Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1994, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1994, Page 2
var á hér að framan. En þar á ég um mik- inn vanda að mæla. í fyrsta lagi hef ég sjálfur, og ýmsir sem hugsað hafa á svipuð- um nótum um menntun og skólamál á síð- ustu árum, svo sem Atli Harðarson heim- spekingur og Helga Siguijónsdóttir kenn- ari, þegar ritað ógrynnin öll um þetta við- fangsefni. Til að forðast stagl hlýt ég því víða að vísa í eldri skrif, án mikilla skýr- inga. í öðru lagi setur lengd ritgerðarinnar mér þröngar skorður. Á ég einkum að rekja sögu menntamála á íslandi frá lýðveldis- stofnun? Á ég fremur að huga að því sem vel hefur til tekist en hinu sem miður hefur farið? Alsiða er á hátíðarstundum að líta umfram allt á björtu hliðarnar. Þær eru ýmsar á menntasviði: Þegar íslendingar hleypa heimdraganum og sækja nám erlend- is standa þeir sig yfirleitt vel og eru þjóð sinni til sóma, en það virðist benda til þess að heimanfylgja þeirra sé ekki sem verst. Flestir snúa þeir til baka og mynda hér al- þjóðlegt net þekkingar frá þjóðum nær og fjær, net sem OECD-skýrslur segja einn helsta kostinn við íslenskt menntakerfi.5 Þrátt fyrir þessi fjölbreyttu erlendu áhrif höfum við að mestu sloppið við hina af- stæðiskenndu fjölhyggju, plúralisma, sem unnið hefur hervirki á skólastefnu marg- brotnari samfélaga, svo sem Bandaríkjanna, og gengur út á að öll lífsmarkmið séu jafn- réttmæt, öll lífsform jafngild, svo fremi að einhveijum detti í hug að velja þau. Hin „pólitíska rétthugsun" („political correct- ness“), sem er skilgetið afkvæmi þessa af- vegaleidda fijálslyndis, hefur þannig ekki orðið að vandamáli á íslandi: Við höfum enn nokkuð óbijálaða hugmynd um hlutlægan gæðamun á góðri menntun og slæmri, á skynsamlegum og óskynsamlegum lífshátt- um.‘ Nú er þar til máls að taka að ég er eng- inn sagnfræðingur og mun því ekki stað- næmast um of við sögulegar staðreyndir síðustu ára. Að auki tel ég hollt að minnast þess „hnykkiskötuhlutverks" heimspekinga sem Sókrates hélt svo mjög á lofti; þeim beri að stuða og stæla fremur en að gylla og glæsa. Því hyggst ég láta staðar numið við þau hróðrarefni sem drepið var á í síð- ustu efnisgrein og einblína í framhaldinu á átöluefnin; annmarkana á þróun mennta- mála og þá þætti sem óvænlegast horfir um við þessi tímamót í sögu þjóðarinnar. Gagnrýni er enda jafnan, að minni hyggju, forsenda framfara. í lokakafla ber ég svo fram úrbótatillögur og horfi ögn fram á veg, til næstu hálfrar aldar. Vaxtarverkir íslensk menntamál standa um þessar mundir frammi fyrir ferns konar megin- vanda. Hinn fyrsti er arfleifð „nýskólastefn- unnar“, er svo hefur verið nefnd; annar er uppeldislegt sið- og sögurof sem orsakast af breyttum þjóðfélagsháttum; hinn þriðji er tengslaleysi mennta og vísinda annars vegar, atvinnuvega þjóðarinnar hins vegar; og Tjórði vandinn er almennt virðingarleysi í samfélaginu gagnvart afurðum mennta- kerfisins; fræðimennsku og fræðimönnum. Þar sem öll þessi vandamál hafa skapast og/eða skinngast á lýðveldistímanum ætla ég að gera greiningu þeirra og úrlausn að meginumræðuefni mínu hér, og þá fyrst nýskólastefnuna. Sjálft hugtakið „íslensk nýskólastefna" er að minnsta kosti þrírangt, án þess að ég geti þó fundið annað betra. Stefna þessi var ekki byggð á nýjum hugmyndum þegar hún kom fram, hún var ekki ný-sköpuð á íslandi heldur sótt í erlendar fyrirmyndir og hún er ekki lengur ný þegar þetta er ritað; víninu hefur fyrir löngu verið rennt úr kerum hennar og aðeins dreggjar af- gangs. Eftir situr hins vegar heil kynslóð kennara sem geldur þess að hafa bergt á þessum drykk. Helga Siguijónsdóttir hefur Islendinga mest skrifað um nýskólastefnuna og áhrif hennar hér á landi og er ég í stór- um dráttum sammála greiningu hennar á tilurð og