Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1993, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1993, Síða 2
stríði Rómverja gegn Etrúskum, þegar ein- eygð hetja, Cocles, varði einn brú gegn Etrúskum, aðallega með æðisgengnu lát- bragði og með því að hræða þá með grettum, og minnir það hann allt á Óðin. Þar að auki telur Dumézil hliðstæður við írskar goðsögur og virðist það enn langsóttara. Róm En hér virðist mér leitað langt yfir skammt, því í Róm má enn í dag sjá sláandi hliðstæðu við söguna um handarmissi Týs. Við vesturenda Circus Maximus, nálægt rústum keisarahallarinnar fomu, stendur ævagömul kii’kja, Santa Maria in Cosmedin. Upphaflega var þessi bygging hlaða fyrir gjafakom, en var breytt í kirkju um 400 e. Krist. I opnu anddyri kirkjunnar stendur fornrómverskur steinskjöldur mikill, hálfur annar metri í þvermál, hringlaga með andliti á. Göt eru fyrir augu, nasir og munn, og er talið að upphaflega hafi þetta verið nokkurs- konar rist fyrir niðurfall i ræsi. Það er þá athyglisvert að rétt hjá kirkju þessari er „Cloaca mixima“ merkt inn á Rómarkort, en það var meginholræsi borgarinnar. Þessi steinskjöldur með andliti á er kallaður „bocca della verita“, þ.e. sannindamunnur. Það byggist á þeim þjóðsið, að stinga hendi sinni í munn andlitsins, þegar eiður er svarinn. Sé eiðurinn rangur á steinandlitið að bíta höndina af, samkvæmt þjóðtrúnni. Hér em svo mörg atriði sameiginleg sög- unni um handarmissi Týs, að bein tengsl virðast mjög líkleg, enda er ekki aðrar hlið- stæður að sjá, sem áður segir. En hvort er nú líklegra, að þessi þjóðtrú Rómverja bygg- ist á fornri indóverópskri goðsögu, sem ann- ars, sé aðeins varðveitt í Snorra-Eddu eða að frásögn Eddu af Tý byggist á þessri róm- versku þjóðtrú? Þessi síðartalda skýring sýn- ist mér mildu líklegri. Bæði vegna þess, að tilefnislaust er að gera ráð fyrir goðsögn, sem engar heimildir era um, svo sem áður var rakið, og svo er þessi þjóðtrú einmitt líkleg til að spretta af ímyndunarafli fólks andspæn- is þessu stóra, gapandi steinandliti, sem eng- inn vissi lengur til hvers hafði verið gert. Auk þess stóð það í fordyri kirkju, en það var víðar en á Islandi sem menn unnu eið með því að leggja hönd á helga bók og fer þetta þá að verða allnáið samband. Hér skal ekki fjallað um önnur atriði þess- arar sögu af ásum og Femisúlfi, en ekki væri þetta neitt einsdæmi þess að rómversk mannvirki berist inn í norræna goðafræði. Ekki langt frá steinandliti þessu er Colosse- um (og svipaðar byggingar vora víðar í Rómaríki), en það vora sérstæð mannvirki, m.a. að því leyti, hve margir gátu í senn' gengið inn í þau eða út úr þeim. Fyrir sex- tíu áram benti norski fræðimaðurinn Magnus Olsen á Colosseum sem fyrirmynd Valhallar, þar sem vopnbitnir menn áttu að dveljast eftir dauðann. í Snorra-Eddu segir (bls. 44): Þá er þeir drekka eigi,þá fara þeir út í garðinn og berjast, og fellir hver annan. Það er leikur þeirra. (41.k., Is. 60) Eddukvæðið Grímnismál er talið mun eldra. Þar er Valhöll svo lýst: Fimm hundruð dura og um (jórum tugum, svo hygg eg á Valhöllu vera; átta hundruð einherja ganga senn úr einum durum, þá er þeir fara við vitni að vega. Hér er augljós hliðstæðan við Colosseum, en þar var m.a. haft til skemmtunar að sverðliðar (gladiatiorar) gengu