Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1991, Page 16
B I L A R
>
-v
Fjölskyldubíll
10. áratugarins
Bandarískir bílakaupendur hafa tekið
sérstöku ástfósti við það sem þeír
kalla „mini van“ og við nefnum fjöl
notabil þar til betra orð finnst. Ástæðan
er þessi: Hér er farartæki þar sem maður
situr næstum jafn hátt og í jeppa og hefur
miklu betri yfirsýn yfir umferð og um-
hverfi en úr venjulegum fólksbíl. Þar að
auki er bíllinn miklu rýmri að innan en
gengur og gerist um fólksbíla; það er
hreint ótrúlegt hvað hægt er að flytja í
honum og síðast en ekki sízt: Að aka hon-
um er alveg eins og að aka venjulegum
fólksbíl.
í Bandaríkjunum er sagt að þessi gerð
af bíl hafí komið eins og himnasending
eftir barnsfæðingabylgjuna (baby boom)
sem svo hefur verið nefnd. Það komst nefni-
lega í tízku á nýjan leik að hjón eignist
fleiri en tvö börn. Fjölnotabíllinn þykir
betri og skemmtilegri kostur en venjulegur
langbakur og síðast en ekki sízt hefur það
gerst, að fjölnotabílar hafa fengið ávalar
línur og rennilegt sköpulag. Þegar þessi
bílaskrifari var vestan hafs um miðjan jan-
úar, mátti sjá ótrúlega marga slíka bíla í
umferðinni, en það var mat okkar, að Lum-
ina frá Chevrolet væri bezt hannaður;
hæfilega straumlínulagaður. Aftur á móti
er spurning hvort egg-lagið á Toyota Pre-
via sé ekki um of. En slíkt er að sjálfsögðu
smekksatriði.
Við vorum þarna fjórir golfleikarar á
samskonar bíl frá Mazda, sem reyndist í
alla staði ánægjulegur farkostur og rúmaði
vel allan okkar farangur. Betri bílaleigubíl
hef ég ekki ferðast í. Allar þessar gerðir
fást auk þess í lengri útgáfu; þá verður
þar enn meira farangursrými.
Ein nýjasta viðbótin í þennan flokk er
Chrysler Voyager, sem kynntur var á bíla-
sýningunni í París 1990. Það er sterklegur
bíll og nokkuð kantaður í útliti, fáanlegur
í tveimur lengdum og einnig sem Chrysler
Grand Voyager; þá með meiri íburði. Mæla-
borðið er dæmigert á ameríska vísu; sjálf-
skiptingin við stýrið svo sem eitt sinn
tíðkaðist.
Þessi Chrysler er ekki framúrstefnuleg-
ur. Annað mál er með tilraunabílinn Chrysl-
er Voyager III, sem sést hér á mynd. Hann
er tvískiptur; tekinn sundur um miðjuna,
enda eru undir honum 8 hjól. Framendinn
er í rauninni sjálfstæður smábíll og þegar
komið er á ákvörðunarstað eða í tjaldstað,
er stóri vagninn tekinn aftanúr, ef eitthvað
þarf að skjótast. í rauninni er þetta enn
eitt afbrigði af húsbílnum, sem er einskon-
ar sumarbústaður á hjólum og Bandaríkja-
menn framleiða í óteljandi gerðum.
GS.
Chrysler Voyngcr II — tvískiptur tilraunabíll, sem enn er ekki koniinn á markað.
Volkswagen „rugbrauð-
ið“ í nýjum búningi
A
ður en langt um líður gefst lands-
mönnum kostur á að sjá nýjustu
viðbótina í þann flokk, sem hér að
ofan er nefndur „Fjölskyldubíll 10. áratug-
arins. Sá sem hér um ræðir er Transporter
frá Volkswagen. Flestir helztu bílaframleið-
endur heimsins eru komnar með sínar eigin
útgáfur af þessum fjölnotabílum, sem eru
frábærir til ferðalaga, henta vel stórum fjöl-
skyldum, svo og þeim sem þurfa bíl til
smærri flutninga. Renault Espace reið á
vaðið með það lag, sem nú er allsráðandi:
Framendinn fleygmyndaður og framrúðan
nánast í sömu línu og véiarlokið.
Það er samt Volkswagen, senvtelja verð-
ur brautryðjanda á þessum vettvangi. Þá
er átt við gamla góða „rúgbrauðið", sem
búið er að framleiða lítið breytt í 40 ár -
samtals hafa verið framleidd um 7 milljón
eintök. Þar var notagildissjónarmiðið alveg
í fyrirrúmi; rýmið nýttist eins vel og hug-
ast gat vegna kassalagsins. í Volkswagen
„rúgbrauðinu" var vélin afturí og drif á
afturhjólum.
Nú hefur þessi gerð verið endurnýjuð
eftir hinni vinsælu nútíma formúlu; vélin
að framan, drif á framhjólum, eða aldrif.
Þessi gerð heitir annaðhvort Transporter
eða Caravelle eftir útfærslu og fáanlegur
verður hann einnig sern háþekja (hærra
undir loft en venjulega) eða pallbíll.
Nú.er allt breytt nema nafnið, segir þeir
í Heklu, sem umboð hafa fyrir Volkswag-
en, og þá er átt við að vélin er ný og stað-
sett að framan, yfirbyggingin ný og sömu-
leiðis innréttingin. Sé sætarými nýtt til
fulis, geta 8 manns ferðast saman. Gólf-
hæðin er sú sama afturúr, rennihurðir eru
á hliðum en vængjahurðir að aftan. Með
Caravelle-útfærslunni fæst ABS-hemla-
kerfi, sjálfskipting og loftkæling. Völ er
um bensín- eða dísilvél.
Verðið á þessum nýja Transporter frá
Volkswagen er frá 1.317 þús. kr.
g-
Transporter frá Volkswagen, nýr fjöl-
notabíll. Á efri myndinni er venjuleg
útfærsla, en á þeirri neðri er sendibíls-
eða vöruflutningaútfærsla.
Chrysler Voyager — fjölnotabíll, sem ætlað er að bjarga Chrysler úrþröngri stöðu.
COfp
Toyota Previa — straumlínan teygð til hins ýtrasta og vélinni komið fyrir undir
miðju gólfi.
16