Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1995, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1995, Síða 8
ÞETTA er staðnað þjóðfélag sem Carlo Levi lýsir í bókinni. Verkmenning bændafólksins er frumstæð. í þorpinu ríkja embættismennirnir, lítilsigld og úrkynjuð stétt, sem kúgar bændurna sér til framdráttar. Bændamenning án landamæra Stundum kom ég við í lítilli enskri bókabúð, The Corner Bookshop, við Via del Moro í hinu forna Trastevera hverfi í Róm sumarið 1993. Þar eru hellulagðar göturnar svo þröngar að bílamir strjúkast við mann. Eigandi bókaverslunarinnar Um Skáldsögu Carlo Levi, Kristur nam staðar í Eboli, sem Qallar um fátæka og kúgaða bændur á Ítalíu, en bregður ljósi á hvað bændamenning, bæði hér á landi og annarstaðar, var og er í rauninni lík. Bjartur í Sumarhúsum á sér víða hliðstæður. Eftir GERÐI STEINÞÓRSDÓTTUR var farinn að kannast við mig. Þetta var ensk kona sem hafði búið í Borginni eilífu í tuttugu ár. Ég keypti ítalskar skáldsögur, vissi að ekkert er betra til að kynnast einni þjóð en lesa bókmenntir hennar. Eitt sinn sagði hún við mig: „Ég skal segja þér hvaða ítalska bók ég met mest. Það er Krístur nam staðar í Eboli. “ Og auðvitað keypti ég bók- ina, sló upp í henni og las:“ „Bændamenning- in er menning án ríkja. Hernaður hennar getur ekki orðið annað en þessar skyndiupp- reisnir (þarna er verið að vísa í bændaupp- reisnir). Og þeim lyktar alltaf og óhjákvæmi- lega í algerum ósigri. En þessi menning held- ur samt eilíflega áfram að lifa og gefur sigur- vegurunum ávexti jarðarinnar, og hún tekur KÁPAN á bók Carlo Levi, Kristur nam staðar í Eholi. aftur upp hrynjandi sína, jarðneska guði sína og tungu sína.“ Höfundurinn, Carlo Levi, fæddist í Torino á Norður-Ítalíu árið 1902, sama ár og Hall- dór Laxness. Hann var læknir að mennt, en helgaði sig málaralist. Bækur þær sem hann skrifaði eru endurminningar hans, ekki skáld- sögur. Carlo Levi var gáfaður hugsjónamað- ur, mikill andstæðingur fasisma og var oft fangelsaður eða sendur í útlegð. Krístur nam staðar í Eboli er pólitískt verk sem fjallar um þorpið Gagliano og óbærilegar aðstæður kot- bændanna í Lúkaníu, afskekktu og fátæku héraði á Suður-Ítalíu, þar sem höfundur af- plánaði útlegð 1935-1936. Bókin kom út á Italíu árið 1945 eftir fall Mussolini. Hún hef- ur verið þýdd á fjölmargar þjóðtungur þar á meðal rússnesku, japönsku, hebresku og ís- lensku. Hér á landi kom bókin út hjá Heims- kringlu í þýðingu Jóns Óskars árið 1959. Heiti bókarinnar Kristurnam staðar í Eboli er bæði bókstaflegt og táknrænt. í reyndinni fór Kristur ekki lengra en til Eboli, í tákn- rænni merkingu höfðu bændurnir gleymst. Þetta er staðnað þjóðfélag. í þorpinu ríkja RITHÖFUNDURINN Carlo Levi, f. 1902. Hann nam læknisfræði, en sneri sér að málaralist og bók- menntum. embættismennirnir, lítilsigld og úrkynjuð stétt sem kúgar bænduma sér til framdráttar. Þarna geisar malarían linnulaust. Viðleitni höfundar, læknisins, til að bæta heilbrigðis- ástandið í héraðinu er litin hornauga og svo fer að hann er settur í bann af yfirvöldum. Margir bændur höfðu tekið sig upp vegna fátæktar og farið til Ameríku en þeir aðlöguð- ust ekki nýju samfélagi þar. Margir sneru því aftur þegar kreppan skall á 1929. í kofum bændanna var að finna ljósmynd af Rpose- velt, en enga mynd af ítölsku frelsishetjunni Garibaldi. Bændurnir hafa rótgróna andúð á höfuðborginni. Þeir eiga ekki von á neinu góðu þaðan. Róm er höfuðborg höfðingjanna: „Höfðingjamir í Róm vilja að við deyjum eins og hundar“. Alþjóðleg er sú hugmynd að sveitin göfgi en borgin spilli. Kristur nam staðar í Eboli er þar engin undantekning. Þrátt fyrir eymd, fátækt og menntunarleysi er eins og hin nána snerting við jörðina veiti næringu, þroska og reynslu. Carlo Levi segir um sveitadrengina: „Þeir vom yfirleitt miklu greindari og bráð- þroskaðri en jafnaldrar þeirra í borgunum. Þeir vom skilningsgóðir, fullir af lærdóm- slöngun og aðdáun á öllum þeim undmm, sem veröldin bjó yfir.