Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Blaðsíða 5
j hann átti vanda til, léði þýski keisarinn stuðn- ing sinn og samkomulag tókst við Zimmer- mann, aðstoðar utanríkisráðherra, sem upp frá því vann með áköfustu stríðssinnunum í Austurríki. „Á morgun fáum við svar,“ sagði Bercht- old 6. júlí við von Hötzendorf. „Þyski keisar- inn hefur sagt ,já“, en hann á enn eftir að ræða við Bethmann-Hollweg. Hvaða afstöðu tekur Hans hátign?“ (keisari Austurríkis.) Ég: „Ef Þýskaland fellst á það, mun Hans hátign vilja stríð gegn Serbíu." Berchtold greifi: „Tisza er á móti stríði. Hann óttast innrás Rúmena í Transylvaníu. Hvað verður uppi í Galicíu, þegar her verður út boðið jgegn Serbíu?" Ég: „I Galicíu verður ekki herútboð að sinni. En ef Rússland hefur ógnanir í frammi, verðum við að bjóða út herhópunum þremur í Galicíu." Forgach greifi: „Ég efa ekki, að Þýska- land fylgi okkur eftir; það er skylda þess sem bandamanns og að auki er þess eigin tilvist í hættu.“ Ég: „Hvenær má ég vænta þýska svars- ins?“ Berchtold greifi: „Á morgun. En Þjóð- veijar munu spyija okkur, hvað við taki eft- ir stríðið." Ég: „Seg þeim þá, að vitum það ekki.“ En Þýskaland spurði einskis. Hoyos flutti þau skilaboð, að það gæfi Austurríki fijálsar hendur og stæði fortakslaust með því. Á Tisza einán sóttu efasemdir og hann bar upp spurningar. Eftir fund í ráðuneytinu 7. júlí, þegar allir aðrir ráðherrar kröfðust stríðs, skýrði hann keisaranum í álitsgerð frá því, sem þeim hafði borið á milli. „Slík árás á Serbíu leiddi að líkindum til íhlutunar Rúss- lands og þess vegna til heimsstyijaldar, og þá teldi ég a.m.k. vafa leika á hlutleysi Rúm- eníu, þótt ríkisstjórnin í Berlín sé bjartsýn í þeim efnurn." Að öllu athuguðu áleit hann diplómatísku stöðuna í Evrópu vera Aust- urríki-Ungveijalandi hina örðugustu og mæltist eindregið til, að hófsamleg, en ekki ógnandi, orðsending færi til Serbíu. „Þótt ég leggi mig allan fram í embættisþjónustu Yðar hátignar, eða öllu heldur sakir þess, get ég ekki átt ábyrgðarhluta að einhlítu stríðsógnandi denouement. Stríðsflokkurinn fór sínu fram. Berchtold skýrði von Hötzendorf frá því 8. júlí, að Serbíu yrðu settir úrslitakostir með þröngum tímamörkum. Berchtold greifi: „Hvað gerist, ef Serbía lætur til herútboðs koma, en gengur síðan að öllum skilmálum?" Ég: „Þá hö dum við inn í Serbíu." Berchtold greifi: „Já, — en ef Serbía aðhefst ekkert?“ Ég: „Þá höldum við kyrru fyrir, þar til við fáum kostnað okkar greiddan." Berchtold greifi: „Við setjum ekki fram úrslitakosti fyrr en að fengnum undirtektum og að lokinni rannsókn Sarajevo-málsins." Ég: „Betra að aðhafast í dag en að fresta til morguns, þegar mál standa sem nú. Ef andstæðingar okkar verða nokkurs vísari, taka þeir við sér.“ Berchtold greifi: „Þess verður vandlega gætt, að trúnaðarmál þetta...“ Eg: „Hvenær verða úrslitakostir settir?“ Berchtold greifi: „Eftir hálfan mánuð, 22. júlí. Vel kæmi sér að þér og hermálaráð- herrann brygðuð yður í frí, til að allt sýnist fellt og slétt á yfirborðinu." Því var von Hötzendorf hjartanlega sam- þykkur. — „Forðast bar allt, sem yrði and- stæðingum okkar til viðvörunar og kæmi þeim til að gera gagnráðstafanir; þvert á móti þyrfti allt að hafa friðsamlegt yfir- bragð.