gætu haft áhuga á ferðum alþjóðasambandsins. Þær eru á
viðráðaniegu verði og gefa kost á að sjá og kynnast þjóðum á nýst-
árlegan hátt. Úr árabáti! Næsta ferð verður í Rússlandi í júlí 1990.
Við vorum 107 frá 11 löndum
og rerum 22 bátum 160 km í Nor-
egsferðinni um miðjan júní. Flestir
bátanna voru fimm manna með
hjólasætum, fjórir ræðarar með
eina ár hver og stýrimaður. Róðra-
félagið í Arendal, sem er um 250
km fyrir sunnan Osló, skipulagði
ferðina með norska róðrasamband-
inu. Félagið er frekar fámennt, því
norskir unglingar vilja heldur þeyt-
ast um á hraðbátum en fara rólega
á róðrabátum. Margir kunna víst
ekki einu sinni að róa. En félagið
vonaði að heimsókn útlendinganna
myndi vekja áhuga á íþróttinni og
lagði sig fram um að skipuleggja
ferðina sem best.
Okkur var komið fyrir í einföld-
um sumarbúðum á eyjunni Tromöy.
Við vorum fjórar í herbergi og
fjörutíu í húsi um þrjú klósett og
þijár kaldar sturtur. Maturinn var
ýmist fiskbollur eða kjötbollur,
fiskbúðingur eða kjötbúðingur með
sósu og soðnum kartöflum. Frakk-
arnir söknuðu brauðs með matnum
og við hin fersks grænmetis en
Norsararnir bættu fyrir allt með
því að hafa flott kalt borð í hádeg-
inu þegar við fórum í rútuferðalag
og fínan kvöldverð í lokin.
Ský dró einu sinni fyrir sólu í
örstutta stund allan tímann. Veðrið
var þurrt og gott að það var bann-
að að kveikja bál í sketjagarðinum
á Jónsmessunótt vegna eldhættu.
Þá var siglt með okkur milli eyj-
anna, sungið dansað og drukkið
langt fram á nótt og samt voru
Lagt að í
Noregi.
En það voru nógu margir tveggja
manna bátar með hjólasætum til
staðar og róðurinn var góður svo
bið og langur akstur skipti ekki
allt of miklu máli. Við vorum 40
frá 10 löndum og héldum til á fund-
arsetri meþódista skammt frá bæn-
um Andover. Þar mátti ekki hafa
áfengi um hönd svo liðið drakk í
laumi á herbergjunum og þóttist
þurfa kaldan bakstur þegar það
bað um ís í eldhúsinu.
Við rérum 150 km á Concord
og Merrimack sem Henry David
Thoreau skrifaði um í sinni fyrstu
bók „A Week on the Concord and
Merrimack Rivers“. Það var mikið
í ánum eftir rigningarnar á austur-
strönd Bandaríkjanna í sumar svo
þær voru straumharðari en venju-
lega. Við höfðum þó af að róa rúma
22 km á móti straumnum einn
morguninn og nutum bakaleiðar-
innar daginn eftir. Þá stímdu
reyndar tveir á stein og settu gat
á bátinn og aðrir á brúarstólpa og
hvolfdu en allir komust leiðar
sinnar.
Meðalaldurinn í ferðunum var
líklega um fimmtugt. Hinir elstu
voru komnir yfir áttrætt og hinir
yngstu um tvítugt. Sumir voru
gamlir kappræðarar en flestir bara
venjulegt fólk sem hefur gaman
af að reyna dálítið á sig við róður
en er ekkert að flýta sér. Norður-
landabúar nefndu að þeir vildu fara
í róðraferð til íslands. Þeir eru
vanir bátum með föstum sætum
svo það stendur þeim ekki fyrir
þrifum. Hver veit nema einhverjir
gætu grætt á að bjóða upp á skipu-
lagðar róðraferðir á íslandi. Éða
er íþróttin dauð í landinu?
Texti og myndir:
Anna Bjarnadóttir
Tekist á við árarnar.
ailir mættir í rúturnar klukkan
hálf níu daginn eftir eins og endra-
nær til að fara í bátana. Við rerum
frá Grimstad, þar sem Teije Viken
lagði frá í kvæðabálki Ibsens, norð-
ur til Risör og þaðan aftur til
Arendal. Við höfðum nesti með og
röskuðum ró berrassaðra barna og
hálfnakinna kvenna á ströndinni
til að borða það í hádeginu. Á
kvöldin var rölt um eyjuna, litið inn
á veifingahús og spjallað saman.
Nokkrir úr Noregsferðinni voru
líka mættir í Massachusetts í
Bandaríkjunum í lok ágúst. Meðal
annars karl úr klúbbnum mínum
sem gerir held ég ekkert annað en
róa og fara í róðraferðalög út um
alla Evrópu. Þetta var fyrsta
skemmtiróðraferðin í Bandaríkjun-
um og hún var ótrúlega illa skipu-
lögð. Tveir bræður og konurnar
þeirra sáu um hana. Blessað fólkið.
