Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1993, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1993, Page 3
BORIS PASTERNAK LESBOK @ B n u [u] u n E H1] BID1] 11 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnars-' son. Ritstjómarfulttr.: stjóm: Kringlunni Gyrðir Elíasson hefur sent frá sér bók með 24 örstutt- um sögum, sem eru skemmtilegt en vandmeðfar- ið bókmenntaform og fróðlegt að sjá hvemig þessi ungi höfundur meðhöndlar það. Til dæmis eru birtar tvær sögur úr bókinni. Glasa- frjóvganir hafa verið á verkefiiaskránni hjá Kvennadeild Landsspítalans í tvö ár og rúmlega 100 böm er fædd eftir slíkar fijóvganir. I þættinum um Rann- sóknir á íslandi skrifa þeir Júlíus Gísli Hreinsson og Þórður Óskarsson um þetta efiii. Gísli Sigurðsson. Rit- 1. Sími 691100. Fenrisúlfur beit höndina af Tý, sem hafði sett hana að veði gin úlfsins. Nú hefiir Öm Ólafsson fundið hlið- stæðu í Róm: Forn skjöldur með andliti og munni. Menn settu hönd sina að veði við eiðtökur, stungu henni í munn steinandlitsins, sem beit af höndina, ef rangt var svarið. Blaðamaður Lesbókar var í sumar á ferðinni á Snæ- fellsnesi, sigldi með Eyjaferðum, leit í kringum sig í bæjunum á nesinu, gisti á Kvemá og hitti að máli Sigga Karls, hönnuð og hugmyndasmið, sem kom til Ólafsvíkur eins og hvítur stormsveipur ofan af Jökli og er búinn að reisa myndarlegt veitinga- og gistihús. Þema Geir Kristjánsson þýddi Klettur og stormur. Klettur og kápa og hattur. Klettur - og Púsjkín. Hann sem einnig í dag luktum augum skyggnist og sér í SSnxinum ekki bábiljur okkar, ekki ágiskanir fomgrikkjans í blindstræti, ekki gátu, heldur áa sinn: flatmynntan hamíta sem þjáðst hefur af sandstorminum einsog af bólusótt, örum sleginn af auðninni, einsog eftir bólusótt, og ekkert meira. Klettur og stormur. Bjór sem flæðir ólgandi úr grön íjörukambanna, höfðanna, klettanna og tanganna, margrunnsins og mílnanna. Tunglkomu hvinur og gnýr einsog steypt sé úr fati botnlausum svelg. Mistur oggnauð og ofsa sogandi stormur. Bjart sem um dag. Allt lýsist af hvítri froðu. Enginn fær slitið augun frá þeirri sýn. Brimrótið sparar ei Sfínxinum ljósin fín og skiptir án afíáts um kerti á rjúkandi stjökum. Klettur og stormur. Klettur og kápa og hattur. A vörum Sfímdns er saltremma þokudrungans. Sandurinn markaður votum marglittukossum. Boris Pastemak, 1890-1960, var rússneskur rithöfundur og skáld og mikill áhrifamaður á rússneska Ijóðlist, en var í andstöðu við opinbera stefnu um pólitíska nytsemi Ijóða. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin 1958 eftir að skáldsaga hans, Sívagó læknir, kom út á Vesturiöndum, en hafnaði þeim vegna and- stöðu sovézkra yfirvalda. Paradísarmissir og -heimt að hefúr víst ekki farið framhjá öðmm en örg- ustu rötum að hégómleik- inn er að verða það ein- kenni hins vestræna heims sem augljósast er. Eins og flestir hafa fyrir löngu veitt áthygli virðist heimska sú, sem hittir þennan heimshluta vom, ná að blómstra með alveg sérstökum glæsibrag hjá okkar litlu þjóð. Svo er og um sigur hégómleikans. Vitaskuld reyna menn að leyna honum og gefa honum fögur og lokkandi nöfn en uppraninn leynir sér sjald- an. Andstæða hégómleikans er látleysið og nú er svo komið að slíkt ástand telst til argasta hallærisskapar sem auðvitað er dauðasynd vorra daga, staðfesting þess að maður sé ekki með, hafi ekki „meikað það“, misst af tækifæram lífsins; maður hafi ekki verið kosinn í liðið sem þóttu ægileg örlög þegar ég var barn í fótbolta. Það er sama hvert við lítum kringum okk- ur; hvarvetna sjáum við fólk sem leggur lífið í sölurnar til að forðast hallærið sem bíður við hvert fótmál ef maður passar sig ekki, tilbúið að hremma mann og bola út úr því samfélagi, sem með sanni má kalla Paradís hégómans, inn í helvíti látleysisins. Þar er lummulega liðið, launaþrælamir sem berjast fyrir daglegu brauði sínu og brýnustu þörf- um, það er samfélag hins nafnlausa, ósmarta, síblanka skara. Þetta ástand hefur nú leitt til þess að kom- in er fram ný yfirstétt. Hana skipa þeir sem láta mikið á sér bera, daðra við þá sem kom- ist hafa til metorða hjá kónginum og reyna að líkja sem nákvæmast eftir orði hans og æði. Þetta fólk þykist gjama líflegasta fólk samtímans en hefur ekki veitt því eftirtekt að það er dáið, steindautt í stöðluðum form- um sem það hefur sjálft skapað um líf sitt. Þetta fólk er allt eins. Það er nokkuð um liðið nú síðan ég varð þess