Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1995, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1995, Side 2
 HLUTI freskunnar í Landsbankanum: Sjósetning - máluð svo til nákvæmlega eftir ljós- SJÓSETNING. Ljósmynd tekin í Grindavík 1924. myndinni til hægri. íþesskonar notkun tækninnar hefur Kjarval einnig verið brautryðjandi. TÍMAMÓT1929: Hér tekur Kjarval fyrir alvöru stefnuna á landslagsmálverk- ið. Myndin sem hér sést, Hrafnabjörg, eru frá því ári. til þessa komið fram sem skyldi, hvað Kjarv- al var á næstu árum á eftir undir sterkum áhrifum frá dönskum módemisma. Hún bendir á að athyglisvert sé að bera saman verk eftir danska málarann Jais Nielsen: Sir- kussýning-Loftfimleikamenn og vel þekkt málverk Kjarvals, íslenskir listamenn við skilningstréð, málað 1918. í báðum verk- unum er horft niður á hringlaga svið þar sem loftfimleikamennirnir eru hjá Nielsen, en hin- ir íslenzku listamenn hjá Kjarval. Þessi sam- líking sýnir líka hvað Kjarval tókst vel að vinna úr sínum áhrifum á persónulegan hátt. Málverk Nielsens er mjög franskættað og undir kúbískum áhrifum. Þau sjást hinsvegar ekki í mynd Kjarvals og í hestunum sést sú persónulega og sérstæða útlínuteikning sem oft átti eftir að einkenna verk hans. Skömmu síðar málaði hann það dulmagn- aða verk Jónsmessunótt með þeysiríðandi mönnum sem virðast verða viðskila við hest- ana og þyrlast upp eftir óraunverulegu lands- lagi og hrapa síðan niður. Þarna virðist mér að sé mest nálgun við verk og hugmyndir Einars Jónssonar, annaðhvort um endurfæð- ingu eða eilífa hringrás. En svo aftarlega vorum við á merinni þegar Kjarval sýndi verkið í Reykjavík 1919, að ekki virðist hafa verið hægt að meta það nema út frá raun- sæislegu sjónarmiði. Um myndina sagði svo í Vísi: „Ég kann ekki að meta þessa hryggbrotnu og sliguðu húðarjálka. Þeir vekja hjá mér viðbjóð og ándstyggð á þessum skrípalátum og Jónsmessustemmningin fer út um þúfur". Á þessum mótunarárum liggur leið Kjarv- als til Frakklands og Ítaiíu. Frá þeim tfma er Skógarhöllin, frábærlega stílfærð skógar- mynd, sem höfð er í öndvegi á sýningunni. Það hefur verið 'skemmtilegur tími í lífi málar- ans_ þegar hann fór ásamt Tove konu sinni til Ítalíu snemma árs 1920. Það voru ekki bara sjónlistimar allt um kring í Róm sem örvuðu hann, heldur einnig sígilt bókmennta- verk Dantes, La divina eomedia. Samnefnd rauðkrítarmynd Kjarvals með heimspekilegu og tilvistarlegu inntaki er meðal mynda á sýningunni. Frá hinni eilífu borg skrifaði Kjarval Einari Jónssyni bréf, þar sem stend- ur m.a. svo um rústir Rómaborgar: „Þær virka á mig sem skopleikúr hins materialla mannsanda - tragisk og brjálsemislega virka þærámig- það fyrirgefanlegasta eru minnis- borgirnar og heiðurshliðin- þau eru bæði falleg og manneskjuleg listaverk eða gætu verið“. Fjölhæfnín ÞÓTTI GALLI Þegar líður á þriðja áratuginn, taka að birtast landslagsmyndir frá hendi Kjarvals, sem gefa vísbendingu um komandi ár. Mál- verk af Hrafnabjörgum frá árinu 1929 er þar á meðal; dæmigerð Kjarvalsmynd mundu margir segja. En