Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Síða 8
u M H V E R F 1
Morð í Amazon
Við fyrstu sýn virðast litlar breyt-
ingar hafa orðið á brasilíska þorp-
inu Xaputi síðan kvöldið 22. des-
ember 1988, þegar Chico Mendes
lauk upp' veigalítilli bakdyrahurð húss síns
og var skotinn niður með byssu, hlaupvídd
22 mm.
Götusópararnir hefjast enn handa þegar
dagar, við að sópa göturnar, sem lagðar eru
tígulsteinum, og eru frá þeim tíma þegar
gúmmígróðinn var tekjulindin. Gúmmíævin-
týrið er löngu liðið.
Bognir erfíðismenn draga ennþá 100
punda bagga af hreinsaðri gúmmíkvoðu upp
árbakkann og inn í þorpið. Breytingin sem
varð við morðið, var aðeins einn kross í við-
bót í kirkjugarðinn fyrir utan þorpið.
En raunin er þrátt fyrir allt önnur. Morð
þessa eina manns dró á eftir sér slóða.
Morðið varð kveikja viðbragða um allan
heim.
Mendes var þægilegur og opinskár
gúmmítappari, sem hafði barist fyrir því að
stofna til samtaka þeirra sem lifðu á afurð-
um skóganna, regnskóganna. Hann tappaði
gúmmíkvoðu og hóf nú baráttu fyrir vernd-
un regnskóganna og þar með gúmmí-
trjánna, vemdun stærstu regnskóga jarðar-
innar. Hann var tveimur árum fyrir dauða
sinn orðinn þýðingarmikill aðili að alþjóðleg-
um umhverfisverndarsamtökum, sem börð-
ust fyrir því að bjarga Amazon-skógunum
frá eyðileggingu. Þessu svæði var og er
ógnað með vegagerð, gullleit, stíflugarða-
gerð og jarða- og svæðaprangi með nýtingu
náttúruauðlinda í huga. Þar gætir mest
hugmynda um dýrmæt námuréttindi og
virkjanamöguleika. Ágengni gullleitar-
manna og þeirra sem krefjast eyðingar
stórra svæða regnskógarins vegna soja-
baunaræktunar og nautgriparæktunar er
slík, að skógarnir verða eyddir um næstu
aldamót, ef svo heldur fram sem horfir.
Mendés var talinn kjörinn fulltrúi um-
hverfísvemdarsamtaka. Hann barðist á
heimaslóðum og var því manna kunnugast-
ur öllum aðstæðum. Hann var kallaður til
Lundúna og Washington til þess að beita
sér gegn alþjóðlegri fjárhagsaðstoð til viða-
mikilla vegaáætlana brasilískra stjómvalda
um Amazón-svæðið. Hann barðist gegn
þeim sem hugðust opna þessi svæði öllum
þeim sem töldu sig hafa hagasmuna að
gæta varðandi ræktun og nýtingu svæð-
anna, en það þýddi eyðingu skóganna.
Hundruð eftir hundruð hektara yrðu brennd-
til þess að, ryðja land fyrir stórkostlega soja-
baunaakra eða nautpeningsrækt. Hann
krafðist þess að víðlend svæði yrðu friðuð
til þess að nýta þau þannig að ekki ylli
umhverfisröskun.
Þegar Mendes var myrtur vakti morðið
hneykslun og andstyggð meðal vestrænna
fjölmiðla og meðal umhverfisverndarsinna.
