Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1989, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1989, Page 5
allramildilegast að hinar umgetnu kosningar skuli fram fara nefndan dag. Eftir þessu eiga allir hlutaðeigendur sér að hegða. Gefið á Amalíuborg 21. apríl 1922. Undir Vorri konunglegu hendi og innsigli. Christian rex L.S. Sig. Eggerz“ Ekki var nema einn og hálfur mánuður síðan Sigurður Eggerz tók við forsætisráð- herratigninni af Jóni Magnússyni með stuðningi Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins þversum. FRAMBOÐ ákveðin Menn tóku skjótt að búast til kosninga, enda kom þetta engum að óvörum, svo að menn höfðu sett sig í nokkrar stellingar þá þegar. Framboðslistar urðu nú einum færri en 1916, fimm alls. Tveir hinir fyrstu voru hreinir flokkslistar. A-listi var borinn fram af Alþýðuflokkn- um; aðalstuðningsblöð hans voru Alþýðu- blaðið í Reykjavík og Verkamaðurinn á Akureyri. Listinn var svo mönnum skipaður: 1) Þorvarður Þorvarðarson prentsmiðju- stjóri í Reykjavík, tengdafaðir Einars 01- geirssonar. 2) Erlingur Friðjónsson kaup- félagsstjóri á Akureyri. 3) Pétur G. Guð- mundsson bókhaldari í Reykjavík. 4) Jón kjósa aðra lista en þá sem he«ra pólitísku flokkar byðu fram. • - Hitt taldi Bríet heppilegra, að hugsa fyr- ir konum sem frambjóðendum til þing- mennsku og fá þær teknar á lista karlmann- anna. Samvinna karla og kvenna væri eðli- legust, ef hún væri ósvikin og undirhyggju- laus á báðar hliðar. Niðurstaðan varð sú, sem fyrr er fram komið, að sérlisti kvenna var ekRi boðinn fram, en Bríet þá 4. sætið á lista heima- stjórnarmanna og var. sett ofan í fímmta með breytingum kjósenda listans sem að vísu voru leyfilegar þá sem nú. En kjörsókn kvenna var furðu lítil 1916, aðeins 10,3 af hundraði. Reynslan af kosningunum 1916 var kon- um ekki góð til fyrirmyndar sex árum seinna, en hér kom fleira til sem líklega hefur riðið baggamuninn. Skal nú horfið um sinn svolítið lengra aftur í tímann. Konum Ýtt Úr Bæjar- STJÓRN REYKJAVÍKUR Frægur er sigur kvennalistans í bæjar- stjórnarkosningunum í Reykjavík 1908, er þær fengu kosna fjóra fulltrúa af fimmtán. Þórunn Jónassen og Guðrún Björnsdóttir áttu svo sæti í bæjarstjórninni til 1914, Katrín Magnússon til 1916 og Bríet Bjarn- héðinsdóttir til 1920. Þar að auki var Guð- líkindi til að félagið yrði í samvinnu við „Stefnir" [sem og varð] og hefði það þá eigi eitt ráð yfir listanum. Þegar þessi svör voru komin hélt stjórn Bandalagsins fund, með fulltrúaráði sínu og stjórnum allra kvenfélaganna, og var þar helst á konum að heyra, að þær vildu koma upp sérstökum kvennalista, en um það var þó engin ákvörð- un tekin, heldur kosin nefnd til að ráða málinu til lykta.“ Inga Lára heldur áfram: „Kosningar þessar voru sóttar af meira harðfylgi en dæmi eru til áður. Alþýðuflokk- urinn setti á lista sinn hina allra róttækustu innan þess félagsskapar — og til þess að vega upp á móti honum, sameinuðu hin mjög svo ólíku félög — Stefnir og Kjósenda- félagið — sig um einn lista. Kosninganefnd kvenfélaganna sá svo marga agnúa á- því að koma upp kvennalista, að hún hvarf frá því ráði, vissi líka sem er að konur voru algerlega óundirbúnar kosningarnar, engin slík samtök þeirra á milli og síðast en ekki síst — þær áttu engan kosningasjóð ...