jafnframt - það sama ár- málar hann aigerlega abstrakt, og það geó- metrískt, verk sem hann nefnir á sinn skáld- lega máta „Expanótíska artifisjón af lands- lagi. Það leið síðan og beið í rúm 20 ár þar til tízkan bauð þeim sem þá voru nýkomnir frá París að mála ekki ósvipaðar myndir. Önnur mynd, Dverghamrar, einnig frá árinu 1929, sameinar abstrakt flatarmynd, kúb- isma og impressjóníska áferð og liti. Þetta sýnir að Kjarval hefur viljað reyna flestar stíltegundir og jafnvel að blanda þeim sam- an. Hann var uppfullur af áhuga á kúbisma úti í Kaupmannahöfn árið 1917 eftir því sem Magnús Á. Árnason hefur sagt: „Hann tal- aði þá af svo miklum eldmóð um þá stefnu (kúbismann) að ekki var hægt annað en sann- færast um framtíð hennar og möguleika. “ Það voru samt slíkar tilraunir og eðlilegar þreifingar skapandi listamanns, sem fóru í taugarnar á sumum hér heima. Þeim fannst hann eins og reiðhestur sem hleypur upp af skeiðinu. „Ásgrímur vinnur í ákveðna átt og nær þar til fullkomnunar. Kjarval herjar út og suður“ sagði einn gagnrýnandi. Valtýr Stefánsson, ristjóri Morgunblaðsins, gerði þetta sama oftar en einu sinni að umkvörtunarefni í gagnrýni. Á sýningu sem Kjarval hélt 1924, gagnrýndi Valtýr málarann sérstaklega fyrir að vinna ekki saman hugmynd og mynd. Það er út af fyrir sig furðulegt aðfinnsluefni; lista- maðurinn einn veit hver hugmyndin er og enginn annar en hann getur dæmt um þetta. En þetta skilningsleysi á verkum Kjarvals virtist ekki dvína á næstu árum, segir Krist- ín G. Guðnadóttir í ritgerð sinni í sýningar- skránni. Og til þess að kveða niður fordóma og auka skilning á myndlist hóf hann útgáfu á blaði árið 1925 og nefndi það Essenisma. Þessi barátta virðist hafa gleymst í áranna rás; við höldum að Kjarval hafi alltaf verið óskabam þjóðarinnar og búið við aðdáun. Og vissulega átti hann sanna aðdáendur frá upphafi, menn eins og Guðbrand Magnússon, sem létu sig engu skipta þótt Kjarval hefði fleiri en eina liststefnu undir. „Kjarval hafði mótbyr á árunum 1922- 1926“, segir Kristín G. Guðnadóttir, „En eftir að hann sýndi mannamyndir, eða „haus- ana“ eins og þeir eru nefndir, breyttist við- horfið til hins betra. í viðtali við Lögréttu í apríl 1922, reynir Kjarval að svara fram kominni gagmýni og segir þar: „Sjálfum hefir mér verið borið á brýn, að jeg væri sjaldan sjálfum mjer líkur og sundur- leitur í verkum mínum og er þetta ekki að ósekju, því er fljótt á að líta fyrir þann sem heimsækir mig og sjer það sem jeg hefi gert að jeg muni ekki vera við eina fjölina felld- ur. Jeg er þessa fullvitandi og reyni ekki að skýla þessu, því þá færu landar mínir þess á mis að sjá hvernig unglingurinn hefir unn- ið meðan hann var að skoða heiminn, sem honum var ókunnugur, nema í munnmælum og kynjasögum." Þetta er athyglisvert vegna þess að enn á vorum dögum eru gagnrýnendur að pota í þá sem „heija út og suður“ og eiga það til að vera sundurleitir í verkum sínum. Með því merkasta sem liggur eftir Kjarval frá þessu tímabili er freskan í Landsbank- anum; minna þekkt verk en vert væri