inn á sviðið 'Og börðust. Þótt þeir risu ekki upp frá dauð- um, þá kom jafnan maður manns í stað fyrir næstu leika. Nú var þeim leikum löngu hætt þegar Grímnismál vora ort, en ekki skal ég getum að leiða hvenær þessar frásagnir bárast til Norðurlanda né í hvaða formi. Það gerir Magnus Olsen í fyrmefndri grein. En í raun- inni hefur ekki þurft mikið til, það nægði að einn maður kæmi til Norðurlanda og segði sögu af því að menn legðu hönd sína í munn á miklu steinandliti, því til tryggingar að þeir særa sannan eið. Enda myndi andlitið bíta af höndina ef rangur væri eiðurinn. Þetta væri nægileg uppspretta sögunnar um Fernisúlf og Tý, t.d. fyrir fólk sem leiddi hugann að Ragnarrökum. Tilvintuð rit: Georges Dumézil: Mitra-Var- una ...(ensk þýðing) New York 1988. Snorra Edda. Iðunn 1975; How to visit Rome and Latium, Róm 1984. Myndin er tekin eftir bls. 121, þakka Gísla Sigurðssyni lánið; Guide de Tourisme Michelin: Rome. Paris 1988, Piazza bocca della verita“; Hallvard Mageroy: „Af sin- um bjarnarins" Minjar og menntir, Rvík 1976, bls. 358-63; Fomaldarsagan, islenzkuð og aukin eftir sögu- bók H.G. Bóhrs af Páli Melsted. HÍB, Rvík 1864; Magnus Olsen: „Valhöll með hinar mörgu dyr.“ M.O.: Þættir um líf og ljóð ... Rvík 1963, bls. 124-7; Edgar C. Polomé: „Týr“ í Encyciopaedia of Religion XV, bls. 108-9. Mircea Eliade ed., New York 1987. Þrjár myndir úr Kópavogi Eftir GYRÐIELIASSON Maður í samfestingi talar við kött á húströppum í kvöldlogni og samfestingurinn er blár. Maðurinn reykir og talar við köttinn meðan bflar fara hjá húsinu. Maður í samfestingi talar við kött á húströppum í kvöldlogni, og fer seinna með ný föt gegnum kirkjugarð í logninu. Svört föt í logninu trndir morgun. Hann segir við köttinn: „Þú átt ekki að sitja hérna hjá mér á tröppunum. Þú átt að fara niður á túnið við sjóinn þar sem lóumar era. Þú getur margt lært af lóun- um.“ Kötturinn starir á hann grænum glyrn- um. „Ég sendi þig rétt bráðum niður á tún,“ segir maðurinn. Svo stendur hann á fætur og gengur inn í húsið, kemur aftur út með fötin í plasthjúp á handleggnum. Hann býður kettinum góða nött og gengur að strætisvagnaskýlinu handan götunnar og hugsar um legsteina. II Yfir götu fara þijár mannverur. Fullorð- inn maður með dökkan hött og ýlustrá og blæs svo undir tekur í húsum. Á eftir hon- um ganga tvö börn, líka með ýlustrá og dökka hetti og blása en úr þeirra stráum koma engin hljóð. Á túninu við sjóinn era baggar nýbundn- ir, töðuilmur berst yfir göngustíginn á sjáv- arbakkanum. Enn heyrist hátt í ýlustrái fullorðna mannsins en ekkert í stráum barn- anna og hjá böggunum á túninu vappa nokkrar lóur í maðkaleit. Þær leita góða stund að möðkum meðan kvöldið silast áfram. Svo fljúga þær upp og era hljóðar eins og komið sé í þær haust þó enn sé ekki nema júlí. Þessar niðurdregnu lóur fljúga lágt yfir sléttan vog á flikróttum vængjum. Ég veit ekki hvar þær verða í nótt. Ég er gömul mús og hef búið um mig í trölla- súraskóginum inni í dalnum. Maðurinn með ýlustráið og bömin sem fylgja honum, þau fara framhjá ketti við hrörlegt hús. Köttur- inn horfir niður á túnið við voginn og þeg- ar hann heyrir í ýlustráinu eina tekui- hann kipp, einsog hann haldi að lóa sé að kvaka. Hann hefur verið að hlusta á mann sem á eftir að rölta með