“ Sem sagt. Harkan í pólitíkinni í Reykjavík varð til þess, að þær konur, sem átt höfðu sæti í bæjarstjórn, komust nú ekki á lista hinna pólitísku samtaka aftur, höfðu ekki þótt nógu flokkspólitískar, og bæjarstjórn Reykjavíkur varð nú konulaus eftir 14 ára samfellda veru þeirra þar. Inga Lára klykk- ir út á þessa leið: kvennalistans við í hönd farandi landskjör," eins og það var orðað. Þegar Tíminn birti þessa frétt með velþóknun taldi hann þetta endanlega mundu gera út af við kvennalist- ann. Var það ekki óeðlileg ályktun, því afarmiklu þótti skipta um stuðning eða jafn- vel andstöðu Kvenréttindafélagsins og for- manns þess, Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Framboð Til Hægri Hverfum nú frá kvennaframboði um sinn og lítum á næsta lista, D-listann. Hann var ýmislega auðkenndur: Borgaralisti, Stefnis- listi, samkeppnislisti, en í Hagtíðindum eru aðstandendur hans kallaðir heimastjórnar- menn, ekki flokkur, eins og Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur. Samtökin um D- listann voru beinn undanfari Íhaldsflokksins sem var stofnaður árið eftir. Aðalstuðnings- blöð listans voru Lögrétta og Morgun- blaðið í Reykjavík og Islendingur á Akur- eyri. Listann skipuðu: 1) Jón Magnússon fyrrverandi forsætis- ráðherra í Reykjavík. 2) Sigurður Sigurðs- son ráðunautur og fyrrv. alþm. í Reykjavík. 3) Sveinn Benediktsson útvegsbóndi, Búðum í Fáskrúðsfirði. 4) Páll Bergsson útvegs- bóndi í Hrísey. 5) Sigurgeir Gíslason vél- stjóri í Hafnarfirði. 6) Siguijón Jónsson framkvæmdastjóri á ísafirði. Listinn var talinn öruggur um einn mann, Jón Magnússon, fyrsti forsæt- isráðherra landsins, leitaði í síðasta sinn kjörfytgis í kosn- ingunum 1922. Theodóra Thoroddsen Ingibjörg H. Bjarnason Inga Lára Lárusdóttir Halldóra Bjarnadóttir Jónatansson afgreiðslumaður ’í Reykjavík. 5) Guðmundur Jónsson kaupfélagsstjóri í Stykkishólmi. 6) Siguijón Jónsson bókhald- ari á Seyðisfirði. ' Það kann að vekja athygli, að á listanum eru Qórir af sex kaupfélagsstjórar og bók- haldarar, en enginn verkamaður. Aðstand- endur þessa lista höfðu góðar vonir um að koma að manni, ef ekkert óvænt gerðist. Þeir skírskotuðu mjög til fylgis bindiiidis- manna, enda tveir efstu mennimir ákveðnir bannmenn. Þá er B-listi, borinn fram af Framsóknar- flokknum, einnig oft nefndur samvinnulist- inn. Aðalstuðningsblöð voru Tíminn í Reykjavík og Dagur á Akureyri. Þennan lista skipuðu: 1) Jónas Jónsson áðurnefndur, skólastjóri Samvinnuskólans í Reykjavík. 2) Hallgrímur Kristinsson framkvæmdastjóri SÍS í Reykjavík. 3) Sveinn Ólafsson bóndi og alþm., Firði í Mjóafirði, Suður-Múlasýslu. 4) Jón Hannesson bóndi í Deildartungu í Borgarfirði. 5) Kristinn Guðlaugsson bóndi á Núpi í Dýrafirði. 6) Davíð Jónsson bóndi á Kroppi í Eyjafirði. Þessi listi var fyrirfram talinn mjög líkleg- ur til fylgis, einkum í sveitum. Gerðu að- standendur hans sér góðar vonir um að fá tvo menn kjöma. NÝSTÁRLEGT FRAMBOÐ Þá er komið að nýstárlegasta listanum, C-listanum, sem var borinn fram af Banda- lagi kvenna og skipaður fjórum konum. Vegna þess hve framboð þetta var nýstár- legt ætla ég að fjalla nokkm nánar um til- drög þess, að listinn kom fram. Þegar Bríet Bjarnhéðinsdóttir, formaður Kvenréttindafélags íslands, sá fram á það árið 1915, að landskjör yrði árið eftir, skrif- aði hún grein í Kvennablaðið, þar sem hún velti fyrir sér hvernig konur ættu að snúa sér í því landskjöri, einkum hvort þær ættu að bjóða fram sérstakán lista eða hafa sam- vinnu við pólitísku flokkana og fá sína full- trúa á lista