Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Blaðsíða 2
E R L E N D A R B Æ K U R Þýzkalandspistill iuM! ?Tjy 11) jjljglK 1 í VINCENTBUCUOSI £ WnæjURT GtNTRV ESISí- Guðbrandur Sigurlaugsson tók saman Vincent Bugliosi & Curtis Gentry: The Manson Murders An Investigation into Motive. Penguin Books. Þessi bók kom fyrst út í Banda- ríkjunum árið 1974 og þá undir heitinu Helter Skelter. Hún fór sigurför um heiminn og er hér aftur komin undir öðru heiti en ekki endurskoðuð. Höf- undurinn er sak- sóknari í réttarhöld- unum yfir Manson og „fjölskyldutneðlimum" hans. Hann rannsakaði sjálfur ýmsa þætti málsins og úr þessu vafstri kemur eftirminni- leg bók. Manson var dýrvitlaus glæpamaður sem átti ekki í miklum erfíðleikum með að vinna fólk á sitt band, fólk sem reynt hafði margt eitrið og mótlætið. Hann bjó sér kerfi og smitaði aðra með því, ráðskaðist með líf hinna leiðitömu og gerði út af örkinni til að myrða alsaklaust fólk sem hvorki hann né nokkur nálægur honum þekkti. Morðin vöktu óhug um allan heim. Fómarlömbin voru nafn- frægir Los Angeles-búar, og eitt þeirra var Sharon Tate sem gift var Roman Polanski og gekk með bam hans undir belti. Það var svo hálfgert fyrir slysni að upp komst um Manson og félaga og ekki var auðhlaupið að því að sanna verknaðinn, en vitni kom fram sem verið hafði í fjöldamorðsförinni. Réttarhöldin stóðu yfir í tæpt ár, kostuðu um það bil eina milljón dollara og skjölin sem fylgdu vom á um 32.000 síðum. A tæpum fimm hundruð síðum er svo hægt að lesa málið nálgist maður þessa bók eða les þá gömlu aftur. Sharon Penman: Falls The Shadow. Penguin Books. í þessari heljar- löngu og ágætlega bróderaðu skáldsögu segir af ástum og örlögum miðalda- hetja á Bretlandi. Teflt er um völd og dáðir framdar af hin- um bjarta riddara Simon de Montfort, sem vill almúganum vei. Sundrang ríkír í löndum og riddarinn hugumprúði lendir á milli steins og sleggju í valdabröltinu. Sagan er söguleg og lifandi, fljótlesin þrátt fyrir rúmlega fimm hundrað þéttletraðar síður. Það er ekki auðhlaupið að því að fást við sögulega skáldsagnaritun, því mörg hégiljan hefur verið færð til bókar, fúlmenni gerð að dýrðlingum og öfugt og jafnan erfítt að fínna sannleiksorð þar á milli, en Penman fléttar og rekur upp svo læsilegt og trúverðugt reyn- ist. Penman hefur áður skrifað skáldsögur af svipaðri gerð og ætlar að bæta um betur á næstunni. David j. Goldberg & John D. Rayner: The Jewish People Their History and their Religion. Penguin Books. Margsögð er saga gyðinga. Trú þeirra er þekkt um jarðir og bókmenntir dáðar af fólki í öllum lönd- um. Og hér er allt þetta kynnt á einkar frambærilegan máta og ættí bókin að vera staðgott veganesti öllum þeim sem áhuga hafa á trú- málum og sögu. * THIi JEWISH PEOPLE THCiRHISTORY AND TH.E1R REUC510N DAVID J.GOtDBFRC. tmOHN D.RAVNF.R Ritið skiptist í tvo hluta, í þeim fyrri er sagan sögð, hvert upphaf þessarar þjóðar var, hvernig hún dreifðist um löndin, var nídd og hundelt, drepinn stór hluti hennar fyrir tæpri hálfri öld og ioks sagt frá stofnun iikis þeirra, ísrael. Seinni hlutinn fjallar svo um trúariðkun gyðingá, siði og bókmenntir. Höfundum tekst vel upp í ætlunarverki sínu, sem var að opna augu fólks af hvaða trú sem er, fyrir þessari merkilegu þjóð. Bókin er tæpiega fjögur hundruð síður að lengd með nokkram lýsingum, nauðsynlegum skrám og töflum. Höfundamir eru rabbínar á Englandi og hafa skrifað margt um málefni gyðinga. Búskapur að hætti ,,hillbillíanna“ Eftir HJALTA JÓN SVEINSSON Undirritaður geymir óljóst í minningunni þáttaröð sem sýnd var fyrir margt löngu í sjón- varpsstöð Bandaríkja- hers Keflavíkurflug- velli. Á þessum áram hafa sveinninn ekki náð nema nokkurra ára aldri og skildi því ekki hina framandi tungu sem töluð var á skján- um. En