Þegar brasilísk stjórnvöld stóðu frammi fyr-
ir vaxandi gagnrýni erlendra aðila á stefnu
sinni varðandi umhverfiseyðingu og mann-
réttindabrot, reyndu þau að gera það sem
var sjaldgæft, draga hina seku til ábyrgð-
ar, þ.e. að leysa morðgátuna í frumskógin-
um. Þetta morð var eitt af þúsund morðum
á mönnum, sem lifðu á afurðum skóganna,
lögfræðingum, prestum og umhverfissinn-
um á síðustu fímm árum. Flest öll þessara
morða eru óupplýst. Morð Mendeser varð
til þess að lögreglan hófst handa og lög-
reglurannsóknin leiddi til þess að Darly og
Darcy Alves da SilVa, feðgar sem stunduðu
nautgriparækt voru handteknir. Þeir höfðu
keypt stór svæði regnskógarins til þess að
brenna þau og koma síðan upp högum fyr-
ir búpeninginn. Mendes hafði oft reynt að
koma í veg fyrir fyrirætlanir da Silva-feðg-
anna með aðstoð hópa gúmmítappara og
með því að heimta framkvæmd gamallar
handtökuheimildar gegn da Silva, sem ekki
hafði verið fullnægt. Þrátt fyrir sönnunar-
gögn gegn da Silvas-feðgum, vita ailir sem
eru kunnugir brasilísku réttarkerfí, að da
Silva-feðgamir verða aldrei sakfelldir.
Allt frá handtökunni hefur hægt á öllum
málatilbúnaði, svo mjög, að varla þokast í
áttina. Það er aðeins tímaspursmál hvenær
þeir feðgar flýja úr gæsluvistinni í Rio
Branco-fangelsinu í höfuðborg Acré-fylkis.
Það yrði heldur ekki erfítt. Margir gluggar
þessa fangelsis eru rimlalausir' og einn
mæta afgangi í fjárframlögum svo að fram-
kvæmdir við þá vegarlagningu drógust mjög
saman. Vegarlagningin hafði lengi verið
talin til hrikalegustu umhverfisspjalla. Veg-
arlagningin sjálf þýddi eyðileggingu þús-
unda trjáa og var þyrnir í augum umhverfis-
verndarmanna, sem töldu að milljónir trjáa
yrðu felld ef framkvæmdum yrði haldið
áfram. Annað kom til, sem var það að með
vegalagningunni opnuðust ný svæði regn-
skóganna fyrir athafnamönnum, gullleitar-
mönnum og nauta- og sojabaunaræktend-
um. Brasilíustjórn tók við sér á síðastliðnú
ári og tók tillit til margendurtekinna viðvar-
ana og undirbjó umhverfisvernd í formi
„friðaðra svæða“ í þéttustu regnskógunum.
Það vekur nokkra bjartsýni, að stjórnar-
stofnunin hefur stofnað til einnar milljóna
dollara sjóða, sem er ætlað það hlutverk
að aðstoða tapparana við að koma upp fjór-
um verndarsvæðum í Acré. Nú eru um 15
slík friðuð svæði, sem eru 86 fermílur upp
í allt að 1004 fermílum. Eyðing skóganna
á þessum svæðum verður stöðvuð með þess-
um ráðstöfunum en tapparar og hnetusafn-
arar eiga aðgang að þeim til að nýta afurð-
ir skógarins. Alþjóðlega kanadíska þróunar-
stofnunin hefur einnig veitt fé til aukinna
framkvæmda í þessu skyni.
Umhverfissinnar hafa lofað þetta fram-
tak. Þó vita þeir sem kunna skil á frum-
skógi kanadískra stjórnmála, að við ýmsu
má búast og eru því mjög tortryggnir. Fram-
kvæmdirnar í friðunarnefndum byggjast á
fjárveitingum brasilískra stjórnvalda og það
verða oft stjórnarskipti í Brasilíu. Það er
því full ástæða fyrir áhyggjum Stephans
Schwartzman, sem starfar við „Umhverfis-
verndarsjóðinn". Hann telur að ástahdið sé
mjög varhugavert og „að engin trygging
sé fyrir því að regnskógurinn verði verndað-
ur fremur en gúmmítapparar eins og Mend-
es“.
Ef einhverjar öruggar breytingar eiga að
koma til framkvæmda, telur Schwartzman
að alþjóðlegt eftirlit og alþjóðasamtök
margra ríkja verði að koma til. „Enginn
hefur minnstu trú á að brasilíska sambands-
stjórnin hafi minnstu getu til þess að aðhaf-
ast nokkuð," segir hann. Athafnamenn og
nautabændur hafa alltaf talið sig geta gert
hvað sem þeir vilja á þessum svæðum. En
morð Mendesar olli hneykslun um allan
heim. Ef hneykslunin koðnar niður án raun-
verulegrar rannsóknar á morðinu, réttar-
halda og dóms yfír hinum seku og þar með
áhuginn fyrir því að bjarga skógunum, þá
munu þeir aðilar, sem stóðu að glæpnum,
álykta, að þeim leyfíst allt.