þeirra. Henni fannst fyrri kostur- inn_/hæpinn og minnti á að enn vom það aðeins hinar eldri konur sem höfðu kosn- ingarétt (fertugar og eldri þá) og bjóst við að margar þeirra mundu ekki sækja kjör- fund, sem og varð. Og þar að auki bjóst hún við að margar konur væru svo miklir flokksmenn, að þær fengjust ekki til að rún Lámsdóttir bæjarfulltrúi í Reykjavík 1912—18, Lára Ingveldur Lárusdóttir, sem kaus að kallast Inga Lára, 1918—22 og Jónína Jónatansdóttir 1920—22. Hér skal staðnæmst við hinar tvær síðasttöldu. Jónína Jónatansdóttir var formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar og kosin af lista Alþýðuflokksins í bæjarstjóm 1920. Inga Lára Lámsdóttir kennari var kosin í bæjarstjórn 1918 af sameiginlegum borg- aralista félagsins Sjálfsstjórnar, og þá í samvinnu við Bandalag kvenna. Þær Jónína og Inga Lára voru einu konumar í bæjar- stjórn 1920—22. Þess verður að geta, að enda þótt svo héti, að kjörtímabil bæjarfull- trúa væri 6 ár var sú regla viðhöfð að draga út með hlutkesti fimm bæjarfulltrúa annað- hvort ár. Vom því sífelldar kosningar, og gat kjörtímabil í raun orðið tvö ár. Nú stóð svo á í janúar 1922, að Jónína og Inga Lára höfðu báðar orðið fyrir hlut- kestisreglunni. Hvomg þeirra hafði þótt skelegg í flokkapólitík, og svo fór, að hvor- ug þeirra átti afturkvæmt. Jónína komst ekki á lista flokks síns, og Inga Lára var ekki tekin á nýjan sambræðslulista mið- og hægrimanna, svonefndan Stefnislista eða Borgaralista. Listarnir vom báðir konulaus- ir með öllu, og aðeins þeir tveir listar komu fram. Þess má geta að í bæjarstjóm Reykjavíkur var engin kona næstu sex ár, eða þar til Guðrún Jónasson var kosin af lista íhaldsflokksins 1928 og átti þar langa setu, var komin til að vera, eins og nú er í tísku að segja. SÁRINDIINGU LÁRU í mánaðarblaði kvenna, Nítjánda júní, sem Inga Lára ritstýrði, var rækilega fjallað um bæjarstjómarkosningamar í Reykjavík 1922, og einkum aðdraganda þeirra, og þar sem ég tel þar að leita einnar höfuðástæðu þess, að C-listinn kom fram við landskjörið 1922 tilfæri ég hér kafla úr þessari grein, enda varð höfundur hennar nr. 2 á C-listan- um. Inga Lára segir m.a. um undirtektir við málaleitan kvenna um hlut þeirra á fram- boðslistum: „Alþýðuflokkurinn kvaðst þegar hafa ákveðið menn á lista hjá sér. Stefnir bar því við, að hann fengi enga konu er sér líkaði, en Kjósendafélagið kvaðst gjarnan vilja setja konu í gott sæti á lista sínum, en um listann væri allt í óvissu og helst „Kosningar þessar og saga þessa máls öll er góður áttaviti til að sýna konum, bæði hér í bæ og annars staðar, hve langt karlmenn vilja ganga í samvinnu við þær. Þeir vilja að minnsta kosti hafa eitthvað fyrir snúð sinn. Og svo trúaðir em þeir á auðmýkt og undirlægjuhátt kvenna, að um leið og ötulli flokkskonu er sparkað lætur flokksstjómin þau ummæli fylgja: „Þú vinn- ur nú fyrir okkur samt.““ Mikil sárindi og þykkja eru í þessum orð- um Ingu Láru Lámsdóttur, og Bríet Bjarn- héðinsdóttir fullyrti fjórum ámm síðar að þetta hefði verið meginástæðan til framboðs kvennalistans við lartÖskjörið 1922. ElNING NÁÐIST EKKI Þannig stóðu málin í Reykjavík, þegar konur skyldu öðm sinni svara spuming- unni: Eigum við að bjóða fram sérlista við landskjörið? Og hvort sem það hefur verið rætt lengur eða skemur ákvað Bandalag kvenna í mars 1922 að leggja fram sér- stakan lista, enda tóku þau samtök og flokk- ar, sem stóðu að öðmm framboðum, enga einustu konu á lista sína. Kvennalistann skipuðu: 1) Ingibjörg H. Bjarnason skólastýra í ReykjavSk. 