Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1992, Síða 4
sig of mikinn vind þegar hún hækkar. Næst
bætti ég viðju við tegundalistann, og hún
þreifst heldur skár. Svo fór ég að gróður-
setja sitkagreni.
Þegar hér var komið sögu fór ræktunar-
maðurinn að reka sig á margt. Hann var að
reyna ræktun við ókunnuglegar aðstæður,
þekkti ekki veðurfar til hlítar og hafði ekki
hugmynd um hve austanáttin er þrálát og
þungbær á Suðausturlandi. Þar að auki hafði
hann ekki gert sér næga grein fyrir eðli fok-
moldarinnar sem átti að framfleyta gróðri
hans, vissi ekki hversu gjörsnauð hún er og
lausheldin á raka. Sá grunur læddist að
ræktunarmanni að hann ætti nokkurra ára
tilraunir fyrir höndum til að komast í sátt
við hina þungbæru hafátt, finna tegundir við
hæfi og laða harðvellið til að ljá nýjum gróðri
rótfestu og vöxt. Þessar athuganir tóku sjö
ár.
Tvennt reyndist erfiðast í veðurfari: Stór-
viðri á vetrum með skafbyl og skara sem
sverfa ungar plöntur inn í merg og síðan
þung og þurr hafátt á vorin sem þurrkar
greinar og barr. Gróður getur farið ótrúlega
illa frá 20. apríl til 20. maí þótt hann komi
býsna vel undan vetri. Þessar aðstæður valda
því að hver einasta barrplanta þarf að fá
skjól. Fyrstu skjólin entust illa og voru til
lítils gagns þegar kom fram á útmánuði,
enda voru þau aðeins tveir hælar austan við
plöntuna og áburðarpoki á milli. Endurbætt
útgáfa þeirra var þriggja hæla skjól, sem
myndaði eins konar V gegn austanáttinni
og hlífði plöntunni frá norðri til suðausturs.
Þetta er sú vörn sem dugir, gjarnan hnéhá;
í hana má nota áburðarpoka, en hann endist
í tvö til þijú ár ef brotið er ofan á hann svo
að efri brún er tvöföld. Þéttriðin plastnet og
dúkar af ýmsu tagi eru þó langtum endingar-
betri. Fyrrgreind skjól duga geysivel á greni
og furu á vindasömum stöðum og vanhöld á
gróðri eru sáralítil. Þar sem skýlla er má
nota plastílát af ýmsu tagi; er þá botninn
skorinn úr þeim og þau fest með tveimur
hælum úr mótavír sem reknir eru niður.
Það þurfti að huga að áburðarnotkun. Mér
Sandar og hraun setja svip á meginhluta láglendis
í Vestur-Skaftafellssýslu. Eftir lok síðasta jökul-
skeiðs hafa orðið nokkur stórgos uppi á hálend-
inu með feikilegu hraunrennsli sem flætt hefur
niður yfir flatlendið í átt til sjávar. í slíku stór-
Sumum fínnst
nauðsynlegt að hafa
nokkra afsökun fyrir
gerðum sínum, ekki síst
þegar eitthvað fráleitt er
á döfínni eins ogt.d.
skógrækt. Af þessu stafar
sífellt hjal um
svokallaðan nytjaskóg.
Staðreyndin er hins vegar
sú að nytjaskógur er ekki
bara timbur í ókominni
framtíð heldur umhverfi,
óbitinn gróður í vexti,
skjól, land þar sem fólki
líður vel.
Texti og myndir:
BJÖRN JÓNSSON
gosi mynduðust Landbrotshólar, sem eru
vettvangur þessarar greinar. Þetta eru gjall-
hólar, fjölbreytilegir að lögun, og er talið að
þeir hafi myndast þar sem hraunið rann yfir
votlendi eða út í tjarnir og vötn. Hraunið er
víða um 30 metra þykkt.
