Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1992, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1992, Blaðsíða 6
Málað og teiknað af reiði og heift George Groz. Myndin er tekin í Berlín 1920. að er hæpið að til hafi verið listamaður sem hataði jafn mikið, teiknaði af jafn mikilli heift og málaði af jafn heilögum viðbjóði og George Grosz. Hann átti líka auðvelt með að láta viður- styggð sína í ljós því hann var frábær teikn- Um þýzka málarann GEORGE GROSZ sem gaumgæfði þýzkt þjóðfélag á árunum milli heimsstyrj aldanna. Gæddur sterkri réttlætiskennd, hataði hann hervaldið og iðnjöfrana og kirkjuna og borgarastéttina og útmálaði spillinguna í verkum sínum, sem Hitler og hans menn dæmdu úrkynjuð. Eftir HJÁLMAR SYEINSSON ari. Myndir hans eru einstaklega kvikindis- legar og svo beinskeyttar að engum getur dulist hvað hann er að fara. Einkunnarorð hans var. „Maðurinn er svín“. Stundum er sagt að Grosz hafi verið mannhatari, sem kann að vera rétt því karl- mennimir í myndunum hans eru vitfirring- ar, drykkjusvolar og morðingjar og konurn- ar skækjur. En mannhatur hans var ekki algjört því hann var gæddur sterkri réttlæt- iskennd og hafði samúð með hinum undir- okuðu og þjáðu. Hann hataði hershöfðingj- ana og marskálkana, hann hataði iðnjöfrana sem mergsugu alþýðuna en dældu milljónum í þýsku stríðsmaskínuna, hann hataði stjórn- málamennina sem voru hlaupatíkur pen- ingaaflanna, hann hataði kirkjuna sem daðr- aði við herinn, hannn hataði þýsku borgar- stéttina sem var sú forpokaðasta og aftur- haldsamasta í gervallri Evrópu, hann hataði hinn prússneska anda, hann hataði máttar- stólpa þjóðfélagsins. Titillinn á sjálfsævisögu Grosz segir heil- margt um manninn sjálfan. Hún heitir „A Little Yes and a Big No“ og kom út í New York 1946. Hann fæddist í Berlín 1893 og ólst að mestu leyti upp í verkamannahverf- inu Wedding í sömu borg. Fimmtán ára gömlum var honum vísað úr skóla fyrir að hafa slegið kennara sinn til baka sem hafði löðrungað hann. Ári síðar hélt hann til Dresden og nam þar við listaakademíuna í tvö ár og fluttist síðan aftur tií Berlínar. Þegar heimsstyrjöldin fyrri braust út gerð- ist hann sjálfboðaliði í þýska hernum. Kynni hans af stríðinu höfðu djúpstæð áhrif á hann, eins og svo marga af hans kynslóð, og enduðu raunar með því að hann fékk taugaáfall og þurfti að dvelja á heilsuhæli í tvo mánuði. Grosz gekk í kommúnistaflokkinn árið sem stríðinu lauk og gerðist jafnframt prim- us motor í dada-hreyfingunni. Dada-hreyf- ingin í Berlín var mjög pólitísk og efndi til frægrar dadasýningar árið 1920 þar sem gert var ótugrarlegt grín að hernaðarandan- „Máttarstólpar þjóðfélagsins“ frá árinu 1916 er sennilega þekktasta málverk George Groz. Fremst á myndinni sjáum við hershöfðingja í borgaralegum klæðn- aði. Hann er með einglyrni og notar hakakrossinn sem bindisnælu. Fyrir aftan hann er stjórnmálamaður og ritstjóri blaðs; annar með hlandkopp á höfði, hinn með höfuðið fullt af skít. Bak við þá leggur prestur blessun sína yfir voðaverk hermanna. um, þjóðernisrembunni og afturhaldinu í Þýskalandi. Sýningin hét „Erste Internat- ionale DadaMesse" og samanstóð af fjölrit- uðum teikningum, collage-verkum, plaköt- um, slagorðum og uppblásnu svíni sem hékk í loftinu klætt hershöfðingjabúningi. Hún var ekki síst merkileg fyrir þær sakir að forsprakkar hennar - þeir Raul Hausmann, John Heartfield og George Grosz - gerðu engan greinarmun á frummyndum (originöl- um) og fjölritum. Þetta var uppreisn gegn viðtekinni skoðun á myndlist sem gengur út frá því að listaverkið sé eitthvað ein- stakt; eitthvað sem skapað er af snillingi gæddum einstæðum hæfileikum; eitthvað sem aðeins örfáir hafa efni á að kaupa og njóta. Ef frummyndin og fjölritið er eitt og hið sama verður listaverkið að ódýrri vöru sem allir geta eignast. Grosz áleit að hefðbundin list væri ekki annað en fagurfræðilegt kitl fyrir borgara- stéttina enda lýsti hann því yfir á áður- nefndri sýningu að listin væri dauð. Mál- verk hans áttu ekki að vera augnayndi upp á vegg heldur bitur vopn í pólitískri bar- áttu. Sömu sögu er að segja af teikningun-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.