Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Blaðsíða 4
a) UÓSMYND af klettanesinu þar sem vígi Þórólfs á að hafa verið. Horft suður yfir gljúfur Friðmundarár. „Þórsham- arinn “ í berginu er fyrir miðri mynd. b) Teikning til skýringar sem sýnir túlkun höfundar á klettamyndinni. „Hamarinn“ y ið F riðmundar á INN AF Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu gengur afdalur sem nefnist Forsæludalur, en hann er vett- vangur mikilla og furðulegra atburða í fomsögun- um. Hann liggur í nokkuð beinu framhaldi af Vatnsdalnum til landsuðurs, og eftir honum rennur Þessi skýringartilraun gengur að sjálfsögðu út frá því að Vatnsdæla saga sé þesskonar texti sem kalla má launsögn, en þar er tvíræðni máls og sagnahefðar beitt þannig að lesa má hulin fræði á bak við hina yfirborðslegu frásögn. Eftir KARL GUNNARSSON Vatnsdalsáin. Innsti bærinn er samnefndur dalnum, en þar innar þrengist dalurinn og áin rennur í gljúfrum. Rúmum tveimur kíló- metrum innan við bæinn rennur Friðmund- ará úr austri í Vatnsdalsá, og er í djúpu gljúfri við ármótin, Friðmundarárgili. í júnímánuði 1992 var ég staddur inni við Friðmundará, en erindi mitt á þessar fáfömu slóðir var að kanna hvort ég sæi nokkur ummerki eftir Þórólf heljarskinn, svo sem virki hans þar á klettanesinu sem seg- ir frá í Vatnsdæla sögu. Þar sem ég stóð og skyggndist suður yfir gljúfrið, kom ég auga á óvænta mynd í klettaveggnum þar á móti. Mjó skora gengur skáhallt inn í bergið ofan frá brún og myndar drang sem er að nokkru skilinn frá klettaveggnum. Þessi klettastandur líkist uppreiddum Þórs- hamri. Hamarinn er uppréttur með stuttu digru skafti, og um það heldur krumla mik- il sem virðist koma skáhallt út úr bjarginu. Á mynd la) er ljósrnynd sem ég tók þá af fyrirbærinu, en b) sýnir einfalda teikningu af útlínum þessarar myndunar, eins og ég skynja hana. Hamarshausinn er upptypptur eða með strýtulagaðan koll, af sömu gerð og sá forni helgi- eða vemdargripur sem sýndur er á 2. mynd. Við þessa sjón varð mér skyndilega ljóst hvemig skilja mætti hina ótrúlegu og mót- sagnakenndu sögu um fyrmefndan Þórólf og samskipti hans við Vatnsdælinga, enda væri nafn hans valið til að minna á Ása- Þór sjálfan. í Vatnsdælu er Þórólfur kynnt- ur til sögunnar tæpitungulaust: „Þórólfur hét maður og var kallaður helj- arskinn. Hann nam land í Forsæludal. Hann var ójafnaðarmaður mikill og óvinsæll. Hann gerði margan óskunda og óspekt í hérað- inu. Hann gerði sér virki suður við Frið- mundará skammt frá Vatnsdalsá við gjá eina og gekk nes í milli gjárinnar og árinn- ar en hamar stór fyrir framan. Grunaður var hann um það að hann mundi blóta mönnum og var eigi sá maður í dalnum öllum er óþokkasælli væri en hann. “ Orðin „nes í milli gjárinnar og árinnar" eiga greinilega við tunguna eða hamranesið milli gljúfurs Friðmundarár, sem kalla má gjá, og Vatnsdalsár. Það verður ljósara síð- ar í sögunni að virkið á að hafa verið á þessu nesi. Lýsing höfundar á þessum landn- ámsmanni er furðulega ýkjukennd, og hann er gerður að hreinni ófreskju. HVER NAM