Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1994, Síða 4
CUTLER liðsforingi rýnir í leyndarskjöl á skrifstofu ræðismanns Þjóðverja. Mynd af höfði Hitlers, sem dr. Gerlach
hafði á borðinu sínu, virðist horfa á með greinilegri vanþóknun.
Friðsamleg
innrás í ísland
MAÍ síðastliðnum voru fímmtíu og fjögur ár liðin frá
því að bresk herskip sigldu inn á Reykjavíkurhöfn,
hermnn stigu á land og tóku Reykjavík og þar með
ísland. Hemámið fór eindæma kurteislega fram,
enginn maður lét blóðdropa svo að vitað sé.
Hér segir liðsmaður í
innrásarher Breta frá
förinni til íslands í maí
1940. Undirbúningurinn
var ekki merkilegur,
sjóveikum hermönnum
var kennt að nota byssur
á leiðinni og með í
förinni var einn
uppdráttur af Reykjavík,
teiknaður eftir minni.
Eftir MICHAEL
McCONVILLE
Þessi herför markar varla kaflaskipti í hern-
aðarsögunni en hún olli meiru í íslandssög-
unni.
Þegar þetta var hafði heimstyijöldin staðið
í átta mánuði. Stöðugt seig á ógæfuhliðina.
Þjóðveijar höfðu nýlega vaðið yfir Danmörku
og voru nú að ljúka við að leggja Noreg und-
ir sig. Örlög Belga, Frakka og Hollendinga
voru hér um bil ráðin. Bretar voru uggandi.
Þeir áttu líf og sjálfstæði undir greiðum sigl-
ingum yfír Atlantshafið. Ljóst var að þeir sem
itök hefðu á íslandi mundu ráða miklu á þess-
um siglingaleiðum og því hugðust Bretar
koma hér upp flug- og flotastöðvum. Að öðr-
um kosti gætu Þjóðveijar hreiðrað um sig
og tekið fyrir flutningana sem Bretar reiddu
Bi£ á.
I fyrra kom út í Bretlandi bók sem nefnist
„Nothing Much to Lose“ - Litlu að tapa -
og er eftir Michael McConnell. Þar segir frá
herförinni til íslands. Frásögnin byggist bæði
á opinberum skýrslum frá stríðsárunum og á
endurminningum hermanna sem þátt tóku í
innrásinni. Hér verður gripið þar niður í bók-
ina sem innrásarliðið er að leggja af stað.
****** ********* *****
Klukkan korter í fjögur að morgni áttunda
maí árið 1940 lögðu beitiskipin Berwick og
Glasgow úr höfn í Clyde-fírði á vesturströnd
Skotlands. Þeim fylgdu tveir tundurspillar.
Nú voru beitiskipin í farþegaflutningum. Hér
var saman komið 2. herfylki Konunglega
landgönguliðsins, sjö hundruð manns, þar að
auki loftvamabúnaður, strandvamabúnaður
og ekki má gleyma Sturges ofursta, sem
stjómaði leiðangrinum, og liði hans sem
manna átti höfuðstöðvamar á íslandi.
Annað landgöngufylkið var ekki nema
mánaðargamalt. Liðsforingjamir, bæði skip-
aðir og óskipaðir, vom reyndir atvinnumenn
en landgönguliðamir voru flestir nýgræðing-
ar, höfðu verið kallaðir eða boðið sig fram
til herþjónustu. Þeir höfðu gengist undir
grundvallarþjálfun og vom orrastufúsir en
óneitanlega vom þeir ekki orðnir eins vígfær-
ir og best varð á kosið.
Þegar þeir komu um borð í beitiskipin var
þeim gert að'troða sér til rúms hvar sem þeir
gátu. Mjög var þröngt á þingi og aðbúnaður-
inn náttúrulega óbrotinn. En sjóliðamir gerðu
eins vel við farþegana og þeir gátu og tóku
því með stakri ró að hátt í þúsund manns
mddust inn á þá með hergögn og vistir og
annað hafurtask.
Skipalestin var brátt komin á skrið, tuttugu
og tveggja hnúta’ meðalhraða, en ekki leið á
löngu þar til norðvestanstormur skall á henni
og hraðinn fór niður í fímmtán hnúta. Veðrið
seinkaði skipunum ekki aðeins, það olli líka
annarri bölvun. Landgönguliðamir lögðust
unnvörpum í Sjóveiki. Ekki varð það til að
bæta umgengnina neðanþilja. Sjóveikin gerði
líka að verkum að menn urðu mjög þreyttir
og slæptir og lítt til stórræða búnir. Það má
nefna Jimmy Wakeling undirlautinant til
dæmis. Hann hafði verið hækkaður í tign í
snatri fyrir leiðangurinn og gerður að starf-
andi kapteini. Hann hélt upp á stöðuhækkun-
ina í koju sinni og varð undirmaður hans að
mæta í hans stað á alla þá áríðandi fundi sem
haldnir vom seint og snemma og hér og þar
um skipið. Efnt hafði verið til leiðangursins
í skyndi, margt var lítt undirbúið og annað
óundirbúið, herfylkið ekki fullþjálfað og enn
vantaði ýmislegt á útbúnaðinn. Það var því
ekki að undra þótt mikið gengi á.
Vélbyssum og sprengjuvörpum hafði verið
skipað umsvifalaust um borð þegar þær bár-
ust frá verksmiðjunum og vom þær enn í
kössum. Þeir vom svo opnaðir úti á rúmsjó,
foringjar kenndu landgönguliðunum á vopnin
og þeir æfðu sig með því að skjóta á sjó út.
