Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Blaðsíða 12
Alltaf er jafn notalegt að skella sér í heita laug og hrista af sér ferðaþreytu og ryk — hvort sem það er að sumri eða vetri. LAUGAFELL Vin í eyðimörk óbyggðanna Sæluhúsið Laugafell er í eigu Ferðafélags Akureyrar. Nafn sitt dregur það af hæð eða felli sem er þar í suðri og heitir Laugafell. Það er svo sem 15 km norðaustur af Hofsjökli. Skammt norður af fellinu koma nokkrar volgar upp- sprettur upp úr melunum. Þær eru kringum 40 stiga heitar. Ferðafé- lag Akureyrar hefur nýtt þrjár af þessum uppsprettum, eina til að fylla sundlaug og tvær til húshit- unar. Hinar uppspretturnar eru lengra frá sæluhúsunum og tæpast nýtanlegar, vegna þess að þær eru niðri í Laugakvíslinni og framan í bakka hennar. Sumarið 1948 byggði FFA sæluhús hjá einni uppsprettunni með það í huga að geta hitað hús- ið með sjálfrennandi laugarvatni. Ýmsar orsakir urðu til þess að það dróst á langinn og það var ekki fyrr en 20 árum seinna, sem vatn var leitt inn í húsið og þar í gegn- um hitakerfi, en sú framkvæmd kom þó ekki að fullum notum, fyrr en búið var að setja einangrun í allt húsið. Síðan er alltaf hlýlegt að koma inn í það. í froststormi fer hitinn niður í 13 gráður, en hann fer upp í 20 ef veður er kyrrt þó að frost sé úti. Eftir að vatnið hefur runnið þijá hringi inni í hús- inu, bunar það fram úr rofabarðinu niður í þvottavask, og þar hefur fólk neyslu- og þvottavatn eftir þörfum. Síðustu tvö sumur hafa svo þijú hús bæst þarna við, og volgt vatn hefur verið leitt í þau öll til upphitunar. Sundlaugin var byggð seinni part júní 1976. Hun var gerð með þeim hætti að leir, möl og móhellu var mokað upp úr laugarstæðinu fast við eina upp- sprettuna og í tóma áburðarpoka, veggirnir hlaðnir úr þeim og þétt á milli með dýjamosa. Þessir vegg- ir entust ekki vel, einkum stóðu þeir illa af sér vorleysingar, svo það varð alveg að endurnýja þá 11 árum síðar. Þá voru þeir einig hlaðnir úr pokum, en í stað áburð- arpoka voru notaðir rækjupokar, sem reyndust miklu þjálli í meðför- um. Innan á þá var klesst steypu- lagi en utan við þá hlaðið stór- grýti þannig að nokkur von er til þess að laugin endist nú betur. Sumarið 1988 flutti FFA tvo skúra suður á melinn hjá sundlaug- inni. Annar er bústaður skálavarð- ar, en hinn er hólfaður sundur handa fólki, sem vill hafa þar fata- skipti áður en það fer í sundlaug- ina. í þeim skúr er líka vatnssal- erni, sem er orðið landsfrægt, vegna þess hve notalegt er að setj- ast á það. Það rennur nefnilega alltaf volgt vatn í gegnum það. Haustið 1989 fluttu eyfirskir vélsleðamenn nýbyggt hús suður á melinn hjá hinum húsunum. Það er byggt í stíl við gamla sæluhús- ið, en er á örlitlu stærri grunni. Þessir menn eru fiestir félagar í FFA en nutu samt ekki stuðnings félagsins nema að litlu leyti. Félag- ið gerði þó grunninn undir húsið og lagði hitaveitu að því. Þetta hús rúmar 20 næturgesti með góðu móti og sennilega mætti koma þar fyrir um 30 manns, ef niðurröðun fólksins væri vel skipulögð, en dýnur eru ekki til fyrir svo margt fólk. Inni í húsinu er gaseldavél, vaskur og krani með volgu vatni. Gamla sæluhúsið, sem nú er orðið 41 árs og var fyrsta sæluhús Ferðafélags Akureyrar, er talið rúma 15 manns á svefnlofti og þar eru 15 dýnur til afnota. Þegar einnig er sofið niðri, hefur verið þjappað saman allt að 30 manns í húsinu. Það er því möguleiki á að 50-60 manna hópur geti dvalið í þessum tveimur húsum til sam- ans, en það verður þá að vera sam- stæður hópur. Gamla sæluhúsið var sett niður Laugafell er paradís vélsleðamanna að norðan að vetrarlagi. Að sumarlagi er freistandi að stoppa á græna blettinum, sem rís upp eins og vin í eyðimörk. 