“ Af þeirri ástæðu fóru hann og her- málaráðherrann 14. júlí í frí, sem þeir yrðu úr kvaddir að 8 dögum liðnum, þ.e. um leið og úrslitakostirnir yrðu fram lagðir. Frá atburðum og samræðum greinir bók von Hötzendorf, og eitt tók við af Qðru sem í daglegu lífi, svo að erfitt er að henda sjón- ir á, hvenær ákvarðanir tóku að harðna, uns ekki sýnast verða aftur snúið. Viku áður hafði vafi þótt leika á samvinnu Þýskalands, þá var þýski keisarinn fenginn til að taka af skarið og loks var loforð hans álitið skuld- bihding gagnvart Austurríki. Berchtold, sem 9. júli hafði farið á fund Franz Jóseps keis- ara í Ischl, sagði að sér hefði fundist hann mjög einbeittur og rólegur. „Hans hátign virtist hneigjast að aðgerðum gegn Serbíu og óttast aðeins hugsanleg vandræði í Ung- verjalandi. Aftur varð ekki snúið og þá jafn- vel ekki síst vegna afstöðu Þýskalands. Tisza mælist til varfærni og er á móti stríði. Bur- ian barón er farinn til Budapest til að ræða við hann.“ Ráðgáta er enn, hvernig Tisza var loks talið hughvarf. Af uppljóstrunum og útgáf- um, jafnvel ekki bókar von Hötzendorf, hafa hingað til ekki fengist viðhlítandi svör. Á fundi í ráðuneytinu 19. júlí féllst Tisza á stríð og krafðist einungis hátíðlegrar og ein- róma samþykktar þess, að ekkert serbneskt landsvæði yrði innlimað, — hann óttaðist um yfirráð Ungveija, ef nú slavnesk landsvæði ———— yrðu felld inn í Hapsborgar-keisaradæmið. Serbíu voru settir úrslitakostir degi síðar en til stóð, því að Berchtold vildi bíða þes, að Poincaré forseti færi frá Petrograd. Þeir voru fram settir kl. 6 síðdegis 23. júlí, og jafnvel áður en hinn veitti 48 stunda svara- frestur var liðinn, eða kl. 8 að morgni 25. júlí, þegar óljósar fregnir bárust af herútboði Serba, var von Hötzendorf farinn að knýja á um birtingu herútboðs: „Þegar hernaðarleg matsatriði koma upp, ber mér að setja fram uppástungur og annað varðar mig ekki.“ Þá um kvöldið var boðið út 8 herfylkjum — þ.e. helmingi austurrísk-ungverska hersins. Skriðunni hafði verið hrundið af stað; að kröfu herforingjaráða, sem óttuðust að önnur yrðu þeim fyrri til, komu herútboð, sem eyddu brátt efasemdum stjórnarerindreka og grófu undan tilraun Sir Edward Grey, breska ut- anríkisráðherrans, til að bjarga friðnum- í Evrópu. Herforingjar komu með uppástungur sínar og „varðaði ekki um annað“. í þessari bók von Hötzendorf er. hinn verðmætasti fróð- leikur um útboð heija miðveldanna, og í diplo- matísku tilliti er hann markverðasta framlag hennar til vitneskju um upphaf styijaldarinn- ar. Þegar Austurríki-Ungveijaland bauð út helmingi hers síns, fór Rússland að sínu leyti að undirbúa herútboð, en lýsti yfir, að það kveddi ekki her saman, nema austurrískur her færi yfir landamæri Serbiu. Þegar Aust- urríki-Ungveijaland sagði Serbíu stríð á hendur 28. júlí, fylgdi rússneskt herútboð í stjórnarumdæmum Kiev, Odessa, Moskva og Kazan. Þýski sendiherrann skýrði Berchtold 30. júlí frá bresku tilboði um málamiðlun a qua- tre og lét þau brýnu tilmæli fylgja, að Aust- urríki-Ungveijaland „þæði málamiðlun Eng- lands við þau heiðarlegu skilyrði. Með þá orðsendingu gengu Berchtold, von Hötzend- orf og hermálaráðherrann á fund Franz Jós- eps keisara. Á dagskrá þeirra var, að meta og ákveða hvers skyldi krafist af Serbíu. „Hún yrði áð fallast á úrslitakosti okkar, orð fyrir orð, og endurgreiða allan kostnað af herútboðinu. Ég bætti því við, að krefjast yrði upp- gjafar landsvæða a.m.k. til að tryggja her- stöðu okkar. Belgrad og Sabac ásamt aðliggj- andi landsvæðum, til að upp yrði komið mikl- um virkisgörðum, sem Serbar yrðu líka að greiða." Keisarinn: „Á það fallast þeir aldrei.“ Berchtold greifi: „Auk þess hefur Tisza greifi krafist, að við förum ekki fram á neitt landaafsal." Ég svaraði því til, að við gætum ekki stöðv- að aðgerðir gegn Serbum, þegar allt væri af stað komið; herinn tæki því ekki. Við yrð- um að segja Þýskalandi: Ef Rússland býður út her sínum, hljótum við að gera það líka.