fullviss að ég væri staddur í helvítinu miðju og myndi vísast aldrei öðlast hlutdeild í hinu staðlaða ríki útvalinna. Ég var fyrir nokkru staddur á flugstöð í Lundúnaborg þar sem ég þurfti að dveljast hálfan sólarhring sakir þess að flugvélinni, sem skyldi flytja mig áfram til meginlands- ins, seinkaði alveg látlaust. Ég varð fljótlega þreyttur á biðinni og ákvað í leiðindum mín- um að kaupa mér eitthvert tímarit til að lesa. Ég sá fyrir framan mig gríðarlegan fjölda þeirra í þar til gerðum hillum. Eins og að líkum lætur var tímaritum þessum vandlega skipt eftir kynjum, í karla- og kvennatímarit. Af augljósum ástæðum varð mér fyrst fyrir að kanna karlatitlana. En hvílík vonbrigði. Eftir skamma stund við staflana fór mig að gruna að eitthvað væri stórlega bogið við mína karlpersónu. Það var alveg sama hvemig ég leitaði og fletti. Ég fann ekkert sem ég hafði minnstu löngun til að lesa. í næstu andrá rann upp fyrir mér sltín- andi Ijós. Ég hafði gleymt að fylgjast með þróuninni; ég var orðinn að nátttrölli í sam- tímanum, eins konar eyland svo afskekkt að það myndi aldrei lenda á korti, kannski aldr- ei finnast. Skilaboðin, sem mér bárast, voru alveg klár. Hinn staðlaði nútímamaður hefur óseðj- andi áhuga á bílum, einkum jeppum, hrað- skreiðum bátum og rennilegum skútum, alls kyns óskiljanlegri tækni, vöðvasöfnun og ýmiss konar rándýrri líkamsrækt, skotveið- um og síðast en ekki síst strípuðum þokka- gyðjum í vægast sagt vafasömum stellingum. Það vora þung spor sem ég gekk að kvenna- blaðastæðunni og valdi mér tímarit um hús og innréttingar. Ég lötraði burt frá blaðagrindunum og lak niður í sætið mitt. Það era vissulega alvarleg tímamót í lífi eins manns þegar rennur upp fyrir honum að heimurinn hefur afneitað honum sem gömlu og ónýtu skrani. Ég fór að ásaka sjálfan mig fyrir heimótt- arskap minn, gamaldags viðhorf og almenna sveitamennsku í hvívetna. Ég hefði náttúr- lega átt að fylgjast betur með, líta oftar í kringum mig og kanna stefnu tímanna og fylgja henni. Svo fór ég að mikla fyrir mér kosti þess að vera normal og varð æ þung- lyndari. Ég var minnsta karlmenni sögunnar. Ekki bætti verulega úr skák að ég sat milli tveggja Ameríkana sem greinilega voru nútimakarlmenn á heimsmælikvarða. Annar þeirra var svo mikilfenglegur í laginu að ég var eins og pípuhreinsari við hlið hans. Hann skoðaði líka vaxtarræktartímarit af óseðjandi áhuga. „Beautifúl, don’t you think,“ sagði hann og sýndi mér í blaði sínu karlmannsbrjóst sem vora eins og háir hólar, svo maður vitni nú í bókmenntimar. Ég var þá orðinn svo þrúgaður af vanmetakennd að mér kom í hug minn eigin brjóstkassi sem líklegri væri til að afla mér verðlaunasætis í Elíte- og Ford- stelpnakeppni en í samkeppni um karlmann- legt vaxtarlag. Hinn Ameríkaninn var niðursokkinn í jeppabílablað. Þar vora farartækin á svo ægilegum deklgum að minntu á stultur og ég sá í hendi mér að ég kæmist ekki hjálpar- tækjalaust upp í slíkan bfl, hvað þá að ég gæti ekið tröllinu. Það kom í ljós að húsa- og innréttingablaðið, sem ég keypti, var sér- blað um eldhús og klósett og jók það enn á raunir mínar fremur en hitt. En viti menn. Að einu leyti er mannskepn- an fúllkomin. Hún kann að búa sér til vamar- kerfi þegar að henni er vegið. Þessi hæfileiki kom nú í góðar þarfir. Ég fór smám saman að sætta mig við hlutskiptí mitt, síðan fór ég að vorkenna körlunum á flugstöðinni. Svona pottþétt er vamarkerfi mannsins, þessi nauðsynlega brjóstvöm þegar öll sund virðast lokuð. Lokaniðurstaða mín var sú að ég heyrði að vísu til hallærisgæjategundinni. Mér varð líka Ijóst að hún er óskaplega nauðsynleg til að hinir fái notið sín; þessi leikur byggist fyrst og fremst á metingi og samkeppni og himnaríki er lítils virði án almennilegs helvít- is. Flestir, sem ég þekki, em í flokki með mér og virðist líða bærilega eins og mér. Ég fann líka að áhugamál mín, þótt lítilsverð séu og ekki tæk í glansrit, fullnægðu mér alveg og helvíti hallærisfólksins var ekkert helvíti heldur líf venjulegs fólks sem þreyir þorrann, viðurkennir vanmátt sinn á ýmsum sviðum og blöskrar ekki að vinna fyrir sér með venjulegri vinnu. Alsæll í minni trú fór ég að lesa hallær- isblaðið mitt sem reyndist a.m.k. ágætt svefn- meðal og ég softiaði innan tíðar með mjúkt bros á vör. ÞÓRÐUR HELGASON ŒSBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. NÓVEMBER 1993 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.