Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1994, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1994, Qupperneq 1
Stofnuö 1925 Menntamál á lýðveldisafmæli 10. SEPTEMBER 1994 - 69. árg. „Það er tilhneiging nýskólastefnunnar að ofmeta tilfinningaþroska og dómgreind unglinga um leið og hún vanmetur vitsmunaþroska þeirra. Þessi tilhneiging birtist meðal annars í vígorðinu um að nemendur eigi að bera ábyrgð á eigin mámi...Afleiðingin er oft villuráf og vegleysa. “ GAGNSTÍGAR VERÐA AÐ GLAPSTÍGUM Vöxtur að er kunnara en frá þurfi að segja að síðastlið- in hálf öld hefur verið hreyfingamikil tíð á íslandi. Þjóðarskútan hefur siglt beggja skauta byr fram á við og skilið eftir sig röst á flestum mannlífsmiðum. Sú röst er óvíða greinilegri en Hugmyndafræði nýskólastefnunnar er nú að hverfa af vettvangi sögunnar í þeim löndum sem við sækjum einatt lærdómatil. Eftir KRISTJÁN KRISTJÁNSSON í menntamálum. Er þar nær að tala um byltingu en þróun, að minnsta kosti ef hug- að er að almennri skólagöngu og formlegu menntunarstigi fólks. Hvort þjóðin er orðin efldari að þroska, rammari að afli hugar og handa, sem þessu nemur er önnur saga; en allir nema glýjugjörnustu þáhyggjumenn, prímitívistar, hljóta þó að viðurkenna að forsendur slíks þroska ættu að vera aðrar og betri en fyrr. Örfá dæmi verða að nægja hér í upphafi um þessa menntunarbyltingu, flest þeirra almælt tíðindi sem staðfest hafa verið með athugunum:' Um 60% fólks sem nú er á áttræðisaldri hefur aðeins lokið skyldunámi eða ekki einu sinni því; þetta hlutfall er komið niður í um 20% hjá fólki á þrítugs- aldri og fer lækkandi. Um 15% einstaklinga úr fyrri hópnum lauk iðn- eða stúdents- prófi; hjá hinum nálgast hlutfallið nú 50%. I flokki sextugra íslendinga og eldri er tala þeirra sem brautskráðust úr háskóla langt innan við 5%, og stóðum við þar að baki öðrum Norðurlandaþjóðum; nú stefnum við í átt að 15% marki, í miðjum hópi frænd- þjóða. Áætlanir gera auk þess ráð fyrir að árið 2010 sinni um fjórðungur fólks á þrí- tugsaldri háskólanámi. Af gnótt slíkra dæma er að taka sem öll virðast sýna hve menntamál þjóðarinnar hafi gengið vel fram á undanförnum áratug- um. En hversu fróðlegt sem það kann að vera að rýna í tölur þá taka þær ekki af okkur ómakið að spyija ýmissa grundvallar- spurninga: Hvað hefur í raun áunnist? Hveiju er enn ábótavant? Hvert stefnum við? Stöndum við þannig endilega jafn traustum fótum og hlutfallsreikningar benda til? Eitt er að tölur geta verið viðsjál- ar: Ef við miðum framlag til menntamála við hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu skip- um við til dæmis virðingarverðan sess í miðjum hópi OECD-ríkja; en sé því gaumur gefinn hversu ung þjóðin er, og framlagi okkar til þessa málaflokks (sem er rúmlega 6%) deilt upp í hlutfall aldurshópsins 0-29 ára af þjóðinni í heild, rýrnar staða okkar mjög í alþjóðlegum samanburði.2 Annað er að þegar skyggnst er undir yfirborðið kemur í ljós að viðhorf okkar til menntamála mótast af ýmsum þversögnum, þversögnum sem ef til vill einkenna íslenska þjóðarsál. Þannig er það hárrétt hjá Jóni Torfa Jónassyni að landsmenn virðist hafa mikla trú á gildi menntunar; slíkt komi víða fram í ræðu og riti og umfram allt í vexti skólakerfísins.3 Að auki má vitna í nýlega lífsgildakönnun þar sem 81% fólks lýsti yfir „miklu“ eða „nokkuð miklu" trausti á menntakerfinu.4 En hinu má halda fram með jafnsterkum rökum, sem drepið verður á síðar í ritgerðinni, að vísinda- og fræði- mennska njóti hér minna atlætis á opinber- um vettvangi en meðal annarra siðmennt- aðra þjóða. Við búum að ríkri he::ð klassískrar „skóla-speki“, er ég vil nefna svo, og á þá við kenningar manna á borð við Sigurð Nordal, Guðmund Finnbogason, Sigurð Guðmundsson og Þórarin Björnsson er allar hallast á þann gríska meið að stefnu- mið skólagöngu sé mannrækt, þroski ein- staklingseðlisins. En á sama tíma hefur þessi hefð ekki náð að móta yfirbragðið á hagnýtri skólamálaumræðu, sem lengstum hefur verið harla fátækleg. í stað þess að eignast þar samfellda, innlenda umræðuhefð á gömlum grunni höfum við gert okkur að góðu endurkast erlendra hræringa sem átt hafa misvel við íslenskar aðstæður. Nesja- mennska og alþjóðrækni, þessir tveir lykil- þættir íslendingseðlisins, elda að venju grátt silfur og gengur illa að finna sér sáttar- stað. Vanvirðum við ekki einatt það besta úr íslenskum menningararfi, sem við hömp- um þó óspart á tyllidögum, en kollhlaupum okkur síðan á eftiröpunum þess sem útlent er, þótt við afneitum því í orði? Ætlast má til af ritgerð sem þessari að hún reki og reifi þær áleitnu spurningar um stöðu menntamála þjóðarinnar sem minnst

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.