Dagsferðir og1 helgarferðir hér heima
Þeir sem kynna sér ferðaáætlun Ferðafélagsins ár hvert sjá að
dagsferðir eru skipulagðar alla sunnudaga árið um kring og aðra
frídaga sem til falla. Ferðirnar eru fyrir brattgenga og cinnig hina
sem ekki vilja þenja sig um upp um fjöll og fírnindi. Það gefúr
augaleið að skipulagi þessara ferða verður að haga eftir árstíðum.
Nú í skammdeginu eru dags-
ferðir í nágrenni Reykjavíkur.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 13.00 og komið til baka um
kl. 18.00.
Síðasta sunnudag í október er
ekið að Höskuldarvöllum súður á
Reykjanesskaga og gengið þaðan
á Trölladyngju (375 m). í nóvem-
ber eru skipulagðar fjórar dags:
ferðir þann 5., 12., 19. og 26. í
fyrstu ferðinni er ekið að Brautar-
holti á Kjalarnesi og gengið þaðan
um Músarnes. Þetta er afar létt
rölt um sléttlendi. Þá kemur
gönguferð á Mosfell (276 m) í
Mosfellssveit. Ekið verður að
Hrísbrú og gengið þaðan. Gönguf-
gerð suður með sjó er næst á
dagskrá. Ekinn er gamli vegurinn
framhjá Stóru-Vatnsleysu og far-
ið úr bílnum á móts við Flekkuvík.
Þaðan er gengið með strönd Keil-
isness og að kirkjustaðnum Kál-
fatjörn. Prestssetur var þar til
1907, en þá var sóknin lögð til
Garða á Áiftanesi. í landi Kálfa-
tjarnar er gamla íjárborgin, Stað-
arborg, hringlaga, og snilldarlega
hlaðin. Hún er talin nokkur hundr-
uð ára. Frá Kálfatjörn er gengið
að Staðarborg (2-3 km) og að
Keflavíkurvegi þar sem rútan
bíður. í þessari ferð er margt að
sjá sem minnir á lífsbaráttu fólks
á fyrri tíð. Dagsferðum í nóvem-
ber lýkur með gönguferð á Helga-
fell (338 m), suðaustur frá Hafn-
arfirði. — f desember eru einung-
is þijár ferðir. Fyrsta er fjöruferð
frá Gufunesi í Blikastaðakró.
Næsta sunnudag verður gengið á
Reykjafell (268 m) og Reykja-
borg, hæðimar sem blasa við þeg-
ar ekið er um Vesturlandsveg.
Síðasta dagsferðin á þessu ári
verður sunnudaginn 17. desem-
ber. Þá verður gengið á Esju-
Kerhólakamb (856 m). Það er
áratuga hefð hjá Ferðafélaginu
að ganga á Esju um vetrarsólstöð-
ur. Stór hópur fólks lætur ferðina
ekki fram hjá sér fara hvernig sem
viðrar.
Aðventuferð til Þórsmerkur
verður helgina 24.-26. nóvember.
Brottför kl. 20.00 á föstudegi.
Fararstjóri skipuleggur göngu-
ferðir um Mörkina og á laugar-
dagskvöld verður margt sér til
gamans gert á kvöldvöku í Skag-
fjörðsskála.
Síðasta ferð ársins er áramóta-
ferð til Þórsmerkur. Þetta er fjög-
urra daga ferð. Brottför kl. 7.00
laugardaginn 30. desember, kom-
ið til baka þriðjudaginn 2. janúar.
Að kveðja gamla árið og fagna
því nýja í Þórsmörk er keppikefli
margra. Gönguferðir eru skipu-
Iagðar um fjöll eða láglendi eftir
aðstæðum og kvöldvökur með
fjölbreyttu efni. Á gamlárskvöld
er áramótabrenna og veður ekki
látið koma í veg fyrir dans í kring-
um bálið með tilheyrandi söng.
I Þórsmerkurferðum er alltaf
gist í Skagfjörðsskála í Langadal.
Þar er aðstaðan eins og best ger-
ist í óbyggðum. Svefnrými stúk-
að, tvö eldhús með öllum nauðsyn-
legum áhöldum og rúmgóð setu-
stofa fyrir kvöldvökur.
Óþarfi er að leggja niður ferða-
lög þótt líða taki á haust. Stutt
dagsferð er hressandi. Látið ekki
skammdegið líða án þess að viðra
ykkur dagsstund úti í náttúrunni.
Sæluhús Ferðafélagsins
LESBÓK M0R6UNBLAÐSINS 28. OKTÓBER 1989 15