FORSÆLUDAL? Ingimundur nam Vatnsdal og bjó á Hofi. Hann var forfaðir valdaættar Vatnsdælinga, en sagnaritarinn er þeim mjög hliðhollur og lýsir Ingimundi sem hinum mikla leið- toga héraðsins. Þegar þess er gætt hve Iand- nám Þórólfs er tiltölulega lítið og rýrt, hlýt- ur það að teljast ákaflega ósennilegt að hann hafi haft bolmagn til að komast upp með slíkan ósóma í næsta nágrenni við héraðshöfðingjann. Reyndar er það ein- kennilegt að landnám Ingimundar, sem var mjög stórt, hafi ekki líka tekið yfir þennan aMal. í Landnámabók (Sturlubók) er hvergi minnst á Þórólf heljarskinn, en þar segir að landnámsmaður í Forsæludal hafi heitið Friðmundur. Þessu nafni bregður þar aftur fyrir í upptalningu á átta fylgdarmönnum Ingimundar, og er sá Friðmundur sagður vera þræll. Ekki er ljóst hvort um sama manninn sé að ræða, og allt er þetta ein- kennilegt. Fékk þrællinn leyfi til að nema land, eða voru þarna tveir menn með þessu sjaldgæfa nafni? Nú verðum við að hafa í huga að þær gerðir Landnámabókar sem varðveist hafa eru engan veginn sjálfstæðar frumheimildir. Sturla Þórðarson tók efni úr Islendingasögum í bók sína, og þar á meðal er langur útdráttur úr Vatnsdæla sögu, en í sögunni fyrirfinnst einmitt keimlík upptaln- ing á fylgdarmönnum Ingimundar. (Reyndar er hún í ýmsu frábrugðin og er þar víxlað þrælum og frjálsum mönnum, en það er álit fræðimanna að þessi setning í Vatns- dælu hafi spillst í uppskrift, og að hún hafi upphaflega verið lík þeirri sem lesa má í Landnámu). Hér er ekki vert að rekja þenn- an samanburð í smáatriðum, en líklegast er að Sturla hafi haft fyrir sér landnámalýs- ingu sem nefndi Friðmund en ekki Þórólf, og hafí honum þótt það trúlegra en furðu- sagan í Vatnsdælu, en síðan tekið þaðan upptalningu fylgjaranna og ekki hirt um að skýra hvemig stóð á því að Friðmundur var þar sagður vera þræll. Það verður einnig að teljast líklegt að höfundur Vatnsdælu hafi þekkt til Frið- mundar landnámsmanns. Við sjáum að hann kannast við nafnið í sambandi við fýlgjara Ingimundar og hann þekkir örnefnið Frið- mundará. Að líkindum hefur hann haft und- ir höndum sömu upplýsingar og hinar fyrstu landnámalýsingar byggðu á. Hvemig stend- ur þá á því að hann hefur falið Friðmund en leitt fram hinn feiknlega Þórólf, sem hann virðist hafa svo mikla andúð á? Þórólfur Rekinn Út í sögunni stingur Þórólfur aftur upp koll- inum löngu síðar, þegar Ingimundur er dauður og synir hans teknir við mannaforr- áðum, þá enn í fullu fjöri og við sama hey- garðshornið: „Þórólfur lagðist á fé manna og gerðist hinn mesti þjófuF. Hann settist í virki sitt við Friðmundará, og vom nokkr- ir illvirkjar með honum, „allir hans jafningj- ar eða verri“. Þeir Ingimundarsynir, Þorsteinn, Jökull og Þórir, söfnuðu þá liði og fóm að Þórólfi inn að Friðmundará. Þar leist Þorsteini ekki á blikuna og mælti: „Eigi veit ég hversu vér fáum að sótt virkinu fyrir árgljúfrum þessum“. Hér er Þorsteinn gerður furðu ráðalaus, sem annars var þó skynsamastur bræðra sinna. Að sjálfsögðu er ekki hægt að sækja beint yfir hyldjúpt gljúfrið, og er