eðli stefnunnar.7 Helga vanmetur þó ef til vill hve skrælnuð sú trúgirnishít var sem hinar „nýju“ hugmyndir láku í á 7. áratugnum. Það er að vísu rétt hjá henni að 1946 voru sett hér á landi ný framsæk- in fræðslulög sem rpótuðu skólastefnu næstu áratuga. En þegar kom að því að framkvæma anda laganna gleymdist að huga að því að landsmenn voru að ganga í gegnum mesta breytingaskeið í sögu sinni. Nánast ekkert nýtt námsefni var gefið út og kennsluhættir, sem enn voru að nokkru læstir í fjötra viktoríansks yfirheyrslu- og minnisstagls, færðust lítt til nútímalegra horfs.8 Þegar kom fram á 7. áratuginn má segja að íslenskt skólakerfí væri orðið að eldsmat sem beið neistans. Þörf var á sinubruna - en við fengum skógareld. Log hans tendrað- ist ekki upphaflega í Svíþjóð, eins og vin- sælt hefur verið að halda fram, heldur í Bandaríkjunum þar sem menn höfðu nokkru fyrr hafið dauðaleit að nýrri menntastefnu er jafnað gæti upp hið óviðunandi forskot sem óvinurinn í austri virtist hafa náð með því að senda á loft fyrsta mannaða geimfar- ið. Afsprengi þessarar leitar var nýskóla- stefnan, sérkennilegt sambland eftirhreytu- hugmynda úr 18. aldar heimspeki, vísinda- legri aðferð pósitívismans, sem átti blóma- skeið á fyrri hluta aldarinnar, og nýlegri sálfræðikenningum um stigveldi vitsmuna- þroska. Úr fyrstu áttinni komu hugmyndir um börn sem góð og skynsöm í eðli sínu og nám sem náttúrulegt ferli er ætti sér stað, án beinnar tilsagnar, svo fremi að ekki væri gripið inn í það með óþarfa stýr- ingu. Úr annarri áttinni barst boðskapur um vísindin sem beijatínslu; allrar sannrar þekkingar væri leitað með því að tæma föt- ur hugans af forþekkingu og fordómum en trítla þess í stað út í náttúruna og lesa ber hennar. Að lokum þóttust talsmenn nýskóla- stefnunnar hafa himin höndum tekið er þeir rákust á kenningar um þrep vitsmuna- þroskans og (rang)túlkuðu svo að sá tröppu- gangur væri eins hjá öllum. Ég hef áður afhjúpað ýmsar heimspeki- legar villur sem liggja nýskólastefnunni til grundvallar og bent á hvernig hún endar í agalausum ratleik í stað náms; flathyggju og samheimsku í stað einstaklingsþroska.9 Ég hef spurt spuminga eins og þeirra hvem- ig sjálfvalin verkefni geti fullnægt náms- þörfum bama þegar margar þær þarfir séu ekki til nema sem afleiðingar náms; hvernig unnt sé að leita þekkingar á markvissan hátt nema vita nokkum veginn fyrirfram hvar og að hveiju eigi að leita; hvort virkni sé ekki fremur innri hugarstarfsemi en handapat og fálm; hvort unnt sé að læra án endurtekningar og tamningar; hvort hægt sé að skilja eitthvað án þess að læra um það fyrst; hvort vald á eigin tungumáli sé ekki frumforsenda skynsamlegrar hugs- unar og svo framvegis. Eða með öðrum og einfaldari orðum: Veit nokkur að hann hafi þörf fyrir tónlist Mozarts fyrr en hann hef- ur hlustað á hana? Gefur ekki umfram allt í gerða spyrðu? Verður það ekki hveijum að list sem hann leikur? Er ekki einum of lengi að fjúka til sátunnar? Þannig mætti lengi spyija; en þar sem svörin ganga fram af fyrri skrifum okkar Helgu og fleiri er óþarfi að endurtaka þau hér. Nær lagi er að huga ögn að raunveruleg- um afleiðingum nýskólastefnunnar á íslandi frá lokum 7. áratugarins og fram á okkar daga. Leyfi ég mér þar að vitna í tvö einka- bréf sem mér bárust í fyrra og hitteðfyrra frá föður drengs sem var að hefja skóla- göngu sína. í fyrra bréfinu segir meðal annars: Ég hef aðeins fengið að kynnast þeirri flathyggju sem þú klagaðir. Sonur minn byijaði í skóla þann 9. septem- ber. Hann hlakkaði mikið til og von- aðist til að æfa þar lestur, reikning og sund. Þar sem hann hefur áhuga á öllum þessum þremur greinum kann hann dálítið í þeim öllum en vill bæta sig. Nú er hann að verða úrkula von- ar um að læra neitt í skólanum því í þær sex vikur sem liðnar eru hefur hann