Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1993, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1993, Blaðsíða 2
Nýtrúarhreyfingar og nýöld á íslandi aunvísindin og hið tæknivædda velferðarkerfi hafa sínar góðu hliðar og geta fullnægt marg- víslegum þörfum mannsins en ekki öllum. Eg nefni þetta hér í upphafi vegna þess að þetta er að koma betur og betur í ljos og er einmitt þessara hreyfinga. Ný trúarafþrigði aust- rænna ætta fóru að hasla sér völl hér á Við getum talað um tvo meginstrauma í þessu sambandi. Annars vegar hina svokölluðu náðargjafavakningu sem skaut upp kollinum á áttunda áratugnum innan hinna ýmsu trúfélaga og samtaka og hins vegar nýjar og ferskar áherslur innan þess sem ég leyfi mér að kalla dultrúarhreyfíngu. Eftir PÉTUR PÉTURSSON þungamiðjan í nýtrúarhreyfingum og nýöld á íslandi. Þegar trúarbragðafræðingar tala um ný- trúarhreyfíngar í dag er átt við trúarlegar hreyfingar og strauma sem komið hafa fram á Vesturlöndum eftir seinni heimsstyijöld. Allar eiga þessar hreyfingar sér rætur í eldri hreyfingum og hugmyndafræði, en það sem nýtt er, er að þær hafa lagað sig að nýjum aðstæðum og oft má líta á þessar hreyfingar sem tjáningarform nútíma að- stæðna. Þessar hreyfingar höfða á sérstakan hátt til einstaklingsins og sjálfsvitundar hans, en um leið hafa þær einnig áhrif á félagslegt umhverfi hans, lífsviðhorf og heimsmynd. Forsendur þeirra eru nokkuð annars eðlis en fýrri nýtrúarhreyfinga í sögu Vcstrænnar menningar einmitt vegna þess hve trúin hefur orðið mikið einkamál og vegna þess að opinberir aðilar reyna sem minnst að halda uppi lögum og reglum á forsendum trúarstofnana. Nýtrúarhreyfingar hafa því meira svigrúm nú en_ áður, og þær hafa mjög mikið svigrúm á íslandi. Það má e.t.v. telja merkilegt að þessi þjóð sem alls ekki fór fram á trúfrelsi skuli nú fara jafn frjáls- lega með trúmál og raun ber vitni. Trúarlegt Uppeldi Samanburðarkannanir sýna að fáar þjóð- ir hins vestræna heims telja sig eins trúaða og íslendingar. Yfir 80% segjast trúa á guð og einn af hveijum þremur biður daglega til guðs. Þó svo að kirkjulegar hefðir, sér- staklega guðsþjónustan, skipti minna máli en áður, hefur það ekki leitt til þess að al- menningur hafi tekið afstöðu gegn kirkju og kristindómi. 70% Islendinga segjast bera mikið traust til kirkju sinnar. I grófum drátt- um má segja að um 35% íslendinga segi sig játa kristna trú, önnur 35% hafi mótast verulega af kristinni trú einkum hvað varð- ar siðferðishugmyndir og að um 20% séu óvissir eða skeytingarlitlir um trúmál þó ekki séu þeir beinir andstæðingar kristinnar trúar eða kirkju. Flestir íslendingar hafa hlotið trúarlegt uppeldi í bernsku. Fólk tengir almennt kristna trú við umhyggju og kærleika sem börn verði að fá að finna til þess að þau geti öðlast tilfinningalegt öryggi. Þó svo að húslestrar hafi lagst niður um 1930 þá hélst almenn guðrækni á heimilum fram um miðja þessa öld sem birtist í reglulegu bænahaldi við rúm barnanna áður en þau fóru að sofa. Kannanir Guðfræðistofnunar Háskóla ís- lands benda til þess að um 90% barna hafi fram á miðja þessa öld lært bænir og beðið reglulega með foreldrum sínum á kvöldin (sjá Trúarlíf íslendinga, ritröð Guðfræði- stofnunar 1990). Hins vegar bendir ný könn- un meðal fermingarbarna sem gerð var á vegum sömu stofnunar til þess að þessum sið fari mjög aftur. Könnun meðal ferming- arbarna vorið 1993 sýnir að 37% fermingar- barnanna höfðu aldrei beðið bænir með for- eldrum sínum (handrit til birtingar haustið 1993). samfélags. NÝR Trúarlegur Lífsstíll Viss andstæða eða