“ Og gestrisnin er bændunum í blóð borin. Það er eitthvað fomaldarlegt, óbreytanlegt og eilíft sem einkennir tilveru þeirra. Samúð höfundar er öll með bændum og andúðin á ráðamönnum sterk. í Íok bókarinn- ar leitast Carlo Levi við að skilgreina vanda- málið og leita úrlausna. Hann gagnrýnir stjómmálamenn fyrir yfirborðslegt viðhorf til vandamálsins, telur sjálfur að vandinn sé af þrenns konar toga: Af menningarlegum toga, sem felst í mun borgar og sveitar. Menning bændanna mun bíða lægri hlut þótt hún lifi áfram undir hjúpi þolinmæðinnar. Síðan er vandinn af efnahagslegum toga, það er vandi fátæktariniíar. Carlo Levi telur að sá vandi sé að miklu leyti afleiðing af framfaravið- leitni ríkisins, sem taki rangar ákvarðanir. Hann útskýrir þetta nánar: Suður-Ítalía hent- ar fyrir skóg og beitilönd en stjórnvöld vilja að bændur rækti hveiti í jarðvegi sem er ekki til þess fallinn. Þannig hefur skógurinn verið höggvinn, árnar hafa þornað og skepn- unum hefur fækkað. Að lokum er það félags- lega hliðin. Höfundur telur að mesti óvinur bændanna sé ekki stórbændurnir heldur hin úrkynjaða valdastétt þorpanna. Það sé óhugs- andi að leysa vandamál Suður-Ítalíu nema setja þá stétt af og láta aðra taka við. Bændumir áttu sínar jarðir eins og íslenskf kotbóndinn. En þeir voru krafðir um óheyri- lega skatta. Það vora teknar rangar ákvarðan- ir sem eyðilögðu í stað þess að byggja upp og þeir voru sviptir allri heilbrigðisþjónustu. Lausn höfundar á vandamálinu er skýr: Hann vill sjálfsstjórnarfélag bænda þar sem menning þeirra nýtur jafnréttis við aðra. Það kom mér á óvart hvað ég kannaðist við margt úr okkar eigin menningu, úr þús- und ára sögu þjóðarinnar, í þessari bók: Þarna trúa menn á örlögin og beygja sig undir þau. Þarna lifa goðsögur, þjóðsögur og ævintýri. Þarna sveijast menn í fóstbræðralag eins og gert var hér á söguöld og þau bönd era ster- ari en fjölskylduböndin.-Þarna eru ijölkunnug- ar konur sem fara með særingaþulur og búa til töfradrykki, og era sumar hveijar eins og fornkonur: „Andlitið hafði afarsterk fornalda- reinkenni, ekki í sama skilningi og grísk eða rómversk myndastytta, heldur í ætt við dular- fyllri og grimmilegri forneskju, sem alltaf hefur sprottið upp úr sömu jörðinni, óskyld mönnunum en tengd moldinni." Nokkra athygli hefur vakið í fjölmiðlum hér heima að bandarískur dálkahöfundur, Brad Leithauser, skrifaði í sumar grein í The New York Review of Books um Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness þar sem hann ger- ir þá játningu að það sé bók lífs hans. Leit- hauser riljar upp þegar hann lauk við lestur bókarinnar síðla dags á kaffíhúsi í Róm, grúfði sig yfir blaðsíðurnar, djúpt snortinn. Sjálfstætt fólk fjallar einmitt um íslenska kotbóndann, er hápólitískt verk, mótað af kynnum Laxness af landbúnaðinum í Sovét- ríkjunum. Laxness skrifaði þessa mögnuðu bók, sem Peter Hallberg kallar eina mestu skáldsögu norrænna bókmennta, á árunum 1933 -1935, hluta hennar raunar á Ítalíu. En Leithauser sér ekki pólitíkina í verkinu heldur er það hin stórbrotna persónulýsing Bjarts í Sumarhúsum og samband hans við Ástu Sóllilju sem heillar hann. Þessar tvær bækur um bændamenninguna og kotbóndann eru sprottnar úr sama tíma. Á bændamenn- ingin sér engin landamæri? „Árstíðirnar heilsa stritandi bændum eins nú á dögum og þijú þúsund árum fyrir Krist“ , skrifar Carlo Levi. Ég spurði aldrei eiganda bókabúðarinnar í Róm hvers vegna Krístur nam staðar í Eboli, þessi fimmtíu ára gamla bók, væri bókin hennar. En við lestur bókarinnar sann- færðist ég um að bændamenningin er menn- ing án landamæra. Höfundur er cand.mag. í íslenskum bókmennt- um.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.