Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1992, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1992, Blaðsíða 3
H @ H [o] @ [m] [b] B ® @ [g Q] 0 [s] Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór- ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn- arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gisli Sigurðs- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100. Gylfi Þ. Gíslason var eins og flestum er kunnugt, menntamála- og viðskiptaráðherra í viðreisnar- stjórninni á sjöunda áratugnum. Einmittþá var kalda stríðið hvað kaldast, en þrátt fyrir það áttu íslendingar jákvæð samskipti við sovézka stjórnmálamenn. Hér skrifar Gylfi um kynni sín af Sovétríkjunum sálugu og segir frá eftir- minnilegu fólki eins og Míkojan varaforsætis- ráðherra og Fúrtsevu, menntamálaráðherra. Forsídan Myndin er af glerlistaverki eftir Sigríði Ásgeirsdótt- ur, sem nýbúið er að setja upp í barnaskólanum á Húsavík og afhjúpað verður 10. þ.m.. Tvær myndir eru látnar skarast og sést í gegnum báðar. Hug- myndin er sótt í loftmyndir af landinu báðum meg- in við Skjálfanda; annarrs vegar landnámi Náttfara þræls og hinsvegar dvalarstað Garðar Svavarsson- ar, víkings. Þessir tveir hlutar verksins heita enda „Garðar" og „Náttfari". Það er hluti myndverksins, sem hér sést, en í heild er það 4.20m. á hæð og 2.20m. á breidd. í dag opnar Sigríður svo glerlistar- sýningu í Listmunahúsinu í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík og stendur hún til 20. sept. Vinnubrögð í hinu horfna, íslenzka bændaþjóðfélagi eru nú flest- um ókunn nema af bókum. Þó eru þeir enn á með- al okkar, sem vel muna eftir þessu öllu. Þar á með- al er Björn Egilsson frá Sveinsstöðum í Lýtingsstaða- hreppi, sem rifjar hér upp veru sina og störf hjá Birni bónda á Stóru Seylu í Skagafirði. ÞORGEIR SVEINBJARNARSON Gengið hjá garði Hátíð í dalnum. í holtinu sunnan við ána er einhver á ferð. Það er gleðin. Það getur ei verið nein önnur, svo léttstíg er hún. í læknum er dillandi hlátur og bros yfir bænum. Bara hún komi nú heim. Nei, hún fer fyrir neðan tún. Þorgeir Sveinbjarnarson, 1805-1971, gaf út fyrstu Ijóðabók sina, Vis- ur Bergþóru, þegar hann stóð á fimmtugu og ekki komu nema tvær bækur til viðbotar, en hann vakti engu að síður athygli fyrir fágun og snjallar myndhverfingar. Þorgeir var um árabil forstjóri Sundhallar Reykjavíkur. RJ ® E B ÁHYGGJURNAR AF AMERÍKU Menn greinir á um það, hvort telja beri ís- lendinga alfarið til Evrópumanna. Sum- ir nota jarðfræðileg rök og benda á sprungurnar, sem gleggst sjást á Þing- völlum og kljúfa ísland í tvennt milli amer- ísku jarðhellunnar og hinnar evrópsku. Sé þetta nothæf röksemd ættum við, sem búum vestan Atlantshafssprungunnar, að vera amerískir, en hinir evrópskir. Aðrir líta á gróðurfar og fuglalíf á landinu okkar, sem er bæði evrópskt og amerískt, milli tveggja heima. Er þá mannfólkið eins? Minnt er á, að ísland sé nær Ameríku en Evrópu, því að enginn dragi í efa, að Grænland sé í Vesturálfu. Þá eru sagnfræðileg rök tínd til. Sumir minna á, að forfeður okkar hafi komið austan um haf og því hafi þeir verið Evrópumenn. Afkomendur þeirra hljóti