Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1993, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1993, Page 3
I i T-ggBtTg H @ Sl @1«! 5*] ® B H B ® m ® H Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór- ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn- arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðs- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100. Kambsránið vakti óhugnað á síðustu öld og hefur Brynjólfur frá Minna Núpi lýst því ísögunni af Þurðíði formanni og Kambránsmönnum. Ásgeir Ásgeirsson hefur tek- ið saman pistil um Sigurð Gottsvinsson, sem var höfuðpaurinn í ráninu. Hann var afburðamaður að líkamlegu atgervi, en ógæfumaðaur og hálshöggvinn eftir að hafa stungið fangavörð á Brimarhólmi. Valútubarinn ísland er prentvilla í alþjóðlegri hagfræði, sagði írski efnahagsráðgjafinn við sögumann, Ásgeir Hannes Eiríksson. Þeir sátu að sumbli á valútubarnum í Vilnu í Lithaugalandi og horfðu með öðru auganu á Klinton forsetaefni í sjónvarpinu. Grein sína nefn- ir höfundurinn: „Ert þetta þú Achmed?". Forsíðan Þessi tignarlega vetrarmynd er af Staðarstað á Snæfellsnesi og Snæfellsnesfjallgarðinum að baki. Þetta fræga prestsetur var áður nefnt Staður á Ölduhrygg. Þar er talið að Ari Þorgilsson hinn fróði hafí setið á 13. öld og margir merkisklerkar hafa búið þar og ekki færri en fjórir þeirra hafa síðan orðið biskupar. Ljósm. Rafn Hafnfjörð. Reykjavík er talin í útliti og að skipulagi mun amerískari borg en evrópsk. Miðað er við að allir séu á bíl og út- hverfum dreift með slitróttri byggð um borgarland- ið. Á þetta var minnst í erlendu tímariti um arkitekt- úr og af því tilefni eru hugleiðingar um skipulag borga eftir umsjónarmann Lesbókar. SKÁLD-SVEINN Heimsósómi Hvað mun veröldin vilja? Hún veltist um svo fast, að hennar hjólið snýst. Skepnan tekr að skilja, að skapleg setning hrast, og gamlan farveg flýr. Hamingjan vendir hjóli niðr til jarðar, háfur eru til einskis vansa sparðar, leggst í spenning lönd og gull og garðar, en gætt er síður hins, er meira varðar. Þung er þessi plága, er þýtur út í lönd og sárt er að segja frá. MiIIum frænda og mága magnast stríð og klönd. Klagar hver, mest er má. Á vorum dögum er veröld í hörðu reiki. Varla er undur, þó að skepnan skeiki. Sturlan, heims er eigi létt í leiki. Lögmál bindr, en leysir peningrinn bleiki. Svara með stinna stáli stoltarmenn fyrir krjár, en vernda lítt með letr. Þann hefr meira úr máli, manna styrkinn fár og búkinn brynjar betr. Panzari, hjálmur, pláta, skjöldr og skjómi skrúfa lögin og réttinn burt úr dómi. Að slá og stinga þykir nú fremd og frómi. Féð er bótin, friður, sátt og sómi. Hvert skal lýðrinn lúta? Lögin kann enginn fá, nema baugum býti til. Tekst inn tollr og múta. Taka þeir klausu þá, sem hinum er helzt í vil. Vesöl og snauð er veröld af þessu klandi. Völdin efla flokkadrátt i landi. Harkamálin hyljast mold og sandi. Hamingjan banni, að þetta óhóf standi. .. Skáld-Sveinn var uppi á 15. öld, en um hann er ekkert vitað og ekki eru önnur kvæði varöveitt eftir hann en Heimsósómi. Talaðí 129tíma Fyrir nokkrum mánuðum, þegar umræður voru að hefjast á Alþingi um EES- frumvarpið, ritaði ég hug- leiðingu í þennan dálk um tímasóun. Varpaði ég því meðal annars fram, að gera þyrfti úttekt á því, hvernig Alþingi Islendinga hagaði meðferð sinni á málinu, og bera hana síðan saman við afgreiðslu á því í þjóðþingum annars staðar í EFTA- ríkjunum. Með slíkum samanburði yrði unnt að átta sig á því, hvort fullyrðingar um tímasóun í störfum Aiþingis ættu við rök að styðjast. Alþingismenn greiddu atkvæði um EES- samninginn hinn 12. janúar síðastliðinn. Var hann samþykktur með 33 atkvæðum gegn 23. Segja má, að í meðförum þingsins hafí afgreiðsla málsins skipst í þtjá höfuðþætti. Stjómarandstaðan flutti tillögu til þings- ályktunar um að EES-samningurinn yrði borinn undir þjóðaratkvæði. Hún var felld með 31 atkvæði gegn 28 hinn 5. nóvember 1992. Þá fluttu stjórnarandstæðingar tvö frumvörp um breytingu á stjómarskránni og tengdu þau EES-málinu. Þessum frum- vörpum var vísað til ríkisstjórnarinnar með 32 atkvæðum gegn 24 hinn 3. desember 1992. Ég hef hér fyrir framan mig yfírlit yfír það, hve langar umræðumar um þessi þijú frumvörp vom á Alþingi, og er þá ekki tek- ið mið af umræðum í nefndum. Samkvæmt þessu yfírliti stóðu umræðumar samtals í 129 klukkustundir, 43 mínútur og 13 sek- úndur. Þessi