Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1990, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1990, Side 12
?, a oeet sraeMavöM .01 auoaqhaouaj aia/wia/uoHOM B M 1 L A R SIGMA - nýr lúxusvagn frá Mitsubishi Sigma heitir nýr bfll frá Mitsubishi sem kom á markað erlendis snemma á þessu ári og er væntanlegur hingað til lands á næstunni. Sigma er rúmlega meðalstór bfll með ríkulegum búnaði og er honum ætlað að keppa við 5 iínuna frá BMW eða Audi 100 svo dæmi séu tekin af evrópsk- um bflum og af japönskum keppinautum má nefna Honda Legend og Nissan Max- ima. Verð á Sigma hérlendis verður trúlega rúmlega tvær milljónir króna. Mitsubishi verksmiðjumar ákváðu fyrir all- mörgum árum að fikra sig ofar í samkeppn- inni og bjóða fram lúxusbíl. Er byggt á góðri reynslu sem fengist hefur af minni bflunum. Segja fulltrúar Mitsubishi að þar hafi menn fengið mikið fyrir peningana og ætlunin sé að svo verði einnig með þennan stærri bfl. Eftirfarandi atriði voru meðal þess sem forráðamenn Mitsubishi höfðu í huga þegar hafinn var undirbúningur að framleiðslu á Sigma: Bjóða fallegan bíl og vel búinn sem gæti uppfyllt miklar kröfur, nýta hvaðeina sem nýtt væri í tækni bæði til ánægju í akstri og til að auðvelda aksturinn, spara hvergi í vönduðum«frágangi og leggja mikla áherslu á öryggisatriði. í útliti svipar Sigma mest til Mitsubishi fjölskyldunnar en sjá má einnig ákveðinn svip með BMW. Sigma býður upp á þriggja lítra V6 og 24 lítra vél með rafstýrðri fjöl- innsprautun, hann beygir öll hjól þegar ekið er á yfir 50 km hraða, hann er búinn læsi- vörðum hemlum, hægt er að velja hvort sjálfskiptingin vinnur mjúkt, þ.e. skiptir sér á lágum snúning, eða láta hana ekki skipta fyrr en við mikinn snúning til að auka vinnslu og hröðun sem kemur sér til dæmis vel við framúrakstur. Sigma er 4,75 m lang- ur, 1,775 m breiður og 1,435 m hár. Mjúka og ávala línan ræður ríkjum hið innra. Mælaborðið er bogadregið, stýrið leð- urklætt, sætin með tauáklæði og stillanleg á marga vegu. Hægt er til dæmis að hækka setuna annað hvort að framan eða aftan auk þess sem hægt er að hreyfa hana alla upp og niður. jt Seat-verksmiðjurnar reyna að spá í framtíðina eins og aðrir bílaframleiðendur. Hér er frumgerð sem kölluð er Proto C og er eins og aðrar frumgerðir bíla nokkuð óvenjuleg útlits. Hún er líka óvenjuleg hið innra hvað varðar vél og búnað, áhersla er lögð á sparneytni og mikið rými en ekki orku og hraða. Seat orðinn fertugnr Á þessu ári eru liðin 40 ár frá því Seat verksmiðjurnar á Spáni tóku til starfa en þær hófu göngu sína í samvinnu við Fiat. Fyrir nokkrum árum var gengið til sam- starfs við Volkswagen um framleiðslu og sölu og hér á landi er það Hekla hf. sem hefur umboð fyrir Seat rétt eins og aðra bfla frá VW. AIls hafa verið framleiddir 6 milljón Seat bílar og hefur aðalsölusvæði þeirra verið í suðurhluta Evrópu. Starfsmenn Seat eru rúmlega 25 þúsund og framleiða auk Seat bílanna meðal ann- ars Volkswagen Polo. Verksmiðjur eru fjór- ar og hefur hlutdeild Seat í bílamarkaði í Evrópu vaxið jafnt og þétt síðustu árin. Árið 1984 nam hún 0,4% af heildarsölunni en í fyrra 2,5%. Framleiddir voru um 450 bílar á dag fyrir fáum áram en í dag nærri 1.600. Alls voru framleiddir 208 þúsund bílar af gerðinni Seat Ibiza á síðasta ári en heildarframleiðslan að Volkswagen bílunum meðtöldum nam 474 þúsund bílum. Jókst hún um 40 þúsund bíla frá fyrra ári og nemur framleiðslan á starfsmann um 19 bílum á ári. Forráðamenn Seat hafa sett sér það Seat Ibiza er ekki mjög útbreiddur á íslandi en sækir í sig veðrið. markmið að ná enn betri stöðu á smábílamarkaði í Evrópu í framtíðinni með' því að leggja alla áherelu á gæði í framleiðsl- unni og þjónustu við eigendur Seat-bíla. Næstu 10 árin á að leggja sem svarar 350 milljörð- um íslenskra króna til að koma upp nýrri verksmiðju í Marto- rell. Hún á að geta framleitt 1.500 bíla á dag og er ráðgert að hefja framleiðsluna í árslok 1992. jt Ráðleggingar í vetrarkuldum Olíufélagið hf. hefur sent frá sér litinn bækling sem hefur að geyma ráðlegging- ar varðandi notkun dísilvéla í vetrarkuld- um. Bækling þennan má fá á bensínstöðv- um félagsins. í formála segir að kaldir vetrardagar geti valdið erfiðleikum í akstri dísilknúinna tækja því bæði vél- arnar sjálfar og eldsneyti þeirra verði fyrir miklum áhrifum veðurfarsbreyt- inga. í bæklingnum ér fjallað um eiginleika dísilolíu og hvernig kuldi hefur áhrif á þá. Þá er bent á ýmis ráð sem hægt er að grípa til til að forðast gangtruflanir, hvað hægt er að gera þegar gangtruflana verður vart og fjallað er um geymslu á dísilolíu. Ráð- í bæklingi Olíufélagsins um ráð við vetr- arkulda er t.d. sýnt á þessari mynd hvaða atriði eru ávísun á erfiðleika í miklum kulda. leggingar þessar eiga jafnt við bílvélar sem og aðrar dísilknúnar vélar. jt Opið hús hjá Bílaumboðinu Bílaumboðið hafði opið hús um síðustu helgi og sýndi þar einkum Renault bíla en einn- ig voru vélsleðar til sýnis. Að sögn forráðamanna Bílaumboðsins leit fjöldi manna við um helgina og seldust nokkrir bflar og vélsleðar. Mestur áhugi var fyrir Renault 19 og 21 en boðið var upp á reynsluakstur. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.