spenna ríkir óhjá- kvæmilega milli nýtrúarhreyfinga og eldri félaga og stofnana samfélagsins svo sem þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga sem fest hafa sig í sessi frá seinustu aldamótum, en einnig við hið opinbera heilbrigðiskerfi og læknavísindin. Ungt fólk var opið fyrir nýjum sannleika, eða gömlum sannleika í nýrri framsetningu og í nýjum umbúðum, og þá skipti ekki máli hvort hann kom úr Bibíunni, Eddukvæðum eða nýjum afbrigð- um austrænnar heimspeki. Aukin ferðalög ungmenna, auðveldari tjá- skipti og bylting í fjölmiðlun brutu niður hefðbundin mörk og mið og unga kynslóðin heillaðist af hugmyndum um sammannlega samstöðu og sannleika í margbreytileikan- um. Við getum talað um tvo meginstrauma í þessu sambandi. Annars vegar hina svoköll- uðu náðargjafarvakningu sem skaut upp kollinum á áttunda áratugnum innan hinna ýmsu trúfélaga og samtaka og hins vegar nýjar og ferskar áherslur innan þess sem ég leyfi mér að kalla dultrúarhreyfingu. Oft er náðargjafarvakningin hér á landi rakin til áhrifa frá Svíþjóð í upphafi áttunda áratugarins en hún átti sér þó fyrirrennara bæði innan kristilegra félaga innan þjóð- kirkjunnar og innan Hvítasunnuhreyfingar- innar. Þessi vakning lagð áherslu á skírn í heilögum anda, tungutal samkvæmt Postulasögunni, bænalækningar og fijálsan vitnisburð og hún takmarkaðist ekki eins og fyrri vakningar við lægri stéttir þjóðfé- lagsins. Til þessarar vakningar má rekja nýjar hreyfingar og söfnuði eins og UFMH, Krossinn, Veginn og Orð lífsins. Sameigin- legt einkenni á þessum hreyfingum hefur verið áherslan á persónulegt trúarafturhvarf einstaklingsins og vakningakristindómur sem stundum birtist í beinni andstöðu við skilning þjóðkirkjunnar á hinu kirkjulega embætti og sakramentunum. Innan þeirra greina sem haslað hafa sér völl utan þjóð- kirkjunnar er fremur um að ræða kalvínsk- ar en lútherskar áherslur á embættið, sakra- mentið og Biblíuna. Dultrúarhreyfingin á íslandi á sér rætur í kenningum Swedenborgs sem hér voru boðaðar fyrir aldamót og í spíritismanum og guðspekinni sem brátt náðu fótfestu meðal Islendinga og höfðu áhrif á trúarleg viðhorf fólks af öllum stéttum. Félög á grundvelli þessara kenninga störfuðu og starfa enn í ákveðnum farvegi og í forsvari fyrir þeim mátti fram og eftir miðja þessa öld finna framámenn á ýmsum sviðum þjóð- lífsins. í tímans rás hafa þessi félög fundið sér viðurkenndan farveg innan íslenskrar borgarastéttar án þess að ógna grundvallar- stofnunum þjóðfélagsins og hefðbundnu sið- gæði. Innan þessara hreyfinga voru þeir sem heldu fast við hina kristnu hefð og meðal þeirra voru prestar í þjóðkirkjunni sem voru á varðbergi gegn því að þessar hreyfingar þróuðust upp í sérstök trúfélög. Trúin á Endurholdgun A sjöunda og áttunda áratugnum fer að verða vart við róttækari hugmyndir innan landi. Sumar greinar þessara nýju strauma hafa tekið á sig skipulagt félagsform og er skemmst að minnast stofnunar Nýaldarsam- takanna fyrir tæpum þremur árum. Einnig starfa margskonar félög, stofnanir og fyrir- tæki, þótt með minna sniði sé, sem bjóða fræðslu og þjálfun í dulspeki, jóga, heilun og samband við verur úr öðrum heimum. Kennir þar margra grasa og vart hægt að setja allt undir sama hattinn. Þó má oftast finna þar endurholdgúnarkenningu sem á sér rætur í austrænum trúarbrögðum þó svo að hún birtist í ýmsum tilbrigðum og hafi óhjákvæmilega breyst á leið sinni úr hindú- isma til íslenskrar alþýðutrúar. Guðshug- myndir íslendinga eru margvíslegar og þar má finna hugmyndir sem benda til algyðis- trúar. Það er ekki óalgengt að