Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1992, Blaðsíða 12
hönnun heldur eru einnig aðdáendur arki-
tektúrs og gera sér grein fyrir að það er
hægt að nota hann í auglýsingaskyni fyrir
fyrirtækið. Þeir réðu enska arkitektinn Nic-
holas Grimshaw til að teikna nýja verk-
smiðju eftir mikinn bruna hjá Vitra 1981
og síðan hefur framleiðslusvæðið í Weil am
Rhein þróast í safn bygginga eftir heims-
þekkta arkitekta.
Rolf Fehlbaum, forstjóri Vitra, á mikið
safn húsgagna og fékk Frank Gehry, sem
hannaði meðal annars menningarstofnun
Bandaríkjanna sem er að rísa í París, til að
teikna hús fyrir húsgögnin. Það stendur í
útjaðri iðnaðarsvæðisins og safnið er opið
almenningi. Vitra hefur um 800 manns í
vinnu og tugir þúsunda ferðamanna koma
til Weil am Rhein á ári til að sjá húsgagna-
safnið og byggingar fýrirtækisins. Þróun
bæjarins og Vitra þarf því að vera samstillt
og Bjarki sér um það. Hann átti hugmynd-
ina að og undirbjó ráðstefnu arkitekta og
sérfræðinga um skipulagsmál sem bærinn
og fyrirtækið héldu fyrir tveimur árum. Og
hann hefur nú umsjón með heildarskipulagi
Vitra. Fyrirtækið hyggst færa út kvíarnar
og reisa iðnaðarsvæði með íbúðarhúsum við
flugvöllinn í Basel-Múlhausen í Frakklandi
á næstu árum. LZB sér um skipulag þess
„og við reiknum með að fara af stað með
útfærslu fleiri hundruð íbúðabygginga eftir
3 til 4 ár,“ sagði Bjarki.
Bjarki var við nám í Bandaríkjunum í
eitt ár áður en hann fór til Sviss 1967 og
lagði stund á arkitektúr í ETH, tækniháskó-
lanum, í Zúrich. Bernhard Hoesli var þá
nýorðinn prófessor þar, en hann var einn
af hinum svo kölluðu Texas Rangers“ sem
urðu prófessorar í mörgum helstu háskólum
Bandaríkjanna á sjöunda áratugnum. „Ho-
esli kom með nýtt kennsluviðhorf sem fólst
meðal annars í miklum samanburði milli
hugmynda nemendanna, helstu kenninga
þessarar aldar og listasögu svo og lausna
starfandi arkitekta," sagði Bjarki. „Hann
stóð fyrir því að þá óþekktum arkitektum
eins og Ungero, Stirling, Louis Kahn og
fleirum var boðið til skólans og margar
góðar sýningar voru settar upp. GTA-deild-
in, Inst’itut fúr Geschichte und Theorie der
Architektur, var sett á laggirnar á þessum
tíma en hún hýsir öll plögg og skrif sem
tengjast CIAM og veitir góða rannsóknarað-
stöðu. Aldo Rossi var kærkominn gestur í
kennslu við skólann þessi ár og sá alþjóð-
legi andi sem ríkti þar átti vel við mig.“
Bjarki segir að hann myndi fara sömu náms-
leið ef hann ætti að byrja upp á nýtt. Hann
lagði stund á aðstoð við þróunarríki í fram-
haldsnámi en sneri sér aftur að arkitektúr
eftir nokkurra mánaða dvöl.við erfiðar að-
stæður í Indlandi.
Þátttaka i samkeppnum er besta leiðin
til að fá verkefni fyrir nýja og upprennandi
arkitekta. Bjarki hefur tekið þátt í mörgum,
þar á meðal fáeinum á Islandi og vann sam-
keppnina um heildarskipulag Þingvalla
1973. „Okkar úrlausn var stungið undir stól
og hún hefur aldrei verið notuð viljandi,"
sagði hann, en hann vann keppnina með
Ásmundi Jakobssyni og Vikari Péturssyni.
„Mörgum þótti þá út í hött að við tókum
tillit til heita vatnsins á Nesjavöllum og
sögðu að þangað yrði aldrei lagður vegur
að sunnan yfír heiðina. Annað hefur nú
komið á daginn og ég er enn sannfærður
um að Nesjavellir geta verið notaðir til að
létta á ferðamannastraumnum á Þingvelli
og í Valhöll."
Bjarki er kvæntur þýskri konu og þau
eiga tvo syni. Hann á ekki von á að flytja
til íslands úr þessu en vill halda tengslum
við landið. Hann hefur góð sambönd í Norð-
ur- Ameríku og Evrópu og stóð meðal ann-
ars fyrir ráðstefnu kennara í arkitektúr frá
báðum heimsálfum á íslandi 1990 þar sem
fjallað var um fyrirkomulag kennslu í arki-
tektúr á íslandi í framtíðinni. „Mér fannst
tími til kominn að þetta yrði rætt í alvöru
á íslandi og ákvað því að nota sambönd
mín til að koma þessari ráðstefnu í kring.
