Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1993, Page 6
_L
Arkitektúr
Vinstri myndin: Aðkoman og inngangurinn eru einkar vel leyst. Hægri myndin: Hér er einna helzt að brotalöm sé á heildarmyndinni. Á gafl skrifstofuálmu er
mynduð tenging við turn kirkjunnar, sem er vel. En að öðru leyti myndar álman ekki sannfærandi tengingu við kirkjuna, einkum frá þessari hlið.
Glerárkirkja
Arkitekt: Svanur Eiríksson.
Meðal þeirra verkefna sem
koma á borð arkitekta hljóta
kirkjur að hafa verulega
sérstöðu. Mætti ímynda sér
að það væri óskaverkefni að
fá að teikna kirkju, því einna
helzt þar er hugsanlegt að
arkitekt geti komið við
frjálsri sköpun. Eitthvað sem kalla mætti
hefðbundið lag á kirkjum, heyrir næstum
sögunni til. Nægir í því sambandi að benda
á nýjar eða nýlegar kirkjur, svo sem Breið-
holtskirkju í Reykjavík og kirkjuna á
Blönduósi, sem vígð var í mai á þessu
ári. Það eru þó engan vegin ný tíðindi að
kirkjur séu byggðar undir merki framúr-
stefnu og má í því sambandi minna á
Neskirkju, sem var afar óvenjuleg á sínum
byggingartíma og er enn eitt bezta dæmi
í íslenzkri byggingarlist um hreinræktaðan
módemisma.
Sú breyting hefur orðið á kirkjum frá
því sem var, að nú þykir sjálfsagt að byggja
um leið yfir félagslega aðstöðu safnaðarins
og ef til vill skrifstofu fyrir prestinn og
jafnvel sitthvað fleira. Kirkjubygging er
ekki lengur einungis rammi utanum guðs-
þjónustuna, heldur er reynt að sinna fé-
lagslegu hliðinni einnig. Þetta gerir verk-
efni arkitektsins mun flóknara.
í hinni nýju Glerárkirkju á Akureyri,
sem Svanur Eiríkssson arkitekt hefur
teiknað, er þetta mjög augljóst og verður
hvorttveggja í senn, kostur og galli við
bygginguna. Kosturinn felst í því að til
verður mjög góð aðstaða fyrir safnaðar-
starf, enda eru álmumar tvær sem geta
hýst þessa hlið kirkjustarfsins, stærri að
grunnfleti en sjálf kirkjan. Þar er öðram
megin stór salur, kallaður safnaðarsalur
og getur hann opnast inn í kirkjuna við
fjölmennar athafnir; einnig er þar eldhús,
búr og geymsla. Hinum megin er skrif-
stofa safnaðar, skrifstofa prests, lítil kap-
ella, viðtalsherbergi, fundaherbergi, að-
staða fyrir húsvörð, eldhús, fatageymsla,
herbergi organista og salur ætlaður
kennslu og herbergi ætlað brúðinni fyrir
brúðkaup, sem er líklega nýlunda. Undir
kirkjunni er geysistórt rými, sem ekki
þótti ástæða til að fylla og er því óráðstaf-
að. Ef til vill verður þar barnaheimili, eða
eitthvað annað sem laðar fólk að kirkjunni.
Af þessu má sjá, að arkitektinn þarf í
mörg horn að líta við samræmingu alls
þessa og að kirkjan hlýtur alltaf að taka
svip af öllu því húsrými, sem heyrir til
félagslega þættinum. Sumpart hefur það
tekizt vel. „Kirkjan tekur á móti manni
með opinn faðminn", sagði sóknarprestur-
inn, séra Gunnlaugur Garðarsson, þegar
hann sýndi mér kirkjuna. Það er rétt; þeg-
ar komið er á bílaplanið teygir kirkjan út
arma á tvo vegu og þessar álmur eyu al-
veg byggðar sem hluti af kirkjunni. Ásamt
með lágum, steinsteyptum veggjum sem
umlykja bílaplanið, fær þessi heildarmynd
megnþrangið ris, sem endar í turninum. I
Svipmikið guðshús. Formin í glerárkirkju rísa, líkt og þau vi\ji hefja sig til flugs
undan brekkunni. Tvöfaldi bitinn framan á turninum er stef, sem endurtekið er
aftan á kór kapellu og í gerð kirkjugripa.
sjálfum turninum er þetta ris látið halda
áfram og hær hámarki í einskonar stefni;
tveimur steinbitum, sem halda uppi kross-
marki. Bitarnir og skálínur turnsins eru
síðan endurtekin á gafli skrifstofuálmunn-
ar; þar er þessi smáturn látinn mynda
umgjörð utan um kapellu.
Hér hefur verið úr vöndu að ráða eins
og ævinlega þegar þjóna þarf tveimur
herrum. Skrifstofuálman útheimtir marga
glugga, en meinið er að þeir eru bara eins
og venjulegir skrifstofugluggar og ríma
ekki við útlit kirkjunnar að öðru leyti. Frá
Hlíðarbrautinni, sem er aðal umferðaræð
hverfisins, blasir kirkjan. við í allri sinni
dýrð. En það blasir líka við að skrifstofuál-
man er ekki sem hluti af kirkjunni. Þótt
samskonar gluggar séu að vísu neðantil á
kirkjunni, eru þeir ekki nóg til að mynda
tengingu. Álman gæti verið skólahús eftir
útlitinu að dæma, eða skrifstofubygging
eins og hún er< En hún er eins og við-
hengi við kirkjuna frá þessu sjónarhomi í
stað þess að vera hluti hennar.
Önnur sjónarhorn era góð og aðkoman
er beinlínis fögur. Inngangurinn er til að
mynda mjög fallega leystur. Það er óvenju-
legt, að gengið er inn um afturendann, frá
vestri, en kirkjan er kórrétt, sagði séra
Gunnlaugur; það felst í því að turninn og
kórinn snúa til austurs.
Kirkjuskipið sjálft - ef nota má það orð
yfír næstum ferhymdan sal- er hvítmálað
og bjart og það setur sinn svip á loftið,
að trébitar, sem nálgast hver annan yfír
kórnum, era látnir sjást. Grár steinn er á
gólfi, en stakir stólar með bleiku áklæði
í stað kirkjubekkja. Mér skilst þó að það
sé ekki endanleg lausn og að arkiektinn
miði við að kirkjubekkir komi síðar meir.
í kór er inndregið rými, sem hentar frá-
bærlega vel fyrir altaristöflu. Það er virð-
ingarvert, en því miður of sjaldgæft, að
gert sér sérstaklega ráð fyrir kirkjulist í
nýjum kirkjum og m.a. þessvegna eru þær
sorglega listsnauðar. Hér er krossmark
yfír altari til bráðabirgða, en listaverkið
bíður betri tíma.
Séð inn í kór kirkjunnar.
Ljósm.Mbl.Rúnar Þór, Akureyri. Aðrar myndir tók greinarhöfundur.