Jökull látinn finna upp á því bragði að krækja upp fyrir gljúfrið og koma aftan að virkismönnum. En nú má spyrja: hafði höf- undur einhveija ástæðu til að setja á svið þetta hik við árgljúfrið - láta þá standa og mæna suður yfir gjána? Jú, þeir voru þar staddir í sömu spomm og ég var júnídaginn góða þegar klettamyndin af Þórshamrinum blasti við mér. Lausn gátunnar er þessi: Þórólfur er ekkert annað en hamarinn og krumlan í berginu, eða e.t.v. frekar vættur í berginu sem birtir tilvist sína með þessum ummerkjum. í sögunni era þeir bræður leiddir á þann eina stað þar sem þessi jar- teikn era sýnileg. Jökull sótti djarflega fram og komst í virkið en sá í fyrstu hvergi Þórólf því hann var nefnilega kominn ofan í eina af svoköll- uðum „blótgröfum“ sínum. Síðan flæmdist hann upp úr gröfinni og hljóp úr virkinu út á svokallaða Grátmýri, þar sem hann grét, gungan, áður en Jökull drap hann. Þessar blótgrafir Þórólfs era einstök fyrirbrigði að sögn fræðimanna, og þekkjast hvergi ann- ars staðar í sögunum. Einfaldast er að skýra þær sem kænskubragð og uppfinningu höf- undar, því hann þurfti að gefa til kynna að bergbúinn Þórólfur hafi verið flæmdur upp úr jörðinni og af staðnum. Sú er niðurstaða mín að kletturinn við Friðmundará hafí verið merkilegur helgi- staður fyrir hina fornu Vatnsdæli, og þeir trúað að þar byggi einhvers konar kraftur eða vættur, í tengslum við Ása-Þór. Þetta hefur hinn kristni höfundur Vatnsdælu vitað og skilið, og þess vegna hefur hann svo mikla andúð á þessu fyrirbæri. Samkvæmt þessum skilningi hefur hvorki Friðmundur né Þórólfur verið landnámsmaður, heldur era þeir í raun sama fyrirbærið, bergbúinn við Friðmundará, og heitir áin eftir honum. Friðmundur er reyndar ágætt dulnefni eða gælunafn á krumlunni með hamarinn, enda tók Þór oft hamar i mund til þess að friða heiminn fyrir ágangi jötna. Þórólfs-nafnið hefur höfundur líklega sjálfur smíðað til þess að dylja betur frásögnina, en gefa þó í skyn eðli fyrirbærisins. Þessi skýringartilraun gengur að sjálf- sögðu út frá því að Vatnsdæla saga sé þess konar texti sem kalla má launsögn, en þar er tvíræðni máls og sagnahefðar beitt þann- ig að lesa má hulin fræði á bak við hina yfirborðslegu frásögn. Þetta er nýr skilning- ur á Islendingasögunum, sem Einar Pálsson launsagnafræðingur hefur þróað. í þessu Ijósi má t.d. sjá nýja merkingu í staðarlýs- ingu Vatnsdælu, sem vitnað var í hér fyrr: „... og gekk nes í milli gjárinnar og árinn- ar, en hamar stór fyrir framan.“ Er hér ekki verið að lýsa klettamyndinni af Þórs- hamrinum sem stendur í raun framan við bergið? Þessi orð eru meistaralega tvíræðin, og hér hefur höfundinum tekist óvenju vel upp - oft era stílbrögð hans heldur klunna- leg. I launsögn sinni gefur höfundur í skyn að hinir heiðnu Ingimundarsynir hafi haft andúð á Ása-Þór, eða fulltrúa hans í jörð- inni. Það er íhugunarvert hvort þetta sé einungis óskhyggja og sögufölsun höfund- ar, eða hvort nokkur fótur sé fyrir þessum sögum. Það mætti hugsa sér að hræringar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.