Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1990, Blaðsíða 12
*
-
Leiguflug í sól-
ina að hefiast
Vikulegar brottfarir hjá
ferðaskrifstofunum
Á hverju sumri hópast íslendingar í sólina við
Miðjarðarhaf. Islenskar ferðaskrifstofur hafa um ára-
bil haldið uppi leiguflugi á þessar slóðir og yfir sumar-
tímann eru vikulegar ferðir.
1) COSTA DEL SOL:
Úrval-Útsýn: Alla föstudaga frá 25. maí til 28 septem-
ber.
Veröld: Alla fimmtudaga frá 24. maí til 4. október.
2) BENIDORM:
Samvinnuferðir-Landsýn: Fyrsta ferð 17. maí. Alla
fímmtudaga frá 31. maí til 20 september.
Veröld: Alla fimmtudaga frá 24. maí til 4. október.
3) MALLORKA:
Samvinnuferðir-Landsýn: Alla þriðjudaga frá 15.
maí til 11_. september.
Úrval-Útsýn: Fyrsta flug 21. maí — síðasta ferð 19.
september.
Atlantik og Veröld: Alla þriðjudaga frá 22. maí til
októberloka.
4) PORTÚGAL:
Úrval-Útsýn: Fyrsta flug til Faró 30. maí. Síðasta
ferð 26. september.
5) RIMINI:
Samvinnuferðir-Landsýn: Á þriggja vikna fresti frá
28._maí til 20. ágúst.
Útsýn-Úrval og Samvinnuferðir-Landsýn leigja Flug-
leiðavélar. Veröld og Atlantik leigja vélar frá spánska
flugfélaginu OASIS.
Fyrstu farþegar ganga um borð.
Spánveijar fljúga með
íslendinga í sólina
íslenskir sólarlandafarþegar í
spánskri landhelgi strax í Keflavík
FERÐASKRIFSTOFAN Veröld gerði samninga við spánska flugfé-
lagið OASIS um að flytja farþega sína á sólarstrendur Spánar —
og ferðaskrifstofan Atlantik gekk inn í dæmið. Úrval-Útsýn og
Samvinnuferðir-Landsýn bóka líka hluta af sínum farþegum með
OASIS. Það verða því margir íslenskir ferðalangar sem ganga
beint inn í spánska Iandhelgi strax á Keflavíkurflugvelli!
Miklu meira er nú lagt upp úr
þjónustuþættinum í leiguflugi en
áður. Vissulega góðar fréttir fyrir
sólarlandafarþega. Áður þótti
kostur, að leiguvélar væru með
eins mörg sæti og hægt var að
koma fyrir. Oft voru það gamlar
vélar, sem viðkomandi flugfélög
nýttu eingöngu í leiguflug. Flug-
öryggi var því ekki eins og best
verður á kosið.
Nú eru nýjar þotur F'lugleiða í
leigufluginu og MD’3 flugvélar
frá OSAIS, sem allar eru innan
við eins árs. MD’83 er nýr arftaki
DC-9, með nýja tegund hreyfla,
sem hafa lengra flugþol. Og hljóð-
einangrun í farþegarými er svo
góð, að farþegi í fyrsta fluginu
spurði: „Er búið að slökkva á
hreyflunum?“ Sæti eru fyrir 165
farþega, sem þýðir meira rými
fyrir hvern farþega og aukin þæg-
indi. I DC-9, sem er jafnstór vél,
eru sæti fyrir 189 farþega.
Og þó að OASIS teljist spánskt
eru flestir yfirmenn flugfélagsins
frá leiðandi alþjóðlegum flugfé-
lögum eins og Lufthansa, SAS
og fleirum. Farþegar í sólarlanda-
flugi ættu því að geta verið vissir
um að vel er séð um þjónustu og
flugöryggi.
Ferðafréttir frá Austur-Evrópu
Pólveijar a'tla
sér að sigra
HVÍLÍK breyting á flugvellinum í Varsjá! Árinu áður voru langar
biðraðir og hver ferðamaður mældur út af frekjulegu, einkennis-
klæddu starfsfólki, sem hélt sig geta séð tilgang ferðalagsins,
■ með því að horfa nógu Iengi og gagnrýnandi! Hörkuleg kona
gramsaði í töskum, hóf næríot á loft, eins og til að sýna hnignun
hins kapítalíska þjóðfélags! Það mátti þakka fyrir að losna úr
'u prísundinni á klukkutíma! — En nú tekur toll- og vegabréfaskoð-
un um 10 mínútur — allir brosa við manni og óska ánægjulegrar
dvalar í Póllandi. Hvílík breyting!
Á hótelum fá ferðamenn betri
og persónulegri þjónustu. Áður
var fólkið svo lokað, en núna tala
flestir fijálslega við gestkomandi.
Já, það eru ekki litríkir ferðabækl-
ingar, sem draga ferðamenn til
landsins heldur Pólveijar sjálfir —
íbúarnir, sem hafa kjark til að
takast á við erfiðleikana og trúa
því varla, að þeir hafi málfrelsi
og það sé hlustað á þá!
