Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1990, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1990, Qupperneq 10
Sérstæðar ferðir „Fórboðna borgin“ en þeim má skipta í „hæð langlíf- is“ og Kunming-vatn. Dingling- grafhýsið (eitt af 13 grafhýsum Ming-keisaranna) er höll, 27 metra undir yfirborði jarðar. Já, það er margt að sjá í Peking, en mannlífið mun flestum finnast forvitnilegast. Aðalverslunargata Peking er Wangfujing — þéttsetnust á sunnudögum, aðalverslunardegi í Peking! Handiðnaður er afar áhugaverður í Kína t.d. skartgrip- ir, jaðe-útskurður, lakkaðir skrautmunir, málverk, silki og handsaumur. Nýjar verslanir spretta upp í nágrenni hótela og verðlag hækkar. — Athugið að oft má fá miklu hagstæðara verð utan helstu ferðamannasvæð- anna. í ríkisverslunum er fast verð, en hægt að prútta í minni einkaverslunum. „Friendship Store“ eru verslanir fyrir útlend- inga og margt má fá á betra verði annarsstaðar, en treysta má vöruúrvali og gæðum. Þekkt- asta fornverslun í Peking er Yunguzhai við Austur-Liulichang 80. „Bejing Arts and Crafts Trust Company“ við Chongwenmennei D’ajie 12 selur margt áhugavert — oft nefnd„leikhúsbúðin“ vegna úrvals leikbúninga gömlu Pek- ing-óperunnar, sem þar eru í boði. Haustið besti árstíminn Á haustin er sólríkt og þægi- legur hiti. Votviðrasamt á sumrin. í nóvember og mars er meðalhiti um 4 stig. í desember, janúar og febrúar getur hiti farið niður fyr- ir frostmark (íafnvel niður í 7 stiga frost) en pað snjóar sjaldan og yfírleitt þurrt og bjart. Gott Minnisvarði þjóðhetjanna á Tiananmen-torgi. „Hallar- safnið“ var reist 1406- 1420. Þar sátu keisarar Ming- Qing- ættanna. Höllin ekkert smásmíði fremur annað í Kína. Gólfrými 150.000 fer- metrar. Her- bergi 9 þús- und talsins! Og höll og garðar ná yfir 720.000 fermetra. Auðvitað kemst enginn ferðamaður yfir að skoða 9 þús- und herbergi, enda er aðeins hluti af þessari geysistóru byggingu listasafn. En höllin er talin sýna mjög vel kínverskan bygging- Gengið eftir Kína- múrnum. Leiðsögukonur í Sumarhöiiinni. arstíl og einn fullkomnasta hall- arstíl sem um getur. Píslarvottar á píslartorgið Á Tiananmen-torgi í miðborg Peking eiga ferðamenn kannski hljóða stund til að minnast hinna hugsjónaríku stúdenta sem voru stráfelldir þar í fyrrasumar. Um tíma stöðvaðist allur ferðamanna- straumur til Kína vegna þessa hroðalega atburðar — og er fyrst að komast á stað aftur. Torgið er hið stærsta í heimi — nær yfir 40 hektara. Á því miðju stendur minnisvarði um þjóðhetjur Kína. (Hvenær skyldu stúdentar fá þar minnisvarða?) Við torgið er líka minningarhöll Maós formanns, kínverska þjóðminjasafnið og safn um kínversku byltinguna. „Hofið guðdómlega" er frá 1420. Þangað komu keisararnir til að biðja um góða uppskeru. Umhverfis Sumarhöllina eru stærstu konungsgarðar í Kína, veður til að skoða þessa miklu heimsborg. Þegar komið er á svo fjarlægar slóðir er afar freistandi að ferð- ast víðar og skoða meira. Frá Peking.er hægt að taka innan- landsflug eða lestarferðir til helstu kínversku borganna. Á Hainan-eyju (á sömu flugleið) er hægt að komast í sólbaðsveður. En athugið að ferðaþjónusta er afar lítt þróuð í Kína, utan stærstu hótelanna. Farið aðeins á viðurkennd veitingahús — matareitrun í fjarlægu landi er ekkert grín. Og ef þið hafið áhuga á öðrum löndum í nágrenninu, verður að undirbúa„pakkann“ eða fá tilboðsverð á ferðum þangað áður en lagt er upp. Umtalsvert kostnaðarsamara að breyta flug- miðanum í Kína. O.Sv.B. Ferðaskrifstofan Saga stendur fyrir þessu ferðatil- boði í samvinnu við fínnska flugfélagið Finnair og nokk- ur af bestu hótelum í Pek- ing. Á fimmtudögum er besta tengiflugið fyrir far- þega héðan. Flogið er frá Kaupmannahöfn til Helsinki (tæpir 2 tímar) en 8 tíma flug milli Helsinki og Pek- ing. Sérstaklega er bent á hótel China World, verslun- ar-, gisti- og ráðstefnu- miðstöð, opnuð sl. vor og talið eitt besta hótel í Kína. Verð frá kr. 101.700 í tvíbýli. Innifalið: flug og gisting með morgunverði í 2 vikur. Pekmg' Ferðatilboð til nýrra áfanga- staða eru alltaf að koma frám. Sumir hverjir mjög framandi bæði í fjarlægð og siðvenjum. Einn þeirra er Peking, höfuð- borg Kína. Hagstæðar vetrar- ferðir eru í boði þangað og dvöl í 1-2 vikur fram í marslok ’91. Það er erfitt fyrir okkur íslend- inga að skilja hina gífurlegu mannmergð, sem byggir Stóra Kína. Peking ein telur yfir 9 millj- ónir íbúa. Peking er fom menn- ingarborg með 3000 ára sögu að baki og geymir margt forvitni- legt. Má þar nefna Kínamúrinn, sem er 6.350 km langur og nær yfír 9 fylki. Bygging hans hófst þegar á 7. öld, en núverandi Kínamúr var reistur 1368 og fram- lengdur um 200 ára skeið. Geinf- fræðingar hafa staðfest að Kínamúr- inn sé eina mánnvirki jarðar sem sést frá tunglinu!

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.