“ Niðurstaðan af samræðunum við keisarann er saman dregin svohljóðandi: Stríðinu gegn Serbíu á að halda áfram. Breska tilboðinu á að svara mjög kurteis- lega, en ekki að fallast á það efnislega. Allsheijar herútboð á að fyrirskipa 1. ágúst og 4. ágúst á að vera fyrsti samankvaðning- ardagurinn; en það átti að ræða frekar næsta dag (31. júlí). Þá virtist um stundarsakir sem vomur kæmu á Vilhjálm keisara, líkt og ríkisstjóm- inni í Berlín hefði snúist hugur, er Italía skarst úr leik. Fulltrúi von Hötzendorf í upp- lýsingaskrifstofu þýska herforingjaráðsins sendi honum skeyti 30. júlí eftir samtal við Moltke: „Rússneska herútboðið er enn ekki tilefni til herútboðs; einungis áskollið stríð milli Austurríkis-Ungveijalands og Rússlands. Gagnstætt hinum venjubundnu rússnesku herútboðum og afboðunum þeirra, mundi þýskt herútboð óhjákvæmilega leiða til stríðs. Segið Rússlandi ekki stríð á hendur, heldur bíðið rússneskrar árásar." Þessu svaraði von Hötzendorf: „Við mun- um ekki segja Rússlandi stríð á hendur né hefja stríð.“ En skeyti frá austurríska sendiherranum í Berlín, móttekið kl. 7 að kvöldi þessa sama dags, „feykti á brott ótta okkar um afstöðu Þýskalands. Okkur var tjáð, að í Petrograd á sunnudaginn hefði Þýskaland gert heymm kunnugt, að á eftir rússnesku herútboði mundi þýskt herútboð fylgja." „Að morgni 31. júlí tjáði utanríkisráðu- neytið mér, að Þýskaland mundi setja Rúss- landi úrslitakosti varðandi hervæðingu þess. Framan nefnt skeyti mitt til von Moltke hers- höfðingja, sent 30. júlí, mætti öðru skeyti frá Moltke, sem við tókum á móti kl. 7.45 að morgni 31. júlí; það hljóðaði svo: „Bregð- ist við rússnesku herútboði: Varðveita verður Austurríki-Ungveijaland, bjóðið þegar út her gegn Rússlandi. Þýskaland mun bjóða út her sínum. Knýið Ítalíu til að rækja skyldu sína sem bandamaður með eftirgjöfum.“ Ennfremur barst eftirfarandi skeyti frá hermálafulltrúa okkar í Berlín: „Moltke seg- ist álíta stöðuna ískyggilega, ef Austurríki- Ungveijaland bjóði ekki þegar í stað út her sínum gegn Rússlandi. Sakir yfirlýsingar Rússlands varðandi fyrirskipað herútboð er nauðsyn á austurrísks-ungverskum gagn- ráðstöfunum og ber að geta hennar í birtum skýringum. Þá kæmi til bandalagssamnings- ins við Þýskaland. Náið heiðvirðu samkomulagi við Ítalíu með eftirgjöf, svo að . Ítalía verði áfram virk Þrívelda-bandalags "megin, fyrir alla muni haldið engum manni á ítölsku landamærun- um. Hafnið endurnýjuðu ensku demarché til varðveislu friðar. Austurríki-Ungveija- landi er lífsnauðsyn að standa af sér evr- ópskt stríð. Þýskaland stendur algerlega við hlið þess.“ Með þessi skeyti fór ég til hermálaráð- herrans og ásamt honum til Berchtolds greifa, þar sem við hittum fyrir Tisza greifa, Sturgkh greifa og Burian barón. Þegar ég hafði lesið skeytin upp, varð Berchtold að orði: „Dan ist gelungen. (Þetta er ágætt.) Hvor ræður ferðinni, Moltke eða Bethmann?" Berchtold las síðan upp eftirfarandi skeyti frá þýska keisaranum til Franz Jósep keisara: „Ég taldi mér ekki fært að hafna persónu- legri beiðni frá rússneska keisaranum um að reyna að miðla málum til að forða ófrið- arbáli í heiminum og að varðveita heims- friðinn, og í gær og í dag hef ég falið sendiherra mínum að leggja tillögur fyrir ríkisstjóm þína. í þeim er meðal annars • lagt til, að Austurríki kunngeri skilmála sína eftir hertöku Belgrad. Ég yrði þér mjög þakklátur, ef þú gætir látið mig vita um ákvörðun þína sem fyrst. — Vilhjálm- ur.