sóknin í nýtrúar- hreyfingar sé skilgreind sem flótti frá því frelsi og sjálfdæmi sem nútíminn ekki bara býður upp á heldur gengur út frá að allir geti tileinkað sér. Við sjáum fólk sem kast- ar eigin dómgreind fyrir róða og trúir tak- markalaust á opinberanir og útieggingar leiðtoga sem byggja á eigin köllun og viss- unni um eigið ágæti. Aðrir leita eftir öðru lífi eða jafnvel fyrra lífi til þess að þurfa ekki að takast á við vandmál eigin tilveru hér og nú. Ef til vill á aukið fylgi ungs fólks við endurholdgunarhugmyndir að ein- hveiju leyti rót sína að rekja til vonleysis. Könnun sem gerð var 1990 sýnir að íslend- ingar trúa í meira mæli en nágrannaþjóðirn- ar á endurholdgun. Um 1 af hveijum þrem- ur segist trúa á endurholdgun. 40% í yngsta aldurshópnum, þ.e. frá 18-30 ára, segjast trúa á hana. Þessi trú er ekki afrakstur markvissrar fræðslu í austrænum trúar- brögðum heldur er sennilega um að ræða einhverskonar úrræðaleysi fólks sem misst hefur trú á framtíðina, og einnig misst eða aldrei haft trú á það guðsríki sem Kristur opinberaði með lífi sínu, dauða og upprisu. Hér getur einnig verið um að ræða tilraun einstaklinga sem standa framandi gagnvart tilkalli kirkju og safnaða til kennivalds til að fá skynsamlegt vit í væntingar um eilíft líf sem fylgt hefur manninum frá örófi alda. Boðun um endurfæðingu, upprisu og nýtt líf í Kristi eru þeim framandi og ef til vill má segja að kirkjan og prestarnir komi þessu erindi ekki frá sér á skiljanlegan hátt fyrir venjulegt fólk. Trúin á möguleika end- urholdgunarinnar verður því fólki sem vænt- ir eilífs lífs og skilur ekki kenninguna um það að einn hafi dáið fyrir alla eins konar útleið þar sem ábyrgð manns og eilíft líf geta farið saman. Endurholdgunartrúin verður því einskonar upprisa fátæka manns- ins — hins fátæka í anda. AFSTAÐAN TIL KlRKJU OG Kristindóms Meðal þess sem boðið er upp á fijálsum markaði nýtrúarhreyfinga í dag eru nám- skeið og einkaviðtöl þar sem viðskiptavinur- inn er aðstoðaður vð að finna fyrri líf. Þetta mun vera kallað að „fara í fýrri líf“. Miðill sem hefur starfað í 15 ár sagði mér nýlega að þetta hefði aukist mikið meðal unglinga og honum þótti þetta miður vænleg þróun. Trúfrelsið og sjálfdæmi einstaklingsins hefur gert hinar hefðbundnu aðferðir krist- inna safnaða að mörgu leyti óvirkar. Vissu- lega er margt gott í því sem fram hefur komið innan nýtrúarhreyfinga og nýaldar og þar er að finna umhyggju fyrir einstakl- ingnum og háleit siðfræðikerfi sem geta styrkt manninn og gert hann færari um að verða sjálfum sér og öðrum til gagns. En margir þeir sem leita á eigin vegum geta óafvitandi hafnað utan þess ramma sem hin sígilda kenning kristninnar setur lífinu og tilverunni. Ég held að það sé sér- stök hætta á þessu einmitt hér á íslandi þar sem fólk er almennt jákvætt í garð kirkju og kristindóms. Trúin er ekkert föndur, hefur vitur maður sagt, og hana er ekki hægt að afgreiða með því að ætla henni tómstundir ein- göngu. Fjölbreytileikinn gerir matið vanda- samara og kallar á markvissari fræðslu og betri aðgang að upplýsingum. Trú sem ein- göngu er barnatrú og einskorðuð við tilfínn- ingalífið, en nær ekki að móta hina vitrænu þætti hugarstarfs fullorðinna, getur verið varasöm í nútíma þjóðfélagi. Það er því brýnt að skólar sinni þessum málaflokki betur en verið hefur og ekki síst Háskólinn sem hefur margþætt langtíma- áhrif út í þjóðfélagið. Á þessu sviði — eins og öðrum — verða leiðbeiningar að byggj- ast á þekkingu. Höfundur er dósent við Háskóla Islands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.