Að gosi loknu leituðu straumvötn að nýjum
farvegum ofan af hálendinu, lögðust upp að
hraunbreiðunni mórauð af framburði, flæmd-
ust yfir hana niðri á láglendinu og hurfu
ofan í hana að hluta., Lækir og lindir spruttu
fram undan hraunhólunum niðri á flatlend-
inu, silfurtær og síuð eftir langt rennsli gegn-
um hraun og gjall. Austan Landbrots voru
víðáttumiklar flatneskjur, sendnar eða grónar
eftir því hvernig vötn byltu sér. Sandur og
ryk fauk upp í hraunbrúnina í austanátt, sem
er svo þrálát og sterk á þessum slóðum, og
gróður festi smám saman rætur. Þetta var
þrautseigur gróður og nægjusamur, mosi og
harðger grös, því að hér var hvergi jarðvatn
að fá; það hripaði viðstöðulaust niður í gegn-
um 30 metra þykkt hraungjallið.
Menn settust að í þessu sérstæða um-
hverfi, byggðu sér ból á austurbrún hrauns-
ins. Þaðan var stutt í gróðursælt votlendið
austan við, en hraunhólarnir voru rýrir til
lífsbjargar langa hríð. Þó þykknaði jarðvegs-
hjúpur þeirra jafnt og þétt. Áfok var mikið,
úr ýmsum áttum: Sandur og ryk barst frá
fljótunum í austri og vestri. Ryk fauk ofan
af öræfum í norðaustanveðrunum, sem verða
svo hamslaus hér um slóðir, dekkti snjó á
vetrum og hvarf ofan í rót í næstu þíðu.
Öðru hveiju varpaði Katla svörtum vikri yfir
byggðina, þegar vindur snerist í vestur með-
an gos stóð yfir. Þar sem jarðvegur var að-
eins ein skóflustunga um aldamótin 1200 er
hann nú sums staðar tæpir tveir metrar að
þykkt.
Fleira hefur breytt þessari sérstæðu sveit.
Með tíð og tíma fyllti Skaftá hraunið með
framburði sínum. Lækjum og lindum fækk-
aði og allvíða eru nú einungis örnefni og
gamlir farvegir sem minna á það vatn sem
forðum streymdi hér fram. Þurrari sveit er
vandfundin á landi hér.
Ræktun er mér í blóð borin. Þegar ég fór
að hafa sumardvöl í Landbroti með fjölskyldu
minni, leiddi ég brátt huga að því hvort
hægt væri að rækta tijágróður á þessum
slóðum. Ekki virtist það fýsilegt: Útjörð var
þyrrkingsleg og sneggri en ég þekkti dæmi
til, austanáttin erfið og setti svip sinn á
gróðurfar, jarðvatn var hvergi tiltækt. Eg
velti málinu fyrir mér í tvö sumur, en svo
stóðst ég ekki mátið. Ég sá hér sem annars
staðar að þar sem planta hafði verið gróður-
Horft yfir Landbrotshóla vestur til Mýrdalsjökuls. Þetta er afar ólíklegl land til
skógræktar, en samt er það svo að þar sem planta hefur verið gróðursett með
nokkurri alúð vex síðar upp tré.
Hér þarf hver barrplanta sitt skjól, þá vex hún greiðlega upp og vanhöld eru
sáratítil, ef vel hefur verið búið í haginn fyrir hana.
sett með nokkurri alúð óx síðar upp tré.
Þetta hlaut að vera hægt þrátt fyrir allt.
Ég fór rólega af stað, gróðursetti birki
samkvæmt íslenskri hefð og dálítið af stafa-
furu. Þetta þreifst illa. Birki er ekki vindþol-
ið og dafnar ekki í hinni þurru jörð; furan
vex að vísu en þolir illa næðing og tekur á
hafði verið kennt að nota skyldi húsdýraá-
burð í hófí og hann mætti ekki snerta rætur
ungra plantna. Ég fylgdi þessu boðorði dyggi-
lega og dauð fokmoldin skilaði litlum vaxtar-
auka. Eitthvað hlaut að vanta. Ég jók áburð-
arskammtinn og vöxtur óx; fór svo að lokum
að ég setti bakkaplöntur niður í nálega
Sólheimar í Landbroti horft austur til Öræfajökuls. Menn settust að í þessu sérstæða umhverfi, byggðu sér ból á austur-
brún hraunsins.
Hin magra jörð
4
4