söguhetjur og atburðarás voru með þeim hætti, að það kom ekki að sök þótt ekki skildust samræður og tilsvör. Þessir þættir hétu „The Hilliebillies“ og fjölluðu um afar sérkennilega fjölskyldu sem bjó í bandarískri sveit þó ekki allfjarri borginni. Fjölskyldan var barnmörg enda þótt ekki verði fullyrt um nákvæma stærð hennar. Foreldrarnir voru mjög sérkennilegir, syn- imir flestir eða allir í öskustónni og dæturn- ar eftir því. Búskaparhættir voru með mikl- um ólíkindum og heimilisbragurinn skringi- legur. Fjölskyldan átti gamlan, hávaðasam- an og ryðgaðan pallbíl, sem hún notaði til þess að aka í til borgarinnar og gengu þær ferðir aldrei áfallalaust. Þetta er rifjað upp hér því að nágrannar okkar í hinu þýska sveitaþorpi eru nefnilega ekki ósvipaðir ofangreindum söguhetjum, að minnsta kosti að nokkru leyti. Við kom- umst ekki hjá þvi að fylgjast grannt með daglegum störfum og á margan hátt furðu- legu háttalagi þessa fólks. Enda er það svo að portið og bakgarðurinn fjölskyldu þessar- ar blasir við okkur úr flestum gluggum hússins auk þess sem lóðirnar liggja saman. Ættfaðirinn, gamli Flender, ku hafa verið illskeyttastur heimilismanna. Hann féll frá fyrir nokkrum áram. Hér um slóðir var hann meðal fólks gjaman kallaður „der Giftzwerg,“ eða eiturdvergurinn. Þetta var smávaxinn og kringlóttur karl og alveg sér- staklega stuttur til hnésins. Nú samanstend- ur fjölskyldan af ömmunni, dóttur hennar, eiginmanni og stálpuðum syni þeirra. Gömlu hjónin áttu líka son, sem býr þarna enn ógiftur, og sér um búskaparhliðina. HverjumSitt... Tengdasonur gamla mannsins er álkuleg- ur miðaldra maður, sem starfar að ein- hverri iðn í næsta bæ, en sinnir dúfnarækt í tómstundum heima í garði. Hann hefur byggt þijá kofa yfir ræktun sína og unir sér glaður við að spjalla við fiðurfénaðinn tímunum saman. í gær sást hann sitja á hækjum sér framan vlð einn kofann þar sem hann átti í innilegum samræðum við dúfurn- ar. Þegar við virðum fyrir okkur háttalag fjölskyldu þessarar, er gjarnan haft við máltæki eftir góðum vini okkar heima í Reykjavík: „Hveijum sitt kikk.“ Dóttir gamla mannsins er ekki ómyndar- leg kona. Mest er hún innanstokks að því er virðist, en skömmu fyrir myrkur á kvöld- in vogar hún sér út og fer í gönguferð með úlfhund fjölskyldunnar. Aðaláhugamál hennar er að standa á bak við gluggatjöld og reyna að sjá hveijir aka inn í þorpið og hveijir út úr því, en hús „Hillbillíanna" er fyrsta húsið sem á vegi fólks verður þegar það kemur hingað. Hún kallar líka stundum á þorpskonur í kaffi ef þær eiga leið hjá og reynir þá að fá hjá þeim helstu fregnir af mönnum og málleysingjum nágrennisins. Þegar heimilisfólk hér í húsinu Á hæðinni (sem það heitir í raun og veru eða „Auf der Höh“) er að sýsla eitthvað í garðinum eða bakdyramegin, þá sést ósjaldan andlit á glugga eða gluggatjöld bærast fyrir hand- an. Okkur þykir þetta hið undarlegasta háttarlag. — Hveijum sitt... Sonur þessara hjóna er sláni um tvítugt. Hann stundar nám í iðnskóla í borginni og sést því ekki heima við nema helst um helg- ar. Þá aðstoðar hann móðurbróður sinn við ýmis verk, eins og að aka moði og kúa- mykju í safnhauginn hér fyrir ofan. Einnig er faðirinn farinn að reyna að segja honum eitthvað til í dúfnarækt. Hann virðist ekki hafa mikinn áhuga á henni, því dráttarvélin er hans líf og yndi. Engu líkara er en hann hreint og beint unni þessu farartæki hugást- um. Ósjaldan sést hann liggja uppi á vélar- hlífinni þar sem hann hamast við að bóna fagurgrænan flötinn. Pilturinn á líka gamlan og farinn jeppa og fyrir kemur á frídögum, að hann liggur undir honum eða bograr yfir vélarhúsinu. Hann er mikill vinur litlu pollanna í þorpinu, og er ástæðan einföld. Þannig er, að á kvöldin þegar skyggja fer, fyllir hann bílinn af strákaoiTnum