Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1989, Side 11
FERÐALÖG
Besti ferðaþjón-
ustubærinn 1989
Syðri-Hagi á Arskógsströnd
Ferðaþjónusta bænda verðlaunar nú í fyrsta skipti þann sveitabæ,
sem talinn er hafa staðið sig best í móttöku ferðamanna á árinu.
Syðri-Hagi á Arskógsströnd hlaut viðurkenningu. Syðri-Hagi
hefur tekið á móti ferðamönnum um árabil og býður tvö gistiher-
bergi í íbúðarhúsi; nýjan sumarbústað og skemmtilega endurnýj-
að íbúðarhús á nágrannabýli; hestaleigu allt árið; bátaleigu og
fískveiðar á sumrin. Ferðablaðið rabbaði við húsmóðurina, Ullu
Maj Rögnvaldsson.
„Við urðum mjög hissa og hrifin
að fá þessi verðlaun," segir Úlla.
„Ferðamenn hafa verið mjög
ánægðir með dvölina hérna, sem
trúlega hefur ráðið miklu. Við reyn-
um að gefa eins mikið af tíma
okkar til gestanna og við getum,
Inni á heimilinu eru þeir hluti af
íjölskyldunni. Stofan okkar er stof-
an þeirra. Ég borða allar máltíðir
með þeim og maðurinn minn, Ar-
mann Rögnvaldsson, reynir að gera
það líka. Fólk spyr margs, einkum
útlendingar. En samræðurnar gefa
mér mikið og skemmtilegt að hitta
ólíkt fólk. Ég ætti ekki að stunda
ferðaþjónustu, ef ég sæti allan
tímann og hugsaði -guð minn góð-
ur, þarf ég að hlusta og ég sem
þarf að gera þetta eða hitt! Margir
koma aftur og flestir verða góðir
vinir mínir. Ég fæ kveðjur og jóla-
kort víða að úr heiminum.
-Við höfum oft hugsað um að
útbúa fleiri gistiherbergi. En okkur
finnst betra að vera með fá her-
bergi og veita betri þjónustu. Við
viljum ekki reka ferðaþjónustu með
því að rétta fram lykil, vísa gestum
inn í herbergi og taka síðan við
borgun. Orlofshúsagestir eru líka
alltaf velkomnir til okkar. Börnin
eru hrifin af að skoða angórakanín-
ur og naggrísi, kindur og hesta,
hund og kött (heimalninga á sumr-
in).
-Við erum búin að leggja mikla
vinnu í eldra íbúðarhúsið, sem er
með stóru eldhúsi, tveimur svefn-
herbergjum, góðri snyrtingu og
baðstofulofti. Við reyndum að
halda gamla stílnum í innréttingum
og maðurinn minn smíðaði gamal-
dags fururúm í svefnherbergin.
Fólk er mjög hrifið af að dvelja
þar. Húsið (frá því um 1920) er
með sál eins og sagt er. Bæði hús-
in eru einangruð til vetrardvalar,
með rafmagn, heitt og kalt renn-
andi vatn. í stærra húsinu er
þvottavél og sjónvarp. Húsin verða
á tilboðsverði yfir jól og nýár. Við
verðum búin að skreyta og setja
upp jólatré, þegar gestirnir koma.
Ætlum líka að vera með óvænta
uppákomu," segir Úlla og hlær.
-Saknar þú aldrei föðurlandsins,
Úlla? „Nei, ég myndi ekki vilja búa
í Svíþjóð núna. Það er svo fallegt
hérna fyrir norðan -rólegt og gott.
Ég kann líka að meta hreina loftið
og va.tnið.“ Undirrituð tekur undir
orð Úllu um fegurðina á Syðri-
Haga, einkum á eyðijörðinni, Götu,
þar sem orlofshúsin standa. Þar
er geysimikil náttúrufegurð og frið-
sæld og svæðið tilvalið til göngu-
ferða. Hjónin á Syðri-Haga sækja
gesti sína til Akureyrar og flytja
þá á skíði eða í sund. Núna er
boðið upp á ijúpnaveiði.
Sími á Syðri-Haga: 96-61961
O.Sv.B.
Börnin hafa gaman að leika sér við dýrin.Á innfeldu sjást orlofs-
húsin á eyðijörðinni Götu, en þar er mikil náttúrufegurð og frið-
sælt
Skíðað í
Skotlandi
Fimm daga skíðafrí í
Cairngorms í Skotlandi
getur kostað 10.600 kr. eða
rúmar 15.000 kr. ef kvöld-
verður, morgunverður,
leiga á skíðabúnaði, lyftu-
passi og skíðakennsia eru
innifalin. Þetta kemur fi-am
í nýja skíðabæklingnum
„Ski Scotland 89/90“.
Hinn 68 síðna bæklingur
býður 135 mismunandi
pakkaferðir til 5 aðalskíða-
svæða Bretlands
Cairngorm, Glenshee, Lecht,
Glemcoe og Aonach Mor.