2) Inga Lára Lámsdóttir ritstýra og kennari I Reykjavík. 3) Halldóra Bjarna- dóttir bæjarfulltrúi og kennari á Akureyri. 4) Theódóra Thoroddsen frú og skáld í Reykjavík. Ekki veit ég hvort tilviljun veldur eða hvort það er þaulhugsuð aðferð til að setja sáttasvip á listann, að systir Lámsar H. Bjarnasonar og ekkja Skúla Thoroddsens em þama í fyrir og í bak, en einhvem tíma hefði ekki þótt líklegt að fólk úr þessum fjölskyldum yrði saman á framboðslista. Fjarri fór því, að full eining væri meðal helstu samtaka kvenna um þennan lista. Einkum voru skiptar skoðanir um aðferðir og einhver metingur milli Bandalags kvenna og kosninganefndar kvenna í Reykjavík annars vegar og stjórnar Kvenréttindafélags íslands hins vegar. Þrátt fyrir samkomu- lagstilraunir gekk þessi ágreiningur svo langt, að Bríet Bjarnhéðinsdóttir þverneitaði að gefa kost á sér til framboðs á kvennalist- anum, en stjórn Kvenréttindafélagsins sam- þykkti að fela stjórninni að auglýsa í blöðun- um að Kvenréttindafélagið „hefði dregið sig til baka frá allri þátttöku við undirbúning og sjálfir gerðu aðstandendur hans sér góð- ar vonir um tvo. Þá- er aðeins ónefndur einn listi, E-list- inn. Þeir sem að honum stóðu em í Hagtíð- indum nefndir sjálfstæðismenn (ekki flokk- ur) enda mun hann að mestu hafa verið skipaður og studdur mönnum sem áður vora í þversumhluta Sjálfstæðisflokksins, en langsummenn flestir stutt D-listann. Á E-listanum voru: 1) Magnús Blöndal Jónsson prestur í Vallanesi í Suður-Múlasýslu. 2) Þórarinn Kristjánsson hafnarstjóri 'í Reykjavík. 3) Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti, lyfsali og skáld í Vestmannaeyjum. 4) Sigurður Einarsson Hlíðar dýralæknir á Akureyri. 5)_Eiríkur Stefánsson prestur á Torfastöðum í Árnessýslu. 6) Einar S. Einarsson útvegs- bóndi í Garðhúsum í Gullbringusýslu. Þessi listi þótti ekki líklegur til mikils fylgis og mátti Sjálfstæðisflokkurinn gamli muna sinn fífil fegri. Meðan Þjóðin Svaf Fyrir landskjörið 1922 vom höfuðátökin milli B-listans og D-listans, milli Framsókn- arflokksins og þeirra mið- og hægrimanna sem studdu Jón Magnússon. Eins og oft endranær stóðu mestu deilumar milli Tímans og Morgunblaðsins. Tíminn var undir röggsamlegri stjóm Tryggva Þórhalls- sonar, en Jónas Jónsson skrifaði þá, sem bæði fyrr og síðar, dijúgan hluta blaðsins. Þorsteinn Gíslason stýrði Morgunblaðinú og sínu gamla blaði Lögréttu sem þá var sveitaútgáfa Morgunblaðsins. Hann var alla tíð slyngur málflytjandi, en kannski ekki eins harðvítugur baráttumaður og fyrr hafði verið. Margt ófagurt orð fór í þessum slag milli Morgunblaðsins og Tímans, enda vom blöðin þá ólíkt persónulegri og óvægnari en nú tíðkast. Ekki er að sjá að/ávinningur hafi verið af þessum harkalega málflutn- ingi, þótt margur muni hafa talið hann rétt- mætan og viðeigandi, og kannski svolítið skemmtilegan, þegar best tókst til um orða- lagið á skömmunum. Menn-vom þá líka ósparir á lofið um sína menn. Jónas Jónsson hafði þá þegar því næst verið tekinn í guðatölu meðal framsóknar- manna. Nafni hans Þorbergsson, þáverandi ritstjóri Dags, skrifaði um hann langa lof- grein í blað sitt, og var endurprentuð með LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 4. NÓVEMBER 1989 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.