og er því næst ekið út um grundir. Þar fá pollarnir Amman á bænum og sonur eiturdvergsins, sem kallaður er bóndi. að setjast undir stýri og aka jeppanum þeim arna þvers og kruss um hinar malbikuðu traðir sem liggja um akra og tún. — Hveij- um sitt. . . Amma er ein af þessum gömlu konum sem verða digrar með aldrinum. Hún er eitthvað komin á áttræðisaldur og hefur ennþá töluverða ferlivist, þó hún eigi sannar- lega ekki auðvelt með gang. Eins og margt fólk á hennar aldri, sem unnið hefur mikið um ævina, er sú gamla farin í mjöðmum og við það gliðna fæturnir í sundur. Líklega er þessi gamla kona höfuð þessa húss. Hún er hæglát en ákveðin og segir meiningu sína ef henni þykir fólk sitt ekki sem skyldi. Hún hefur þann starfa að sinna hænsnunum og sópa portið, sem hún gerir daglega hvern- ig sem viðrar. Þá kjagar hún þetta í mestu ró, eða eins hratt og fætur toga og hennar aumu mjaðmir leyfa. Við köllum hana bab- úsku, enda er hún jafnan klædd eins og allar evrópskar sveitakerlingar á þessum aldri, — í hnésítt pils eða kjól, og hneppta peysu, um hárið hefur hún skuplu. I portinu ægir saman öllum hlutum, — en það er eins og gamla konan sjái til þess að hver þeirra sé á sínum stað. Soninn tuktar hún til þeg- ar hún sér ástæðu til og reynir að halda honum að verki ef henni þykir hann slá slöku við. SONUR ElTURDVERGSINS Þá er komið að syni þeirrar gömlu, — hinni lifandi eftirmynd föður síns, eitur- dvergsins. Hann er afar smávaxinn en snaggaralegur, rauðhærður og heimóttar- legur til orðs og æðis. Hann ber titilinn bóndi, þó stofn hans sé ekki stór. Hann býr með níu mjólkurkýr. Sá stutti yrkir að sjálf- sögðu jörðina eftir þeim sið sem hér er í gildi. Hann heyjar því tvisvar til þrisvar á sumrin þá skika sem búið hefur til umráða, ræktar hafra og sykurrófur í svolitlum mæli og einhver er kartöfluuppskeran. Nokkra daga á ári leggur sá stutti sitt af mörkum í skógarvinnunni, sem bændurnir hér sinna í sameiningu. Þetta er hans eina starf og höfum við satt að segja haft gam- an af því að fylgjast með kauða í haust og vetur, þar sem hann er að sýsla við bústörf- in. íslenskum bónda þætti þetta varla nægi- legur starfi enda hefur bændastéttin heima ávallt verið stórhuga. Hvenær sem okkur verður Iitið yfir, er litli heimóttarlegi eitur- dvergssonurinn á þönum einhvers staðar í portinu. En vitaskuld snýst hann fyrst og fremst í kring um beljurassana sína níu. Stundum heyrist dráttarvélin ræst fyrir sól- arupprás, um helgar sem á virkum dögum, því þessi iðjusami bóndi notar hana til ólík- legustu hluta og þarf því að vera mikið á ferðinni. Hann mun reyndar aldrei hafa haft uppburði i sér til þess að gangast und- ir bílpróf og er því dráttarvélin mesta þarfa- þing. Það er helsti ljóðurinn í fari bónda þessa, að hann á til að hreyta ónotum í fólk sem verður á vegi hans. Það er í sjálfu sér ekki svo slæmt. Verra er að hann talar enga almennilega þýsku, heldur forna mállýsku þorpsins. Flestir hinna innfæddu hér snúa frá villu sinni þegar þeir tala til aðkomu- fólks, og skipta þá yfir í eðlilega þýsku, þó ekki sé það kannski kórrétt háþýska. Þá er það dægradvöl stubbsins að stytta sér stundir við að reyna að stemma stigu við umferð hestamanna um þá skógarstíga sem liggja um það svæði, sem heyrir til bændunum hér í þorpinu. Þess vegna hefur hann sett upp skilti þessa efnis svo það fari ekkert á milli mála. Þegar hann getur sendir hann þeim tóninn, börnum jafnt sem fullorðnum. — Hveijum sitt... Helst eiga þeir vináttu þess stutta, sem sitja með honum á þorpskránni á kvöldin. Það eru „heimsmálin" rædd vítt og breitt og atburðir liðins dags, — en heimurinn nær ekki út fyrir þorpsmörkin, portið og belju- rassana níu. Skrifað í Beienbach 6. febrúar 1990.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.