Já, Pólveijar hafa fengið frelsi
og við fögnum með þeim, en ótt-
umst samtímis að fyrir suma sé
það aðeins „frelsi til að svelta"! I
janúar steig framfærslukostnaður
um 76,8%, bankavextir um 40%
— á meðan laun lækkuðu um 24%
og iðnaðarframleiðsla dróst sam-
an um 23%! Eins og ungur Pól-
veiji komst að orði: „F'yrir ári
átti ég peninga, en þá var ekkert
hægt að kaupa. Núna eru búðir
fullar af vörum, sem ég hef ekki
efni á“! Skyldi pólskur iðnaður
þola svo snögga breytingu yfir í
frjálst markaðskerfi? Vestur-
Þýskaland er fyrirmynd Pólveija,
sem virðast ímynda sér að fijálst
markaðskerfi sé leiðin til að verða
ríkur á einni nóttu! En þeir ættu
að athuga, að Portúgal, Mexíkó,
Filippseyjar og Sri Lanka eru líka
í fijálsu markaðskerfi.
Þegar litið er í búðir og verð
borið saman við laun, sýnist
kraftaverk að láglauna- og eftir-
launafólk skuli geta komist af.
En fólkið bjargar sér með því að
kaupa á mörkuðum, sem spretta
upp á hvetju götuhorni. Þar geng-
ur allt kaupum og sölum persónu-
legar eigur fólksins seidar og end-
urseldar. Áður gátu ríkisrékin
fyrirtæki fengið bankalán, ef með
þurfti, en núna eru vextir of háir.
Þess vegna hafa ríkisfyrirtækin
slegist í hóp götusalanna og selja
úr flutningabílum hveiti, sykur,
kjúklinga, rafmagnstæki. Furðu-
leg þróun! Og allir virðast vera
að kaupa og selja, en engínn að
Bílskottið er söluborð! „Mark-
aðsborð" eins og þetta í Gdansk
spretta upp.
Yfir öílu liggja óhreinindi
síðustu 50 ára.
framleiða. Já, fólk kemst af í bili,
en framtíðat'lausn sýnist ekki inn-
an seili'ngar.
Enda er bannorð í Austur-Evr-
ópu „að koma einhveiju í fastar
skorður eða undirbúa fram í
tímann“! Það er arfur kommún-
istastjórnanna, sem reyndu að ríg-
binda hvert smáatriði í nafni sós-
íalismans. Og markaðir götunnar
blómstra og áhuginn beinist ein-
göngu að einstaklingsframtaki.
Pólveijar eru búnir .að fá nóg af
rígbindingu kerfisins og þrælkun
samhyggjunnar. En þeir mega
gæta sín að renna ekki inn í þá
hugsjónafræði að segja: „Guð gaf
okkur tvær hendur til að ná í allt
sem við getum — fyrir okkur
sjálf“!
Að ferðast í Póllandi er ekki
fyrir ferðamann, sem gerir kröf-
ur. Bestu hótelin búa að vísu yfir
sæmilegum þægindum og matur
er nógur. En utan dyra mætir
ferðamanninum „öðruvísi” and-
rúmsloft. Þeirri fyrirlitningu, sem
kommúnistastjórnir sýndu um-
hverfínu, verður vart með orðum
lýst! Það er sama hvort ekið er
um borg eða sveit. í Katowice er
ógnvekjandi umhverfismengun.
Og fallega söguborgin Kraká,
með sína áhugaverðu kastala,
kirkjur og hallir, ber grimmdarleg
ör. Það er sorglegt að horfa á
mengunarskýið, sem liggur yfir
hinu stórbrotna, fagra landslagi
frá Tatra-fjöllum niður yfir vatna-
svæðið á láglendinu. Sjóböð eru
óhugsandi á strandlengjunni við
Norðursjó. Yfir öllu liggur dimmt
mengunarský síðustu 50 ára.
Vonandi eru íbúarnir ekki líka
mengaðir. En hjá Pólveijum virð-
ist allt ganga út að ná í peninga.
Og hver getur áfellst þá, sem
hafa sætt áratuga áþján? Pólland
hefur lengi verið í skrúfstykki á
milli tveggja stórvelda, sem bæði
hafa litið á Iandið sem áhrifa-
svæði eða nýlendu þar sem hægt
var að arðræna og ráðskast með
íbúana. En í hvert skipti sem stór-
veldin gleyptu Pólland, svelgdist
þeim á bitanum. Pólland hefur
sannarlega fengið sinn skerf. Og
vonandi eru betri tímar í vændum
fyrir hina hugrökku Pólveija.
Upplýsingar: Pólska flugfélagið
LOT og British Airways eru með
daglegt flug til Varsjár frá Heath-
row. Flugið verður að bóka með
14 daga fyrirvara. Verð um
21.000 kr. Flugtími tvær og hálf
klst. Pan Am og Lufthansa fljúga
frá Frankfurt. LOT flýgur til
Gdansk og Kraká á sumrin.
Leiguflug á milli Glasgow og
Kraká á sumrin. Athugið að hótel-
pláss er mjög takmarkað! í Varsjá
er verð frá 7.500 kr. fyrir tveggja
manna herbergi. Vegabréfsáritun
tekur um viku. Um 160 zlotys í
hverri krónu á opinberu gengi.
Þýtt og endursagt úr Sunday
Times. O.SV.B.
12