Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1993, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1993, Blaðsíða 9
RANNSOKN I R I S L A N D I Umsjón: Sigurður H. Richter 1000 aoo 600 400 200 Mo&alþyngd f g % lcynþroska flskar t.loBaiþynnd Kynþroclcahlutfall 0I_1 100 80 60 40 20 Meðalþyngd bleikju og kynþroskahlutfall í lok tilraunar í júní, eftir 300 daga í tilraun. KYNÞROSKIGERIR USLA í BLEIKJUELDI u ndanfarin ár hefur áhugi á bleikjueldi vaxið og nokkrar eldisstöðvar hafa snúið sér að hluta eða alfarið að eldi á bleikju. Hugmynd- ir um möguleika á eldi þessarar tegundar hafa að stórum hluta ýmist verið bundnar við Kynþroski hefur meiri áhrif á vöxt bleikju en hitastigið sem hún er alin við. Eftir ÞURIÐI PÉTURSDÓTTUR og EMMU EYÞÓRSDÓTTUR nýtingu á lindarvatni sem er 4-6 stiga heitt árið um kring; yfirborðsvatni þar sem hitastig sveiflast með lofthita eða blöndu af þessu tvennu. Auk þess er hugsanlegt að nota volgrur þar sem þær eru fyrir hendi. Tilraunin, sem lýst er hér á eftir, var gerð í þeim tilgangi að rannsaka hversu lengi bleikja er að vaxa upp í markaðs- stærð við mismunandi hitastig og hvaða áhrif eldishiti hefur á kynþroska. Eldishiti var valinn með það í huga að hægt yrði að meta hagkvæmni mismunandi eldisað- stæðna víðs vegar um land. EF'JI OgAðferðir í lok júlí 1991 var 600 u.þ.b. 170 g fisk- um skipt tilviljanakennt niður í 12 eins rúmmetra ker, 50 í hverju keri. Fiskarnir voru einstaklingsmerktir. Fylgst var með vexti og kynþroska hjá hveijum fiski. Rennsli var miðað við 0,5 l/mín./kg fisk og miðað við að súrefni í frárennsli væri 7 mg/1. Þéttni var um 22 kg/m3 í upp- hafi. Fiskurinn var vigtaður og lengdar- Hlutfallsleg stærðardreifing fiska sem náðu holdlitareinkunn 1 eða meira. mældur u.þ.b. einu sinni í mánuði. Þá var einnig athujgað hvort úr honum rynnu svil eða hrogn. I lok tilraunarinnar var fiskinum slátrað, hann kyngreindur, kynkirtlar vigt- aðir, lengd og þyngd mæld og gefin ein- kunn fyrir útlit. Auk þess var sláturþyngd og holdlitur skráður. Reynt var að gefa einkunn fyrir holdfestu, en það var ekki gerlegt. í þessari grein verður aðallega fjallað um niðurstöður af athugunum á þungabreytingum og kynþroska bleikjunn- ar. NIÐURSTÖÐUR Vöxtur. Niðurstöður tilraunarinnar leiddu í ljós Mikill munur er á kynþroska fiski (sá efri) og ókyn- þroska (sá neðri) bæði hvað varðar lit og holdafar. að eftir tíu mánuði (300 daga) hafði bleikj- an ekki náð þeirri sláturþyngd sem miðað var við, það er að segja eins kg þyngd. Litlu skipti hvort bleikjan var alin við 8, 10 eða 12 stig, hún óx jafn vel (1. mynd). Við 6 stiga hita var fiskurinn nokkurn tíma að ná sér af stað en óx síðan mjög vel. Rennslistruflanir urðu í 4 og 6 stiga hita í febrúar og þá dró úr vexti en eftir það óx bleikjan vel (6°) og þokkalega (4°). Athygli vekur að við 14 stiga hita dró mjög fljótt úr vexti og fiskurinn óx ekki neitt mestan hluta tilraunatímans. Reyndar stöðvaðist vöxtur einnig við 12 stiga hita eftir 200 daga og eftir 250 daga við 10 stiga hita. Vaxtarstöðvun. Hvers vegna hætti fískurinn að vaxa? Við krufningu kom í ljós að sumir fiskar voru fullir af sviljum eða hrognum. Kyn- þroski var metinn eftir því hversu þung hrognin og svilin voru í hlutfalli við þyngd fisksins. Kynþroski var algengastur við hæsta hitann (14°C) en minnstur við lægsta hitann (4°C, sjá 2. mynd). Fiskur, sem er að verða kynþroska, hættir venju- lega að vaxa og leggur alla orku fæðunnar í uppbyggingu kynkirtla. Sölumöguleikar. Auk þess sem kynþroskinn veldur vaxtarstöðvun dregur hann úr holdgæðum fisksins, rauði liturinn hverfur og holdið verður slepjulegt. Við slátrun var holdlitur mældur og á 3. mynd sést hvernig fiskur við hvert hitastig skiptist í stærðarflokka eftir að hent hefur verið burtu ósöluhæfum fiski. Hæstu tekjumar fengjust af fiski úr 6 og 8°C eldishita. Við 4 stiga hita eru of margir smáfiskar (200-600 g) og við 10, 12 og 14 stig er of lítill hluti físksins söluhæfur. Niðurstöður tilraunarinnar benda til þess að kjörhiti bleikju af stærðinni 170- 1.000 g sé 8-12°C, og að ekki sé veruleg- ur munur á vexti á þessu hitastigsbili. Kynþroski hefur þó afgerandi áhrif á gæði framleiðslunnar og hærri hiti eykur kyn- þroska. Með tilliti til vaxtar og kynþroska virðast því 6-8°C vera heppilegasti eldis- hitinn, þar til leiðir finnast til að draga úr eða stöðva kynþroska hjá bleikju í eldi. Rannsókn þessi var styrkt af Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Höfundar eru líffræðingur og kynbótafræðingur og starfa á Rannsóknastofnun landbúnaðarins á Keldnaholti. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5.JÚNÍ1993 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.