12 Skýjakljúfurinn, Hótel Plaza íOsló Hæsta hótel á Norðurlöndum Hótel Plaza hefur skreytt sig með 5 stjörnum frá opnun- ardegi. Og nú getur norska hölúðborgin aftur hreykt sér af hæsta hóteli á Norðurlöndum. Áður sló Hótel Viking __ hæðarmet (opnað fyrir vetrar-ólympíuleika 1952). Á 37. hæð ertu staddur á hæsta útsýnispunkti á Norðurlöndum, eins og oft er spaugað með: „Það gilti að komast svo hátt, að hinir sænsku hóteleigendur og sænskir gestir gætu séð heim til sín“! Á sama tíma og nýting á hótelplássi er um 50% í Osló, rís Hótel Plaza. En stjórn Plaza segir að hóteiið sé reist „til að sigra“ og leggur miklar skyldur á hvern og einn af hinu 500 manna starfsliði. Strax í anddyrinu sést hvað Plaza vill vinna: Að sjálfsögðu ráðstefnur og aftur ráðstefn- ur! Og nafngiftir á ráðstefnusölum verða að draga til sín. Nafr. Sonju Henie skreytir stærsta ráðstefnusal og dans- sal. Síðan kemur nafn Munch. Að auki eru 17 smáir og stórir fundar- og ráðstefnusal- ir, upptökuherbergi, blaðarpanna- og þjónustumiðstöð fyrir viðskiptamenn. Og nóg er af veitingastöðum. Alltfrá„Skýja- ■ barnum“ á 33. hæð niður í kaffihúsið „Litlatorg" og „Krá Jens Japs“ á 1. hæð. Vel þess virði að ganga inn og skoða; - ekki síst listaíáfnið, sem verður alltaf opið. En búið er að kaupa 1.500 listaverk, valin til að sýna norska samtíma- list í hnotskurn. O.SV.B. á þykka gróðurtorfu, sem var með háum rofabörðum á þijá vegu. Vindurinn reif stöðugt úr þessum börðum svo sýnt var að jarðvegur- inn mundi brátt blása undan hús- inu ef ekkert væri að gert. Fólk úr FFA ásamt nokkrum velunnur- um félagsins fór allmargar vinnu- ferðir þarna suður til að hlaða gijóti undir börðin. Stundum var farið þangað með dráttarvélar með moksturstæki til að færa jarðveg í skörðin og flytja gijót. Þó fóru gijótflutningar mest fram í jeppa- kerrum. Enginn gróður var í kring- um þessa gróðurtorfu þegar FFA reisti fyrsta sæluhúsið, en það hefur í mörg ár dreift fræi og áburði yfir flög og mela og nú er að myndast þar lágur, nokkuð samfelldur gróður, sem gefur um- hverfinu miklu mildari svip. Það er sérstaklega furðulegt hve mikið af blómjurtum er að vaxa þarna upp núna og sumum finnst það líka skrítið að gijóthleðslan í rofa- börðunum er að hverfa í gras og blómastóð. Haustið 1988 fóru fjórir yfirskir bændur og bændasynir með drátt- arvélar fyrir hlöðnum vögnum af sauðataði þarna suður og dreifðu því yfir tæpan hektara lands. Þeir voru einnig með tönn á einni vél- inni til að jafna landið, og svo voru þeir með tætara til að vinna landið á eftir. Þetta gerðu þeir allt í sjálfboðavinnu og ferðafélaginu að kostnaðarlausu. Þessi nýrækt lítur vel út miðað við hið stutta sumar sem var á öræfunum þetta árið. Haustið 1989 fóru þeir svo með mykju í tveimur haugsugum til að dreifa yfír nýræktina. Ferða- félagið sá aftur sjálft um að sá í flagið og dreifa tilbúnum áburði yfir það. Hugmyndin með þessari framkvæmd var að reyna að útbúa þarna framtíðartjaldstæði, en tjaldstæði vantar að mestu eins og er. Það tekur grasið sennilega ein tvö ár að festa nægilega rætur til að hægt verði að leyfa fólki að tjalda þarna. Ferðafélag Akureyrar hefur í fleiri horn að líta, því það á fjögur sæluhús annars staðar. Það verður því trúlega bið á því, að það geti haldið áfram framkvæmdum í Laugafelli, en verkefni eru þar samt hvarvetna fyrir hendi, eink- um hvað varðar umhverfið, og svo þurfa húsin þarna töluvert viðhald árlega. Laugafell liggur mjög vel við samgöngum á hálendinu norðan jökla, enda er þar sívaxandi fólks- straumur. Frá sæluhúsunum liggja vegir niður í Eyjafjörð, austur í Kiðagilsdrag og þaðan niður í Bárðardal. Þá liggur vegur suður yfír Sprengisand og af þeirri leið er slóð norðan Yatnajökuls að Dyngjufjöllum og í Herðubreiðar- lindir, en á þeim stöðum báðum á FFA sæluhús. Ennfremur liggur slóð norðan Hofsjökuls að Ingólfs- skála, sem er eign Ferðafélags Skagfirðinga, og þaðan áfram vestur í Hveravelli. Þá er einnig ágæt leið vestur í Vesturdal í Skagafirði. Styst er að fara niður í Eyjafjörð.'-Miklir ökumenn fara þá leið auðveldlega á tveimur klukkutímum til Akureyrar, enda er það orðið nokkuð vinsælt sport hjá Eyfirðingum og Akureyringum að skreppa þarna suður í góðu veðri um helgar, fara þar í sund, flatmaga svo í sólinni og halda aftur heim að kvöldi. Angantýr H. Hjálmarsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.