verið að leira stafina, lita þá, syngja þá, dansa þá og skoða á ýmsa lund. Þetta er hann látinn gera í þeirri trú að sex ára krakkar séu of vitlausir til að gera neitt af viti. í síðara bréfinu er faðirinn kominn á þá skoðun að kennurum sonarins hafi verið innrætt mjög furðuleg viðhorf í námi sínu: Þessi viðhorf birtast meðal annars í ranghugmyndum um að það megi aldrei halda neinu efni að krökkum fyrr en þeir sjálfir hafí sýnt því áhuga og gefið til kynna að þeir séu tiibún- ir að taka við því. Dæmi: Ég spurði kennara í 7. ára bekk hvers vegna hún setti börnunum ekki fyrir skriftaræfingar. Svarið var: „Ég er að bíða eftir því að þau fái áhuga." Það lá í orðunum að hún væri alveg tilbúin að bíða í tíu ár. Annað birting- arform þessarar fílósófíu er sú skoð- un að einstök þekkingaratriði (eins og ártöl, mannanöfn, ömefni, reikni- reglur) séu einskis virði; ekki skuli kenna þau í skólum, hvað þá að for- eldrar haldi þeim að bömum sínum. Aðalatriðið sé að nemendur temji sér einhveija allsheijarvisku sem er hafin yfir einstakar námsgreinar...Þriðja kreddan er sú að aldrei megi flokka fólk né gefa í skyn með nokkmm hætti að einn standi öðram framar. Þessar ívitnanir segja meira en mörg orð, meira en nokkur fræðileg sundurhlutan. Ég vildi þó mega bæta einu atriði við sem ekki kemur fram í þessum bréfum en Helga og Atli Harðarson hafa bæði gert ágæt skil. Það er tilhneiging nýskólastefnunnar til að ofmeta tilfinningaþroska og dómgreind unglinga um leið og hún vanmetur vits- munaþroska þeirra. Þessi tilhneiging birtist meðal annars í vígorðinu um að nemendur eigi að bera ábyrgð á eigin námi; þeir skuli sem fyrst velja sjálfir milli þeirra kosta sem skólinn býður upp á (til dæmis í „krambúð" framhaldsskólans eftir að grannskóla lýkur) í stað þess að skólinn taki þá í læri og beri ábyrgð á að mennta þá.'° Afleiðingin er oft villuráf og vegleysa; gagnstígar verða að glapstígum vegna þess að enginn tekur af skarið og segir unglingnum hvað honum sé fyrir bestu þegar hann er ekki fær um að meta það sjálfur." í kirkjusögu Espóiíns segir svo frá um- bótahugmyndum 18. aldar hugsuða á borð við Rousseau að þeir hafi réttilega að því fundið hvernig „orðalærdómurinn hafi þrengt mönnum til að nema það margt er ei var vert að muna“; þá hafí hins vegar verið „steypt um allt í einu og ungmennum kennt með einni saman taumlausri mildi, heimt ei að tryði öðru en þeim skildist, eða skyldi nema nokkra hluti orðrétt, og kennt þeim mest í gamni það er þurfti til daglegs lífs...“12 Sagan endurtekur sig; og Espólín gæti hér allt eins hafa verið að lýsa fram- gangi nýskólastefnunnar eins og hún birtist í anda og þó einkum framkvæmd grann- skólalaganna frá 1974.13 Ég líkti stefnunni hér áðan ýmist við göróttan drykk sem lek- ið hefði í trúgimishít eða skógareld sem fór um lendur þar sem sinubruni hefði nægt. Báðar líkingamar standa heima og fallast raunar í faðma: Breytinga var þörf í skóla- málum; borið var fram gamalt vín á nýjum belgjum en það reyndist slíkt eldvatn að funinn sem af því kviknaði brenndi jafnt nytjaskóginn sem sinuna. Hugmyndafræði nýskólastefnunnar er nú að hverfa af vettvangi sögunnar í þeim lönd- um sem við sækjum einatt lærdóma til. Hægri menn áttuðu sig smám saman á því að hún vanvirti hefðgróin gildi sem halda þjóðfélaginu saman; vinstri menn að hún byggðist á vélrænni afkasta- og markaðs- hugsun fremur en fullnægingu mannlegra þarfa; hugsandi fólk af öllu tagi að hún stóðst ekki heimspekilega skoðun. Við „branaliðsmennimir" á Islandi getum og brátt lokið störfum því einnig hér er stefnan að kulna út. Við tekur hins vegar mikil sýslan að græða þá sviðnu jörð sem hún skildi eftir sig víða um lendur. Síðari hluti birtist í næstu Lesbók. Tilvísanir Ritgerðin var samin að tilstuðlan Listahátíðar í Reykjavik 1994 fyrir málþingið „Tilraunin Island í 50 ár“. 