“ Berchtold greifi sneri sér að mér þegar hann hafði lesið skeytið upp, og sagði: „Ég hef beðið yður. að koma hingað, því að mér fannst Þýskaland halda aftur af sér; en frá hinum áreiðanlegustu heraðilum hefur mér borist mjög uppörvandi yfirlýsing.“ Síðan var ákveðið að biðja Hans hátign að fyrirskipa allsheijar herútboð.“ Það var út gefið þann sama dag kl. 12.23. Meðan þessu fór fram, hafði Moltke borist skeyti von Hötzendorfs þess efnis, að Austur- ríki-Ungveijaland mundi ekki segja Rúss- landi stríð á hendur né hefja stríð, og úm hæl sendi hann eftirfarandi svar, móttekið i Vín kl. 7.15 að kvöldi 31. júlí: „Snýr Aust- urríki baki við Þýskalandi?“ Á svari von Hötzendorfs stóð að sjálfsögðu ekki. Rás atburða var orðin hraðari en skeyta. Um sinn leiddi Austurríki hjá sér stríðsyfir- lýsingu á hendur Frakklandi og Englandi, en ekki af neinum samhygðarsökum, heldur af ótta við, að sótt yrði að flota sínum van- búnum. Rætt var þá um forvitnilegar ráða- gerðir um að senda flotann ásamt (þýsku herskipunum) Goeben og Breslau til Svarta- hafs, þar sem hann verði strendur Rúmeníu og Búlgaríu, en heijaði á strendur Rúss- lands, og stuðlaði þá væntanlega að því að koma þessum tveimur Balkan-ríkjum út í stríðið við hlið miðveldanna. Frá þeim ráða- gerðum var þó fallið, því að aðmírállinn yfir austurrísk-ungverska flotanum sá á þeim tormerki og taldi flotann ekki til þess búinn. Meðan þessu fór fram, fullvissaði Berchtold Frakkland tvisvar um, að ekkert austurrískt- ungverskt herlið hefði verið sent til vesturvíg- stöðvanna, þótt Moltke þakkaði von Hötzend- orf þá daga fyrir sendingu þungra sprengju- varpna til Belgiu. Moltke hafði mælst til „heiðarlegrar til- hliðrunar" gagnvart Ítalíu, sem keypt hefði aðstoð hennar við Trentino. Eitt sinn, en aðeins stutta stund, virðist það hafa hvarflað að von Hötzendorf sjálfum, — og þó: „eftir velheppnað stríð mætti launa ein svik með öðrum og að taka mætti Trentino aftur af svikahröppunum,“ og virðist hinn heiðvirði Moltke hafa tekið undir það, því að upp á eigin spýtur réð hann austurríska fulltrúan- um við aðalstöðvar þýska hersins að láta Trentino af hendi. „Áð stríðinu loknu getið þið alltaf boðið Ítalíu byrginn, og Þýskaland stendur með ykkur.“ í byijun styrjaldarinnar, 5. ágúst, skrifaði Moltke von Hötzendorf hjartanlegt bréf, sem hann hóf á þeirri játningu, að „framferði okkar i Belgíu er vissulega hrottalegt, en um líf eða dauða er að tefla, og hver sá, sem fyrir okkur stendur, hlýtur að gjalda þess,“ og lauk því með hjartanlegri germanskri kveðju: „Mit Gott, mein Herr Kamerad." Þriðja eftirmálsklausan við bréf þetta hljóð- aði svo: „Neytið allra krafta gegn Rússlandi. Jafn- vel ítalir geta ekki verið slík fól að stinga ykkur í bakið. Sigið Búlgurum á Serba og látið þann ruslaralýð murka líf hver úr öðr- um. Nú eigið þið aðeins eitt markmið: Rúss- land. Hrekið þá hnútusvipubera út í Pripet- fenin og drekkið þeim. — Yðar ætíð, Moltke." I bréfi 13. ágúst endurgalt von Hötzen- dorf þessa hugaróra: „Lætur Þýskaland 6 ensk herfylki lenda á meginlandinu án sjóorrustu? Afbragð væri að ná flutningaskipunum og sökkva þeim.“ Að sökkva á bólakaf currum et aurigam lá að sönnu fyrir öðrum aðilanum, en hvorum sáu þeir ekki fyrir. Höfundur er sagnfræöingur fæddur í Póllandi, menntaður í Oxford og var prófessor í Manch- ester. Haraldur Jóhannesson þýddi. Kanadamenn komnir í slaginn, festa byssustingina og síðan er haldið uppúr skot- gröfunum út í opinn dauðann. MeðaJ þeirra sem féllu var íshokkí-Iið Kanada- manna, skipað Vestur-íslendingum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. JANÚAR 1990 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.