ANDREW C. REVKIN
Frumskógurinn er
stráfelldur miskunn-
arlaust- og það með
ótrúlegum afköstum.
A neðri myndinni má
sjá, að málað hefur
verið með stóru letri
utan á hús: „ Við köll-
um á refsingu. Þeir
drápu Chico Mendes,
verkalýðsleiðtoga og
varðmann lífsins."
Náttúruunnandinn Chico Mendes við
vinnu sína í skóginum.
fangavarðanna upplýsir, að verðið fyrir að
„sjá ekki“ flótta sé um 800 dollarar. Varð-
andi baráttu Mendesar fyrir björgun regn-
skóganna má merkja nokkurn árangur og
breytingar til batnaðar. Umhverfisverndar-
stofnun Brasilíu hefur sýnt merki um ein-
hvern áhuga fyrir vemdun regnskóganna,
með því að leigja fimm þyrlur, sem eiga að
fylgjast með athöfnum nautabænda og
standa alla að verki, sem bijóta friðunarregl-
ur og brenna eða höggva skóginn. Loftferða-
eftirlit Brasilíu fylgist einnig með svæðunum
gegnum gervihnetti sem gera vart við skóg-
arelda til áhafna þyrlanna. Tvisvar á dag
er farið yfir gögn sem berast frá gervihnött-
unum ,og sé eitthvað grunsamlegt á seyði
eru þyrlustjórar látnir vit-a. Árangurinn af
þessu eftirliti varð sá að á mjög úrkomu-
sömu vori 1989 hefur brunum fækkað í
fyrsta sinn í manna minnum.
Það hægði einnig á „þróunarátakinu" á
Amazón-svæðinu. Þjóðvegur BR-364, ryk-
ugur vegur sem Brasilíustjórn var að leggja
um Acré-fylki úr suðurhlutum landsins í
áttina til Kyrrahafsstrandarinnar, var látinn
FINNUR
GUNNLAUGSSON
Hjörlu
Horfðu um öxl
kveddu þitt ból.
Handan hæðarinnar
kitla fjallagrösin bragðlaukana.
Brjóttu öngvar brýr
brenndu ekki þorp
sprengdu ekki brunna
taktu ekki gísla.
Angan leysir úr læðingi
söknuð þinn.
Horfðu um öxl
í augu sem sjá
eyru sem heyra
hjörtu sem slá.
Töfrar í krafti
umbreyttra augna
sem sjá
svo hjörtun slá hraðar.
Horfðu um öxl
einsog hreinninn
sem skynjar hættuna
hraðann og ástina.
Þegarhann spennirhvern vöðva
í hamslausri þrá
framávið.
BIRGITTA HALLDÓRS-
DÓTTIR
' I
Kosmísk Ijóð
Orka.
Alheimurinn umlykur sálirnar.
í almætti sínu.
Vernd.
Vernd er hluti þessa lífs.
Hluti alls.
Vernd alheimsins.
Gleðjumst.
Því ekkert skal óttast.
Við erum hlekkur í keðju.
Alheimsins.
Heimsmyndin er eilíf.
Ekkert mun nokkru sinni
granda
þeirri staðreynd.
Ekkert getur tortímt þeirri
mynd.
Því lífið er eilíft
og enginn dauði er til.
Straumar og bylgjur.
Sendar með þeirri tíðni er
mannleg skynjun nær ekki.
Stöðugir straumar.
Þess sem enginn skilur til fulls.
Um stjörnubjartar nætur,
stara augu upp í himininn.
Óendanleikann.
Ódauðleikann.
Og fmna frið.
Höfundur er bóndakona og rithöfundur
á Syðri Löngumýri f Húnavatnssýslu.