Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1991, Blaðsíða 9
LESBÓKAR
9. FEBRÚAR 1991
Skagfjörðsskáli í Þórsmörk. Göngiiskíðafólk í Landmannalauguni. Brennisteinsalda í baksýn.
Að ferðast innanlands
með Ferðafélaginu
Síðasta ár var einstaklega gott ferðaár hjá Ferðafélagi
íslands. Tæplega 7.000 manns tóku þátt í ferðunum, þar
af voru um 4.300 þátttakendur í dags- og kvöldferðum
sem er með því mesta í sögu félagsins. Um þúsund
manns voru með í afmælisgöngu í 13 áföngum frá
Reykjavík í Hvítárnesskála í tilefni 60 ára afmælis skál-
ans.
Þessari ágætu þátttöku er vel
fylgt eftir í ferðaáætlun
Ferðafélagsins fyrir árið 1991
sem kom út í síðasta mánuði. Þar
kynna Ferðafélagið og deildir þess
um 300 styttri og lengri ferðir
um ísland og er um mikla fjöl-
breytni að ræða og ýmsar nýjung-
ar í boði.
Megináhersla er að venju lögð
á holla útiveru og gönguferðir,
en einnig ökuferðir þar sem minna
er gengið. Hægt er að velja um
fjallgöngur, láglendis- og fjöru-
ferðir, bakpokaferðir, ferðir með
gönguferðum út frá tjaldbækistöð
og rútuferðir. Ferðaáætlunin nær
yfir allt árið en hér er lögð áhersla
á ferðir fram til vors, en nánari
umfjöllun um ferðir í sumar bíður
betri tíma. Eitt af helstu mark-
miðum Ferðafélagsins er að
hvetja til ferðalaga innanlands og
allir ættu að veija hluta af sumar-
leyfi sínu hér heima.
Vetrargöngur
Dagsferðir eru alla sunnudaga
árið um kring og er alltaf farið
kl. 13, en oft eru lengri ferðir
með brottför kl. 10.30. Skíða-
göngur Ferðafélagsins njóta jafn-
an vinsælda. Að þessu sinni eru
sérstaklega kynntar skíðagöngur
út frá Bláfjöllum. Leiðbeint verður
í gönguskíðatækni í nokkrum
ferðanna. Þeir sem ekki stunda
skíði eiga margra kosta völ.
„Reykjavík að vetri“ er nafn á
hringgöngu um útivistarsvæði
innan borgarmarka Reykjavíkur.
Önnur gangan verður nú á sunnu-
daginn 10. febrúar kl. 13. Kvöld-
göngur eru einu sinni í mánuði
Á Snæfellsjökli.
þegar tungl er í fyllingu, oft með
blysför. Ökuferðir verða að Gull-
fossi í vetrarbúningi þar sem m.a.
er farið um nýju Tungufljótsbrúna
í Biskupstungur. Fjórar árstíðar-
ferðir verða á Þingvelli, en vetrar-
ferð þangað var frestað þar til
aðstæður leyfa í vetur.
Gönguferð um gosbeltið
Um það bil sem vetrargöngum
lýkur -verður farið af stað með
nýja raðgöngu þar sem gengið
verður um gosbeltið frá Reykja-
nestá að Skjaldbreið í 12 ferðum.
Segja má að gönguleiðin liggi eft-
ir Atlantshafshryggnum á mörk-
um Norður-Ameríkuplötunnar og
Evrasíuplötunnar (sbr. landreks-
kenninguna). Gengið verður um
og meðfram Reykjanesfjallgat'ði
og hjá Þingvallavatni á Þingvelli
og endað við Skjaldbreið og
Hlöðuvelli í lok september. Fyrsta
gangan er sunnudaginn 14. apríl.
Viðurkenning er veitt fyrir góða
þátttöku.
Helgarferðir — jöklaferðir
Margar helgarferðir eru á áætl-
un í vetur og er sú fyrsta „vætta-
og þorrablótsferð“ um næstu
helgi. Skíðagöngur og jöklaferðir
eru mest áberandi. Helgin 1.—3.
mars er fyrsta af þremur ferðum
á Snæfellsjökul, en hinar verða
um páska og hvítasunnu. Á
síðasta ári var mjög góð þátttaka
í Snæfellsjökulsferðum og meira
gert en bara gengið á jökul, því
náttúra Snæfellsness býður ótelj-
andi möguleika til skoðunar.
Helgina 2.-3. mars verður haldið
námskeið í ferðamennsku að vetri
í nágrenni Reykjavíkur. Skíða-
göngur í Landmannalaugar verða
bæði um páska og á sumardaginn
fyrsta. Páskarnir eru í lok mars
og þá verður bryddað upp á nýj-
ung sem er skíðaganga um
Lakagígasvæðið. Samhliða henni
verður skoðunarferð um Skafta-
fell, Fljótshverfi og Síðu.
Flestar af helgarferðunum eru
í Þórsmörk og þær fyrstu um
páskana en síðan um hvetja helgi
frá maí og fram í október. í
tengslum við Þórsmerkurferð eru
göngur á Eyjafjallajökul, Mýrdal-
sjökul og á Fimmvörðuháls.
Skíðagönguferð er á Tindafjalla-
jökul 12.—14. apríl. Öræfajökuls-
ferðir eru bæði um hvítasunnu og
kringum 17. júní.
Óbyggðaferðir
Ferðafélagið og deildir þess
eiga fjölda skála í óbyggðum.
Notkun þeirra að vetrarlagi hefur
aukist mikið á síðustu árum og
má benda sérstaklega á Land-
mannalaugar og Hveravelli.
Gæslumenn eru í Landmanna-
laugum í mars og apríl. Á Hvera-
völlum sér veðurathugunarfólk
um gæslu. Nauðsynlegt er að
panta gistingu fyrirfram. Skóla-
hópar nýta Skagfjörðsskála í
Þórsmörk mikið á vorin og nauð-
synlegt að panta tímanlega til að
tryggja sér gistipláss.
Ferðir í sumar
Ferðirnar í sumar bíða nánari
umfjöllunar en fyrsta sumarleyfis-
ferðin er sólstöðuferð í Grímsey
‘21.—24. júní. Hornstrandaferðir
eru fleiri en áður og með nýju
sniði. Gönguferðir um leiðina vin-
.jSælu milli Landmannalauga og
Þórsmerkur eru alls sautján og
um Kjalveg hinn forna milli
Hvítárness og Hveravalla eru
tvær ferðir. Nefna má ferðir á
Borgarfjörð eystri og í Lónsöræfi
en þar er gist í nýjum skála. í lok
júlí er miðhálendisferð og í ágúst
eru Árbókarferð og ferðir í tilefni
þess að 50 ár eru liðin frá könnun-
arferð Ferðafélagsins í Kerlingar-
fjöll. Aukin áhersla er lögð á fjöl-
skylduferðir og má nefna ferðir í
Þórsmörk í byijun júlí og Land-
mannalaugar. Aukaferðir, m.a.
Noregsferð, verða auglýstar í
fréttabréfi sem sent er félags-
mönnum.
Nánari upplýsingar á skrif- ;
stofu Ferðafélagsins, Öldu- :
götu 3. Athugið að brottför í
Ferðafélagsferðir er frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austan- |
megin, nema annað sé aug- |
lýst. Allir eru velkomnir en
félagsmenn og fjölskyldur ;
þeirra greiða lægra fargjald í
helgar- og lengri ferðir.