Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1991, Blaðsíða 12
B I L
leei .1151*1 Á .OS |H:4T>AflHAOUAJi Q!<3AJ8H'JOHOM
Hugmynda-
Um sýninguna Toyota Idea
Expo á alþjóðlegu bílasýning-
unni í Genf.
Á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf i marz-
mánuði, sem áður hefur verið fjallað um
hér, var sérstök sýning í stóru tjaldi fyrir
utan sýningarhöllina, Palexpo, og vakti hún
mikla athygli. Þessi sýning bar yfiskriftina
„Toyota Idea Expo“ og bar vitni um ótrú-'
legt hugvít og frjóa hugsun. Það hefur ver-
ið yfirlýst stefna Toyota að leggja ekki'
áherzlu á að vera á undan öðrum með tækn-
inýjungar í bílaiðnaðinum, en byggja fremur
á því, sem búið er að þrautreyna.
Engu að síður er til hjá Toyota sérstök
deild, „Toyota Engineering Society",'
skammstafað TES, og styrkir hún áríega
keppni, þar sem athyglisverðar, verkfræði-
legar úrlausnir eru verðlaunaðar. Þeir hafa
úr miklu að spila í TES, því þar eru um
30 þúsund félagar. Þetta er einskonar hug-
myndabanki, en meiningin með Toyota Idea
Expo var, þótt merkilegt megi virðast, ekki
að finna upp eitthvað með notagildi, heldur
að virkja hugmyndaflug og búa til einhvers-
konar farartæki, sem væru algerlega ólík
venjulegum bílum. Ætlunin er ekki að
fjöldaframleiða neitt af þessu, né heldur að
það nýtist í samkeppninni. En það er ein-
mitt þannig sem merkar uppfinningar geta
orðið til.
Hinir verkfræðilega sinnuðu félagar í
TES eru að þessu á hugsjónagrundvelli -
og áreiðanlega að gamni sfnu líka. Þeir vinna
að þessu í tómstundum og til dæmis um
þáttökuna og áhugann má nefna, að á
síðasta ári komu fram 5.300 farartæki, sem
kepptu um 5 verðlaunasæti. Úrslitin eru
kynnt á sérstakri hátíð og fór hún fram í
Toyota City í Japan í 15. sinn f nóvember
síðastliðnum. Það eru þessi fimm furðu-far-
artæki á sýningunni f Genf sem verðlaunin
fengu síðast.
Kosmískur Ferðalangur
Það farartækið, sem mest líktist bíl, var
„Neo Cosmic Voyager**, að meginstofni í
laginu eins og sportbíll og vissulega sýnast
hjólin vera fjögur. En þetta eru ekki venju-
leg hjól og áhorfandinn sér strax, að þau
snúast ekki þótt tækið hreyfist. Það er að-
eins dökka gjörðin á hjólunum sem snýst,
en tæknibrellan felst þó ekki sízt í því, að
þessi furðubíll getur lækkað sig niður í 5
sm frá jörðu, en einnig hækkað sig uppí
75 sm- Hann getur líka verið hár að aftan
og í lægstu stöðu að framan, svo maður
gæti ekið upp bratta brekku og verið í lá-
réttri stöðu. Bæði hæðarstillingin og drif-
búnaðurinn eru í sama stykkinu og í því
fólst verulegur verkfræðilegur vandi að sögn
höfuðpaursins yfir þessu verkefni, Mamoru
Umeda. Eins og sést af myndunum, grípur
þessi búnaður utanum felguna og flytur sig
eftir þörfum.
Boltabíllinn
„Easy Roller*' heitir hann þessi og hefur
meiri svip af báti en bíl. Það merkilega við
hann er, að ekki eru það hjól sem knýja
hann áfram, heldur tvær stórar kúlur. Þessi
bátur á þuru landi rambar á kúlunum og
tölvubúnaður sér um að halda jafnvæginu.
Hann getur hreyfst afturábak, áfram og út
„Rúllarinn", eða Easy Roller eins og Japanir kalla þennan bíl, sem líkist báti
og rúllar á kúlum.
„Neo Cosmic Voyager", 5 sm undir hann í lægstu stöðu en 75 í hæstu.
hjólum, sem farið getur ferða sinna án þess
að drif sé á hjólunum. Þau eru bara hlut-
laus eins og hjól undir hjólaborði. Hér bygg-
ir hreyfiaflið á fjórum örmum, sem hreyfast
eins og klippur. Til er tegund skordýra, sem
hreyfir sig ofan á vatni á þennan hátt. Grein-
ilegt var, að tækið hefur verulega fjölhæfni
í hreyfingum og gat til að mynda hreyft í
í takt við tónlist. Sennilega gera svo flóknar
hreyfingar miklar kröfur til þess, sem tæk-
inu stjórnar.
ÚTIDYR - BORGARBÍLL
Kannski var mesta hugvitið í því tæki,
sem nefnist „Town-House Car“. Ókunnugan
gat naumast rennt grun í að þetta væri
eitt farartækjanna, þegar komið var á sýn-
inguna og gólfið var tómt fyrir utan glæsi-
legar útidyr, sem litu út eins og aðalinn-
gangur inn á sýningarsvæðið. En með því
einu að ýta ‘á takka, fór þessi útidyraumb-
únaður að breyta sér; fór út undan sér að
neðan og lagðist á bakið. Hliðarnar sem
verið höfðu hugguleg múrsteinshleðsla urðu
að sætum og hjálmurinn sem myndaði úti-
dyrnar var nú orðinn að yfirbyggingu á bfl,
sem rennir sér út á gólfið. Hér eru slegnar
þijár flugur í einu höggi, nefnilega farar-
tæki, í öðru lagi glæsilegur inngangur í
íbúðarhús, þegar farartækið er ekki í notk-
un - og í þriðja lagi er bílastæðavandamálið
leyst um leið.
SÁ SYNDANDI
Sá sem mesta kátínu vakti, enda fárán-
legastur, var „Sundbíllinn". Forskriftin hafði
verið sú að hanna farartæki, sem hreyfðist
í samræmi við hreyfingar manns, sem ligg-
ur ofan á tækinu. Frá útlimum stjórnandans
eru látin berast rafboð til jafnstraumsmót-
ora, sem greina þegar maðurinn tekur sund-
tök og bíllinn hreyfist þá samkvæmt því.
Það var vissulega dálítið kyndugt að sjá
mann láta sem hann synti bringusund, liggj-
andi á maganum uppi á tækinu og sjá, að
bíllinn fór áfram og sveigði eftir tökum
mannsins. GS.
Ótrúleg hugmynd: Glæsilegur inngang-
ur í hús (neðri mynd) breytir múrsteins-
veggjum í sæti og innréttingu á bíl, sem
leggst niður og ekur á brott.
á hlið eftir því hvernig kúlurnar snúast og
sá snúningur byggist á því sama og þegar
trúðar í fjölleikahúsum ganga á boltum.
„Rúllarinn" gat gert kúnstir: Hann gat sko-
tið undan sér annarri kúlunni og stóð þá á
fótum á meðan, en síðan birtust eftirlíking-
ar af mannshöndum og tóku á móti kúlunni.
DANSANDI Furðutæki
Erfitt er að (mynda sér farartæki á fjórum
flugið á fullu
Dansandi farartæki á fjórum hjólum, sem þó er ekkert drif á.
Þessi vakti
kátínu: Sund-
bíllinn „les"
hreyfingar
mannsins og
hreyfist eins
ogmaðurinn
syndir.