Gisting er fáanleg i lúxus-
hótelum, gistiheimilum og
fjallakofum með eldunarað-
stöðu. Boðið er upp á göngu-
ferðir á íjallaskíðum og skipu-
lagðar svigskíðaferðir. Nán-
ari upplýsingar og pantanir
hjá: Hi-Line, sem sér um ein-
staklingsferðir, bílaleigubíla
og tryggingar. Bæklingur
sendur, ef óskað er. Sími:
0349-63434.
Jólasiðir í Bretlandi:
Aldagamlar hefðir
í líflegu jólahaldi
Bretar eiga aldagamlar hefðir í jólahaldi, enda ríkir þar mikill
liátíðablær, bæði á aðventu og yfir sjálfa jólahátíðina. Hótel og
skemmtistaðir keppast við að setja á svið andrúmsloft frá tíma-
bili Játvarðs 7. Bretakonungs, sem þótti með eindæmum glæsi-
legt og fágað.
Lúxushótelið, Armathwaite Ilall
í Vatnahéruðunum, býður upp á
jóladvöi, með tedrykkju og dansleik
í anda Játvarðs, sjö rétta máltíðum
og leirdúfu-skotkeppni, eins og
hirðmenn Játvarðs stunduðu!
(Fjögurra daga dvöl um 50.000
kr.) 16.-17. desember er Knares-
borough í Norður-Yorkshire með
aðventuhátíð í anda Játvarðs. í
verslnnum klæðist fólk fötum frá
tímabilinu, jólasöngvar og þjóð-
dansar á strætunum - karldansar-
ar klæðast eins og hirðfífl, með
bjöllur á fótum - og jólamarkaðir
í gangi.
í Suðaustur-Englandi gengui'
jólalest, með jólasvein innanborðs.
Gufulestin - Kent-Austur-Sussex
- er varðveitt í upprunalegri mynd
og gengur frá hinni skemmtilega
endurnýjuðu brautarstöð, Tenterd-
en, laugardaga og sunnudaga, frá
26. nóvember fram á jóladags-
kvöld. Dagana 12., 13. og 14. des-
ember er aðventuhátíð á 18. aldar
heimili jarlsins af Lichfield. Kórar
syngja jólalög í kertalýstum, jóla-
skreyttum sölum og jólatréð er í
anda Viktoríutímans. í forgarði er
skrúðfylking þjóna, klædd í stíl
Játvarðartímans, sem skenkir gest-
um heitt púns og ber fram með-
læti. Hijómsveit og þjóðdansar eru
á staðnum. Shugborough-höllin er
nálægt Stafford, 140 mílur norður
af London. Aðgangseyrir 192 kr.
fyrir fullorðna, 96 kr. fyrir börn.
Og bresku hótelin bjóða upp á
mexíkönsk, rómönsk eða karabísk
jólaborð. Alþjóðlegt jólahald er val-
kostur fyrir hópa hjá Swallow-
hótelkeðjunni. En hótelin eru líka
með hefðbundið jólahald og bjóða
upp á 20 jólatilboð og 23 nýárstil-
boð í sínum litríka jólabæklingi.
Jólasöngvar, dansleikir, bresk jóla-
leikrit, veiðiferð á annan í jólum -
jafnvel sunddýfa í Norðursjó — er
á meðal skemmtiatriða í hefð-
bundnu jólahaldi. í nýársdagskrá
eru hljómleikar, dansað undir borð-
um og kampavínsveisla á nýársdag.
Hótelin eru staðsett allt frá Suð-
austur-Englandi til Norður-Skot-
lands. 18 þeirra bjóða upp á heilsu-
rækt og eru með heilsuklúbba, leik-
fimissali og innisundlaugar.
Upplýsingar, bæklingar og pant-
anir hjá: British Travel Centre, 12
Regent Street, Piccadilly Circus,
SWl. Sími: 01-730-3400. Opið
mánudaga-föstudaga kl. 9.00-
18.30; laugardaga kl. 9.00-17.00;
sunnudaga kl. 10.00-16.00.
Jólaboð uppi á baðstoftilofti í Pétursborg.
Heilsufeeði og jóga-
leikfimi yfir jólin
„Þýðir að bjóða íslendingum upp á að eyða jólunum annarstaðar
en heima hjá sér,“ sagði Helena á Pétursborg við Akureyri? Við
erum að ræða um jóladagskrána, sem hún býður ferðamönnum.
„Sveitajól hjá Helenu" er forvitnileg nýjung í ferðavali. Víða er-
lendis, til dæmis í Finnlandi, er vinsælt að eyða jólunum uppi í
sveit og gefa húsmóðurinni frí yfir jólin.
Vissulega halda íslenskar fjöl-
skyldur saman um jólin. En allstað-
ar leynast einmana sálir. Og aldrei
verður einmanaleikinn sárari en
yfir hátíðirnar. Margir eiga líka við
offituvandamál að stríða, sem gott
væri að ráða bót á. íslenskur jóla-
matur er heldur ekki beinlínis
grenningarfæði! En hvað á þetta
skylt við „sveitajól hjá Helenu“?