klukkustundafjöldi skiptist þannig á þingflokka: Alþýðuflokkur (10 þingmenn): 11 klst. 17 mín; Alþýðubandalag (9 þingmenn): 46 klst. 39 mín; Framsóknar- flokkur (13 þingmenn): 34 klst. 39 mín; Sjálfstæðisflokkur (26 þingmenn): 16 klst. 37 mín., og Samtök um kvennalista (5 þing- menn): 20 klst. 29 mín. Yfírlitið sýnir, að hið sama hefur endur- tekið sig í umræðunum um EES-málin og á þinginu 1991-1992, þegar alþýðubanda- lagsmenn töluðu þingmanna mest. Á því þingi flutti Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Alþýðubandalagsins, lengstu ræðum- ar og hefði þingið staðið í fimm ár, ef allir þingmenn hefðu talað eins og hann. I um- ræðunum um EES-málið talaði Hjörleifur Guttormsson, þingmaður Alþýðubandalags- ins, lengst eða í 10 klst. 36 mín., Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, kom á hæla Hjörleifí með 10 klst. 6 mín; þriðji í röðinni er Páll Pétursson, formaður þingflokks framsóknarmanna, með 8 klst. 40 mín. Ef allir þingmenn hefðu fetað í fótspor þeirra Hjörleifs og Ólafs, hefðu umræðurnar um EES-málin staðið í 650 til 700 klukkustundir. Minnumst þess að Alþingi kom saman 17. ágúst 1992 til að geta afgreitt málið fyrir áramót. Af þeirri greinargerð, sem ég hef við að styðjast, sést ekki, hve oft einstakir þing- menn hafa tekið til máls í þessum umræð- um. í því tilliti geta menn bæði nýtt sér að flytja langar ræður og einnig að gera stutt- ar athugasemdir við ræður annarra, strax og þær hafa verið fluttar. Slíkar stuttar ræður, eða andsvör, eru nýmæli í þingsköp- um. Samkvæmt almennu reglunni, sem um þau gildir, getur þingmaður fengið orðið tvisvar sinnum, í tvær mínútur í hvort skipti, eftir ræðu sérhvers þingmanns til að svara einhveiju í ræðunni. Á grundvelli þessa ákvæðis í þingsköpum hafa sumir þingmenn fengið orðið mun oftar en aðrir, þótt þeir hafi talað mun skemur en hinir, sem aldrei nýta sér réttinn til andsvars. Þessar tölur eru birtar hér til að vekja athygli áhugamanna á því, að nú liggja fyr- ir gögn, sem nauðsynlegt er að hafa við höndina til að bera saman afgreiðslu Alþing- is Islendinga og þingmanna annars staðar í EFTA-löndum á EES-samningnum. Því hefur verið slegið fram, að 63 þingmenn á Islandi hafi þurft jafnlangan tíma til að tjá sig um málið og um 1.500 þingmenn ann- ars staðar í EFTA-ríkjunum. Þessi fullyrðing byggist ekki á nákvæmri athugun. Hún gefur hins vegar hugmynd um muninn á vinnubrögðum við löggjafarstarf hér og annars staðar. Hér er ekki vakið máls á þessum stað- reyndum um EES-umræðurnar á Alþingi til að hneykslast á þeim. Nógir eru til þess. Allir eru sammála um, að það sé nauðsyn- legt fyrir íslensk fyrirtæki að tileinka sér samskonar starfshætti og keppinautar eða samstarfsaðilar í öðrum löndum, ef þau ætla að halda velli. Það dugar ekki heldur neinum einstaklingi til langframa að neita að laga sig að breyttum atvinnuháttum eða nýjum kröfum um vinnubrögð. Þær stofnan- ir, sem laga sig ekki að kröfum tímans, falla í áliti, visna og hætta að skipta máli. Þessi hætta steðjar að Alþingi, ef þar verða ekki teknir upp nútímalegri starfshættir. Allir, sem hafa kynnt sér, efni EES-samn- ingsins vita, að vald Alþingis íslendinga er ekki skert með honum. Á hinn bóginn verða nýjar kröfur gerðar til þingsins og tillögum- ar, sem bornar eru undir þingmenn til sam- þykktar eða synjunar, koma úr nýrri átt; þær verða í ríkara mæli en áður sprottnar af samstarfí ríkja Evrópubandalagsins og EFTA-ríkjanna. Á slíkum tillögum verða þingmenn að taka, meðal annars með það í huga, að dráttur á ákvörðun þeirra kynni að spilla stöðu íslenskra fyrirtækja og ein- staklinga á hinu mikilvæga og stóra mark- aðssvæði. Löggjafarstarfíð hættir að verða eins innhverft og það hefur verið, og á ís- lensku löggjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dórhsvaldi hvíla ríkari alþjóðlegri skyldur en áður. Svipuð viðhorf og menn hafa til- einkað sér við rekstur öflugra fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni verða að ryðja sér til rúms við stjórn íslenska ríkisins. Ekkert fyrirtæki, sem vildi standast slíka sam- keppni, sætti sig við starfsreglur, sem heim- iluðu eins flókna, tímafreka og oft tilgangs- lausa leið að markmiðinu og alþingismenn urðu að fara við töku ákvörðunarinnar um aðild íslands að EES. BJÖRN BJARNASON. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. JANÚAR 1993 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.