svört föt í glæram hjúp gegnum lrirkjugarð í logni. III Eftir göngustígnum meðfram túninu þar sem baggamir liggja og dreifar eftir bindi- vélina gera hrífufólk á elliheimilinu eirðar- laust; eftir þeim stíg fara mæðgin. Drengur- inn er 7 ára og ljóshærður með stór gler- augu og svart band aftur fyrir hnakkann svo hann missi þau ekki af sér. Hann er í hvítum strigaskóm og hleypur út á túnið meðan mamma hans þræðir stíginn og horf- ir yfir voginn. Drengurinn snýr aftur af túninu og tekur í hönd móður sinnar, segir út í lognið í kvöld: „Hvar er pabbi núna?“ Trérista eftir Elías B. Halldórsson. „Hann pabbi þinn, ég veit það ekki,“ segir mamma drengsins annars hugar, and- ar að sér töðuilmi og lítur upp í gráan him- in. „Þú veist að ég veit það ekki.“ „Já, en getur hann ekki komið aftur?“ spyr drengurinn og ýtir gleraugunum ofar á nefið. Það þarf að stytta í bandinu aftur fyrir hnakkann. „Nei,“ svarar mamma hans. „Nei,“ segir hún aftur. Þau leiðast eftir stígnum, gegnum göngin undir mikla veginn og svo inn í dalinn. Meðfram læk og jurtum sem vaxa á bökkum hans, að tröllasúraskóginum þar sem ég, gamla músin, er að hugsa um mold og lóur og hey og ketti. Undir súð ppi undir þaki í húsinu þama, þessu sem klif- urplönturnar umvefja, liggur ungur maður í gráu járngrindarúmi og granar að hann deyi bráðum. Nótt eftir nótt hefur hann dreymt bik- aðar kistur, úfna hrafna, austurrískar slag- klukkur, og bleika hesta sem stökkva ofan í mógrafir. Hann finnur ekkert að sér, en hefur þó varla reist höfuð frá kodda dögum saman og er að verða alveg viss um að hann deyi. En hann vill að eitthvað gerist sem verði til þess að draumarnir komi ekki fram. Á morgnana syngja fuglar í trjánum við gluggana. En glugginn á þakinu er lokaður og söngurinn daufur eftii- að hafa síast gegnum glerið, lífshljómurinn farinn úr honum. Eiginlega minnir söngurinn helst á maðkana sem fuglarnir tína með sama nefi og þeir syngja með, og maðkar kalla fram hugsanir um mold — tengjast þannig draumum. Hann þekldr enga konu lengur. Hann þekkir enga konu sem gæti tekið um höfuð hans og látið moldina bak við augun hverfa. Hann gæti dáið rólegur ef hann þekkti konu sem gæti látið moldina hverfa. „Þú getur dáið rólegur," mundi hún segja við hann. „Ég kem eftir 50 ár.“ Þannig finnst honum að konur eigi að vera, og hann segði líka við konuna ef það væri hún sem ætti að deyja og hann ekki: „Þú getur dáið róleg. Ég kem eftir 50 ár.“ Húsið er gamalt. Meira en 50 ára gamalt, og meira en 100 ára gamalt. Þama hafa margir dáið. En enginn hefur dáið rólegur. Flestir deyja án þess að fá tíma til að verða rólegir. Marga dreym- ir klukkur, mógrafir, hrafna, bleika hesta. Svo kemur dauðinn. Aðra dreymir grá blóm í leirpottum, hvít tvinnakefli, trosnaðar forstof- umottur og fornlega kæliskápa — og þegar augun opnast er ljóst hvert stefnir. Komið kvöld, og fuglarnir sem í morgun sungu í trjánum eru löngu hljóðnaðir. Hann hefur ekki afi til að hugsa um lífið, ekki nógu lengi í einu. Hann verður smeyk- ur, finnst að dauðinn sé alveg að koma; súð og veggir dökkna. Dauðinn kem- ur yfir veggi, það er ekki nóg að setja þak yfir veggina, hann kemur þá bara gegnum þakgluggann. Og ef ekki er þakgluggi þeg- ar hann kemur, þá býr hann til þakglugga á svipstundu. Högg og