Þegar farið var að huga að sjálfri land-
göngunni kom á daginn að ekki voru nema
þijú kort um borð. Eitt var lítið íslandskort,
þá kort af Reykjavík og nágrenni, nokkm
stærra en þó ekki nógu stórt, og loks upp-
dráttur af Reykjavík sjálfri. Hann var eftir
-L
íslenskan túlk í förinni, teiknaður eftir minni.
Þarf engan að undra að uppdráttur sá væri
ekki hárnákvæmur. En hann dugði til síns
brúks og flokksdeildarforingjamir fengu hver
sitt afrit af honum.
Enginn vissi með neinni vissu hvernig Is-
lendingar mundu taka innrásinni. Enginn her
var fyrir í landinu en vitað var að lögreglan
hafði riffla undir höndum. Talið var að einir
tvö hundruð Þjóðveijar væm í landi og sum-
ir vopnaðir. Þó nokkrir þeirra voru taldir
njósnarar en flestir vom þó venjulegir sjó-
menn og höfðu orðið strandaglópar, skip
þeirra ekki komist burt. Ráðgert var að hand-
sama alla þá Þjóðveija sem gruna mátti um
græsku. A Islendingum átti hins vegar að
taka með silkihönskum. Liðið átti að sjálf-
sögðu að ganga á land með bmgðin vopn.
En skotfæri vom skorin við nögl og hermönn-
unum var stranglega bannað að skjóta á ís-
lending nema hann miðaði á þá sjálfur og
gerði sig líkiegan til að hleypa af. Mjög var
þó talið ólíklegt að til þess kæmi. Hermönnun-
um var uppálagt að ögra landsmönnum alls
ekki en sýna þeim vinsemd og virðingu. Ekki
varð hjá því komist að hertaka byggingar og
svæði sem mikilvæg yrðu í átökum, flugvelli
og því um líkt, en hernámið átti að fara svo
friðsamlega fram sem kostur væri og íslend-
ingar skyldu hvattir til að láta eins og ekk-
ert hefði í skorist og sinna sínum erindum.
Kveðið var á um að ekki mætti taka Alþingis-
húsið og skyldi engu liði stefnt þangað.
Klukkan fimm að morgni tíunda maí sást
til ljósa í Reykjavík og þótti liðsmönnum það
heillandi sjón, því sjálfir höfðu þeir búið við
myrkvun í átta mánuði. Í sama bili brast á
hríðarél en það stytti fljótt upp aftur. Beiti-
skipin sigldu upp undir ströndina og vörpuðu
akkerum. Tundurspíllirinn Fearless sigldi upp
að Berwick. Búið var að fylkja liði á þilfarinu
á Berwick og biðu þar undirfylki A og þeir
sem manna áttu höfuðstöðvarnar. Voru sum-
ir allslæptir eftir sjóveikina. Menn fíkruðu sig
nú niður mjóa og sleipa landganga og niður
í Fearless, sem lagði síðan frá, sigldi inn á
innri höfnina og lagðist að biyggju. Veður
var mjög kalt en hins vegar orðið fullbjart
þótt snemmt væri morguns.
Þegar Fearless var lagst að klöngraðist
Cutler majór upp á bryggju og undirfylkið á
hæla honum og síðan kom flokkur merkja-
manna undir stjórn George Landers liðþjálfa.
Cutler, flokksdeildin sem Podmore lautinant
stjómaði og merkjamenn Landers lögðu nú
óðara leið sína þangað sem mikilvægast þótti,
heim til ræðismanns Þjóðveija. Gekk liðið í
halarófu og hafði hraðann á. Einn íslenskur
lögregluþjónn hafði verið á bryggjunni þegar
herinn gekk á land en hann hafði ekkert við
innrásina að athuga. Á leiðinni í ræðismanns-
bústaðinn mætti liðið stórum fólksbíl fullum
af veislugestum. Ekki er gott að vita hvað
þeir hugsuðu þegar þeir sáu erlent herlið
þramma í fúlustu alvöru gegnum miðbæinn
en hvorki námu þeir staðar né spurðu hvað
um væri að vera.
Ræðismaðurinn bjó í stóru einbýlishúsi.
Cutler barði hressilega að dyrum. Liðsmenn
hans tóku sér snarlega stöðu framan við
húsið. Hár maður og horaður kom til dyra
og skipaði þeim að hafa sig á brott. Hann
sagði til nafns og kvaðst vera Walter Gerlach,
ræðismaður Þýskalands á íslandi. Cutler
sinnti ekki kröfu Gerlachs heldur skipaði hon-
um að vekja konu sína, böm og starfslið og
segja þeim að búast til brottferðar.
Gerlach fór upp á loft. Þar misnotaði hann
þann frest sem honum var gefínn til að klæð-
ast og vekja starfslið sitt; sópaði hann saman
allmiklu af leyndarskjölum, fleygði þeim í
baðkerið og lagði eld að. Þegar brunalyktina
lagði niður stigann snaraðist Cutler majór
upp og á hæla honum landgönguliði einn.
Cutler hafði verið svo forsjáll að láta þann
mann taka með sér slökkvitæki. Þeir ruddust
nú inn í baðherbergið og landgönguliðinn
slökkti í skjalahaugnum. Það fer ýmsum sög-
um af viðureigninni í baðherberginu og hugs-
anlegt er að veruleikinn hafi lagast eitthvað
NICK Williams ofursti í 2. landgöngufylkinu stjórnar aðgerðum innrásar-
manna á hafnargarðinum í Reykjavík.
4