að vera það líka. Aðrir segja, að við séum ein- mitt fyrstu Ameríkanarnir, forfeðurnir hafi verið hinir fyrstu, sem flýðu gömlu álfuna ógæfusömu til þess að setjast að í Nýja heiminum langt í vestri. Mörgum öldum síð- ar hafi aðrir Evrópumenn gerzt landnemar í Norður-Ameríku, þegar þeir voru á flótta undan fátækt, harðstjórn, kúgun, eilífum stytjöldum, trúarbragðaofsóknum og hálfu og heilu svelti heima fyrir. Engum detti samt í hug að kalla afkomendur þeirra Evrópumenn. (Spánskir og portúgalskir landnemar fóru til Suður-Ameríku af öðrum ástæðum. Þeir ætluðu að verða ríkir og það fljótt; þeir eru enn að reyna). Þá kemur lokatrompið: Menning okkar er evrópsk; a.m.k. er hún frá Norðurálfu ættuð. Hinir svara: Sjálfsagt var það rétt, en er svo að öllu leyti enn? Svo mikið víxlverkandi menn- ingarflæði sé í báðar áttir yfir Atlantshafíð nú um mundir, að eðlilegra væri að kalla Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku einn „menningarheim". Islendingar, Færeyingar og Bretar tala um „að fara til Evrópu". Þessi málvenja sýnir e.t.v. óvissu hinna atlantísku eyþjóða um stað sinn í veröldinni. En af hverju þessi staðsetningarkomplex og flokkunarárátta? Má ekki einu gilda, hvar við erum númerað- ir í landafræðinni, meðan íslendingar búa á íslandi? Fólki í Evrópu og Ameríku er nákvæmlega sama, hvorum megin Atlants- hafshryggjar við viljum liggja. Staðsetning gæti þó skipt íbúa landsins máli, vegna æskilegasta fyrirkomulags öryggis- og varnarmála þjóðar, sem vill vera sjálfstæð og óhult. Óvissa hefur lengi verið um stað íslands í heiminum: Ég á franskt landabréf af norðurhveli jarðar frá 18. öld, endurprent- að í þýzkri kortabók frá sama tíma, þar sem ísland er talið til Ameríku. Að einu leyti erum við þó hreinræktaðir Evrópubúar. Við höfum óskaplegar áhyggj- ur af Ameríkönum, einkum Bandaríkja- mönnum. Ekki eru svo haldnar kosningar í Bandaríkjunum, að allur heimurinn fylgist ekki með og vilji ráð til leggja. (Ég skal ekki segja um það hvernig slíkri ráðgjöf að utan yrði tekið í kosningum hér.) Einn laug- ardagsmorgun hlustaði ég á umræðuþátt í Ríkisútvarpinu. Þátttakendur urðu mjög heilagir þegar talið barst að kosningabarátt- unni nú vestra, sem þeir töldu „lágkúru- lega“ og „á lágu plani“. Það er einhver munur en hér og annars staðar eða svo skyldi ófróður ætla. Þessi furðulegi hroki í garð Bandaríkjamanna er gamall í öfund- sjúkri Evrópu, en hér fór hans ekki að gæta fyrr en upp úr 1950. Fegnir urðu ís- lendingar þegar Bandaríkjamenn tóku við landvörnum hér af Bretum sumarið 1941 og ekki þurfti lengur að óttast innrás þýzku nazistanna. Annað dæmi: Ríkisfréttamaður hjá RÚV var að segja frá stofnun Fríverzl- unarbandalags Mexíkó, Bandaríkjanna og Kanada í endurteknum fréttaþætti að utan, íslenzkri alþýðu til upplýsingar. Hann sá í gegnum allt húmbúkkið og svindlið, að hætti fornmarxista: Þegar grannt er skoð- að, sagði hann, eru það Bandaríkin, sem „græða“ á þessu, en Mexíkó, sem „tapar“, af því að í síðarnefnda landinu dragast ríkis- tekjur af tollum og sköttum saman, auk þess sem afnema verður ýmsar innflutnings- hömlur. Honum fannst sem sagt óhugs- andi, að allir myndu „græða“ - einhver hlyti að „tapa“. Fyrir nú utan það, að sér- kennilegt er að hlýða á svona fomeskjuleg- an sósíalistaboðskap í Ríkisútvarpi „allra landsmanna" í ágúst 1992 sýnir þetta tvennt: Óvild í garð Bandaríkjamanna, (sem eru að svindla á vanþróuðu fávitunum fyrir sunnan sig), og fyrirlitningu í garð Mexíkó- manna, sem láta blekkja sig. Þrátt fýrir alla gagnrýnina á Bandaríkj- unum, sem látlaust dynur yfír í fjölmiðlum og stafar oftast af uppblásnum minnimátt- arhroka, merkilegheitum, öfundsýki, mis- skilningi og sósíalísku ergelsi, er það samt staðreynd, að í huga flestra jarðarbúa er Ameríka enn framtíðarlandið, jafnvel fyrir- heitna landið. Þangað vilja flestir komast. Ekkert land fær annan eins skammt af inn- flytjendum á ári hverju, löglegum sem ólög- legum, og enn fleiri vilja komast þangað. Þar eru tækifærin, þar er auðurinn, og þar er frelsið. Þar er líka friður. A.m.k. hefur þetta verið dómur þeirra, sem flúið hafa hvers kyns kúgun og ófrið í heimalandi sínu. Enn mæna tugir milljóna manna, sem eiga sér von um betra líf sér og börnum sínum til handa, á frelsisstyttuna í höfninni í New York. Hún er þeim sígilt tákn, sbr. frelsisgyðjustyttuna, sem stúdentar í Peking reistu á Torgi hins himneska friðar, áður en kínverska kommúnistastjórnin lét „al- þýðuherinn" sinn aka skriðdrekum og eídspúandi fallbyssuvögnum yfír þá og hana, til þess að veita þeim sína sósíalísku tegund af himneskum friði. Það er staðfesting á því, hve bandarískt lýðræði hefur dugað vel, að enn skuli þessi gífurlega ásókn vera í að flytjast þangað. Hvern hefði grunað þegar verið var að móta og lögbinda hina bandarísku tegund lýðræðis seint á 18. öld, að hún ætti eftir að endast svona vel? Stjórnarhættirnir og frelsistryggingarnar voru gerðar handa fá- mennu og blönduðu landnemafólki, sem var að hefja líf sitt sem ein þjóð og halda út í óvissu í stóru og einangruðu landi. Til marks um óvissuna er það, að ekki munaði nema einu atkvæði á þingfundi, að þýzka yrði opinbert mál í Bandaríkjunum. Állar kring- umstæður þá voru gerólíkar þeim, sem nú eru. Samt dugar þetta lýðræði enn og lætur ekki á sjá. Það vekur lýðræðissinnum bjart- sýni, að næstum því 300 milljóna manna þjóð, steypt saman úr öllum kynþáttum jarð- ar, skuli geta haldið uppi lýðræðisríki á tím- um mikilla og örra breytinga. Það er nán- ast eins og kraftaverk, þegar mannkynssög- unni er flett. Bandaríkin eru hin mikla und- antekning; hressingarlyf handa bölsýnis- mönnum. Menn mega ekki mikla fyrir sér þá erfið- leika, sem Bandaríkjamenn, eins og aðrar þjóðir, þurfa að glíma við. Einn galdurinn við velgengni þeirra er líklega sá, að þeir takast á við alla erfiðleika undir eins, af krafti og fyrir opnum tjöldum. Hvaðan koma nýjar hugmyndir nú á dögum? Hverjir stóðu fastast gegn útbreiðslu nazisma og komm- únisma? Hvar væri heimurinn nú og hvern- ig í laginu, hefðum við ekki haft hina stað- föstu Vesturálfumenn? Hvernig væri gamla Evrópa hefðu Bandaríkjamenn ekki farið tvisvar yfir hafíð á þessari öld? Magnús Þórðarson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. SEPTEMBER 1992 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.