sagarhljóð, og hann blístrar lagstúfa á meðan hann útbýr þak- gluggann, blístrar svo það mirrnir á fugla- söng. Það mætti halda að kominn væri morgunn þegai’ hann bh'strar svona. En hann kemur með sortann með sér inn um þakgluggann, og sortinn fyllfr herbergið og líður út undir súðina. Nú heyrist ekkert blístur lengur. Hestar, mógrafir, klukkur, kistur, hrafn- ar. Klifurplönturnar umvefja húsið. Undir öðru þaki langt í burtu er konan sem hefði getað sagt: „Þú getur dáið rólegur. Ég kem eftir 50 ár.“ En til þess hefði hún orðið að þekkja hann sem er undfr súðinni, og það gerir hún eklri. Undir þakinu hennar er bjart, nýjar perur í lömþum, perar sem endast vel. En sortinn er að fylla hitt her- bergið. Sögumar eru úr nýrri bók Gyrðis, sem heitir „Trega- hornið". I henni eru 24 örstuttar sögur. Mál og menning gefur út. Tréristur í bókinni eru eftir Elías B. Halldórsson. Álfareiðin Einhvern tíma birti undirritaður grein- arkom í tímariti, þar sem lagt var út af þýðingu Jónasar Hallgrímssonar á kvæði Heines, Die Elfenreute. Þar var því haldið fram, að sú þýðing, Álfareiðin, væri svo óhk hinu þýzka ljóði, að nærri léti að framort væri á íslenzku með hliðsjón af kvæði Heines. Svo var kallað, að hið séríslenzka viðhorf Jónasar til rómantíkur þess tíma réði þar lögum og lofum, allt yfirbragð ljóðsins væri gjör- ólíkt Heine, enda sjálfur bragarhátturinn alls óskyidur. Ljóðhnur Jónasar koma dansandi á blönduðum bragliðum, léttum og gáskafullum, en kvæði Heines er ein- göngu ort á réttum tvfliðum, háttföstum; virðulegum og eilítið ískyggilegum. I kvæði Jónasar hlær álfadrottningin að skáldinu, en í kvæði Heines sendir hún honum tvírætt bros og býsna dularfullt; og mætti svo lengur telja. Þá hélt sá sami því fram á öðram vett- vangi, þar sem rætt var um svipað efni, að þennan mikla mun bæri sízt að harma, enda hefðu slíkar þýðingar, þegar vel tækist tfl, sérstakt gildi sem innlendar bókmenntir, að nokkra leyti annað en þær þýðingar, sem umfram allt eiga að vísa til vegar inn í erlendan ljóðheim. Enginn íslendingur kysi þessa ljóð- perlu Jónasar á neinn annan veg en hún er. Hitt er annað mál, að eigi að síður hefði margur þegið að nálgast hið marg- fræga ljóð Heines á þess eigin forsendum í hvívetna, skynja inntak þess og andblæ á sinni eigin tungu. Og nú vill svo til, að á hðnu sumri kom út lítið og fallegt ljóðakver eftir Ólaf lækni Tryggvason, skömmu fyrir andlát hans. í kveri þessu era meðal annars efnis tvær ljóðþýðingar, báðar úr þýzku. Önnur þeirra er af hinu kunna stúdentaljóði O alte Burschenherrlichkeit, en hin er af Die Elfenreute eftir Heine. Báðar era þýðingar þessar mjög hag- lega gerðar, og er ekki sízt fengur að Álfareiðinni, því þama er hún ort ná- kvæmlega á frumhætti Heines auk þess að vera svo nærfærin um efni sem til má ætlast. Samanburður við Ijóð Jónasar kemur að sjálfsögðu ekki til greina, þar sem um annars konar verk er að ræða. Sökum þess að þýðing Jónasar má á vissan hátt kallast sjálfstætt íslenzkt verk, hefur þetta merka kvæði Heines staðið að nokkra utan við íslenzkar þýð- ingabókmenntir þar til nú, að birzt hefur vönduð þýðing Ólafs Tryggvasonar. Þess vegna sætir hún kærkomnum tíðindum. HELGI HÁLFDANARSON Höfundur er bókmenntafræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.