-,,Ég verð eingöngu með heilsu-
fæði á jólamatseðlinum," segir
Helena. „Ég kenni gestum mínum
að setja saman heilsumat eða jurta-
fæði og baka gróft heilsubrauð.
En mikilvægast í allri heilsurækt
Notkun á greiðslukortum erlendis
Hægt að tapa hundruðum þúsunda, ef það týnist!
Fleiri og fleiri nota greiðslukort á ferða-
lögum erlendis. Kortinu fylgir ákveðið
öryggi. Fólk þarf ekki að hafa með sér
reiðufé. Peningar fást ekki bættir, ef þeir
glatast. Kort fæst endurnýjað; ef það týn-
ist - þó innan vissra skilyrða. Ábyrgð fylg-
ir því að vera með greiðslukort í vasanum.
Ef kortið glatast ber korthafa að tilkynna
það strax. En kannski gerir hann sér ekki
strax grein fyrir því, að kortið sé týnt. í
millitíðinni er það notað af fjárglæframanni,
sem tekur út ómældar upphæðir - festir
kannski kaup á bíl eða íbúð! Hver er þá
ábyrgð korthafa? Hjá Visa er sjálfsábyrgð
korthafa um 6.000 kr., nema um vítavert
gáleysi eða svindl sé að ræða. Hjá Euro ber
korthafi fulla ábyrgð, á meðan hann tilkynn-
ir ekki um glatað kort. Úttökuheimild á kort
erlendis er um 120 þúsund kr. Ef fjölskylda
er með aukakort, getur ábyrgðaraðili kortsins
lent í hundruð þúsunda tjóni, samkvæmt of-
angreindu. Eins gott að gera sér fulla grein
fyrir ábyrgðinni.
Ef kort glatast á ferðalagi erlendis, þá
tilkynntu það strax til næsta banka, sem er
með viðkomandi kortaþjónustu - eða hringdu
í viðkomandi þjónustusíma. í bankanum legg-
ur þú fram persónuskilríki og skrifar undir
skýrslu. Bankinn hefur síðan samband við
íslenska kortafyrirtækið og ef allt er í lagi
átt þú að geta fengið neyðarkort innan sólar-
hrings. Afgreiðsla neyðarkorts tekur þó mis-
munandi langan tíma eftir því í hvaða landi
þú ert staddur.
Greiðslukort veitir ferðamanni öryggi. Með
því að borga helming ferðakostnaðar með
korti, þá ertu um leið ferða-, slysa- og sjúkra-
tryggður. Kortið veitir þér heimild til banka-
láns í reiðufé, með 3/z% vöxtum fram á næsta
greiðslutímabil. Visa Island er nýlega farið
að gefa út -farkort- í samvinnu við Félag
íslenskra ferðaskrifstofa. Farkortið er aðal-
lega hugsað fyrir ferðamenn eins og nafnið
bendir til og gefur víðtækari tryggingar á
ferðalögum. Því fylgir ferðarofs- og farang-
urstrygging, endurgreiðsla orlofsferðar,
ábyrgðartrygging þriðja aðila og tryggingin
„heilt heim“. Farkortið er líka fullgilt
greiðslukort í viðskiptum heima. Greinilega
er ábyrgð korthafa mikil og erfitt að stand-
ast freistingar með plastið í höndunum.
Spennandi vöruval erlendis gefur oft glýju í
augu!
er að læra að hugsa jákvætt.“ Og
Helena veit hvað hún er að segja.
Hún er lærður jógakennari og mun
taka fyrir undirstöðuatriði hjá jóg-
um í jákvæðri hugsun. „Við byijum
daginn á léttum líkams- og slökun-
aræfingum. Förum síðan saman í
sund. Allir hjálpast að við jólaundir-
búning, bakstur, matseld og jóla-
skreytingar. Á aðfangadagskvöld
förum við saman í Möðruvalla-
kirkju - hlýlegu, gömlu timbur-
kirkjuna hans Nonna. Eftir að hafa
opnað jólagjafir, sameinumst við í
að senda vinum og ættingjum góð-
ar kveðjur."
' „Sveitajól hjá Helenu“ eru frá
20.-27. desember og kosta um
30.000 kr. Það er líka hægt að
framlengja dvölina yfir áramót,
Áramótadvöl í Pétursborg eða á
Hótel Þelamörk er líka í boði.
Vikudvalir bjóðast í allan vetur í
Pétursborg, með jóganámskeiðum
og heilsufæði.
Dúkuð jóla-
borð í Noregi
Flest liótel í Noregi eru farin að
bjóða gestum sínum upp á jóla-
borð.
Strax um miðjan október hefst
aðventa hjá hótelunum, með því
að hafa standandi jólahlaðborð.
Verið er að vinna að verðtilboðum
á jólamatseðlinum, en kynning-
arbæklingar verða ekki gefnir út
að þessu sinni. Það ríkir jóla-
stemmning hjá frændum okkar
Norðmönnum fram að jólum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. NÓVEMBER 1989 1 1 í