1 Sjá einkum Jón Torfi Jónasson, „Vöxtur menntun- ar á íslandi og tengsl hennar við atvinnulíf", Menntun og atvinnulíf (Reykjavík: Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla um menntun og þjálfun f tengslum við CO- METT, 1992); og einnig Jón Torfi Jónasson, Menntun og skólastarf á Islandi í 25 ár 1985-2010 (Reykjavík: Framkvæmdanefnd um framtíðarkönnun, 1990; sérrit 2). 2 Sjá Menntun og atvinnulíf, bls. 76-77. 3 Sjá Menntun og skóiastarf á íslandi, bls. 17. 4 Friðrik H. Jónsson og Stefán Ólafsson, Úr lífsgilda- könnun 1990: Lífsskoðun í nútímalegum þjóðfélögum (Reykjavík: Félagsvísindastofnun, 1991), bls. 45. 5 Sbr. Kristín Einarsdóttir, „Markmið menntunar með hliðsjón af úttekt OECD á vísinda- og tækni- stefnu íslendinga", BHMR tíðindi, 6 (5) (1993). 6 Nánari lýsingu á ólíkum tegundum fjölhyggju er að finna í ritgerð minni, „Hvað er alhiiða þroski?“, Þroskakostir (Reykjavík: Rannsóknarstofnun í sið- fræði, 1992). 7 Sjá einkum greinaflokk hennar um nýskólastefn- una sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins í febrúar og mars 1993; fyrsta greinin, „Nýskólastefna - bylt- ing eða þróun“, hinn 6. febrúar. 8 Sjá t.d. gagnrýni Ingvars Sigurgeirssonar á skrif Helgu í „Fordómar í fræðafötum“, Lesbók Morgun- blaðsins, 15. maí 1993. Helga bendir þó réttilega á að ekki megi alhæfa um fjötra gamaldags kennslu- hátta; alla öldina hafi verið til framsæknir kennarar á landinu sem boðað hafi og breytt í anda „nýskóla- stefnu“ í jákvæðari merkingu þess orðs. Sbr. erindi hennar, „Nýskólastefnan", flutt sem opinber fyrirlest- ur við Háskólann á Akureyri, 5. mars 1994 (ópr.). 9 Sjá ýmsar ritgerðir í IV. hluta Þroskakosta, „Mál og menntun". 10 Þessu er öllu skilmerkilega lýst í grein Atla Harð- arsonar, „Hvað er ábyrgð?“, Ný menntamál, 11 (3) (1993). 11 Helga Siguijónsdóttir lýsti þessu villuráfí á eftir- minnilegan hátt í erindi sinu, „’Þetta er mitt mál’ - um frelsi og sjálfstæði unglinga og ábyrgð þeirra á eigin gjörðum", fluttu á málþingi Siðfræðistofnunar í Háskóla íslands, 15. nóvember 1992 (ópr.). Sjáeinn- ig 2. kafla bókar hennar, Skóli í kreppu (Kópavogur: Náms- og foreldraráðgjöfin, 1992). 12 Ingi Sigurðsson (ritstj.), Upplýsing og saga: Sýnisbók sagnaritunar Islendinga á upplýsingaröld (Reykjavík: Rannsóknastofnun í bókmenntafræði og Menningarsjóður, 1982), bls. 171. 13 Með þeim lögum voru þó stigin ýmis framfara- spor er vörðuðu t.d. skólabókasöfn, sérkennslu- úrræði, ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í skólum og endurmenntun kennara. Höfundur er doktor í heimspeki og lektor viö Háskólann á Akureyri. GRÉTAR HALLDÓRSSON Endurfundir við Cambridge Og ég stóð þar á Silfurbrúnni og grét. Tárin féllu í ána og flutu burt sem perluband um borgina sem varðveitir minninguna um stundir með þér eins og fjársjóð. Og grátviðurinn tekur undir, drúpir hnípinn að árborðinu myrku og hvíslar sorg minni yfir leyndarmálum okkar. Áin, þar sem við stjökuðum flatbytnum undir Andvarpsbrúna geymir þau í djúpum sínum. Seinna hvíslar hún að mér - ... og kannski þér. Og þá eins og forðum munu litlir, svartklæddir kórdrengir hraða sér til Kóngsskóla kapellu, ganga í prósessíu að syngja hinn sanna, hreina tón svo háan, tindrandi og tæran fyrir mig - ... og kannski þig - okkur bæði. Og af hæðinni fyrir ofan Kissubeijaijóður horfi ég yfir borgina og sé að þar liggur saga okkar eins og þunn slæða undir nýrri og framandi sögu. Og ég vitja hennar hikandi — ... og kannski þú - við bæði. Höfundur er kennari. ERLING ERLINGSSON Garður án blóma Ég geng einstíg í veröld horfandi á blómin sem vakna af dvala, leita í Ijósið horfi út. Ég held á blómi himins lítið bam sækir Ijós í huga mér. Höfundur er markaðsfræðingur í Reykjavík.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.