vegna þess að hún er þar á afleitum stað og fáir sjá hana. Jón Stefánsson hafði tjáð sig í mynd um landbúnaðinn á vegg í bankanum og það kom í hlut Kjarvals að túlka sjávarút- veginn. Þar hefur Kjarval m.a. málað síð- klæddar konur að stafla saltfisk á stakk- stæði, menn við útskipun á saltfiski og sjó- menn á opnum báti að ýta úr vör. Þar sem hann var öllu vanur til sjós, hef ég ævinlega talið víst að þessar myndir hafi hann teiknað án sérstakra fyrirmynda og byggt á minni. En nú hefur komið í ljós að svo er ekki. Eftir lát listamannsins fundust filmur í fórum hans og þar sjást fyrirmyndirnar. Annaðhvort hefur Kjarval sjálfur tekið mynd- irnar; brugðið sér á stakkstæðin úti í Skerja- firði, niður að höfn þar sem útskipunin fór fram og svo til Grindavíkur, þar sem myndað var þegar menn ýttu báti á flot, eða einhver hefur gert þetta fyrir hann. Hann notar þess- ar fyrirmyndir að vísu lauslega; gerir konur úr sumum körlunum á myndunum, en sjó- setninguna í Grindavík hefur hann teiknað nákvæmlega eftir ljósmyndinni. Það var árið 1925 að Kjarval lauk við freskuna í Landsbankanum og mun alveg óhætt að segja, að á þeim 70 árum sem síð- an eru liðin hafi kannski eitt jafn frábært verk verið unnið í opinbera byggingu og þar á ég við altaristöflu Nínu Tryggvadóttur í Skálholti. Það er merkilegt og jafnvel ótrú- legt, að svo litlum tíðindum þótti þessi freska í Landsbankanum sæta, að á hana var ekki minnst í dagblöðunum svo heitið gæti og engin gagnrýni skrif-uð um hana. Aðeins var minnst á það í smáfrétt í Tímanum, að Kjarv- al hafi lokið við myndinar og að þær séu „prýðilegar". VÖNDUÐ SÝNINGARSKRÁ Sýningarskráin sem Kjarvalsstaðir standa að í tilefni sýningarinnar er nýtt Kjarvals- kver, 50 blaðsíður. Hún er tvískipt. Ánnars- vegar er hin listfræðilega úttekt Kristínar G. Guðnadóttur á mótunarárum Kjarvals; hinsvegar sagnfræðileg úttekt á æviferli Kjarvals frá fæðingu 1885 til ársins 1930 eftir Ásmund Helgason,_ ungan sagnfræðing, sem ber nafn afa síns, Ásmundar Sveinsson- ar myndhöggvara. Þar er í stuttu máli farið yfir hvert ár fyrir sig á aðgengilegan hátt. Spyija mætti hvort ekki sé að bera í bakka- fullan lækinn að ráðast í slíka samantekt eftir allt sem búið er að gefa út um Kjarv- al. Þar má nefna Kjarvalsbók Helgafells með ritgerð Halldórs Laxness um listamanninn. Síðan hefur Björn Th. Björnsson skrifað um feril hans í myndlistarsögu sinni, Thor Vil- hjálmsson í sinni ágætu Kjarvalsbók og loks er að nefna ævisögu Kjarvals í tveimur bind- um eftir Indriða G. Þorsteinsson. Kristín G. Guðnadóttir taldi að full ástæða hefði verið að ráðast í þessa úttekt engu að síður. Fyrst núna, sagði hún, væri búið að safna saman öllum rannsóknargögnum. Mik- il vinna hefur verið lögð í að fara yfir öll dagblöðin, því það er fyrst og fremst þar sem heimildir er að hafa, og það gerði Ásmundur. Þar fyrir utan hefur Kristín leitað í dönsk- um dagblöðum og bréfasafn Kjarvals hefur verið skoðað vandlega. Hann stóð í bréfasam- bandi við marga og gerði þá stundum upp- köst að bréfum sínum og þau geymdi