Ég sé að hlutirnir þokast nú í rétta átt og
í vetur verður hægt að taka haustönn í
háskólanum í Osló í Reykjavík. Það er skref
í rétta átt.“ Hann gæti hugsað sér að endur-
taka slíkt málþing eða standa fyrir nám-
skeiði á íslandi í framtíðinni. Eitt slíkt nám-
skeið með Arno Lederer, prófessor í Karlsru-
he, og Jórunni Ragnarsdóttur, konu hans,
næsta sumar er á byijunarstigi. „Ég myndi
gjarnan glíma við íslensk verkefni ef ég
hefði meiri tíma til þess,“ sagði Bjarki. „Það
er margt gott gert á íslandi en mér finnst
að íslenskir arkitektar ættu að fara betur
með fé og ekki endilega sækja hugmyndir
til útlanda heldur sniða sér stakk eftir vexti,
líta sér nær og fá meiri innblástur úr um-
hverfinu í kringum þá.“
Höfundur býr I Sviss.
Ferðamenn leggja lykkju á leið sína tíl að skoða húsgagnasafn Vitra- fyrirtækisins sem er til húsa í sérstæðri byggingu
eftir Frank Gehry. Hún stendur á framleiðslusvæði húsgagnafyrirtækisins ásamt öðrum athyglisverðum byggingum eft-
ir þekkta arkitekta. Á innfeldu myndinni sjást allar hugsanlegar gerðir stóla sem eru í húsgagnasafni Vitra.
íslenzkur arkitekt nýt-
ur velgengni í Sviss
jarki Zophoníasson, arkitekt í Basel, lét slag
standa fyrir átta árum og opnaði eigin stofu
ásamt kollega sínum í svissnesku borginni við
Rínarfljót. Hann datt ofan á gott húsnæði í
hjarta gamla bæjarins og festi sér það þótt
hann væri á leið til Bandaríkjanna í nokkra
mánuði. Vinir hans drógu frekar úr honum
en hitt, þeir töldu framtíðarmöguleika tví-
sýna á þessum tíma og sögðu bráðnauðsyn-
legt að Bjarki sleppti Bandaríkjaferðinni ef
hann vildi endilega opna nýja arkitekta-
stofu. En Bjarki hélt sínu striki og fór vest-
ur um haf þar sem hann kenndi við háskóla
í Virgíníu-ríki í eina önn. Að því loknu sneri
hann sér að uppbyggingu arkitektastofunn-
ar LZB Larghi, Zophoniasson und Blanc-
karts AG sem hefur nú yfír 20 starfsmenn
og næg verkefni.
Eitt viðamesta verkefnið og það sem Bjarki
starfar aðallega við er skipulagsvinna fyrir
bæinn Weil am Rhein við bæjardyr Basel
en þýskalandsmegin við landamærin.
„Við tókum þátt í samkeppni sem arkitekt-
um frá Frakklandi, suðurhluta Þýskalands
Húsgagnafyrirtækið
Vitra fær heimsfræga
arkitekta til að hanna
húsnæði fynr sig í Weil
am Rhein. íslenski
arkitektinn BJARKI
ZOPHONÍASSON hefur
umsjón með skipulagi
iðnaðarsvæðisins,
heildarskipulagi bæjarins
og samruna svæðanna
tveggja
Eftir ÖNNU
BJARNADÓTTUR
og Sviss var boðin þátttaka í um endurskipu-
lag miðkjarna borgarinnar fyrir þremur
árum,“ sagði Bjarki. „Og við unnurn."
Hann getur séð fýrir sér hvemig hlutirn-
ir verða í framtíðinni þegar hann ekur um
bæinn. Það verður bæjartorg þar sem þjóð-
vegur liggur nú og aðal umferðaræðin verð-
ur flutt niður að lestarteinum. Ný brautar-
stöð verður byggð, stór bílageymsla og aðr-
tarbyggingar. „Þetta hús fer,“ sagði Bjarki
“þegar við ókum fram hjá, „og allt þetta
hverfur,“ og hann benti á gamlar skemmur.
„En hlutirnir verða auðvitað aldrei alveg
eins og á teikningunum. Það má ekki ríg-
'Júnda sig við þær. Borgin mun þróast í átt
að hugmyndum okkar. Það er mikilvægt að
skipulagið sé þannig unnið að það sé hægt
að ná því fram smátt og smátt, kubb fyrir
kubb svo að heildarhugmyndin haldi sér
þótt einn kubbur sé fjarlægður eða annar
standi eftir."
Húsgagnafyrirtækið Vitra er með verk-
smiðju í Weil am Rhein. Það er heimsþekkt
og hefur samninga við suma fremstu hönn-
uði heims um gerð stóla, skrifstofuhúsgagna
og búðarinnréttinga. Eigendur fyrirtækisins
kunna ekki aðeins að meta góða húsgagna-
Bjarki Zophoníasson stofnaði arkitektastofuna LZB Larghi, Zophoniasson und
Blanckarts AG í Sviss fyrir átta árum. Yfir 20 manns starfa nú á stofunni og
hún hefur tvær vinnustofur, eina í Basel og aðra handan landamæranna í Weil
am Rhein í Þýskalandi.
í
12