hann og lét eftir sig. Það er hinsvegar mun meira til af bréfum sem hann fékk frá öðrum. Til eru einnig handrit hans af ýmsu sem hann birti og þar leynist ýmislegt, til dæmis rit- gerð hans um fútúrisma. Allt sem fyrir ligg- ur og safnað hefur verið saman, hefur verið skoðað af sagnfræðilegri nákvæmni, segir Kristín, og telur samt að ekki séu öll kurl komin til grafar. Það er háttur virðulegra safna í útlöndum að gefa út viðamiklar sýningarskrár þegar merkar sýningar eru haldnar. Þetta eru stundum svo mikiir doðrantar að maður veigrar sér við því að bæta þeim við farang- urinn. Sýningarkráin um mótunarár Kjarvals er ekkert slíkt. En hún er þó nokkur bók. Ekki þó í flokki listaverkabóka með íjölda litprentana. Þetta er umfram allt textabók og myndirnar eru allar í svarthvítu. Þarna er á aðgengilegan hátt hægt að sjá hvað dreif á daga Kjarvals hvert ár fyrir sig fram til 1930. Tökum til dæmis það sem sagt er um árið 1915: „Kjarval virtist í léttu skapi á nýársdag 1915: „Mér líður veh.Jeg er grallaraleysisins maður og sendi bombur um víða veröld". Þann 17. mars kvæntist hann Tove Merrild og bjuggu þau á Max Miillersvej 3 í Kaup- mannahöfn. Hann lauk öðru ári sínu í Aka- demíinu um vorið og hóf þriðja námsár þá um haustið. “ Úr þessu verður líklega fátt alveg nýtt dregið fram í dagsljósið um Kjarval. Gildi samantektar Ásmundar og ritgerðar Krist- ínar liggur í því að fá margháttaðar upplýs- ingar í samþjappað og aðgengilegt form. Og þar er margt harla athyglisvert, hvort sem það hefur birzt einhversstaðar áður. Til dæm- is klausa úr bréfi sem Kjarval skrifar vini sínum, Guðmundi W.Kristjánssyni í apríl 1929 og gefur þar til kynna þau tímamót, sem framundan eru hjá honum: ...hefi jeg nú í hyggju að leggjast út- það þýðir að gjörast útilegumaður- og stunda málverk mitt einn - við vernd alnáttúru, og sjá svo til hvað setur. Habitus skal til als nokkur, og mun ég nú breyta meira frá alf- aravegi en oft áður. Hvað af slíku leiðir vit- um vjer einungis í huganum enn svolítið.“ Ástæða er líka til að staldra við niðurstöðu Kristínar, þar sem hún segir m.a.svo: „Sé litið yfir þetta frjóa mótunarskeið á ferli Kjarvals, sem árin fram til 1930 voru, má sjá að ferill hans lýtur ekki hefðbundnum lögmálum. Kjarval takmarkar sig ekki við eina stefnu og fylgir henni eftir, heldur sýna verk hans fram á að flest það er hann komst í snertingu við vakti áhuga hans og kallaði á skoðun og útfærslu. Þannig má sjá að hann er að vinna natúralistísk, kúbísk og expressjónistísk verk samtímis. Frumleiki hans felst í óvanalegri úrvinnslu mismunandi áhrifa, en sýnt hefur verið fram á hvernig hann oft tvinnar saman gjörólíkar hugmynd- ir og stílgerðir svo sem stílbrigði úr dönskum módernisma og hugmyndir frá WiIIiam Blake eða myndbyggingu endurreisnartímabilsins og stílbrigði impressjónismans. Hugarflugi hans og sköpunarkrafti virðast engin tak- mörk sett og sætti hann því ámæli fyrir vinnubrögð sín í hinu þröngsýna, íslenska listaumhverfi. “ GfSLI SIGURÐSSON 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.